Morgunblaðið - 28.03.2000, Blaðsíða 28
2§ ÞRIÐJUDAGÍUR 28. MARS 2000
MORGUNBLADID
LISTIR
Reykjavik - menningarborg og Listahátíð sameina krafta sína
Eitt umfangsmesta menningar-
samstarf sem um getur á Islandi
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Þórunn Sigurðardóttir og Sveinn Einarsson undirrita samninginn.
FORSVARSMENN
Reykjavíkur - menn-
ingarborgar Evrópu
árið 2000 og Listahá-
tíðar í Reykjavík árið
2000 undirrituðu í gær
einn umfangsmesta
samstarfssamning sem
gerður hefur verið
milli tveggja íslenskra
menningarstofnana til
þessa. Nær samning-
urinn yfir fjögur sam-
starfsverkefni, sem
eru á dagskrá beggja
aðila, og sjö verkefni
sem eru bæði á dag-
skrá Menningarborgar
og Listahátíðar en í
umsjón þriðja aðila.
Þórunn Sigurðar-
dóttir stjómandi
Menningarborgarinn-
ar og Sveinn Einars-
son formaður stjórnar
Listahátíðar, sem und-
irrituðu samninginn,
lýstu honum sem sér-
stöku gleðiefni.
Þórunn sagði Listahátíð í Reykja-
vík hafa ráðið miklu um það að
Reykjavík varð fyrir valinu sem ein
af níu menningarborgum Evrópu í
ár enda sé þar á ferð alþjóðleg hátíð
með ríka hefð. „Það er menningar-
borginni gleðiefni að geta gengið til
samstarfs við Listahátíð enda er
það mín skoðun að vænlegra sé fyr-
ir hátíðir af þessu tagi að sameinast
en fara í samkeppni," sagði hún.
Sveinn fagnaði samstarfinu sem
gerði Listahátíð kleift að bjóða upp
á stærri viðburði en áður, svo sem
sýningu San Francisco-ballettsins á
Svanavatninu í Borgarleikhúsinu.
Kvaðst hann vonast til að hátíðin í
ár yrði með eftirminniiegri Listahá-
tíðum. Þórunn tók undir þetta og
kvaðst binda vonir við að árangur-
inn af samstarfinu yrði til þess að
framlag til Listahátíðar, og menn-
ingarmála í landinu almennt, yrði
aukið í framtíðinni.
Svanavatnið stærst
Langstærsta samstarfsverkefnið
er koma San Francisco-ballettsins
en hin verkefnin eru Hátíðartón-
leikar í Laugardalshöll 8. júní, sýn-
ingin íslands þúsund ljóð í Þjóð-
menningarhúsinu, sem opnuð
verður 20. maí, og leikbrúðusýning-
in Don Giovanni í ís-
lensku óperunni dagana
3. og 4. júní.
Menningarborgin
leggur um 14,5 milljón-
ir króna í þessi verk-
efni.
Eftirtalin verkefni
eru í umsjón þriðja að-
ila: Nýr heimur - staf-
rænar sýnir á vegum
Listasafns Islands;
Garðhúsabærinn, al-
þjóðleg arkitektasýning
á vegum Listasafns
Reykjavíkur; fslensk
tónlist á 20. öld II á
vegum Tónskáldafélags
íslands; Blá, sýning á
vegum Nýlistasafnsins;
sýning á verkum Tonys
Cragg í i8 og tvær sýn-
ingar á Leiklistarhátíð
barnanna, IMnsessan á
hörpunni, brúðuleikhús
á vegum Leikbrúðu-
lands, og Unima á ís-
landi og Völuspá, sem
Möguleikhúsið stendur að.
Menningarborgin mun verja ríf-
lega 25 milljónum króna til þessara
sjö verkefna.
Miðasala á viðburði Listahátíðar
hefst 25. apríl næstkomandi. Þá má
geta þess að miðasala á tvö af stærri
verkefnum Menningarborgarinnar,
Raddir Evrópu og Björk annars
vegar og Baldur eftir Jón Leifs hins
vegar, hefst 10. apríl næstkomandi.
Báðir viðburðir verða í ágúst.
Sleit vöðva
en héit
ótrauður
áfram
EGILL Ólafsson, sem fer með
hlutverk Freds Grahams í
söngleiknum Kysstu mig Kata
í Borgarleikhúsinu, varð fyrir
því óhappi að slíta vöðva á
frumsýningunni á laugardags-
kvöldið. Hann hélt þó ótrauð-
ur áfram leiknum eftir að hlúð
hafði verið að honum baksviðs
og hann vafinn.
Aðspurður hvort ekki hafi
verið erfitt að ljúka sýning-
unni með slitinn vöðva segir
Egill að vissulega hafi það
verið dálítið átak, þar sem
sársaukinn hafi verið mikill.
Dánarvottorð eina afsök-
unin fyrir að mæta ekki
„En maður beit bara á jaxl-
inn, það var ekki hægt að
hætta. Ég var ekki dauður -
en eina afsökunin fyrir því að
mæta ekki í vinnuna þegar
leikhúsið er annars vegar er
að vera með dánarvottorð upp
á vasann. Það er engin misk-
unnj)ar,“ segir hann.
„Eg rak mig illa í þegar ég
gekk þarna um og var með
mótleikara minn á bakinu,"
segir Egill, sem þykir atvikið
langt frá því að vera frétt-
næmt, enda búinn að leika
eina sýningu síðan eins og
ekkert hafi í skorist. „Ég er í
góðum höndum og hef fengið
góða umönnun lækna og
sjúkraþjálfara," segir hann.
Þú getur treyst
þér eins og
því að í Golf líður
heima hjá þér
m
HEKLA
- I forystu á ttýrri Öldt Laugavegur 170-174 • Slml 569 5S00 • Helmasffta www.hekla.ls • Netfang hekla@hekla . is