Morgunblaðið - 23.03.2000, Side 10

Morgunblaðið - 23.03.2000, Side 10
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ £. Nýj ar víddir að opnast í þjónustu Islensk miðlun ehf. býr yfír áralangri reynslu af starfí að markaðs- og upplýsinga- málum, markhópavinnslu, sölu og eftir- fylgni markpósts en fyrir tæpu ári urðu þáttaskil í starfseminni. Hafíst var handa við uppbyggingu fjarvinnslustöðva víðs veg- ar um landið og nú þegar rekur fyrirtækið níu slíkar. Soffía Ilaraldsdóttir kynnti sér hvernig starfsemin gengi og hvað væri framundan hjá Islenskri miðlun. Fjarvinnslustöðvar íslenskrar miðlunar ehf. „„ » cjm Raufarhöfn Suöureyr^g^j^^g^^.^ ólafsfj , ° Ísáfjörí Stöðvarfjörður Skipulag árið 2000 Fjarvinnslustöðvar STJÓRN Framkvæmdastjóri Fjármál O 0) ‘g 0) co m >3 0) 3 & 3 Tækníver 3 3 "O’ & g. *v C/> ö> Starfsm.hald o — s — Markaðsmál m O: C I s c: 3 I' 5= o: 3 S OÍ ISLENSK miðlun ehf. er 10 ára gamalt upplýsmgatæknifyrir- tæki sem sérhæfír sig í mark- aðs- og upplýsingamálum. Uppbygging þess á landsbyggðinni hófst í apríl á síðasta ári þegar íyrsta fjarvinnslustöðin var sett á laggimar á Raufarhöfn en á þessu tæpa ári sem liðið er hefur fjarvinnslustöðvunum t'" 51gað í níu og þar af eru átta utan eykjavíkur. Sú íyrsta er, eins og áð- ur sagði, staðsett á Raufarhöfn en einnig eru starfræktar fjarvinnslu- stöðvar á Stöðvarfírði, ísafirði, Bol- ungarvík, Suðureyri, Þingeyri, Ólafs- fírði og í Hrísey. Fjarvinnslustöðvamar em tengdar saman ígegnum ATM-net Landssím- ans en Islensk miðlun hefur yfir öfl- ugum víðnets- og fjarfundabúnaði að ráða sem gerir fyrirtækinu kleift að flytja gögn, myndir og hljóð á milli staða með meiri gæðum og meira ör- yggi en áður. Næg kvöldverkefni en skortur á dagverkefnum Andri Þór Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri íslenskar miðlunar, segir að frekari fjölgun fjarvinnslu- stöðva sé fyrirhuguð. Það velti þó á þeim verkefnum sem fáist, hagkvæm- ara gæti reynst að stækka þær stöðv- ar sem fyrir em. „Staðan er einfaldlega sú að við höfum nóg af kvöldverkefnum, erum bókuð fram á mitt sumar og gætum nú þegar bætt við okkur fjarvinnslu- stöðvum sem opnar em á kvöldin. Megináhersla söludeildar fyrirtækis- ins nú er að fjölga dagverkefnum en stöðvamar í Hrísey og Ólafsfirði em til dæmis ennþá einungis opnar á kvöldin. Ég tel því Ijóst, að á næstu mánuð- um munum við einbeita okkur að því að ná upp nýtingunni á öllum núver- andi stöðvum áður en fleiri staðir verða byggðir upp.“ Vaxtarhraði Islenskrar miðlunar var slíkur á síðastliðnu ári að starfs- mannafjöldi fór úr 30 í 150 á nokkmm mánuðum. Andri segir þennan mikla vöxt hafa leitt til þess að markviss skipulagning innan fyrirtækisins hafi setið á hakanum allt fram til loka árs- ins. í desember var hins vegar skipt um gír, nýir stjómendur bættust í hópinn og tekið var til við að móta betur stefnu og skipulag fyrirtækis- ins. Hann segir það hafa verið nauð- synlegt skref í uppbyggingu þess því að starfsemin hafi þróast á annan hátt en upphaflega var gert ráð fyrir. „Menn töldu að það mundi ganga hraðar fyrir sig að