Morgunblaðið - 23.03.2000, Síða 42
42 FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000
-5-----------------------
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Að hafa
áhrif
\V
Þegar auglýsingar ífjölmiðlum íþessari
kosningabaráttu eru skoðaðar kemur í
Ijós að fleiri jusu vatni á kosningamyll-
ur en Öryrkjabandalagið, þótt ekki hafi
verið til þess tekið á þingi.
Eftir Karl
Blöndal
EINN dag á fjögurra ára fresti
höfum við völdin. Völd okkar á
þeim degi eru þó ekki meiri en
svo að við fáum að velja milli
nokkurra matseðla, sem settir
eru fram, oftast undir heitinu
stefnuskrá, af þeim stjórnmála-
flokkum, sem í framboði eru.
Stundum líkar okkur ekki allt
sem er á matseðlinum hjá þeim,
sem við ætlum að kjósa, og oft
vitum við að matseðillinn á eftir
að breytast þótt við séum búin að
velja réttina á honum. Það hefur
hins vegar ekki talist tiltökumál
. að reyna að hafa áhrif á það
rivernig matseðillinn er saman
settur. Þar til nú.
Undanfarna daga og vikur
hafa spjótin beinst að Óryrkja-
bandalaginu vegna auglýsinga-
VIÐHORF sem'fSfram
undir kjörorð-
inu „Kjósum
við óbreytt
ástand?" síðustu dagana fyrir al-
þingiskosningarnar í maí á liðnu
ári. Því hefur verið haldið fram
i öað með þessum auglýsingum hafi
átt að ausa vatni á myllu Sam-
fylkingarinnar í kosningabarátt-
unni, þótt ekki sé augljóst að hún
hafí sérstaklega notið góðs af
henni í kosningunum og jafnvel
megi færa rök að hinu gagn-
stæða. I þessari gagnrýni hefur
Öryrkjabandalaginu meðal ann-
ars verið legið á hálsi fyrir að
nota fé umbjóðenda sinna, sem
hljóti að hafa margvíslegar
stjórnmálaskoðanir, til að hygla
ákveðnu stjórnmálaafli.
Þegar auglýsingar í fjölmiðlum
í þessari kosningabaráttu eru
skoðaðar kemur í ljós að fleiri
jusu vatni á kosningamyllur, þótt
_£-ekki hafí verið til þess tekið á
þingi. Þar var meðal annars um
að ræða samtök þar sem einstak-
ir félagar höfðu sennilega lítið
um það að segja hvernig fé þeirra
var varið í auglýsingar og hvað í
þeim stóð, rétt eins og almennir
kjósendur verða flestir að fylgj-
ast með því utan frá þegar
stjórnmálamenn taka ákvarðan-
ir, sem snerta þeirra hagsmuni.
Landssamband fatlaðra gerð-
ist svo djarft að leggja spurning-
ar fyrir alla stjórnmálaflokka í
framboði. Spurningarnar báru
því ekki vitni að fatlaðir kysu
„óbreytt ástand“. Þar var meðal
annars spurt hvort flokkarnir
væru tilbúnir að styðja hug-
'-‘r myndir á borð við að hækka ör-
orkulífeyri um 20 þúsund krónur
í tveimur áföngum 1999 og tengja
hækkun bóta launavísitölu.
Hægur leikur er að túlka slík-
ar kröfur sem beinan áróður
gegn þeim, sem hafa haft tæki-
færi til að breyta hlutunum í
samræmi við þessar kröfur, en
hafa ekki gert það, það er vald-
höfum. Ósennilegt er að allir fé-
lagsmenn hafi verið spurðir áður
en þessi auglýsing var sett í fjöl-
miðla.
1. maí auglýsti Alþýðusam-
* band íslands á heilli síðu í Morg-
unblaðinu að leysa þurfi fjöl-
skyldur með lágar tekjur og
millitekjur úr þeirri kyrrstöðu-
gildru jaðarskatta, sem torveldi
þúsundum ungra fjölskyldna að
koma undir sig fótunum. Aftur er
verið að gagnrýna ríkjandi
1---------------------------------
ástand. Reyndar ber til þess að
taka að auglýsingin birtist á degi
verkalýðsins og hefði verið eftir
því tekið hefði ASÍ ekki auglýst.
A hinn bóginn var aðeins vika í
kosningar og vissulega var
ákveðinn tónn í boðskap þessara
regnhlífarsamtaka, sem senni-
lega eru þau fjölmennustu á
landinu þegar félagar allra aðild-
arsambandanna eru taldir.
