Morgunblaðið - 28.03.2000, Blaðsíða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
THI5 CONCLllPES MY PORTION
0P ''SMOU) ANP TELL" WHERE
I HAVE 5HOU)N VOU ALL MV
NEU) 'l PRAYIN6 POLL"
5IT POUIN, KIP! i'm 60NNA
5HOW 'EM MY NEU)
HOU) PO YOU LIKE MY NEU)
llPRAYlNG POLL" LAUNCHER?/
Þar raeð lýkur frásögn minni og Farðu frá, stelpa. Ég ætla að sýna Hvernig lýst þér á nýju „biðjandi
sýningu þar sem ég hef sagt ykkur þeim nýju eldflaugina mína. dúkku“-flaugina mína.
allt um dúkkuna mína sem biður.
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kxinglunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Eru bíll og bíltsjóri undir það búnir að aka í slæmri færð?
Erum við klár í
vetraraksturinn?
Eða ökum við eins og á sólbjörtum
sumardegi?
Frá ungum ökumönnum íökuskóla
Sjóvár-Almennra:
VIÐ ERUM tveir hópar sem sóttu
umferðarskóla Sjóvár-Almennra íyr-
ir unga ökumenn í febrúar. Við velt-
um fyrir okkur mikilvægum þætti er
snertir öryggi okkar í umferðinni.
Akstri að vetrarlagi.
Við þurfum að hafa bílinn vel út-
búinn, sérstaklega þurfum við að
vera á góðum vetrardekkjum, hafa
rúðuþurrkur í góðu lagi og ef við er-
um á ferð utan þéttbýlis er gott að
hafa hafa skóflu og tóg í bílnum. Ef
bíllinn bilar þarf að hafa viðvörunar-
þríhyrning og setja hann 40-50 metr-
um aftan við bílinn til að láta aðra
vita af honum. Augljóst er að fjór-
hjóladrifinn bfll er öruggari í slæmri
færð og munum að hafa alltaf rúður
og spegla hrein. I snjókomu og rign-
ingu safnast oft móða á rúður. Not-
um miðstöðina til að koma í veg fyrir
að móða myndist og hindri útsýni.
Þegar ekið er þar sem götur eru
saltaðar, þurfum við að hreinsa dekk-
in reglulega, því tjara safnast mjög
fljótt á þau og hún er ágætis skíðaá-
burður, og því ekki heppileg á dekk.
Við þurfum alltaf að sýna sérstaka
varúð og miða hraðann „alltaf' við
aðstæður. Við þurfum að vita hvers
konar bremsur eru á bflnum. Bfll
með ABS bremsukerfi læsir ekki
hjólunum, þó hálka sé og því auðveld-
ara að stýra honum.
Við hvetjum þá sem eru á ferð ut-
an þéttbýlis að leita upplýsinga um
færð og veðurspá og láta vita um
ferðaáætlanir svo hægt sé að láta
vita ef hún raskast. Tökum ekki
óþarfa áhættu ef veðurspáin er
slæm.
Með kveðju frá ungum ökumönn-
um í ökuskóla Sjóvár-Almennra á
Akranesi og Grundarfirði í febrúar.
EINAR GUÐMUNDSSON
forvarnafulltrúi Sjóvár-Almennra.
Yfírvöld eða
bæjarstjórn
Frá Snorra Jónssyni:
OFT ber það við í prentuðu máli þeg-
ar ritað er um málefni sem borgar-
stjóm eða bæjarstjómir fjalla um og
sagðar em fréttir i blöðum frá fund-
um þeirra, samþykktum þeirra eða
ákvörðunum, þá er eins og fréttarit-
aramir eða ýmsir aðrir skríbentar
forðist að nefna orðin borgarstjóm
eða bæjarstjóm; þeir tönnlast í sífellu
á orðunum borgaryfirvöld eða bæjar-
yfirvöld í stað þess að nota orðin
borgarstjóm eða bæjarstjóm.
Þetta finnst mér ákaflega óviðfelld-
ið en er því miður nokkuð algengt.
Einstaklingamir stjóma sínum
gjörðum á sínum afmörkuðu básum,
sínum heimilum, sínum fyrirtækjum
o.sirv.; - hið sama gildir um borgar-
eða bæjarstjóm. Þær hafa skilgreind
verkefni sem þær sinna og þeim ber að
sinna en þær eru ekki löggæsluaðfli og
hafa ekki dómsvald en þær geta kært
til yfirvalds ef þær telja lög hafi verið
brotin einhvers staðar á þeirra afmark-
aða stjómunarsviði og þá mun yfir-
valdið, dómsvaldið, úrskurða í málinu.
Hvaða skflning á þá að leggja í orð-
ið yfirvald?
Samkvæmt skilgreiningu í orðabók
er það yfirboðari eða valdsmaður:
sbr. orðasambandið yfirvöld og und-
irgefnir; - sýslumaður: yfirvaldið.
Stundum er talað um yfirvöld (í fleir-
tölu) sem merkir þá venjulega fram-
kvæmdavald og dómsvald í samein-
ingu á vegum ríkisins.
I reynd eiga þessi orð: borgaiyfir-
völd eða bæjarjfirvöld engan gmnd-
völl til að standa á og em því mark-
leysa, enda era þau ekki til í
orðabókum; - að nota þau lýsir ekki
öðm en félagslegri vankunnáttu.
Þeir sem hafa dómsvald eða vinna í
umboði þess eins og lögreglumenn
sem em hinir daglegu gæslumenn
laga og réttar, lögreglustjórar, sýslu-
menn og dómarar era hið eiginlega
yfirvald og er þó öllum þessum aðil-
um markaður bás í grandvallarlögum
landsins, stjómarskránni.
Og að síðustu þetta: Það er alveg
fráleitt að sniðganga orðin borgar-
stjóm eða bæjarstjórn. Þegar Reyk-
víkingar ganga tfl kosninga og kjósa
fulltrúa í borgarstjóm ganga þeir
ekki til borgaryfirvaldakosninga
heldur til borgarstjómarkosninga og
hið sama gildir um okkur sem búum i
bæjarfélögum utan höfuðborgarinn-
ar; við göngum ekki til bæjaryfir-
valdakosninga, nei, það er af og frá -
við göngum til bæjarstjómarkosn-
inga.
Með kveðju,
SNORRIJÓNSSON,
Sléttahrauni 27, Hafnarfirði.