Morgunblaðið - 23.03.2000, Qupperneq 16
Viðskiptablað
Morgunbíaðsins
Fimmtudagur
23. MARS 2000
Bakkavor semur við Kaupþing
• BAKKAVÖR Group
hf. hefurgert samning
við Kaupþing hf. um
umsjón með skrán-
ingu fyrirtækisins á
Verðbréfaþing Islands
og útboöi á hlutabréf-
um f fyrirtækinu. Þessi
mynd var tekin við það
tækifæri. Frávinstri:
Þórður Pálsson, deild-
arstjóri greiningar-
deildar Kaupþings,
Ágúst Guðmundsson,
stjórnarformaður
Bakkavarar Group hf.,
SigurðurEinarsson,
forstjóri Kaupþings,
Lýður Guðmundsson,
framkvæmdastjóri
BakkavararGroup hf.,
og Helgi Bergs, sér-
fræðingur á tyrirtækja-
sviði Kaupþings.
Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Talna-
könnunar, Tim C. Clarke, aðstoðarforstjóri alþjóða-
deiidar IDG og Styrmir Guðlaugsson, útgefandi og
stjórnarformaður Hemru.
Talna-
”könnun
hf. kaupir
Tölvuheim
• SKRIFAÐ hefur ver-
ið undir kaupsamning
milli Talnakönnunar
hf. og Hemru ehf. um
kaup Talnakönnunar á
tímaritinu Tölvuheimi -
PC World ísland og
vefsíðunni Netheimi
(heimur.is). Auk þess
kaupir Talnakönnun af
Hemru upplýsingaritið
Vefinn, sem fjallar um
vefsíður fyrirtækja og
stofnana.
í fréttatilkynningu
um kaupin kemur
fram að Tölvuheimur
hefur komið út frá því
í nóvember 1995 og
er eina íslenska tíma-
ritið á almennum
markaði sem helgað
er tölvum, Netinu og
þróun upplýsinga-
tækninnar. Tölvuheim-
ur er íslenska útgáfan
af PC World sem er
útbreiddasta tölvu-
tímarit í heimi en ritiö
er gefiö út samkvæmt
sérstökum samningi
við útgáfurisann Inter-
national Data Group
(IDG). Samkvæmt
könnunum lesa um
40.000 manns Tölvu-
heim reglulega. Auk
efnis sem þýtt er og
staðfært frá PC World
og fleiri IDG-tímaritum
er stór hluti Tölvu-
heims helgaður ís-
lenskum veruleika
tölvunnar og Netsins.
Tölvuheimur kemur út
10 sinnum á ári.
Samkomulag hefur
orðið um að fyrirtækin
muni hafa með sér
samvinnu um út-
gáfumál og mun
Hemra veita nýjum út-
gefanda Tölvuheims
víðtæka aðstoð til að
byrja með við útgáfu
ritsins og þróun vefj-
arins. Hemra mun
Ijúka útgáfu fyrstu
fimm tölublaða ársins
2000, en Talnakönn-
un tekur formlega við
útgáfunni um mán-
aðamótin maí/júní.
Samhliða því að
Hemra seldi útgáfuna
skrifaði Talnakönnun
undir samstarfssamn-
ing um tímaritaútgáfu
við IDG og kom að-
stoðarforstjóri al-
þjóðadeildar fyrirtæk-
isins, Tim C. Clarke,
hingað til lands af því
tilefni.
SAM-félagið með fleiri umboð
• SAM-félagið, sem
samanstenduraf
Sambíóunum, Sam-
myndböndum og
Samtónlist, hefurgert
samninga við kvik-
myndafyrirtækin Uni-
versal, Dreamworks
og Paramount varð-
andi myndbandaút-
gáfu og myndbanda-
dreifingu á Islandi.
Með þessari viðbót
í myndbandadeild
Samfélagsins eykst
markaðshlutdeild fyr-
irtækisins á leigu- og
sölumyndböndum
umtalsvert.
Auk nýju umboö-
anna er Samfélagið
með samninga fyrir
myndbandaútgáfu og
dreifingu á kvikmynd-
um Warner Bros, Walt
Disney, Touchstone,
o.fl.
Samfélagiö á og
rekur 6 kvikmynda-
hús; Bíóhöllina, Saga-
bíó, Bíóborgina,
Kringlubíó, Nýja bíóí
Keflavík og á Akureyri.
