Morgunblaðið - 23.03.2000, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 C lí
VIÐSKIPTI
Morgunblaðið/Golli
Andri Þór Guðmundsson framkvæmdastjóri og Fritz Már Jörgensson, framkvæmdastjóri samskiptavers.
árangur viðskiptavinarins“, segir
Fritz.
Með tengingu Islenskrar miðlunar
við gagnagrunn viðskiptavinarins
verða símtöl til hans greind og flokk-
uð niður á sérþjálfaða þjónustufull-
trúa íslenskrar miðlunar sem geta
verið staðsettir hvar sem er á landinu.
Það sama á við um þann tölvupóst
sem viðskiptavininum berst. Hann er
greindur og sendur áfram á þjónustu-
fulltrúa sem eru best til þess fallnir að
svara.
Fritz segir að samskiptaverið komi
einnig til með að þjóna fyrirtækjum á
Netinu í gegnum það sem kalla má
sameiginlega vöfrun (e. collaborative
browsing). Hann útskýrir hvað felst í
því:
„Aðeins um 30% þeirra sem heíja
viðskipti á Netinu, ljúka þeim. Sem
þýðir að 70% hætta við, vildu senni-
lega mjög gjaman versla á Netinu en
skortir líklega upplýsingar. Eg t.d. sé
ekki á vefsíðunni hvort hugbúnaður-
inn sem færir færsluna á kreditkortið
mitt er samþykktur og studdur af
kortafyrirtækinu mínu eða að ég er að
9 Menntölduað
það mundi ganga
hraðar fyrir sig að
ríkið flytti verkefni
yfir á
kaupa mér tæki og sé ekki hvort það
gengur í 220 volt. Ég vel því hnapp á
vefsíðunni sem á stendur „hafa sam-
band við þjónustufulltrúa“ og kemst
þá, með hátalara og míkrófóni, í
talsamband við þjónustufulltrúa sem
er staddur á nákvæmlega sama stað
og ég á Netinu og er þjálfaður í að
veita þj ónustu á viðkomandi vefsvæði.
Þannig aðstoðum við fyrirtækin
auk þess sem við bætum mannlega
þáttinn sem margir sakna af Netinu."
Fritz segir að búnaður íslenskrar
miðlunar geri ráð fyrir öllum þessum
þáttum og prófanir muni brátt hefjast
í samstarfi við nokkra viðskiptavini
fyrirtækisins. Hann gerir ráð fyrir að
það taki u.þ.b. 6 mánuði að ná um 80%
nýtingu á hinum ýmsu þjónustuþátt-
um kerfisins en segir siflcastagetuna
gríðarlega mikla og ekki sjái fyrir
endann á henni í nánustu framtíð.
Fjárfestfyrir 250
milljónir króna á árinu
Af þessu er ljóst að stór hluti þessa
árs fer til frekari uppbyggingar fyrir-
tækisins.
„Við reiknum með að skila tapi á
þessu ári líkt og á síðastliðnu ári,“
segir Andri. „Á næsta ári gerum við
hins vegar ráð fyrir að fyrirtækið
verði farið að skila hagnaði.
Þetta verður ár uppbyggingar og
ijárfestinga og við reiknum með að
um mitt þetta ár muni fyrirtækið hafa
fjárfest í samskiptabúnaði fyrir um
250 milljónir króna.“
Eftir .3-4 ár má, að sögn Andra,
gera ráð fyrir að fyrirtækið fari á al-
mennan hlutabréfamarkað. Þangað
til segir hann að fyrirtækið muni afla
fjár í lokuðum útboðum og standa við-
ræður við áhugasama fjárfesta nú yf-
ir.
Tangi hf.
Aðalfundur
Aðalfundur Tanga hf. á Vopnafirði verður haldinn í
félagsheimilinu Miklagarði föstudaginn 7. apríl kl. 15.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 15. grein
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um heimild til félagsstjórnar til kaupa
á eigin hlutum samkvæmt 2. og 3. mgr.
55. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Endanleg dagskrá, tillögur og ársreikningar fyrir árið 1999
munu liggja frammi á skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfund.
Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Stjórn Tanga hf.
verður haldinn föstudaginn 24. mars 2000, kl. 16.00.
Fundarstaður: Grand Hótel Reykjavík.
Dagskrd
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 17. grein
félagssamþykkta.
2. Tillaga að breytingum á samþykktum.
3. Tillaga um heimild til félagsstjómar um kaup
á eigin hlutum.
4. Önnur mál.
Aðgöngumiðar verða afhentir á skrifstofu félagsins,
Kringlunni 5, 5. hæð,
frá 17. mars til kl. 12.00 á fundardaginn.
SJOVÁulaALMENNAR
Traustur þáttur í tilverunni
BAUGupf Aðalfundur
Aðalfundur Baugs hf. verður haldinn
fimmtudaginn 23. mars nk. í A-sal
Hótel Sögu, 2. hæð, kl. 16.00.
Dagskrá fundarins skv. samþykktum félagsins:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina á liðnu ári.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt ® y
skýrslu endurskoðanda lagður fram til samþykktar.
3. Tekin ákvörðun um hvernig skuli fara með tap
eða hagnað og um arð og framlög í varasjóð.
4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir
störf þeirra á starfsárinu.
5. Breytingar á samþykktum.
6. Stjórn félagsins kjörin og endurskoðandi.
7. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni
sem löglega eru upp borin. 4
Stjórn Baugs hf.