Morgunblaðið - 19.03.2000, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 19.03.2000, Qupperneq 28
MORGUNBLAÐIÐ 28 B SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 Santana- bylgjur leggja undir sig heiminn Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Carlos Santana þakkar áheyrendum í Maracaná leikvanginum í Ríó de Janeiro 1991. Gítarleikarinn snjalli Carlos Santana er nú vinsælli en nokkru sinni. Árni Matthíasson rekur sögu mannsins og hljóm- sveitarinnar en viðtökur nýlegr- ar plötu eru með mestu ævin- týrum rokkheimsins síöustu misseri ogfram á þetta. Ú VAR TÍÐIN að gítarleikarinn Carl- os Santana var átrunaðargoð allra hippískra tónlistarvina og hljómsveit hans, Santana, með vinsælustu hljóm- sveitum. Með tímanum hafa hippamir snúið sér að öðru, verðbréfabraski og vefsíðugerð, en Santana hefur haldið áfram í tónlist þrátt fyrir minnkandi gengi. Eitt helsta ævintýrið í rokk- heiminum síðustu misseri var svo þrítugasta og þriðja plata Santana, Supematural, sem selst hefur í bílfórmum og selst enn; er komin vel á annan tug milljóna eintaka um heim allan og gæti eins komist á þann þriðja. Carlos Santana fæddist í smáþorpi, Autlán de -^Javarro, skammt frá Puerto Vallarta í Mexíkó í september 1947. Faðir hans var mariachi-tón- listarmaður, lék á fiðlu, og kenndi drengnum tónfræði og að leika á fiðlu og fimm ára gamall var Santana farinn að leika með föður sínum. Atta ára kynntist hann rokki í útvarpinu og þeg- ar hann komst í tæri við rafgítar og komst ekk- ert annað að; hann tók að leika rokk sem mest hann mátti og stældi á sama tíma gítarleikara eins og Aron T-Bone Walker, B.B. King og John Lee Hooker, en margir hafa orðið til að benda á áhrif af fiðlukennslunni á gítarstílinn. Fjölskyldan fluttist til Tijuana, sem var í miklum uppgangi á sjötta áratugnum og Sant- ana fór snemma að harka þar sem gítarleikari. Sem unglingur lék hann með ýmsum rokksveit- um, þeirra helstri T.J.’s, sem lék hreinræktað vagg og veltu í pútnahúsum í Tjjuana. Þegar _ Jjölskylda Santana fluttist til San Francisco í upphafi sjöunda áratugarins varð hann eftir í Tijuana um tíma, en fluttist síðan líka til Kali- fomíu, enda þótti honum tónlistin sem barst þaðan spennandi. Ótrúlegur gróskutími Sjöundi áratugurinn var ótrúlegur grósku- tími vestur í Kalifomíu og grúi merkilegra sveita kom fram á þessum ámm sem léku fjöl- breytta tilraunakennda tónlist. Santana hefur sagt svo frá að það hafi valdið straumhvörfum í lífi sínu er hann sá B.B. King á tónleikum í Fill- more tónleikahöllinni frægu og hann hafi ákveð- ið að stunda tónlist sér til framfærslu eftir það, en fram að því var tónlistin aðeins áhugamál. I San Francisco kynntist Santana öðmm tón- listarmönnum og tók að leika tónlist í óformleg- um hópi þar sem spunalotur stóðu heilu nætum- tir. í klíkunni með honum vom þeir David Brown og Gregg Rolie, en þegar við bættust trymbill, Rod Harper, og hryngítarleikari, Tom Frazer, var komin fullskipuð hljómsveit. Eftir nokki'ar vangaveltur varð nafnið Santana Blues Band fyrir valinu, en að sögn lagði Santana til nafn sitt að þrábeiðni félaga hans. Tónlistin sem Santana Blues Band lék var all- frábmgðin því sem menn kölluðu blús í þá daga, afrísk hrynskipan, fönkfrasar skotnir suður-am- erískri taktsósu og allt kryddað með kraftmiklu rokki. „Blues Band“ viðskeytið hvarf og snemma og þegar sveitin lék á sínum fyrstu eig- inlegu tónleikum í Fillmore West 1968 varð allt |fj|'it]aust. Vinsældimar urðu til þess að Santana var boðið að spila á Woodstock-hátíðinni, sem þótti nokkuð djarft í ljósi þess að hún hafði ekk- ert gefið út. Það kom þó ekki að sök, því Santana sló rækilega í gegn á hátíðinni, eins og þeir muna sem séð hafa myndina eða heyrt plöturn- ar sem út vom gefnar með upptökum af hátíð- inni. Sérstaklega er mönnum eftirminnilegt lag- ið langa Soul Sacrifice þar sem Michael Shrieve ^íór