Morgunblaðið - 23.03.2000, Page 14
14 C FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
UJE FOUND A DOZEN
BUGS IN THE SOFT-
LJARE YOU r—~~
SOLD US.
Við fundum ótal bögga í hug-
búnaðinum sem þú seldir okk
SORRY. . .1 UIAS
OVERCOIAE BY AN
EVIL EUPHORIA.
I GUESS UJE HAVE
TO PAY. UJE HAVE
NO CHOICE! m
CCP þróar tölvuleik fyrir Netið
Andstæðingar
og samherjar af
holdi og bldði
Tölvuleikjafyrirtækið CCP ehf. í Reykja-
iv vík vinnur nú að gerð framúrstefnulegs
tölvuleikjar sem ætlaður er fyrir heims-
markað. Sverrir Sveinn Sigurðarson
ræddi við Sigurð Arnljótsson um viðskipti
í raunheimi og sýndarveruleik Netsins.
Tölvuleikjaíyrirtækið CCP
hf. vinnur nú að þróun
tölvuleiks sem fengið hef-
ur vinnuheitið EVE.
Leikurinn verður fjölþátttökuleikur
Sem leikinn er á Netinu í varanleg-
um sýndarveruleika heimi af fjölda
þátttakenda sem spila með eða á
móti hveijum öðrum, og greiðir
hver spilari áskriftargjald fyrir
þátttöku í leiknum.
CCP er meðal fyrstu fyrirtækja
sem þróar leik af þessari gerð en
aðeins þrír leikjatitlar af fjölþátt-
tökuleikjum hafa komið á markað í
heiminum, samanborið við þúsundir
titla af hefðbundnari tölvuleikjum.
Fjölþátttökuleikir hafa náð mikl-
um vinsældum og eru um 160 til
rúmlega 200 þúsund einstaklingar
virkir leikendur í hverjum hinna
þriggja fjölþátttökuleikja sem kom-
ið hafa á markað, og er ljóst að
fleiri slíkra leilqa er að vænta á
markað á næstunni.
Sigurður Arnljótsson, fram-
kvæmdastjóri CCP ehf., segir í
samtali við Morgunblaðið að þessi
markaður sé í örum vexti og að
samkeppnin muni aukast. „Við telj-
um hins vegar að við séum komnir
lengra á veg en aðrir og með mjög
góða hugmynd og sterka liðsheild
sem vinnur að þessu verki. Þetta er
nýtt form og markaðurinn í vexti.
Kannski hafa fæstir tölvuleikjaspil-
arar í dag kynnst þessu formi, en
það mun margfaldast fjöldi þeirra
sem munu spila þessa gerð af tölvu-
leikjum," segir Sigurður.
Tölvuleikjaiðnaðurinn nálgast
kvikmyndaiðnaðinn
„Tölvuleikjamarkaðurinn er að
verða eins stór og kvikmyndaiðnað-
urinn í Bandaríkjunum. Stærð
markaðarins þar í landi fyrir tölvu-
leiki er rúmir 460 milljarðar króna,
en sagt er að 35% heimsmarkaðar-
ins fyrir tölvuleiki sé í Bandaríkjun-
um.
Samanburðurinn við kvikmynda-
iðnaðinn er dálítið merkilegur, því
ýmsum finnst kvikmyndaiðnaðurinn
vera mjög stór. Verðbréfafyrirtæki
á Wall Street eru nú farin að gefa
tölvuleikjafyrirtækjum meiri
gaum,“ segir Sigurður.
Hann segir að rannsóknafyrir-
tækið Forrester Research spái því
að markaðurinn í Bandaríkjunum
fyrir tölvuleiki sem spilaðir eru á
Netinu muni verða 1,6 milljarðar
dollara árið 2001, sem jafngildir um
117 milljörðum króna, en nú sé
markaðurinn fyrir þessa tegund
leikja aðeins brot af þeirri upphæð.
„Miðað við þá spá verða tekjur af
„EVE er leikur sem maður tengii-
sig inn í á Netinu og spilar hann þar
í eins konar sýndarveruleik. Það er
reiknað með að 100.000 manns geti
spilað leikinn í einu en þessir fjöl-
þátttöku leikir nefnast „massively
multiplayer persistent world“ á
ensku.
Maður fer þarna inn og spilar
leikinn og þegar maður skráir sig
út er leikurinn ennþá í gangi hjá
þeim sem eru tengdir inn einhvers
staðar annars staðar. Raunar er
heimurinn í gangi 24 tíma sólar-
hringsins allan ársins hring. Þó þú
sért ekki að spila er náman sem þú
byggðir þarna í gær er ennþá á
sama stað, en kannski er einhver
annar búinn að byggja námu við
hliðina á þér. Eða þá gæti verið að
einhver væri búinn að sprengja
hana fyrir þér!
