Morgunblaðið - 23.03.2000, Síða 5

Morgunblaðið - 23.03.2000, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 C 5 Þróun ehf. eignast Þekkingu upplýsingatækni hf. Boðið upp á rekstur miðlægra upplýsingakerfa í Axapta Þróun hf. hefur keypt Þekkingu - upp- lýsingatækni hf. á Ak- ureyri, sem áður var tölvudeild Kaupfélags Eyfirðinga (KEA). Greitt var fyrir kaupin með skiptum á hluta- bréfum og er KEA, fyrrverandi eigandi Þekkingar, með um 20% hlut í Þróun hf. eft- ir kaupin. Kristinn Ólafsson, markaðsstjóri Þróunar hf., segir í samtali við Morgunblaðið að fyrir- tækin muni eiga með sér samvinnu í framtíð- inni, sem muni byggj- ast á því að Þekking muni bjóða upp á rekstur upplýsinga- kerfa fyrir fyrirtæki þar sem tölvukerfi fyr- irtækis er rekið og þjónustað í húsnæði Þekkingar en ekki hjá fyrirtækjunum sjálfum og Þróun muni með vorinu bjóða rekstrar- leigu á Axapta- viðskiptahugbúnaði sem keyrður verði mið- lægt hjá Þekkingu. Þekking mun þá sjá um að leigja tölvukerfið og hugbún- aðinn, og þjónusta það, en Þróun mun sjá um uppsetningu, aðlögun og ráðgjöf, og verða fyrirtækin áfram rekin hvort í sínu lagi. „Við- skiptavinir þurfa því ekki að kaupa hugbúnaðinn, og er það nýjung á markaðnum," segir Kristinn. Að sögn Kristins hefur verið sam- vinna milli Þróunar og Þekkingar áður, en nú kemst hún á formlegra stig. Þekking hefur séð um rekstur og þjónustu við tölvukerfi KEA á Akureyri og víðar sem hefur yfir 170 notendur með Concorde- hugbúnaði, og hefur Þróun séð um sér forritun og aðlögun fyrir KEA. „Það má segja að við séum að út- víkka þetta samstarf fyrir almennan markað," segir Kristinn. Eigendur Þróunar og Þekkingar þar með eru Halldór Friðgeirsson, forstjóri Þróunar, Hugvit hf., Is- lenski hugbúnaðarsjóðurinn, Kaup- félag Eyfirðinga og starfsmenn Þró- unar. Kristinn segir að ætlunin sé að starfsmönnun Þekkingar verði í framtíðinni boðið að gerast meðeig- endur í fyrirtækinu. Starfsmenn Þróunai- eru nú um 40 talsins, en þeim Ijölgaði um tíu á seinasta ári. Starfsmenn Þekkingar á Akureyri eru tólf talsins og er heildar fjöldi starfsmanna því á tólfta tuginn. „Við álitum að til þess að ná hagkvæmari stærð þurfi bæði fyrirtækin að stækka, og er því stefnt á að Qöldi starfsmanna verði innan tíðar um 70,“ segir Kristinn. Þróun hefur í tvo áratugi lagt mesta áherslu á heildarlausnir í tölvumálum fyrir meðalstór og stór fyrirtæki. Þróun hefur forritað ýmsar sérlausnir og má þar nefna hugbúnað til að reka verslun á Net- inu, og einnig hugbúnaðarkerfi fyr- ir lyfjaverslanir, sem tvær apóteka- keðjur nota. Þróun býður einnig upp á innheimtukerfi lögmanna, Húsið, hlutaskrárkerfið Hlutvís og gagnasafnið Réttarríkið, sein þróuð voru af hugbúnaðarfyrirtækinu Ur- lausn-Aðgengi sem Þróun keypti á seinasta ári. Ætlunin er að tengingin milli við- skiptavinar og Þekk- ingar sem selur rekstrarleiguna verði um Netið, og segir Kristinn að verð á nettengingu hafi lækkað mjög undan- farið. „Við gerum einnig ráð