Ef einhver spurning er um
samhljóm má benda á að í stefnu-
skrá Samfylkingarinnar segir að
það sé vilji hennar „að dregið
verði verulega úr jaðarskatta-
áhrifum".
Eldri borgarar og öryrkjar
héldu baráttufund á Ingólfstorgi
og auglýstu með heilsíðu í nafni
Félags eldri borgara í Reykjavík,
Landssambands eldri borgara,
Öryrkjabandalags íslands og
Sjálfsbjargar. Sá baráttufundur
var ekki haldinn til að kjósa
„óbreytt ástand".
A sama tíma tóku Samtök iðn-
aðarins og Samtök íslenskra hug-
búnaðarframleiðenda sig saman
og birtu heilsíðuauglýsingar þar
sem skattumhverfi fyrirtækja í
upplýsingatækni var sett á odd-
inn. I einni af mörgum auglýsing-
um er talað um að skattalegt um-
hverfi megi ekki setja greininni
þrengri skorður en gengur og
gerist í samkeppnislöndunum.
Ekki er að sjá að þessar
auglýsingar beinist beinlínis
gegn einum eða neinum. Hins
vegar má benda á að á verkefna-
lista Samfylkingarinnar var að
„lögum um fjármagnstekjuskatt
[yrði] breytt“ og „sett [] frítekju-
mark á vaxtatekjur, en vaxta-
tekjur umfram það [] meðhöndl-
aðar eins og atvinnutekjur".
Hvaða áhrif ætli Samtök iðn-
aðarins og Samtök íslenskra hug-
búnaðarframleiðenda telji að
slíkar fyrirætlanir hafi á sam-
keppnisstöðu fyrirtækja í upp-
lýsingatækniiðnaði?
Þessi dæmi sýna að það er auð-
velt að leggja út af auglýsingum
hagsmunasamtaka og sjá í þeim
stuðningvið ákveðin stjómmála-
öfl. Þegar öllu er á botninn hvolft
getur hins vegar ekkert verið
eðlilegra en að hagsmunasamtök
gangi sinna erinda. Hið gagn-
stæða væri í raun óeðlilegt og
kannski vekur mesta furðu
hversu lítið er um auglýsingar og
áróður hagsmunasamtaka rétt
fyrir kosningar.
Baráttu hagsmunasamtaka er
oft ekki síst ætlað að þrýsta á um
að viðkomandi aðilar skipti um
skoðun og setji nýja rétti á mat-
seðilinn eða i það minnsta breyti
uppskriftinni. Þrýstingurinn á
stjórnmálaöflin felst ekki síst í
því að áróðrinum er ætlað að hafa
áhrif á kjósendur og hvernig þeir
beita valdi sínu í kjörklefanum.
Þess vegna er einmitt rökrétt að
halda hagsmunum þrýstihópsins
á lofti rétt fyrir kosningar.
En að saka hagsmunasamtök á
borð við Öryrkjabandalagið um
annarleg markmið þegar þau
reyna að bæta kjör umbjóðenda
sinna er líkt því að væna ferða-
skrifstofurnar, sem auglýstu síð-
ustu vikurnar fyrir kosningar,
um að grafa undan lýðræðinu
með því að hvetja fólk til að vera í
útlöndum á kjördag.
Heimaslys
algeng hérlendis
Landlæknisembættið
hefur vakið athygli á
þeirri heilsuvá, sem slys
í heimahúsum eru. Is-
lendingar eru svo lán-
samir að búa almennt í
rúmgóðu húsnæði og
opinbert eftirlit sér til
þess að híbýli okkar
verða sífellt öruggari og
þægilegri að dveljast í.
En við erum mikið inn-
an veggja heimilisins af
veðurfarsástæðum og
eru slys í heimahúsum
algeng hjá fólki á öllum
aldri.
Byltur
Byltur eru algeng orsök áverka
sem verða inni á heimilinu eða á lóð-
inni. Lítil börn detta í stigum, ofan af
húsgögnum og svo framvegis. Á und-
anförnum árum hafa teppi verið á
undanhaldi sem gólfefni, en flísar,
dúkar og parket komið í staðinn.
Þessi breyting hefur örugglega ein-
hverja kosti, en áverkinn verður meiri
ef lent er á hörðu gólfi. Ef ekki eru
teppi á gólfum er rétt að huga að því
að hafa lausar mottur (með hálkuneti
undir) á stöðum, þar sem hætta er á
að bömin detti. Sérstök ástæða er til
að vara við notkun göngugrinda fyrir
ungbörn. Geysimörg slys verða vegna
þeirra, oft þegar barnið dettur niður
stiga í grindinni. Göngugrind flýtir
ekki því að bam fari að ganga, getur
satt að segja tafið þroska að þessu
leyti.
