Morgunblaðið - 23.03.2000, Síða 1
ERLENT
ÁLFYRIRTÆKIÐ
ALCAN GEFST
EKKI UPP
“j
INWLENT
MUN ÁFRAM
STYRKJA
STJÓRNMÁLA-
FLOKKA
_______________2J
Viðskiptablað
Sérblað um viðskipti/atvinnulif
* Fimnitudagur 23. mars 2000
Bréf í deCODE hafa
lækkað um 20%
• H[utabréf í deCODE Genetics, móðurfé-
lagi íslenskrar erfðagreiningar, hafa lækk-
að um tæp 20% frá því að fyrirtækið til-
kynnti fyrr í þessum mánuði að sótt heföi
veriö um skráningu á NASDAQ. Er þetta
þvert á væntingar margra núverandi hlut-
hafa sem vonast hafa eftir því að verð
hlutabréfanna færi hækkandi í kjölfartil-
kynningarinnar/2
Aðgengi erlendra
fjárfesta dýpkar
markaðinn
• Bjami Ármannsson, forstjóri Fjárfesting-
arbanka atvinnulífsins, segir nauösynlegt
að aðgengi erlendra fjárfesta að íslenskum
hlutabréfamarkaði verði auðveidaö, það
muni auka veltu markaðarins og dýpka
hann. Að öðrum kosti muni stöðnun og
einsleitni blasa við/6
GENGISSKRANING • 23. mars.
Kr. Kr. Kr.
Gengi Kaup Sala |
Dollari 74,00000 73,80000 74,20000
Sterlpund. 115,90000 115,59000 116,21000
Kan. dollari 50,37000 50,21000 50,53000
Dönsk kr. 9,55400 9,52700 9,58100
Norsk kr. 8,73400 8,70900 8,75900
Sænsk kr. 8,50100 8,47600 8,52600
Finn. mark 11,96660 11,92950 12,00370
Fr. franki 10,84670 10,81300 10,88040
Belg. franki 1,76380 1,75830 1,76930
Sv. franki 44,17000 44,05000 44,29000
Holl. gyllini 32,28650 32,18630 32,38670
Þýskt mark 36,37840 36,26550 36,49130
ít. líra 0,03675 0,03664 0,03686
Austurr. sch. 5,17070 5,15470 5,18680
Port. escudo 0,35490 0,35380 0,35600
Sp. peseti 0,42760 0,42630 0,42890
Jap. jen 0,69150 0,68930 0,69370
írskt pund 90,34190 90,06150 90,62230
SDR (Sórst.) 99,09000 98,79000 99,39000
Evra 71,15000 70,93000 71,37000
Grfsk drakma 0,21310 0,21240 0,21380
Sjálfvirkur sfmsvari gengisskráningar er 562 3270
Tæknival í Panmörku gerir samning við PK-Benzin
Samningurinn 150
millióna króna virði
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sigríður Olgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Tæknivals A/S í
Danmörku, þar sem nú starfa sex manns.
TÆKNIVAL A/S í Danmörku,
dótturfyrirtæki Ax Business Int-
elligence á Islandi, hefur gert
fyrsta samning sinnar tegundar
við danska fyrirtækið DK-Benzin
í samstarfi með Damgaard A/S og
Compaq A/S um notkun Applicat-
ion Service Provider-lausnar fyr-
irtækjanna. Tæknival A/S kemur
með fyrsta viðskiptavininn, DK-
Benzin, inn í ASP-lausnina, sem
Compaq og Damsgaard settu af
stað í lok janúar.
Fyrirkomulagið felur í sér að
DK-Bensin, sem rekur rúmlega
200 bensínstöðvar í Danmörku,
gerir samning við fyrirtækin þrjú
um notkun þessarar þjónustu.
Með ASP-lausn Damgaard og
Compaq eiga fyrirtæki kost á að
leigja afnot af vél- og og hugbún-
aði í stað þess að fjárfesta í hon-
um.
Tæknival A/S hefur sérhæft sig
í hugbúnaði fyrir verslunarkeðj-
ur, byggðum á Axapta-hugbúnaði
frá Damgaard. „Við sjáum mikla
framtíð fyrir verslunarkeðjur
með þá möguleika sem við nú get-
um boðið,“ segir Sigríður Olgeirs-
dóttir, framkvæmdastjóri Tækni-
vals í Danmörku, sem segir að
hugbúnaðarsamningurinn sé virði
um 15 milljóna danskra króna,
150 milljóna íslenskra króna, á
næstu 2-3 árum.
Forsendan fyrir samningnum
við DK Bensin er samstarf
Damgaard og Compaq um ASP,
sem fyrirtækin tvö gerðu í lok
janúar. DK Bensin er stærsti
bensín- og matvælasöluaðli í Dan-
mörku og veltir um 3 milljörðum
danskra króna á ári, um 30 millj-
örðum íslenskra króna.
Sigríður bendir á að mörg fyrir-
tæki séu að þróa ASP-lausnir, en í
þessu tilfelli sé Tæknival A/S
fyrst til að koma með viðskiptavin
í þetta ASP samstarf. „Með okkar
framlagi er hugmynd Damgaard
og Compaq fullgerð. Það eru ekki
margir, sem geta boðið upp á
þessa lausn, sem byggist á hug-
búnaði sem við höfum þróað á
grundvelli Axapta. Lausn okkar,
sem er miðuð við verslunarkeðj-
ur, er einstök.“
Sparnaður að leigja
fremur en kaupa
Spamaðurinn, sem fyrirtæki
geta náð með ASP er verulegur,
því í stað dýrra fjárfestinga í vél-
og hugbúnaði fæst heildarlausn á
leigu, sem síðan er rekin yfir Net-
ið. Sigríður bendir á að þar með
liggi hugbúnaðurinn á einum stað
og bensínstöðvamar tengjast
gegnum Netið á nettaxta óháð
staðsetningu. Sama á við um þjón-
ustu Tæknivals A/S sem fer fram
gegnum Netið hvort sem er frá
skrifstofunni í Danmörku eða á
íslandi. Skrifstofa Tæknivals A/S
í Danmörku sér um erlend við-
skipti með hugbúnaðarlausnir
fyrir verslunarkeðjur, sem fyrir-
tækið hefur þróað í Axapta. Fyr-
irtækið er með viðskiptavini í
Danmörku, Svíþjóð, Bretlandi,
Hollandi og nú síðast í Bandaríkj-
unum. „Við sjáum um þessi við-
skipti,“ segir Sigríður, „bæði við
endursöluaðila og viðskiptavini
okkar.“
Eins og er starfa sex manns á
skrifstofu Tæknivals A/S í Kaup-
mannahöjn og um 100 manns hjá
AX hf. á íslandi. Sigríður segir að
gert sé ráð fyrir að ráða einn til
tvo starfsmenn á mánuði út árið.
fslenski lifeyrissjöðurinn er traustur lífeyrissjóður f vörslu Landsbréfa hf. Með aðild að fslenska
lífeyrissjóðnum tryggir þú þér fjölbreytta þjónustu og góða ávöxtun lífeyris. Hafðu samband við
sérfræðinga Landsbréfa í lífeyrismálum eða ráðgjafa í næsta Landsbanka.
www.landsbref.is
LANDSBREF
Landsbanki Islands