Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 2
2 C FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Stjórnarformaður Olíufélagsins hf. segir að félagið muni áfram styrkja stjórnmálaflokka
Mikilvægft
að styrkja
stjórnmála-
flokka
KRISTJÁN Loftsson, stjórnar-
formaður Olíufélagsins hf., sagði
á aðalfundi félagsins í gær að 01-
íufélagið hf. hefði styrkt og muni
áfram styrkja stjórnmálaflokka.
„Að gefnu tilefni vill Olíufélag-
ið hf. taka fram að það tekur ekki
við neinum „direktivum" erlendis
frá hvað varðar styrki til stjórn-
málaflokka," sagði Kristján.
„Lýðræðið er dýrmætasta eign
þjóðarinnar. Til þess að stjórn-
málaflokkarnir geti starfað á eðli-
legum grundvelli þurfa þeir á
fjármagni að halda. Það er því
mikilvægt að einstaklingar og
fyrirtæki styrki starfsemi stjórn-
málaflokka á fslandi.“
Jöfnunarkerfi sem pólitísk
ákvörðun var tekin um
í ræðu sinni á aðalfundinum
gerði Kristján umræðu um Flutn-
ingsjöfnunarsjóð olíuvara að um-
talsefni. „Umræðan um Flutn-
ingsjöfnunarsjóð olíuvara hefur
skotið upp kollinum eina ferðina
enn. Eru þar á ferð þeir „Skelj-
ungar“ sem oft áður. Það duldist
engum sem til þekkir að Olíufé-
lagið hf. gleymdist ekki hjá þeim
„Skeljungum" í umfjöllun þeirra
nú nýverið," sagði Kristján.
Hann sagði að flutningskostn-
aður af eldsneyti sem dreift er
frá birgðastöðvum á landi væri að
óverulegu leyti endurgreiddur úr
Flutningsjöfnunarsjóði olíuvara,
og sjónarmið Olíufélagsins hf.
væru alveg skýr hvað varðar
sjóðinn.
„Olíufélagið hf. hefði ekkert við
það að athuga ef stjórnvöld ákv-
æðu strax í dag að breyta lögum
og leggja sjóðinn niður. Að okkar
mati er hér um byggðamál að
Frá aðalfundi Olíufélagsins hf. sem haldinn var í gær.
Morgunblaöiö/Golli
ræða, jöfnunarkerfi, sem pólitísk
ákvörðun var tekin um að koma á
laggirnar á sínum tíma og póli-
tisk ákvörðun mun einnig leggja
sjóðinn af. Ef svo verður ákveðið
þá mun eldsneyti verða selt á
mismunandi verði á landinu.
Dýrastar yrðu olíuvörumar þar
sem flutningskostnaðurinn er
mestur, en lægsta verðið yrði á
höfuðborgarsvæðinu.
Sú hagræðing sem nú þegar
hefur náðst með stofnun Olíu-
dreifingar ehf. hefur skilað sér til
notenda því gjald vegna flutn-
ingsjöfnunar hefur lækkað vegna
þessarar hagræðingar,“ sagði
Kristján. Hann sagði að áfram
væri unnið að hagræðingu í dreif-
ingu eldsneytis hjá Olíudreifingu
ehf., sem er í eigu Olíufélagsins
hf. og Olíuverslunar Islands hf.,
notendum til hagsbótar.
„Vegna þessa verð ég að benda
vinum mínum hjá Skeljungi hf. á
að þeir eru að berja á röngum að-
ila. Þeir ættu að beina spjótum
sínum að alþingismönnum í stað
okkar hér hjá Olíufélaginu hf.,“
sagði Kristján Loftsson.
Hlutabréf í deCODE
hafa lækkað um 20%
HLUTABREF í deCODE genet-
ies inc., móðurfélagi Islenskrar
erfðagreiningar, hafa lækkað um
tæp 20% frá því að fyrirtækið til-
kynnti fyrr í þessum mánuði að
sótt hefði verið um skráningu á
NASDAQ. í Morgunkorni FBA í
gær segir að þetta sé þvert á vænt-
ingar margra núverandi hluthafa
sem vonast hafi eftir því að verð
hlutabréfanna færi hækkandi í
kjölfar tilkynningarinnar.
„Tvennt kemur til greina þegar
leitað er ástæðu lækkunar. Fyrst
er að ekki virðist sem allir núver-
andi hluthafar hafi vitað um að
hluthafaskrá fyrirtækisins tekur
ekki við nýskráningum í sex mán-
uði eftir að viðskipti hefjast á
NASDAQ og valið því að selja
bréfin nú frekar en að sitja með
þau næstu sex mánuðina. Annað
gæti verið að frá 6. mars hefur vísi-
tala líftæknifyrirtækja í Banda-
ríkjunum lækkað um 36% og fyrir-
tæki eins og Millenium, Myriad og
Incyte lækkað á sama tíma um
helming. Þrátt fyrir það er ávöxtun
þessara fyrirtækja í plús frá ára-
mótum um 10% til 90%,“ segir í
Morgunkorni FBA.