Uttekt iðjuþjálfa/sjúkraþjálfa á ör-
yggisatriðum heimilisins er dýrmæt-
ur liður í því að aldraðir geti dvalist
sem lengst heima hjá sér. I þessu
sambandi langar mig til gamans að
skýra frá atviki á alþjóðlegum slysa-
vamafundi, sem ég tók þátt í fýrir
rúmum áratug í Svíþjóð. Þar höfðu
menn farið mikinn í að lýsa vitjunum
sínum til aldraðra og hvemig þeir út-
veguðu peninga til úrbóta á ýmsum
öryggisþáttum heimilanna. Þá stóð
upp kanadískur kollegi minn, sem
lengi hafði starfað á
Papúa Nýju-Gíneu, og
stakk upp á því að menn
hættu þessu, en notuðu
peningana í staðinn í
sjúkraþjálfun og
íþróttakennslu fyrir
gamla fólkið. Slíkt
myndi auka vöðvastyrk,
efla jafnvægisskynið og
þannig draga úr bylt-
um. Aumingja læknir-
inn var hrópaður niður,
en mér fannst hann
hafa mikið til síns máls.
Með þessari sögu er ég
ekki að draga úr því að
lagfærðar séu augljósar
slysagildrur á heimilun-
um, heldur benda á mikilvægi þjálf-
unar, t.d. leikfimi og dans, fyrir eldri
borgarana.
Byltur verða ekki síst inni á lóðum
fólks. Einmitt núna er víða hált á
gangstígum. Munið að vera ekki á
hálum skóm þegar þið skjótist með
raslið út í tunnu! Gott er að eiga sand í
pokaskjatta til að strá yfir hálkubletti.
Bruna- og rafmagnsslys
Reykskynjarar hafa bjargað mörg-
um mannslífum og ættu að vera á
hverju heimili. Hins vegar gera þeir
ekki gagn nema þeir séu í lagi.
Reynsla erlendis frá bendir til þess,
að þörf sé á reglubundnu eftirliti með
þessum öryggistækjum, þar sem oft
vill brenna við að raflilöður séu tómar.
Gætið þess að böm geti ekki skað-
að sig á rafmagnsinnstungum og haf-
ið sem minnst af framlengingarsnúr-
um á heimilinu. Lekastraumsrofar
ættu að vera í öllum húsum.
I eldhúsinu verða flest slysin og
sjálfsagt er að hafa þetta hugfast í
önn dagsins. Mikið sakna ég öryggis-
grindanna sem ég sá á eldavélum í
Svíþjóð þegar ég var þar fyiir aldar-
fjórðungi. Þær komu í veg fyrir að
óvitar gætu fiktað í tökkum og náð í
sjóðandi heita potta uppi á eldavél-
inni. Þar held ég að það hafi verið
skylda að selja þessar grindur með
Slysavarnir
Við erum mikið innan
veggja heimilisins af
veðurfarsástæðum,
segir Ólafur Hergill
Oddsson, og eru slys
í heimahúsum algeng
hjá fólki á öllum aldri.
öllum eldavélum, en á íslandi íylgja
þessi öryggistæki ekki með, því mið-
ur.
Skotvopn
í Bandaríkjunum ógna byssur á
heimilum öryggi fjölskyldna. Sem
betur fer era skammbyssur ekkd
leyfðar hérlendis, en full ástæða er til
að hvetja veiðimenn til þess að geyma
vopn sín og skotfæri í læstum, að-
skildum hirslum.
Eitranir
Sem betur fer hefur slysum af völd-
um eitrana stórfækkað á síðastliðnum
áratugum. Öragglega má þakka þetta
fræðsluátaki Slysavamafélags Is-
lands og Landlæknisembættisins, en
einnig bættum umbúðum og um-
gengni, t.d. um lyf. Komist bara eða
fullorðinn í tæri við hættuleg efni,
eitraðar plöntur eða lyf ber strax að
hafa samband við Eitrunarmiðstöðina
á Landspítala-Fossvogi í síma 525-
1111, en hún er opin allan sólarhring-
inn og þjónar landsmönnum öllum.
Að lokum vil ég hvetja foreldra til
þess að skálja böm sín aldrei eftir ein
heima og minna á einfalda og ódýra
slysatryggingu: Setjið kross í reitinn
„Slysatrygging við heimilisstörf" á
skattframtalinu ykkar.
