Morgunblaðið - 01.04.2000, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 55
INGIBJÖRG EYGLÓ
PÉTURSDÓTTIR
tlngibjörg Eygló
Pétursdóttir
fæddist á Ásvöllum í
Stykkishólmi 17.jan-
úar 1927. Hún lést
23. mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Pétur Einar
Einarsson, f. 19.5.
1885, d. 12.1. 1961,
og Jóhanna Jóhanns-
dóttir, f. 24.11. 1889,
d. 31.12. 1970. Þau
bjuggu lengst af á
Ökrum í Stykkis-
hólmi. Systkini Ingi-
bjargar eru: Svava
Halldóra Pétursdóttir, f. 8.1.
1915, d. 15.1.1992; Guðrún Sigríð-
ur Pétursdóttir, f. 14.8. 1916; Jó-
hann Pétursson, f. 18.2. 1918; Ás-
gerður Ágústa Pétursdóttir, f.
11.4.1919; Einar Jón Pétursson, f.
6.7. 1920, d. 5.5. 1998; Guðrún
Arnbjörg Pétursdóttir, f. 30.9.
1921; Sigvaldi Pétursson, f. 26.6.
1923; Lára Karen Pétursdóttir, f.
6.10.1931.
Ingibjörg Eygló giftist 31.12.
1957 Gísla Berg Jónssyni, f. 21.4.
1926 í Stykkishólmi, en höfðu þau
þá búið saman í 12 ár. Byggðu þau
sér hús á lóð Akra í Stykkishólmi.
Drottinn er minn hirðir.
Mig mun ekkert bresta.
(23. sálmur Davíðs.)
Þetta eru orð að sönnu, því ég veit
hann hefur tekið vel á móti elskulegri
móður minni, sem lést eftir hetjulega
baráttu við illvígan sjúkdóm. Hennar
verður sárt saknað af okkm- öllum í
fjölskyldunni, og þeim sem þekktu
hana. Mamma var alveg einstök
kona, heiðarleg, ósérhlífin, trygg-
lynd, velviijug og umfram allt gi-eiða-
söm við aðra. Alltaf var líf og fjör í
kringum hana og glettnin skammt
undan. Síðustu 12-13 árin starfaði
hún á Sjúkrahúsi St. Fransiskus-
systra í Stykkishólmi þai- sem hún
var ánægð, því vil ég nota tækifærið
og þakka öllu starfsliði Sjúkrahúss-
ins, svo og heimahjúkrun, fyrir ein-
staklega hlýlega umönnun. Mamma
elskaði ætíð æskuslóðir sínar, Stykk-
ishólm, og verður jarðsett þar.
Mín elskulega mamma, einstök
var hún mær, yndisleg sem amma,
hún var mér svo kær.
Hvíl þú í friði. Ástarkveðja.
Þín dóttir,
Hafdís.
Mín elskulega amma og besta
vinkona er látin. Inga P., eða amma
Foreldrar Gísla voru
Magðalena Svanhvít
Pálsdóttir og Jón
Rósmann Jónsson.
Ingibjörg og Gísli
eignuðust fjögur
börn: 1) Sævar Berg
Gíslason, f. 14.12.
1946, maki Brynja
Bjarnadóttir, f. 4.4.
1957. Hann á fimm
börn þar af tvö með
Guðrúnu Ástu Magn-
úsdóttur, f. 29.9.
1951 og níu barna-
börn. 2) Hafdis Berg
Gísladóttir, f. 21.11.
1951, maki Kristján Jóhannes
Karlsson, f. 28.10. 1948. Þau eiga
fjögur börn og þijú barnabörn. 3)
Ragnar Berg Gfslason, f. 4.11.
1954, maki Elín Eygló Siguijóns-
dóttir, f. 27.4. 1958. Þau eiga þrjú
börn og eitt barnabarn. 4) Hlíf
Berg Gísladóttir, f. 20.7. 1965,
maki Eyjólfur Karl Níelsson, f.
8.9. 1972.
Ingibjörg hafði unnið margvís-
leg störf en sfðast á St. Fransis-
kusspftala f Stykkishólmi.
Utför Ingibjargar Eyglóar fer
fram frá Stykkishólmskirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan 14.