ríkið flytti verkefni yfir en það gekk ekki eftir og þess vegna riðlaðist þetta svolítið. Sam- kvæmt yfirlýsingum viðskiptaráð- herra er aukinn kraftur í því starfi og við bindum vonir við að árangur af því verði sýniiegur á næstunni,“ segir Andri. Stefnt að sameiningu fjar- vinnslustöðva og móðurfélags Stærstu hluthafar og stofnendur íslenskrar miðlunar em hjónin Svav- ar Kristinsson, sem jafnframt er stjómarformaður fyrirtækisins, og Karólína S. Hróðmarsdóttir. Auk þeirra situr Ámi Sigfússon í stjóm fyrirtækisins fyrir hönd Tæknivals hf„ sem á um fjórðungshlut. Þá eiga nokkrir einstaklingar minni hluti. Þetta á við um móðurfélagið en fjar- vinnslustöðvar fyrirtækisins hafa frá upphafi verið reknar sem dóttur- og hlutdeildarfélög og í samstarfi við önnur fyrirtæki og stofnanir, sem eiga gjaman hagsmuna að gæta á þeim stöðum sem stöðvamar em starfræktar á. Því lengist hluthafa- listinn töluvert þegar til em taldir all- ir þeir sem eiga hluti í fjarvinnslu- stöðvunum. Fram til þessa hafa dótturfélögin starfað samkvæmt samningum við móðurfélagið, sem ber ábyrgð á öllu kynningar- og markaðsstarfi og verk- efnaöflun fyrir samstæðuna auk þess að sjá um sameiginlega þætti á borð við tæknimál, fræðslumál, gæðaeftir- lit, starfsmannamál og launamál. Andri segir fyrirhugað að breyta þessu formi. Stefnt sé að því að fjar- vinnslustöðvamar verði sameinaðar móðurfélaginu og reknar sem deildir innan fyrirtækisins. Þetta segir hann vera lykilatriði í stefnu fyrirtækisins. Andri segir að einungis viðskipta- leg sjónarmið hafi ráðið því að Islensk miðlun hóf að setja á fót fjarvinnslu- stöðvar úti á landsbyggðinni. Verð á húsnæði hafi til dæmis haft sitt að segja enda húsnæði mjög dýrt í Reykjavík. „Mestu réð þó hversu há starfe- mannaveltan er í Reykjavík, eða um 25-30%. Okkur hefur haldist mun bet- ur á starfsfólki á landsbyggðinni. Við leggjum gríðarlega fjármuni í að þjálfa upp allt þetta fólk og viljum því ekki missa það.“ f Þettaerfull- komnasta kerfi sinnar tegundar í Evrópu og í fyrsta skipti á heimsvísu sem það er sett upp með þeim hætti sem hér er gert. £ Hann segir það mikinn misskiining að fyrirtækið fái ódýrara vinnuafl úti á landsbyggðinni enda sé rekin sama launastefna í öllu fyiirtækinu. „Það er tvennt sem skiptir megin- máli í rekstri þessa fyrirtækis“, segir Andri. „Það eru annars vegar tækni- legir yfirburðir sem við njótum m.a. með tilkomu samskiptavers, hins veg- ar hæft sérþjálfað starfsfólk." Ekki byggt á úthringi- þjónustu í framtíðinni Af skipuriti fyrirtækisins má sjá að meginsvið fyrirtækisins eru fjögur: gagnavinnsla, samskiptaver, fjar- fundasvið og sölu- og úthringisvið. Stoðdeildimar eru einnig fjórar: fjár- mál, tækniver, starfsmannahald og markaðsmál. Fjarvinnslustöðvar fyr- irtækisins um allt land mynda svo þriðju víddina og eru nokkurs konar verksalar sem meginsviðin kaupa þjónustu af en njóta jafnframt þjón- ustu stoðdeildanna. Úthringiþjónustan er sú þjónusta sem fyrirtækið hefur byggt á og þar er mesta umfangið í dag. Svo verður þó ekki í íramtíðinni, að sögn Andra. Þjónustan lýtur í