Útflutningur - ekkert mál!
Navision Financials
Útflutningskerfi Strengs leysir allar þarfir útflytjenda
í öllum atvinnugreinum. í kerfinu er tenging við Toll,
< EDI og öll skýrslugerð er fyrir hendi. Allt sem snýr
f að útflutningi er leyst í sérlausnum frá Streng hf.
ÁRMÚLA 7, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 550 9000, www.strengur.is
FÓLK/Guöný Benediktsdóttur
Stórhríðin
skemmtileg eftir á
Morgunblaðið/Sverrir
GUÐNÝ Benedikts-
dóttir hefur verið
rúmt ár í starfi
markaðsstjóra hjá EJS.
Hvað veldur því að véla-
verkfræðingur endar sem
markaðsstjóri?
„Þar sem ég hafði sér-
stakan áhuga á stjórnun-
arlega þættinum í véla-
verkfræðináminu lagði ég
áherslu á hann. Ástæðan
fyrir að ég fór svo í MBA-
nám er einfaldlega sú að
mér fannst ég þurfa að
bæta viðskiptafræðimenn-
tun, með áherslu á mark-
aðsfræði, ofan á tækni-
námið.“
Eðlisfræði, vélaverk-
fræði og Áburðarverk-
smiðjan, jafnvel EJS,
minna meira á karla en
konur. Hvernig er að vera
kona í slíkum karlaheimi?
„Eg þekki í raun ekkert
annað, en það er ekki þar með
sagt að mér líki það alltaf. Ég
kem bara mínum skoðunum á
framfæri og vil að mínir hæfi-
leikar fái notið sín á mínum for-
sendum. Það eru tvímælalaust
aðrar áherslur hjá konum í
stjórnunarstöðum, við erum
mýkri, viljum taka mýkra á mál-
unum en karlarnir. Ég vil ekki
verða eins og þeir og reyni það
ekki á nokkurn hátt.“
Hvað með einkaiífíð. Attu þér
einhver áhugamál?
„Fjölskylda mín, þ.e. foreldr-
ar og br.æður, stundar hesta-
mennsku og það gerði ég líka en
þetta er tímafrekt sport og eftir
að ég átti son minn hef ég lítið
sinnt því.
Þá hefur verið sameiginlegt
áhugamál okkar hjóna að ferð-
ast innanlands. Við eigum öflug-
an jeppa og áður fyrr fórum við
mikið upp á jökla og í fjallaferð-
ir í góðra vina hópi. Það er al-
veg sérstök upplifun að njóta
víðáttunnar, hvað allt er hljótt
og ósnortið."
Hefurðu sem sagt gaman af
að berjast við náttúruöflin?
„Já. Maður lendir í alls kyns
ævintýrum og þarf að stóla á
sjálfan sig. Þegar veðrið er gott
og allt gengur vel er þetta stór-
kostlegt. Hins vegar ef maður
lendir í stórhríð eða eitthvað
kemur upp á þá er ekki gaman,
fyrr en eftir á. Þá hefur maður
► Guðný Benediktsdóttir fædd-
ist í Reykjavík árið 1964. Hún
varð stúdent af eðlisfræðibraut
Menntaskólans við Sund árið
1984 og lauk prófi í vélaverk-
fræði frá Háskóla íslands árið
1989. Þá lá leiðin til Colorado í
Bandaríkjunum þar sem hún
stundaði MBA-nám við Colorado
State University til ársins 1991.
Guðný starfar nú sem markaðs-
stjóri hjá EJS hf. en gegndi áður
sölu- og markaðsstjórastarfi hjá
Áburðarverksmiðjunni um fjög-
urra ára skeið.
Eiginmaður hennar er Guðni
Ingimarsson, vélaverkfræðingur
og verkefnastjóri í þróunardeild
Össurar hf., og eiga þau soninn
Ingimar, sem er fjögurra ára.
tekist á við eitthvað og sigrast á
því.“
Hvað dreymir þig um að gera
í framtíðinni?
„Mínir draumar snúast ekki
um að verða einhvers staðar
forstjóri, ég hef ekki áhuga á að
færa þær fórnir sem það krefst.