í Stykkó eins og við kölluðum hana,
var engin venjuleg kona. Hún var
dugnaðarforkur og aldrei gafst hún
upp. Hún vann á sjúkrahúsinu í
Stykkishólmi í 12-13 ár. Henni
fannst erfitt að hætta að vinna þar
þegar hún þurfti vegna aldurs, svo
þegar hún hætti og ætlaði að fara að
slaka á þá dundu veikindin yfir. Mér
fannst þetta ekki sanngjarnt en ég
þakka samt guði fyrir að hafa fengið
þennan langa tíma með henni, það
var yndislegt. Alltaf var hægt að
leita til ömmu ef mér leið illa, amma
gat alltaf hjálpað mér að finna lausn
á vandamálunum og yfirleitt endaði
það þannig að hún kom mér til að
hlæja. Amma var mjög ákveðin
kona og hún lét engan vaða yfir sig.
Hún var alltaf hress og kát og mjög
stríðin, hún var að gantast í okkur
til hins síðasta. Það var svo yndis-
legt að koma til hennar og afa. Það
var tekið í spil og þá fannst henni
gott að hafa sherrístaup við hliðina
á sér. Hún eldaði heimsins bestu
hakkbollur og var það leyniupp-
skrift hennar.
Amma kom með mér í sónar fyrir
tæpum mánuði, það var yndislegt.
Hún fékk að vita kynið á væntan-
legu barni mínu og hún var svo
stolt, að hún ein skyldi fá að vita
það. Ekki grunaði mig þá að hún
NJÓLA
DAGSDÓTTIR
+ Njóla Dagsdóttir
fæddist 11. des-
ember 1911. Hún lést
á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja 24. mars
síðastliðinn og fór
útfór hennar fram
frá Keflavikurkirkju
31. mars.
Þú yndislega sál ert
nú farin frá okkur.
Þetta var það sem þú
varst búin að þrá und-
anfarin ár. Þú varst
búin að liggja rúmfóst í
fjögur ár á sjúkrahús-
inu í Keflavík. Eg man þegar við
komum í heimsókn, þú varst alltaf
hress og ern. Mundir eftir öllum í
fjölskyldunni og spurðir hvernig allir
hefðu það. Njóla, þú varst öðlings-
kona, gestrisin, umhyggjusöm og
geðug og gafst barna- og barna-
barnabörnunum svo mikið. Þau
muna þegar þau komu til þín í kakó
og kökur, það var sko gaman. Að ég
tali nú ekki um skeljasafnið þitt,
krakkarnir dáðust að þvi þegar þau
undu sér hjá þér. Já, þú
yndislega sál, sem
gafst okkur Adda mik-
ið. Ég var svo ánægð
yfir því að hafa getað
hjálpað þér. Stundirn-
ar okkar þegar ég
skrifaði jólakortin þín,
kvöldin í desember
þegar ég gaf þér tíma
og við ræddum saman
heima og geima. Þú
varst svo hreinskilin og
ég varð oft orðlaus því
þú vissir svo margt um
allt og allt. Þú varst
mjög trúuð kona. Trúð-
ir á Jesúm Krist, last í Biblíunni og
bænirnar þínar. Þú hræddist ekki
dauðann og ég veit að þér líður nú
vel. Börnin okkar eru þakklát þér,
þú varst alltaf svo góð við þau og lifir
nú minningin. Við erum svo þakklát
að hafa átt góða stund með þér um
jólin. Kristjana spilaði fyrir þig á
þverflautuna og þú varst svo stolt af
henni. Njóla okkar, þú góða kona,
varst hetja, gafst öðrum svo mikið af
þér. Þú varst aldrei í vondu skapi
færi eftir tuttugu daga, því hún var
ágætlega hress. En Guð einn ræður
þessu. Ég var á leiðinni inn í Stykk-
ishólm til hennar þegar hún lést, en
ég er svo fegin að hafa hitt hana
tveimur dögum fyrr og þakka Guði
fyrir það. Ég veit að hún verður allt-
af hjá okkur og líður vel núna. Ég á
eftir að sakna hennar alveg óskap-
lega mikið. Ég verð lengi að jafna
mig á þessu, eins og allir hinir, en
amma mundi segja „hættið þessu
væli“.
Góði Guð, veittu elsku afa styrk í
sorg hans og okkur hinum.
Elsku besta amma mín, ég mun
aldrei gleyma þér.
Þín
Ingibjörg Kristín, Rifi.
