Morgunblaðið - 19.03.2000, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 19.03.2000, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 B 5 Arið 2030 i I r munt þu geta gert * ótrúlegustu Vertu viss um aö þú hafir efni S?lt|8§ framtíðin bíðureftir þér www.iandsbanki.is LANDSBRÉ ¥ Lífeyrísspamaður Landsbankans Fjölbreytt val í lífeyrissparnaói: Lífeyrisbók Landsbankans: 2,2°/o viöbótarlífeyrissparnaður Fjárvörslureikníngar Landsbréfa: 2,2% viöbótarlífcyrissparnaður Íslenskí lífeyrissjóöurinn: 2,2% viðbótariífeyríssparnaður Islenski lifeyrissjóðurínn: 10% lögbundið lágmarksiðgjald Lífís lífeyrissöfnun: 2,2% viðbótarlifeyrissparnaður Kapp best með forsjá Kapp er best með forsjá í dorg- veiði eins og öðrum veiðiskap. Ein- Landsbankinn Bctri banki hverju sinni voru þrír unglingar á ferð um hávetur við Vífilstaðavatn og var stöng höfð með, svona til von- ar og vara. Vakir eru við kalda- vermsl nærri austurbakkanum og þar höfðu strákarnir séð bleikjur fá- um dögum áður. Ein vökin var sér- lega veiðileg, enda hafði gráhegri setið við hana þegar þá bar að og við nánari athugun voru vænar bleikjur á sveimi. Hegrinn var enn við vökina er þeir komu á ný, en hann forðaði sér upp í grenitré við nærliggjandi sum- arbústað. En á leiðinni út að vökinni Morgunblaðið/Árni Sæberg Aflinn. Gómsætur silungur. Islandsspónn smellpassaði ofan í þetta loftgat og án þess að hugsa renndu drengirnir spæninum eftir Mars er einn helsti dorgveiðimánuð- urinn, en þó verður að segjast eins og er, að umhleypingarnir síðustu vikur hafa ekki boðið upp á tilþrif dorgveiðimanna. Þó eru æði margir í startholunum ef marka má ummæli kaupmanna sem selja dorgveiðibún- að. Þeir eru yfirleitt á einu máli um að dorgveiðimönnum sé sífellt að fjölga. Nú er svo komið að tæki til dorg- veiða eru orðin afar fullkomin og hönnuð þannig að mikla ánægju má hafa af slíkum veiðiskap. Þetta eru samt allt önnur handtök en við hefð- bundna silungsveiði í ám og vötnum, enda setið við vök með stutta stöng. Stofnkostnaður er nokkur fyrir veiðimenn sem ekki hafa lagt dorg- veiði fyrir sig fyrr. En eins og með margt annað, þá er breytilegt hvað menn vilja leggja í fyrstu skrefin á dorgbrautinni. Best er að gefa sig á vald sérfræðingunum í veiðivöru- verslununum og gera svo upp hug sinn. Vísindi út af fyrir sig Menn gætu haldið að dorgveiði væri leikur einn, en sannast sagna er þetta dyntóttur veiðiskapur að ekki sé minnst á kalsemina. Ef menn kunna ekki að klæða sig end- ast þeir ekki lengi úti á ísnum, sama hvað sólin skín glatt. Hvernig á svo að veiða silung á dorgi? Eflaust hafa vanir dorgveiðimenn ýmsar leiðir til þess, nota eina aðferð ef önnur bregst, eins og í venjubundnum veiðiskap. Óskar Pálsson heitir vanur dorg- veiðimaður sem ritaði grein í tíma- ritið Veiðimanninn fyrir þremur ár- um. Við skulum kíkja aðeins á hvað hann hefur fram að færa: - Hægt er að stunda dorgveiði í flestum silungsvötnum, en ég ráð- legg byrjendum að fara í vötn sem þeir þekkja og vita hvar fiskurinn heldur sig. Það sparar tíma og holu- borun. í djúpum vötnum er gott að byrja að reyna við marbakkann, þar liggur fiskurinn oftast. I grunnum vötnum getur fiskurinn verið víða, en ráð er að reyna þar sem lækir eða ár falla í vatnið, þar fær silungurinn súrefni. Reynsla mín er sú að bleikja heldur sig við gróðurbotn en urrið- inn fremur við moldar- og grjótbotn. Þetta er þó misjafnt eftir vötnum." Síðar lýsir Óskar því hvernig hann borar og alveg sérstaklegá að hann noti sérstaka ískröflu til að moka íshröngli ofan af holu. Sumir noti nefnilega ísborinn sjálfan til að hreinsa íshraflið, rykki því upp úr með bornum, en Óskar segir vatnið síðan renna aftur niður í holuna og kæla yfirborðsvatnið, sem aftur fæli flskinn frá. Sérviska Óskars gerir honum að bora þrjár holur í þríhyrn- ing og síðan mjatlar hann rækjum og gulum maísbaunum ofan í holurn- ar til að lokka bráðina að. Síðan seg- ir kappinn: - Silungurinn sækir í ljósið frá holuopunum. Þegar þið rennið í eina holuna, hyljið þá hinar því að of mörg ljósop rugla fiskinn. Veiðar- færið sem hefur reynst mér best samanstendur af Islandsspæni sem ég hef tekið þríkrækjuna af, en fest þess í stað með girni flugu nr. 8 og þríkrók númer 10, tíu sentimetrum neðar. Spónninn dregur fiskinn að með sjónrænum hætti, hann minnir á særðan físk þegar keipað er. Bjúg- laga silfraðir spónar hafa gefið mér mest. Ég nota skærlitar, mikið klæddar flugur með langt skott, gul- ar og rauðar, gi’ænar og rauðar. Ég beiti rækju, ekki of stórri, sem rétt hylur ki’ókana á þríkrækjunni, bleikjan er svo kjaftsmá." Tími dorgveiði í algleymingi ísgöngunum þar til hann kom í vatn- ið undir ísnum, beinlínis við nefið á bleikjunni. Bleikjan, sem var nærri 2 pund á að giska, tók á stundinni og nú voru góð ráð dýr! Eftir að hafa staðið ráðþrota um hríð með bleikjuna spriklandi hálfan metra undir fótum sínum, datt ein- um drengjanna loks í hug að hlaupa að sumarbústaðnum fyrrgreinda og athuga hvort þar fyndist eitthvað sem brjóta mætti ísinn með. Hann skilaði sér kortéri seinna með væn- an stálbita. Síðan voru þeir lengi að hjakka á ísnum og loks var komin lítil vök. Bleikjan hékk enn á önglin- um og var löngu hætt að ólmast. Þegar vökin var klár lagðist einn drengjanna á ísinn, fálmaði með hendinni undir hann og náði bleikj- unni fljótt upp úr vökinni. Að þessu ævintýri loknu sneru þeir sér loks að aðalvökinni og undii’ árvökulu eftir- liti gráhegrans veiddu þeir þrjár tveggja punda bleikjur til viðbótar. sáu þeir væna bleikju liggja við ör- mjótt loftgat á ísnum, sem var hátt í hálfur metri á þykkt. Sjö gramma Morgunblaðið/Árni Sæberg Dorgað á tílfsvatni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.