Leikurinn í sjálfu sér hefur ekk-
ert eitt skýrt markmið, ekki frekar
en lífið sjálft, heldur eru menn að
byggja sig upp. Sumir vilja eiga
stærsta og flottasta geimskipið,
meðan aðrir vilja verða ríkastir.
Enn aðrir vilja bara vera þarna að
elta aðra leikmenn og skjóta þá nið-
ur!
Það sem gerir þetta leikjaform
mjög skemmtilegt er að þú ert að
spila við alvöru fólk og átt sam-
skipti við það. Þetta er það magnað
að þarna ertu að skemmta þér, þú
þarft að hugsa og þú færð viðbrögð
frá öðrum leikendum sem eru fólk
af holdi og blóði eins og þú. Þetta
Orrustuskip frá Minmatar flýr bardaga í sýndarveruleikaheimi tölvuleikjarins EVE, sem CCP í Reykjavík vinnur
að. Myndin sýnir grafíkina eins og hún verður en leikurinn er kynntur á Netinu á slóðinni www.eve-online.com.
Fjármagna sjálfir
þróun leikjarins
dreifingarfyrirtækja. „Þau eru sí-
fellt á höttunum eftir leikjum. Þetta
leikjaform er nýtt sem sést á þvi að
aðeins hafa komið út þrír leikir sem
bjóða upp á fjölþátttöku á Netinu.
Við höfum rætt lauslega við dreif-
ingaraðila og þeir eru mjög áhuga-
samir um að fá svona leiki til sín í
sölu og dreifingu,“ segir Sigurður
að lokum.
Að sögn Sigurðar er algengast að
fyrirtæki sem þróa tölvuleiki fái til
þess fjármagn frá dreifingaraðilum,
og þeir síðarnefndu fái mestan
hluta teknanna sem koma inn. Hins
vegar mun CCP sjálft hafa fjár-
mögnun vegna þróunar á EVE með
höndum.
Hann segir að þróun leiksins hafi
verið fjármögnuð með verkefnum
sem CCP tók að sér að vinna fyrir
aðra aðila. Einnig er stefnt að
hlutafjáraukningu. Kaupþing mun
sjá um lokað útboð sem fara mun
fram í byijun næsta mánaðar.
„Við erum í betri samningsað-
stöðu við útgefendur þar sem við
erum komnir langt á Ieið og höfum
fjármagnað sjálfir. Þá er áhættan
ekki þeirra heldur okkar, og eru því
tilbúnir til að semja á þann hátt
sem er hagstæðari fyrir okkur,“
segir Sigurður.
Átök og viðskipti
á Netinu
Fyrirgefðu... Djöfulleg Við neyðumsl víst til að borga.
sæluvíma bar mig ofurliði. Við höfum ekki um annað að velja.
- Afsakaðu snöggvast.
Setjið fleiri bögga í hugbúnaðinn!
Eg er að stórgræða ó þessu!
Ég er farinn að hafa efasemdir um
þó stefnu fyrirtækisins að skipta
beint við framleiðandann.
Sigurður Arnljótsson, framkvæmdastjóri CCP ehf.: „Tölvuleikjamarkaður-
inn er að verða eins stór og kvikmyndaiðnaðurinn í Bandaríkjunum."
áskrift í fjölþátttökuleikjum í
Bandaríkjunum meiri en tekjur eru
í dag af tölvuleikjum sem seldir eru
á CD-Rom geisladiskum. Hvað fjöl-
þátttökuleiki varðar er tekjumódel-
ið með þeim hætti að í raun væri
hægt að gefa geisladiskinn sem
leikurinn er á, það eru áskriftar-
tekjurnar sem skipta megin máli,“
segir Sigurður.
Aðspurður hvemig leikurinn
verði markaðssettur erlendis segir
Sigurður að markaðssetningin muni
fara fram gegnum eitt hinna stóru
YOU CAN'T
CHARGE US TO
FIX YOUR OUN
DEFECTIVE É
PRODUCT!
Þú getur ekki lótið okkur borga
fyrir að gera við gallaðan
hugbúnað fró sjólfum þér!
PUT tAORE BUGS
IN THE SOFTUJARE!
I'ÍA IAAKING A
VjORTUNE OUT HERE!
I'IA STARTING TO
QUESTION OUR
SINGLE SOURCE
. , STRATEGY.
0JE CAN FIX
THESE BUGS
FOR SiO.OOO.