Höfundur er hcniöslæknir
Norðurlands.
Ólafur Hergill
Oddsson
Haf- og fískirannsóknir
á Islandsmiðum
í Morgunblaðinu,
„Ur verinu“ þann 9.
febrúar sl. birtist fróð-
leg grein eftir Svend
Aage Malmberg, haf-
fræðing, _ um sjórann-
sóknir á íslandsmiðum.
Þai- segir höfundur
m.a.: „Upphaf þessara
rannsókna má rekja til
hafísáranna á síðari
hluta sjöunda áratugar-
ins (1965-71). Áður, eða
allt frá 1949 var farið í
vorleiðangra til rann-
sókna á norður- og
austurmiðum með
áherslu á vistfræði sjáv-
arins...þessar ferðir
voru famar á varðskipinu Ægi eða
„Grána gamla" eins og varðskipið var
tíðum nefnt.“
Vegna þessara skrifa um rann-
sóknarferðir Ægis er rétt að benda á
eftirfarandi: Varð- og björgunarskip-
ið María Júlía, stundum nefnd björg-
unarskúta Vestfjarða, kom til
Reykjavíkur þann 20. apríl árið 1950,
nýsmíðuð frá Danmörku. Skipið var
hannað, auk þess að vera björgunar-
og varðskip, til haf- og fiskirann-
sókna með togvindu fyrir botnvörpu-
veiðar vegna fiskirannsókna, sér-
hannaða olíuknúna vindu (spil) til
notkunar sjómæla (Nansen-mæla) og
útbúnað til að draga háfa af ýmsum
gerðum til að ná svifi, átu o.fl. úr sjón-
um. Einnig vora íbúðir í skipinu, ætl-
aðar vísindamönnum, og í þilfarshúsi
(keisnum) skipsins var
rannsóknarstofa, þar
sem vísindamennirnir
söfnuðu ýmisskonar
gögnum og sýnishorn-
um til frekari rann-
sókna.
Skömmu eftir að
María Júlía kom til
landsins var skipið út-
búið til fiski- og sjó-
rannsókna (sjómæl-
inga). Hinn 16. maí 1950
fór skipið frá Reykjavík
til rannsókna við suð-
vesturströndina, þaðan
var svo haldið til Vest-
fjarða og síðan norður
fyrir land. Sigld vora
snið í vestur og norður út frá landi,
langt norður í haf, allt að ísströndinni
og gerðar ýmsar rannsóknir (sjómæl-
ingar). I þessari ferð var síðasta snið-
ið siglt í NA frá Langanesi.
Vorið og sumarið 1951 var María
Júlía aftur við fiskirannsóknir og sjó-
mælingar, m.a. má nefna, að skipið
kom til Jan Mayen sunnudaginn 19.
ágústþaðsumar.
Aftur fór María Júlía í rannsóknar-
ferðir vorið og sumarið 1952 og var
farið yíir sama hafsvæðið og árið áð-
ur.
I þessum rannsóknarferðum vora
ýmsir vísindamenn frá atvinnudeild
Háskóla íslands, fiskideild, eins og
það var nefnt í þá daga, með sína að-
stoðarmenn.
Minnisstæðir era þeir dr. Her-
Sjórannsóknir
Rétt þykir að fram
komi, segir Árni
Valdimarsson, að
þáttur Maríu Júlíu
var talsverður við haf-
og fiskirannsóknir á
þessum þrem árum.
mann Einarsson, dr. Unnsteinn Stef-
ánsson, Svend Aage Malmberg haf-
fræðingur, Jón Jónsson fiskifræð-
ingur og Þór Guðjónsson síðar veiði-
málastjóri. Minnisstætt er einnig,
þegar Svend Aage Malmberg var um
borð í Maríu Júlíu, við straumrann-
sóknir í Faxaflóa, auk annarra rann-
sókna. Til fróðleiks má geta þess, að
þeir Þórarinn Bjömsson, Magnús
Bjömsson (eldri), Jón Jónsson og
Haraldur Bjömsson voru til skiptis
skipherrar á Maríu Júlíu í ofan-
greindum ferðum.
Þetta er skrifað vegna þess að rétt
þykir, vegna áðurnefndrar greinar,
að fram komi að þáttur Maríu Júlíu
var talsverður við haf- og fiskirann-
sóknir á þessum þrem áram, þegar
undimtaður var II. og síðar I. stýri-
maður á varðskipinu Man'u Júlíu.
Höfundur er fv. skiphcrru.
Árni
Valdimarsson