Morgunblaðið - 01.04.2000, Page 30

Morgunblaðið - 01.04.2000, Page 30
MORGUNBLAÐIÐ 30 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 JL íat Sw Hýsendinqaf oq utsaumsqam Lai jbolisvcðor 111 Sími 568 6500 www.fondra.is öfiiííliiigírápifií 10-16 Nám í Danmörku Hjá Horsens Polytechnic bjóðum við upp á ýleiri tegundir af tœknimenntun. byggingafræðingur með ijórum brautum: enskri, byggingar- og framkvæmdalínu ívomi uo Kynningarfundur í Reykjavík v. aoni k.. ...! i Radtiscsí SAS. Horei Sosu. Allir velkomnir Á fiindinum munu verða nemandinn Sigurður Ólafsson og kennarinn Eli Ellendersen og munu Þeir verða fyrir svörum og segja frá skólanum. Jafhframt verða til staðar íslenskir byggingafræðingar menntaðir i Horsens. Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við Sigurður Ólafsson og Eli Ellendersen með því að hringja til Hótel Sögu frá 02.04 - 12.04.2000 eða leggja inn skilaboð. Horsens Polytechnic SíotsgnMlie ] 1- Oií-SIOO tfoí$«s DemisŒrtí II..+45 76255001 Fca+45 7625 5100 E-moill:twsiíefe@!tasiffiife..dl‘ lliilpi/wiw.tasfek,.dk ÚRVERINU * Stór og umfangsmikil verkefni framundan hjá SIF hf. I fararbroddi eftír samrunann við IS SÍÐASTLIÐIÐ ár var eitt hið við- burðaríkasta í sögu SIF frá upphafi, þrátt fyrir erfíð rekstrarskilyrði og óviðunandi afkomu. Þetta kom fram í ræðu Gunnars Amar Kristjánsson- ar, forstjóra SÍF, á aðalfundi félags- ins í gær. Gunnar sagði samruna SIF og Is- lenskra sjávarafurða án efa þann at- burð sem bæri hvað hæst í starfsemi liðins árs og markaði timabót í ís- lenskri viðskiptasögu og í réttu framhaldi af þeim breytingum sem nú eru að verða á dreifingu og sölu matvæla í helstu markaðslöndum fé- lagsins. ;,Fyrir samrunann var af- koma SIF að talsverðu leyti háð samkeppnisstöðu saltfiskiðnaðarins og reksturirm var veikur fyrir sveifl- um í rekstrarumhveríi saltfiskverk- enda. Við samruna Islenskra sjáv- arafurða og SÍF liggja eggin ekki lengur í sömu körfunni og áhættu- dreifing í rekstrinum er meiri en fyrr. Þetta er ein af forsendum fyrir samruna þessara félaga og samein- uð standa þau sterkari en sitt í hvoru lagi,“ sagði Gunnar. SIF sameinaðist einnig íslands- síld hf. á síðasta ári og sagði Gunnar sameininguna styrkja félagið, þó á þessu fyrsta ári hafi verið erfiðleik- ar á síldarmörkuðum vegna bágs efnahagsástands í fyrrum Sovétríkj- unum og mikillar framleiðslu Norð- manna á síldarafurðum til manneld- is. Sagði Gunnar að þegar jafnvægi kæmist á markaði myndi staða SÍF í viðskiptum með sfldarafurðir vafa- laust tryggja félaginu góðan ábata. Á síðastliðnu ári keypti SÍF hf. 70% hlutabréfa í Armengol SA í Katalón- íu á Spáni en félagið á sér langa sögu í viðskiptum með saltfiskafurð- ir og hefur haft styrkja stöðu á markaðnum. Sagði Gunnar að með kaupunum hafi SÍF yfirburðastöðu á Spánannarkaði og það treysti stoðir SÍF gagnvart innlendum framleiðendum. Óhagstæð rekstrarskilyrði Gunnar sagði ytra umhverfi SÍF samteypunnar hafa verið afar óhag- stætt á árinu 1999 og þó sérstaklega saltfiskvinnsla. Afkoma félagsins hafði þannig verið óviðunandi. Sagði Gunnar helstu ástæður þess vera hvað rekstur SÍF í Noregi gekk illa, órólefld á saltfiskmörkuðum í kjölfar gengisfalls brasilíska realsins, meiri kostnaður við markaðssetningu á Spáni en gert var ráð fyrir og hátt hráefnisverð á laxi allt síðasta ár. Gunnar sagði einnig að óhagstæð gengisþróun hafi haft neikvæð áhrif á rekstrar- og efnahagsreikning fé- lagsins á síðasta ári. Evran hafi á síðasta ári lækkað gagnvart íslensku krónunni um 10,3% en starfsemi SIF fer að stærstum hluta fram í Evrópu og löndum sem tengjast evrunni. Gunnar sagði ljóst að framundan væru stór og umfangsmikil verkefni til að takast á við. Samruni SÍF og ÍS breytti talsverðu í starfsemi fé- lagsins og vissulega fylgdu svo stór- um samruna vandkvæði og vaxtar- verkir. „Eftir samrunann er SIF félag sem stendur í fararbroddi í al- þjóðlegum viðskiptum með sjávar- afurðir, félag sem er betur í stakk búið til að mæta þörfum og kröfum neytenda sjávarafurða í veröldinni, félag sem getur betur þjónað fram- leiðendum sjávarafurða, en síðast en ekki síst verður til félag sem á að geta skilað hluthöfum sínum hærri arði. Tækifærin eru hvarvetna og með samstilltu átaki starfsmanna og stjórnenda SIF ætti að takast að gera SIF hf. að fyrirtæki sem er í