Viðskipti ekki bönnuð
með bréf deCODE
Hvað varðar möguleika á sölu
hlutabréfa deCODE, í þeim flokki
hlutabréfa sem gefinn var út fyrir
íslenska markaðinn, segir að það
sé ekkert sem hreinlega banni við-
skipti með bréfin í sex mánuði frá
skráningu á NASDAQ. Aðeins hafi
komið fram að hluthafaskrá skrái
ekki nýskráningar sem augljóslega
geri fjárfestum erfitt fyrir með að
eiga viðskipti með hlutabréfin.
„Ef til verða áhugasamir kaup-
endur og áhugasamir seljendur er
ekkert því til fyrirstöðu að aðilar
geri með sér bindandi samning um
að eiga viðskipti á ákveðnu gengi
þegar hluthafaskrá hefur skrán-
ingu að nýju. Ef um verður að
ræða nægan fjölda aðila sem vilja
eiga þess háttar viðskipti er ekki
ólíklegt að myndast gæti framvirk-
ur markaður, jafnvel með staðlaða
samninga, með þátttöku margra
markaðsaðila. Gera má ráð fyrir
fylgni í verði á Islandi og í Banda-
ríkjunum.
Margir fjárfestar hafa velt íyrir
sér hvemig verð bréfanna muni
þróast hér á landi eftir að viðskipti
hefjast á NASDAQ. Ekki er hægt
annað en að gera ráð fyrir að fylgni
verði á gengi bréfanna hér á landi
og erlendis fyrstu mánuði eftir
skráningu. Ef t.d. verð hlutabréf-
anna verður lægra hér á landi býð-
ur það upp á að fjárfestar skort-
selji hlutabréfin, þ.e. fái lánuð bréf
og selji erlendis, en kaupi síðan á
lægra gengi hér heima og geri síð-
an skortstöðuna upp eftir að sex
mánaða tímabilinu lýkur,“ segir í
Morgunkomi FBA.
OZ.COM hyggst ráða allt að 150 manns á þessu ári
Starfsmenn fá umbun
fyrir ábendingar
OZ.COM gerir ráð fyrir að ríflega
tvöfalda starfsmannafjölda fyrir-
tækisins á næstu mánuðum og
beita við það nokkuð óvenjulegri
aðferð.
„Við teljum okkur þurfa að bæta
við okkur allt að 150 manns á þessu
ári en nú eru starfsmenn fyrirtæk-
isins rétt um 100 talsins," segir
Skúli Valberg Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri OZ.COM.
Hann segir að þörfina fyrir
þessa miklu starfsmannafjölgun
megi rekja til hinnar nýju mPres-
ence-þjónustu fyrirtækisins sem
kynnt var á fjarskiptasýningu í
Bandaríkjunum í lok febrúar. Um
er að ræða viðbótarlausnir
OZ.COM við iPulse-lausnina, sem
fyrirtækið hannaði í samstarfi við
Ericsson, en mPresence er þjón-
usta við fjarskiptafyrirtæki og víð-
tæk þjónusta fyrir þráðlaus við-
skipti um Netið sem
fjarskiptafyrirtæki getá boðið við-
skiptavinum sínum.
„Viðbrögðin sem við fengum í
kjölfarsýningarinnar í Bandaríkj-
unum voru góð og við erum þegar
komnir í viðræður við nokkur fyr-
irtæki sem hafa áhuga á að ganga
til samstarfs við.okkur um þessa
lausn.
Við erum þama að bjóða nýja
þjónustu sem krefst þess að við
veitum viðskiptavinunum, þ.e.
fjarskiptafyrirtækjunum, mikla at-
hygli og við munum þurfa að þjón-
usta þá bæði markaðslega og
tæknilega auk þess sem áfram þarf
að byggja tæknina sjálfa upp. Því
þurfum við á töluverðum mannafla
að halda,“ segir Skúli Valberg.
Hann segir að þróunarmiðstöð
fyrirtækisins verði áfram á íslandi
enda henti íslenski markaðurinn
sérlega vel til að prófa ýmsar nýj-
ungar og reynslulausnir. Á erlend-
um skrifstofum fyrirtækisins, bæði
í Stokkhólmi og Boston, verði
áherslan meiri á viðskipti og þjón-
ustu heldur en á kjarnatæknina
sjálfa.
„Því verður það fyrst og fremst
vel menntað tæknifólk í hugbúnað-
argeiranum og fjarskiptageiranum
sem við leitum að hérlendis. Það
væri mjög æskilegt ef við gætum
fengið a.m.k. helming þessara 150
starfsmanna sem við þurfum, hér á
íslandi."
