Morgunblaðið - 23.03.2000, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 23.03.2000, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 C 7 VIÐSKIPTI Framkvæmd þróunaráætlunar í miðborg Reykjavíkur Ný nálgun við skipu- lagsvinnu hér á landi MARKMIÐ Þróunaráætlunar mið- borgar Reykjavíkur eru m.a. að stuðla að efnahagslegum vexti og uppbyggingu reksturs, fjárfestinga og atvinnusköpunar í miðborginni. Anna Margrét Guðjónsdóttir, verk- efnisstjóri hjá Borgarskipulagi Reykjavíkur, talar um Þróunar- áætlun miðborgar sem nýja nálgun við skipulagsvinnu hér á landi. Þar vísar hún til þess að áætlun- in er í raun vinnuheiti yfir heild- rænt skipulag fyrir miðborgina þar sem settir verða skilmálar er varða landnotkun, starfsemi, ásýnd, sam- göngur, húsvernd, útivist, upp- byggingu o.fl. Anna Margrét tekur fram að upphafíð að Þróunaráætl- un hafí verið sameiginlegur vilji miðborgarsamtakanna og borgar- yfirvalda um að snúa þróun mið- borgarinnar við. „Við höfum unnið náið með hags- munaaðilum; íbúum, verslunar- fólki, fasteignaeigendum, fjárfest- um, hagsmunasamtökum og fleirum. Viðskiptamiðuð áætiun Verkefnið er aðallega unnið á Borgarskipulagi en aðrar borgar- stofnanir sem og miðborgarstjórn koma að því þannig að óhætt er að segja að fjöldi manns vinni að því að hrinda áætluninni í fram- kvæmd.“ Breska ráðgjafarfyrir- tækið Bernard Engle Architects & Planners hefur hefur veitt ráðgjöf við verkefnið frá upphafi, en fyrir- tækið er sérhæft í skipulagi versl- unarsvæða, og aðstoðaði m.a. við skipulag Kringlunnar. Að sögn Onnu Margrétar er óvanalegt að verkefni sem þetta sé svo viðskiptamiðað. „Áætlun af þessu tagi hefur ekki þekkst hér en hún er byggð á sömu grunnhugsun og skipulag í borgum í nágranna- löndum okkar, þ.e. mjög stýrðri landnotkun," segir hún. Stýrð landnotkun felur í sér að „kvóti“ er settur á starfsemi á afmörkuðum svæðum. Á Laugaveginum er t.d. gert ráð fyrir að minnsta kosti 70% húsnæðis á jarðhæð, þ.e. þeirri hlið er snýr að götunni, verði nýtt undir verslun en Laugavegurinn er fyrst og fremst verslunarsvæði. Brýnt er að fólk kynni sér hver staðan er á hverju svæði áður en hafíst er handa við að undirbúa nýja starf- semi. Til dæmis er „kvótinn" fyrir veitingahús fullnýttur í Lækjar- götu, að sögn Önnu Margrétar, þar sem 50% húsnæðis á jarðhæð við Lækjargötu má nýta undir veit- ingarekstur. Ýmsar aðgerðir tii að örva fjárfestingu í miðborginni Borgarráð samþykkti nýlega 2. áfanga Þróunaráætlunar miðborg- ar þar sem lýst er þeim aðgerðum borgaryfirvalda sem ætlað er að örva fjárfestingu og uppbyggingu í miðborginni. Einnig er fjallað um þær aðferðir sem beitt verður til að tryggja að markmið um uppbygg- ingu náist. Allar aðgerðir verða metnar út frá áætluninni og borg- aryfirvöld munu byggja á henni við framkvæmdir í miðborginni. „Það er ekki nóg að kaupa eða leigja lóð, byggja, og auglýsa svo húsnæðið til leigu. Nauðsynlegt er að sýna fram á að leigjendur séu komnir, hvaða starfsemi sé fyrirhuguð í húsinu, að þörf sé á henni og að hún muni ganga á viðkomandi stað,“ segir Anna Margrét. Hún segir einnig að við mat á áformum um uppbyggingu í mið- borginni muni borgaryfirvöld nota vítt sjónarhorn og skoða heildar- áhrif framkvæmda á miðborgina. Einnig áhrif á fjárfestingar einka- aðila í framtíðinni, auk áhrifa á um- hverfi og aðdráttarafl miðborgar- innar og stöðu