á kostum á trommusettinu. Woodstock-tónleikarnir urðu til þess að sveit- inni var boðinn útgáfusamningur hjá Columbia og ekki leið langur tími þar til fyrsta breiðskífa Santana, samnefnd sveitinni, kom út. Plötunni var vel tekið, seldist milljónasölu í Bandaríkjun- um og vel úti um allan heim. Hálfu ári síðar var önnm- plata tilbúin, Abraxas, og seldist enn bet- ur, en á henni er meðal annars það lag sem lifað hefur lengst af fyrstu verkum Santana, suðræn útgáfa af Fleetwood Mac-laginu Blaek Magic Woman. Þriðja Santanaskífan, sem hét einfaldlega Santana III, var spunakenndari en fyrri skíf- urnar, en seldist engu að síður vel, en um það leyti sem hún kom út höfðu talsverðar breyting- ar orðið á mannaskipan sveitarinnar og nokkuð Ijóst að Carlos Santana var sá eini sem telja mátti ómissandi í sveitinni. Þi'átt fyrir velgengnina var Carlos Santana ekki fyllilega ánægður með stefnuna sem líf hans hafði tekið, en hann heillaðist snemma af allskyns dulspeki, hvort sem um var að kenna dálæti hans á meskalíni og lýsergsýru, og eftir nokkrar vangaveltur komst hann í kynni við John McLaughlin, sem tekið hafði upp nafnið Mahavisnu og átrúnað á Sri Chimnoy. Ahrif frá McLaughlin má glöggt heyra á fjórðu skífu sveitarinnar, Caravanserai, sem er að segja samfelldur draumkenndur spuni með löngum snarstefjunarköflum gítar- og slagverksleikara og ber einna hæst framlag bráðungs gítarleik- ara, Neals Schons, sem veitti Santana verðuga keppni í ævintýralegum gítariimleikum. Einnig ber mjög á Michael Shríeve og Tom Coster, en sá síðarnefndi lék á hljómborð á skífunni. Um þetta Ieyti var Santana einnig genginn Sri Chimnoy á hönd, tók sér nafnið Devadip, og fór enn lengra í átt að spunakenndum djass- bræðingi. Hann gaf út plötur í samstarfi við McLaughlin og sólóskífur og þótt þær þyki vel heppnaðar tæknilega og athygliserðar um margt, dró verulega úr vinsældum sveitarinnar. Hún var þá reyndar að mestu orðin safn undir- leikara Carlos Santana frekar en eiginleg hljóm- sveit og þegar Amigos kom út 1976 voru þeir tveir einir eftir af upphaflegum liðsmönnum Carlos Santana og David Brown. Aftur í rokkaða fönktónlist Eftir tilraunamennskuna greip Santana í taumana, fékk sér nýja aðstoðarmenn og stýrði sveitinni aftur í rokkaða fónktónlist sem skilaði enn vinsælu lagi, She’s Not There. Hann var þó ekki búinn að leggja bræðinginn á hilluna og á næstu árum komu út skífur þar sem margir fremstu djasstónlistarmenn þess tíma komu við sögu, til að mynda þeir Herbie Hancock, Tony Williams, Ron Carter og Wayne Shorter. Margir muna eftir innleggi Santana í Live Aid-tónleikana fyrir fimmtán árum, sem þótti ekki ýkja spennandi en fagmannlegt. Til að ná kúrsinum aftui' hélt Santana heljarmikla tón- leika það ár þar sem allir fyrrum liðsmenn komu á svið, og það enginn smáfjöldi. Skífan sem fylgdi í kjölfarið tveimm- árum síðar, Blues for Salvador, þótti með bestu plötum Santana í fjölda ára og vann meðal annars til Grammy- verðlauna fyrir besta lagið, en einnig var safn- kassanum Viva Santana! vel tekið. Alls komu út með hljómsveitinni Santana sau- tján breiðskífur, sú síðasta, Lotus, kom út 1991. Fyrsta sólóskífan kom út 1972, en Santana tók þá upp tónleikaplötu með Buddy Miles. Hann gefur gefið út sólóplötur samhliða hljómsveita- plötum, en reyndar oft erfitt að greina á milli, og þannig má deila um hvort síðasta platan, Sup- ematural, sem er kveikja þessara skrifa, sé sóló- skífa eða hljómsveitarplata. Úr því verður ekki skorið hér. Annars eru plötur með Santana og/ eða Santana eftirfarandi: 1969 Santana, 1970 Abraxas, 1971 Santana III, 1972 Carlos Santana & Buddy Miles! Live!, 1972 Caravanserai, 1973 Welcome, 1973 Love, Devotion and Surrender, 1974 Illuminations, 1974 Borboletta, 1974 Lotus (kom ekki út vestan hafs íyrr en á tíunda ára- tugnum), 1976 Amigos, 1977 Festival, 1977 Moonflower, 1978 Inner Secrets, 1979 