fyrir að nota örbylgjutenging- ar, og ekki síst að nota Netið bæði fyrir Axapta og önnur kerfi sem við bjóðum. Oft eru fyrirtæki með sítengingu við Netið af öðrum ástæðum og þá er hægt að samn- ýta án þess að fyrir- tækið þurfi að stofna til sér tengingar um Netið. Hann segir að þetta sé mögulegt vegna þeirrar tækni sem Ax- apta hugbúnaðarkerf- ið býður upp á, en hún gerir kleift að setja upp raunverulega út- stöð sem haldið er gangandi yfir litla bandbreidd. „Það er ný tækni sem enginn annar getur boðið í dag, og við erum með áætlanir um að keyra kerfið með sítengingu við Netið,“ segir Kristinn. „Með þessari nýjung væri fyrirtækið komið með notenda- vænt gluggaviðmót sem gefur mun meiri sveigjanleika en áður var og finnur notandinn ekki fyrir því þó að tölvan sé einstaðsett annars stað- ar. Mun byggja upp starfsstöð á suðvesturhorninu Stefán Jóhannesson, fram- kvæmdastjóri Þekkingar - upp- lýsingatækni á Akureyri segist í samtali við Morgunblaðið vera sátt- ur við hlutafjárskiptin sem átt hafa sér stað milli Þróunar og Kaupfé- lags Eyfirðinga enda eigi viðskipti þessara aðila sér langa sögu. „Þau hafa unnið mjög náið saman í gegn- um tíðina og KEA hefur verið einn stærsti viðskiptavinur Þróunar. Einnig er ég ánægður með yfir- lýsingar forsvarsmanna Þróunar sem talað hafa um að efla starfsemi Þekkingar hér fyrir norðan," segir Stefán. „Þetta er jafnframt mikilvægt skref því nú munum við í samvinnu við Þróun geta boðið viðskiptavin- um Þróunar upp á rekstrarþjón- ustu. Það opnar okkur ákveðnar dyr inn á markaðinn fyrir sunnan. Allt samstarf af þessu tagi, hvort sem að baki býr eignaraðild eða ekki, er vænlegt til árangurs," segir Stefán. Spurður um þær fyrirætlanir um að starfsmenn Þekkingar verði meðeigendur í Þekkingu segir Stef- án að honum lítist vel á það og sé mikill vilji hjá starfsfólkinu um að koma að félaginu með eignaraðild. „Þekking er nú í reynd dótturfyrir- tæki Þróunar, en hins vegar er ljóst að Þekking verður áfram rekin sem sjálfstæð eining, og það er ljóst að þetta verður norðlenskt fyrirtæki áfram.“ Hann segir að í framtíðinni verði byggð upp starfseining Þekkingar á höfuðborgarsvæðinu vegna vaxandi viðskipta þar, en þegar í dag séu sumir viðskiptavina Þekkingar með töluverða starfsemi á höfuðborgar- svæðinu. Kristinn Ólafsson Stefán Jóhannesson Hraðari og öruggari tölvupóstur í gegnum GSM Þeir sem ferðast í viðskiptaerindum þurfa að hafa tryggan aðgang að tölvupósti hvar sem þeir eru staddir. Með FoneStar hugbúnaðinum færðu örugga og hraða fartölvutengingu í gegnum GSM símann þinn. Flutningsgetan er allt að sex sinnum meiri en ella, samþandið öruggara og tölvan getur sent og sótt gögn á sama tíma. FÆST I VERSLUNUM SÍMANS Verslun Sfmans Internet að Grensásvegi 3 býður viðskiptavinum þá þjónustu að setja hugbúnaðinn upp f fartölvum þeirra gegn gjaldi. NÁNARIUPPLÝSINGAR 0G PANTANIR Á WWW.FAR.IS SÍHINN-GSM FÆRIR ÞÉR FRAMTÍÐINA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.