fararbroddi þeirra sem eiga við- skipti með sjávarafurðir á heims- markaði," sagði Gunnar. Sterk landsbyggð mikilvæg Friðrik Pálsson, stjómarformað- ur SÍF, gerði byggðamál að umtals- efni á aðalfundi félagsins í gær. Hann sagði mörg byggðarlög úti á landi eiga erfiðan tíma fyrir hönd- um, enda væru búferlaflutningar á höfuðborgarsvæðið sjaldan meiri en nú. Flestum væri hinsvegar ljóst að æskilegt væri að byggðaröskun yrði ekki meiri en orðið er. „Sterk lands- byggð er mjög mikilsverð fyrir framtíð fyrirtækja sem byggja á út- gerð og fiskvinnslu og sterk fyrir- tæki á landsbyggðinni skipta máli fyrir SÍF. Fiskimiðin eru allt í um- hverfis landið. Stórvirk frystiskip gera það auðvitað mögulegt að stunda veiðar hvar sem er, án tillits til heimahafna. Ég er hins vegar sannfærður um að við munum halda áfram að stunda strandveiðar og vinnslu um ókomin ár og að nálægð- in við fiskimiðm verði talinn mikfls- verður kostur. Við þurfum því á því að halda að íbúum hinna dreifðari byggða verði gert eins þægilegt og kostur er að halda sinni búsetu þar um leið og þeir sækja þjónustu sína til Reykjavíkur án ónauðsynlegra hindrana og kostnaðar," sagði Friðrik. Fjölbreytt Markaðstorg SÍF í tengslum við aðalfundinn Gæði án landamæra Morgunblaðið/Kristinn Hilmar B. Jónsson matreiðslumeistari býður gestum á Markaðstorgi SÍF upp á bjórsteiktan þorsk frá SÍF-Iceland Seafood Corporation. „ÞETTA smakkast mjög vel og pöl- breytnin kemur á óvart,“ sagði Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráherra, við Morgunblaðið eftir að hafa kynnt sér hvað Markaðstorg SÍF hafði upp á að bjóða í gær. „Þetta er einn hlut- ur í kynningunni en mikilvægt er að halda henni alltaf gangandi og minna fólk á, því hún vekur áhuga og um- ræður.“ Fjölbreytt dagskrá var í tengslum við aðalfund SÍF og lauk henni með glæsflegu Markaðstorgi í Sunnusal Hótel Sögu í gær þar sem SÍF á ís- landi, Saltkaup, Tros og fyrirtæki SÍF í Brasilíu, Bandaríkjunum, Frakklandi, Grikklandi, Japan, Þýskalandi, Bretlandi, Kanada, Nor- egi og á Ítalíu og Spáni kynntu starf- semi sína og vörur og buðu gestum að smakka rétti að hætti markaðs- landanna. Kjörin leiötilað kynna samstæðuna Gunnar Örn Kristjánsson, for- stjóri SÍF hf., segir að Markaðstorg- ið hafi verið kjörin leið til að kynna SIF-samstæðuna. „Þetta er sam- stæða sem þjónar orðið gríðarlega stórum viðskiptahópi og styrkleiki hennar er að við vinnum með alla breidd í sjávarfangi. Okkur þótti full ástæða til að setja upp svona mark- aðstorg til að framleiðendur og hlut- hafar fengju tækifæri til að sjá hvað samstæðan hefur fram að bjóða.“ Markaðstorgið var mjög vel sótt og vel heppnað eins og framleiðenda- fundimir á fimmtudag. „Framleið- endadagurinn var mjög góður og þar var gríðarlega góð mæting," segir Gunnar Öm og bætir við að þar hafi framleiðendur verið á einkafundum með sölustjóram allra dótturfélag- anna og haft tækifæri til að fara yfir sín mál. „Markaðstorgið var punkt- urinn yfir i-ið og við kynntum fram- leiðendum, stærstu hluthöfum og fulltrúum verðbréfafyrirtækja og banka afurðir okkar, en eins og sjá mátti má búa til gríðarlegan fjölda af endanlegum afurðum úr hráefninu sem samsteypan vinnur með.“ Markaðstorgið hvetjandi Framleiðendur fengu gott tæki- færi til að sjá hvað SÍF gerir við hrá- efnið og augljóst var að þeir kunnu vel að meta framtakið. „Þetta er mjög vel heppnað,“ sagði Pétur H. Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík, sem er stærsti saltfisk- framleiðandi SIF. „Það er langt síð- an aðalfundir hafa verið með þessum áherslum og Markaðstorgið virkar mjög hvetjandi á framleiðendur.“ Gott fyrir fótboltann Vöruúrvalið var rnikið og hver rétturinn gómsætari. Steinar Trausti Kristjánsson, framkvæmda- stjóri SIF í Brasilíu, kynnti m.a. saltfiskbollur úr ufsa og þorski og sagði þær tilvalið meðlæti þegar horft væri á fótboltann í sjónvarpi auk þess sem gera mætti því skóna að þær hefðu sitt að segja varðandi ágæti Brasilíumanna í knattspymu. Teitur Gylfason, framkvæmdastjóri SÍF KK í Japan, bauð upp á þurrk- aða og steikta loðnu og sushi með loðnuhrognum, túnfiski og rækju og kunnu sælkerar vel að meta. Svo mætti lengi telja en einkunnarorð SIF era gæði án landamæra og Markaðstorgið sýndi að það era orð að sönnu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.