Við leitina að hæfu starfsfólki
hyggst OZ.COM beita nokkuð
óvepjulegum aðferðum, þ.e. að
greiða fyrir ábendingar sem leiða
til ráðningar.
„Við lítum á starfsfólkið okkar
sem helstu verðmæti fyrirtækisins
og í rauninni á hver sá sem færir
þessu fyrirtæki verðmæti sína
umbun skilið. Því er það þannig hjá
okkur að ef starfsmenn kynna til
sögunnar nýtt fólk sem síðan er
fastráðið, þá er þeim umbunað sér-
staklega fyrir það,“ segir Skúli og
telur þetta góða leið til að ráða nýtt
starfsfólk því að með þessu velji
starfsfólkið sér í raun samstarfs-
menn.
Aðspurður hvort sams konar
umbun yrði veitt fólki utan fyrir-
tækisins segir Skúli að væntanlega
yrðu forsvarsmenn fyrirtækisins
til viðræðna um slíkt ef það kæmi
upp, enda séu slíkar greiðslur innt-
ar af hendi til hinna ýmsu ráðning-
arstofa sem standi utan við fyrir-
tækið.
Samlíf skilar
auknum
hagnaði
ÁRSREIKNINGUR Sameinaða líftrygg-
ingarfélagsins hf., Samlífs, fyrir árið 1999
sýnir bestu rekstramiðurstöðu félagsins
frá upphafi, að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu. Hagnaður af rekstri félagsins
nam 82,5 milljónum króna sem er 177%
aukning á milli ára. Starfsmenn fá 120.000
króna launauppbót í tilefni góðrar afkomu.
Bókfærð iðgjöld félagsins námu 478
milljónum króna sem er 28% aukning frá
fyrra ári. Fjárfestingartekjur jukust úr 54
milljónum króna í 171 milljón og tjóna-
greiðslur námu 105 milljónum króna sem
er 22% aukning. Hreinn rekstrarkostnaður
jókst um 38% og nam alls um 160 milljón-
um króna. Eigið fé var í árslok 355 milljónir
króna og arðsemi eigin fjár var 31,1% en
var 12,4% árið á undan.
Samlíf festi á haustdögum kaup á helm-
ingi þess húss sem íslenskar sjávarafurðir
byggðu undir starfsemi sína fyrir nokkrum
árum að Sigtúni 42. Samlíf flytur starfsemi
sína í Sigtún um miðjan apríl næstkomandi.
Stærstu eigendur Samlífs eru Sjóvá-Al-
mennar með 25% hlut og Tryggingamið-
stöðin, Islandsbanki og Búnaðarbanki ís-
lands með 15% hver aðili, auk nokkurra
lífeyrissjóða.
Áðalfundur félagsins verður haldinn 29.
mars nk.
^fUPP BW mÐUR'W'
HLUTABRÉFAVIÐSKIPTI/SÍÐASTA VIKA
• Mikil viðskipti urðu á Verðbréfaþingi
(slands í seinustu viku og var veltan
rúmlega 2.007 milljónir í 1.397
viöskiptum. Hlutabréf 23 félaga á VÞÍ
hækkuðu í gengi, 25 lækkuðu og 12
stóðu í stað. Heildar markaðsvirði allra
félaga á VÞÍ hækkaði um 3,8% í seinustu
viku og endaði í 424,8 milljörðum kr.
+*UPP
FyrtrtJrtcl v..ð Viðsk. vBuionar F)c
(ÞúS. kf.) vlðtk.
Nýherji 21,50/16,50 150.231 115 32,7%
Isl. hugbúnaðarsj. 14,90/12,50 59.871 73 22,1%
Pharmaco 37,00/32,00 60.154 25 14,1%
KEAsvf. 2,85/2,52 2.814 8 10,2%
Landsbankí Isl. 4,95/4,73 104.492 66 8,8%
Fiskiðjusaml. Húsav. 1,37/1,37 603 1 -15,4%
Skinnalðnaður 2,40/2,40 240 1 -7,3%
Skýrr 28,75/23,00 51.814 57 -6,5%
Þorbjöm 6,20/6,00 5.688 3 -6,3%
Tangi 1,42/1,37 419 3 -5,5%
^UPP NIÐUR'V'
GENGI GJALDMHDLA
wna P
18.08.99 25.08.99 +/-%
Sænsk króna 8,452 8,501 +0,58
Bandaríkjadalur 73,73 74 +0,37
Kanadadalur 50,33 50,37 +0,08
■kMI’lJÍr l
Japanskt jen 0,6973 0,6915 -0,83
Grísk drakma 0,2134 0,2131 -0,14
Norsk króna 8,739 8,734 -0,06