Ég er ánægð með líf mitt eins
og það er, en dreymir einna
helst um að hafa meiri tíma fyr-
ir fjölskylduna. Hins vegar er
ég ekkert smeyk við að taka
kúvendingar í lífinu ef svo ber
undir.“
*fg «SZ
fgtfSíifítS®
#»*•**
fSgSSSt
(tí**
m ®
íg
ss aa
»888888*1
»»«88 S8
v
85 »8884
m m ■
m mææs
***
kr./mín. til helstu
viðskiptalanda.
Frímínútur
Íslandssíma.
Talaðu út!
Skráning og
upplýsingar í síma
594 4000
eða á
friminutur.is
c
www.mbl l.is
INNHERJI SKRIFAR...
ÁST í MEINUM
• ÞAÐ ætlar að ganga erfiðlega hjá
forsvarsmönnum Landsbanka og
íslandsbanka að vekja áhuga ríkis-
stjórnarflokkanna á löngun bank-
anna tveggja að ganga í eina sæng.
Forsvarsmenn bankanna beggja
hafa sýnt það með ýmsum hætti að
þeim er í mun að fá að sameinast í
öflugum banka sem mundi væntan-
lega verða meö um 60% markaös-
hlutdeild. Til að mynda má ætla að
sameiginlegur blaöamannafundur
bankastjóra íslandsbanka og
Landsbanka á dögunum þar sem
þeir buðu saman nýtt greiðslufyrir-
komulagí netviðskiptum, hafi m.a.
veriö til þess ætlaður að rjúfa þá
kyrrstöðu sem óneitanlega hefur
ríkt í sameiningarmálum bankanna
allt frá því í lok síðasta árs. Fram
að þeim tíma virtist liggja í loftinu
að samstaða gæti myndast um aö
Landsbanki og Islandsbanki fengju
að renna saman, svo fremi að VIS
væri skiliö frá Landsbankanum og
sameinað Búnaðarbankanum.
Síðan er eins og botninn hafi
dottið úr málinu. Nýr viöskipta-
ráðherra hefur tekið við og verður
ekki betur séð en Valgeröur Sverris-
dóttir sé heldur áhugalaus um
bankasameininguna. Brýning og
ádeila Kristjáns Ragnarssonar
bankaráösformanns á aðalfundi
ísiandsbanka á dögunum virðist
einungis hafa gert illt verra. For-
sætisráðherra hefur séð ástæðu til
að koma fram og láta þau orð falla
að vissara sé að fara sér hægt í
þessu máli, m.a. í Ijósi samkeppn-
islaganna.
Á sama tíma er skýrt frá því að
einkavæðingarnefnd hafi veriö
heimilað að hefja undirbúning að
sölu Landsstmans sem vitað er að
hefur verið um skeiö nokkur ásteyt-
ingarsteinn milli stjórnarflokkanna í
þessu efni. Má því velta því fyrir sér
að þaö þyki nægt verkefni að koma
Símanum á markað og uppstokkun
bankakerfisins sé settí bið á með-
an.
RÚSSNESKA ÆVINTÝRIÐ
• SH var rekið með 187 milljóna
króna tapi á síðasta ári. Helsta
skýringin á lélegri afkomu félagsins
eru miklarafskriftirvegnafjárfest-
inga félagsins f Rússlandi, 401
milljón króna, og afkoma hlutdeild-
arfélags SH, Navenor, t Rússlandi
var enn verri en gert hafði verið ráð
fýrir. Nam hlutdeild SH í rekstrar-
tapi félagsins í Rússlandi 166
milljónum króna. Starfsemi Naven-
or hefur nú verið hætt að mestu og
unniö að því að selja eignir þess og
starfsemi SH í Rússlandi verður
stýrtfrá Noregi.
Aðilar í sjávarútvegi hafa velt
vöngum yfir hvers vegna stjórn SH
ákveður að hætta starfsemi nú f
Rússlandi þar sem félagiö þraukaði
mestu haröindin sem fylgdu í kjöl-
far falls rúblunnar í ágúst 1998. Þvt
er ekki reynt að þrauka aóeins
lengur þar sem allt virðist vera á
réttri leið í rússnesku efnahagsltfi?
En það er líka alltaf spurning um
hversu lengi fyrirtæki geta réttlætt
mikið tap fyrir hluthöfum sínum. Því
má ætla aö stjórn SH hafi ekki talið
félagiö geta tekið á sig meira tap
vegna Navenor en komið er þrátt
fyrir væntingar um að bráðum komi
betri tíð í rússneskum sjávarútvegi.