megindráttum að beinum söluverkefnum, bæði á dag- inn og kvöldin, auk þess sem fyrir- tækjum er veitt ýmiss konar aðstoð í markaðs- og auglýsingamálum, s.s. við að fylgja eftir markpósti og gera skoðanakannanir. Gagnavinnslusvið fyrirtækisins tekur að sér skráningu og söfnun á ýmiss konar gögnum á margs konar formi auk þess að annast úrvinnslu gagna, markhópagreiningar og aðra sérhæfða gagnaþjónustu. Þá er fjarfundasviðið. Verið er að byggja upp fjarfundanet sem skilar mun betri mynd og hljóði en áður hef- ur þekkst hérlendis. Fyrirtækið stefnir að því að verða öflugur þjón- ustuaðili á þessu sviði fjarskiptamála og hefur nú þegar fjárfest í og sett upp fjarfundabúnað á öllum fjar- vinnslustöðvunum. Stærsta einstaka fjárfesting fyrir- tækisins liggur þó í tækjabúnaði þeirrar deildar sem kallast sam- sldptaver (e. contact center) en verið er að setja þann búnað upp í nánu samstarfi við framleiðandann, Cisco og söluaðila þeirra hérlendis, Tækni- val. Andri segir búnaðinn munu opna nýjar víddir í þjónustu fyrirtækisins en þetta mun vera fullkomnasta kerfi sinnar tegundar í Evrópu og í fyrsta skipti á heimsvísu sem það er sett upp með þeim hætti sem hér er gert, þ.e. þar sem margar landfræðilega dreifð- ar stöðvar eru tengdar saman í eitt samskiptaver. Uppsetning búnaðar- ins hófst í lok janúar og lýkur væntan- legaánæstuvikum. Sameiginleg vöfrun Fritz Már Jörgensson, fram- kvæmdastjóri samskiptaversins, seg- ir þá þjónustu, sem samskiptaverið bjóði upp á, eiga rætur að rekja til svokallaðra símaþjónustuvera (e. call centers) sem þekkist víða. Símaþjón- ustuverin hafi verið að þróast í það að verða samskiptaver þar sem við- skiptavinir noti ekki lengur símtöl eingöngu þegar þeir sækja sér þjón- ustu, heldur noti þeir tölvupóst og Netið í vaxandi mæli. „Að mínu mati mun samskiptaverið skapa viðskiptavinum okkar sam- keppnisforskot með ýmsum hætti. Við getum til dæmis stytt svartíma, staðlað svörun, safnað mikilvægum markaðsupplýsingum og gert tölvu- póst að öflugra markaðstæki. Mögu- leikar samskiptaversins eru nánast ótæmandi en miða allir að sama marki; að bæta þjónustuna og auka Rýmislausn # 7 Hefðbundinn lager með göngum milli rekka. +42% Með MOVO brautarrekkum má spara 42% plássins og nýta það undir annað ... eða stækka lagerinn um 83% án þess að stækka húsnæðió. Er lagerinn sprunginn? | Þaó er algengt vandamál að lagerhúsnæði fýllist vegna aukinna umsvifa. Hefðbundin lausn er að «■ byggja nýtt lagerhúsnæði. Slíkar framkvæmdir eru þó oft á tíðum óþarfar. ” Við hjá Rými erum meó lausnina á þessu vandamáli. Með MOVO brautarekkum getum við hannað lausnirsem eru bæði þægilegarog henta núverandi húsnæði. Með MOVO getur þú frestað nýju lagerbyggingunni og náó hámarksnýtingu út úr núverandi húsnæði. R lYl M Q Háteigsvegi 7 Reykjavík Sfmi 511 1100 rymi@rymi.is Rými ehf. er nýtt dótturfyrirtæki HF. Ofnasmiójunnar Éiifaiffil ffía úttekt á þínu lagerrými sfmi 511 1100 Pantaðu „Lager- stjórann“ ffá Rými nýjan bækling sem kynnir nauðsynleg hjálpartæki fýrir lagerstjóra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.