hennar í efnahagslegu tilliti. í samþykktinni kemur fram að borgaryfirvöld muni aðeins samþykkja áætlanir um uppbyggingu eða starfsemi í miðborginni sem samræmast markmiðum svæðis- og aðalskipu- lags og Þróunaráætlunar miðborg- ar um starfsemi á því svæði. „Að þessum skilyrðum uppfylltum munu þau kappkosta að finna henni stað í miðborginni. Ef ekki er unnt að staðsetja þessa upp- byggingu/starfsemi í miðborginni verður reynt að finna henni stað á miðsvæðum utan miðborgarinnar þar sem aðgengi, ekki síst almenn- ingssamgangna, er gott,“ segir í samþykktinni. Borgaryfirvöld geta komið að málum með ýmsum hætti og segir Anna Margrét að með ofangreindri Morgunblaöió/Ámi Sæberg Verslunin Top Shop, sem nýlega var opnuð við Lækjargötu. samþykkt sé einnig verið að lýsa yfir vilja um fjárhagslegan stuðn- ing við framkvæmd Þróunaráætl- unarinnar. Stuðningur borgarinnar getur t.d. falist í uppkaupum ein- stakra eigna, til niðurrifs eða til að sameina lóðir. Borgin getur einnig fellt niður eða lækkað gjöld og átt beina aðild að félögum eða fyrir- tækjum. Þá verði einnig kannaður sá möguleiki að mynda sjóð til að stuðla að uppbyggingu eða viðhaldi eigna. „Með þessu er ljóst að vilji er til þess hjá borgaryfirvöldum að styrkja sérstaklega miðborg Reykjavíkur," segir Anna Margrét. Samstarf um Skuggahverfið EIMSKIPAFÉLAG íslands hefur kynnt hugmyndir að skipulagi hins svokallaða Skuggahverfis, milli Skúlagötu og Hverfisgötu og Frakkastígs og Klapparstígs, eins og fram liefur komið. Eimskip á um 10 þúsund fermetra lóð við Skúlagötu. Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Eimskips, á sæti í miðborgar- stjórn Reykjavíkur. Að hans sögn hefur danskt arkitektafyrirtæki, Schmidt, Hammer og Larsen K/S, verið fengið til að móta deilis- kipulag á svæðinu í samstarfi við innlenda arkitekta. Þróunarfélag í eigu Burðaráss mun vinna að þessu undirbúnings- starfi og áformað er að því verði lokið síðla þessa árs, að sögn Þorkels. „Engar ákvarðanir hafa verið teknar um framhaldið, en beinast liggur við að einhverjir fjárfestar og framkvæmdaaðilar taki að sér byggingaframkvæmdir á svæðinu, en þátttaka Burðaráss í því hefur ekki verið ákveðin," segir Þorkell. „Áhugavert væri að með sam- starfi einkaaðila og íbúðareig- enda á svæðinu, hugsanlega í samstarfi við Reykjavíkurborg, mætti þróa þarna uppbyggingu á skemmtilegu hverfi. Lögð verður áhersla á að vernda markverðar eldri byggingar og flétta þannig saman gamla og nýja tímann í einu hverfi,“ segir Þorkell. „Mér er ekki kunnugt um að áð- ur hafi hér á landi verið hugað að enduruppbyggingu á eldra hverfi með svona heilsteyptum hætti. Þetta er aftur algengt erlendis og í samstarfi innlendra og erlendra arkitckta og skipulagsfræðinga vonumst við til að vel takist til,“ segir Þorkell. Til sölu er glæsilegt, nýtt atvinnuhúsnæði að Stórhöfða 25 & 27. Húsin eru samtals 4.082 m2á fjórum hæðum og henta sérlega vel undir skrifstofur, sérverslanir og/eða heildverslanir. Húsin eru til sölu í einu lagi eða í hlutum. Frágangur er allur hinn vandaðasti og húsin eru einangruð að utan og klædd með álklæðningu. Frábær staðsetning, hagstætt verð. IAV-Islenskir Aðalverktakar hf. Hátúni 6a, 105 Reykjavík, sími 530 4200, fax 530 4205, www.iav.is Allar nánari upplýsingar hjá söludeild IAV i sima 530 4200 á milli kt. 9-17.00.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.