Oneness: Silver Dreams Golden Realities, 1979 Mara- thon, 1980 The Swing of Delight, 1981 Zebopl, 1982 Shango, 1983 Havana Moon, 1986 Beyond Appearances, 1985 Live, 1987 Freedom, 1987 Blues for Salvador, 1988 Viva Santanal, 1990 Spmts Dancing in the Flesh, 1992 Milagro, 1993 Sacred Fire: Santana Live in South Ameriea, 1994 Santana Brothers, 1995 Light Dance, 1995 Brothers (endurútgefin), 1997 Live at the Fill- more 1968 og 1999 Supematural. Eins og fram kemur gerði Santana útgáfu- samning við Columbia og var á mála hjá því fyr- irtæki allt til 1990, en þá bauðst honum að reka eigin merki undir vemdarvæng Polydor/Pol- ygram, sem freistaði hans eðlilega mjög, enda hugðist hann gefa út ýmislega þjóðlega tónlist og tónleikaupptökur úr eigin safni þar sem hann lék meðal annars með Jimi Hendrix, Bob Mar- ley og fleiri goðsögnum. Minna varð þó úr þeim útgáfum en lagt var upp með, en þrjár sólóskíf- ur sem hann gerði fyrir útgáfuna seldust þokka- lega. Upp úr samstarfinu slitnaði vegna áherslu- breytinga innan fyrii'tækisins og Santana gerði samning um eina plötu fyrir Miramar, sem er reyndar þekkt fyrir flest annað en plötuútgáfu. Ein plata kom í kjölfarið fyrir Island-útgáfuna og síðan var hann samningslaus. Útvarpsbylgjum breytt í Santana-bylgjur Hvatamaður þess að Santana var fenginn til liðs við Columbia var Clive Davis og meðal ann- ars þess vegna var Santana beðinn að taka þátt í heimildarmynd um Davis. Sú vinna varð til þess að þeii' endumýjuðu kunningsskapinn og nokkru síðar segir Davis svo frá að Carlos Sant- ana hafi komið að máli við sig og sagst hafa feng- ið boð um það frá yfímáttúrlegri veru, Meta- tron, að hann ætti að gera breiðskífu, til að breyta útvarpsbylgjum um allan heim í Sant- ana-bylgjur, tengja þannig sameindir ljóssins og endurraða sameindum hlustenda. Davis segist ekki hafa kippt sér upp við þetta, eftir áratuga starf í plötuútgáfu og samskipti við tónlistar- menn sé hann öllu vanur, en setti þau skilyrði að Santana ynni með ungum tónlistarmönnum sem Davis veldi. Allir sem Davis leitaði til voru til í tuskið, því þótt Santana hafi verið tíður gestur Hvai' eru þeir nú-dálka, þá naut hann enn virðingar koll- ega sinna fyrir tónlist og hljóðfæraslátt. Sam- starfsmennimir komu úr ýmsum áttum; Lauryn Hill, Dave Matthews, Wyclef Jean, Eagle Eye Cherry, Everlast, Eric Clapton og Rob Thomas. Það er mál manna að svo ólíkum hópi hefði seint tekist að vinna saman ef ekki hefði verið fyrir styrka stjóm Davis. Lagasmíðar gengu víst eins og í lygasögu og upptökur hratt og örugglega. Fyrsta lagið sem fór í spilun var Smooth með Rob Thomas og sló rældlega í gegn. Ekki leið á löngu að platan sigldi upp á toppinn vestan hafs þó sala utan Bandaríkjanna hafi verið rólegri. Þegar nær dró Grammy-verðlunum, sem em uppskeruhátíð tónlistariðnaðarins vestan hafs, var platan búin að seljast í hálfri sjöttu milljón eintaka þar í landi, sem þykii' vel að verki staðið og margfalt meira en nokkur átti von á. Á verðlaunahátíðinni sjálfri 23. febrúar sl. sankaði Santana síðan að sér styttunum, fékk níu verðlaunagripi; fyrir smáskífu ársins, plötu ársins, lag ársins, besta sungna poppsamstarf, besta popplag án söngs, besta hljósmveitar- flutning rokklags, bestu rokkplötu og besta rokksveitarflutnings sungins lags. Verðlauna- regnið skaut plötunni aftur efst á vinsældalist- ann vestan hafs og þegar þessar línur eru ritað- ar hefur platan selst í níu milljónum eintaka vestan hafs og selst enn í um 400.000 eintökum á viku. I Evrópu hefur salan einnig tekið vemlega við sér; að sögn hefur hún selst í ríflega íjórum milljónum eintaka þar og fróðir herma að hún sigli nokkuð létt yfir tuttugu milljón eintök þeg- ar upp verður staðið, sem verður að teljast hai'la gott af tónlistarmanni á sextugsaldri sem sendi frá sér fyrstu skífuna fyrir 31 ári.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.