„Ertu heima?“ Þannig kvaddi
Inga P. sér ævinlega hljóðs á Silfur-
götu 42. Hún kom í dyragættina og
kallaði inn hátt og snjallt „ertu
heima ..." Ef eitthvert okkar systk-
inanna svaraði bætti hún við; „Er
mamma heima, elskan?“
Inga var ákveðin kona með hvass-
ar skoðanir sem hún setti hispurs-
laust fram og hikaði ekki við að
benda á það sem henni þótti betur
mega fara. En Inga P. var samt allt-
af sanngjörn og hún fór líka aldrei í
manngreinarálit.
Við systkinin höfum þekkt Ingu
nánast eins lengi og við munum.
Enda kom oft fyrir að hún siðaði
okkur eins og sín eigin börn, ef
henni fannst við eiga það skilið. Þá
hvessti hún aðeins á mann augun og
sagði með nokkrum þunga „þú átt
að vera góður við hana mömmu
þína, elskan".
Þetta „elskan“ í endann, glettnin
og dillandi hláturinn sem undir
ki-aumaði komu alltaf upp um hana.
Því Inga P. var ekki bara ákveðin,
heldur ákaflega hjartahlý og trygg
vinum sínum. Þeir sem hana þekktu
minnast hennar helst hlæjandi, með
glettnisglampa í augunum og ofur-
lítið stríðnisbros um varirnar.
Nú heyrist ekki oftar kallað á
Silfurgötu 42 „ertu heima ...“ á
þennan einkennandi hátt. I minn-
ingunni lifir Inga P. og í huganum
er eins og hljómi stundum ennþá:
„Er mamma heima, elskan?“
Við systkinin kveðjum Ingu P.
með virðingu og hlýju og sendum
Gísla og fjölskyldunni allri okkar
dýpstu samúðarkveðjur.
Systkinin, Silfurgötu 42.
Elsku Inga. Loks er lokið
þrautagöngu þinni sem staðið hefur
síðastliðið ár. Með þessum fáu orð-
um langar mig að þakka fyrir þær
stundir sem við áttum saman. Þú
varst alltaf góð heim að sækja og
virkilega gott að vera hjá ykkur
Gísla'í Silfurgötunni. Sérstaklega
horfðir jákvæð á hlutina og gerðir
allt svo auðvelt. Þó þú værir orðin
heilsulítil áður en þú fórst á sjúkra-
húsið þá bakaðir þú og eldaðir eins
og þér einni var lagið og naut fjöl-
skyldan þess. Elsku Njóla, takk fyrir
allt sem þú hefur gefið okkur, þú ert
okkar fyrirmynd í lífinu.
Hvíl þú í friði, kristna sál.
Láttu nú Ijósið þitt
logaviðrúmiðmitt.
Hafðuþarsessogsæti
signaði Jesú mæti.
Kristbjörg Arnar og börn.
Elsku Jesús. Viltu vernda hana
langömmu mína. Viltu láta hana
vaka yfir mér. Láttu henni líða vel og
vera fallegur engill.
í Jesú nafni. Amen.
Magndís Anna.
VertugóðiGuðhjámér.
Gleði sönn er veitt af þér,
gjörðu bjart mitt bemskuvor
blessa, faðir, öll mín spor.
Elsku Jesús, þú gafst okkur góða
ömmu, takk fyrir, Jesús, þú ert góð-
ur. Þetta er okkar lífsins besta fóður.
Jón Ingibjörn og
Kristjana Guðrún.
þakka ég fyrir þegar ég átti hjá
ykkur athvarf þegar ég var til
lækninga í Stykkishólmi. Breytti
þar engu þótt aðstæður hefðu
breyst, mér var samt sem áður tek-
ið sem einum úr fjölskyldunni.
Mér er í fersku minni öll skiptin
sem við sátum við eldhúsborðið
heima hjá þér og tókum í spil. Þá
var oft kátt á hjalla. Svo var einnig
um öll þau áramót sem við áttum
saman.
Ég vil þakka þér fyrir hönd
stelpnanna minna sem þú tókst allt-
af opnum örmum. Ég kveð þig nú,
Inga, það verður enginn eins og þú.
Far þú í guðs friði.
„Og hvað er að hætta að draga
andann annað en að frelsa hann frá
friðlausum öldum lífsins, svo að
hann geti risið upp í mætti sínum og
ófjötraður leitað á fund guðs síns?“
(Spámaðurinn - Kahlil Gibran)
Elsku Gísli. Þinn er missirinn nú
mestur. Ég sendi þér og öðrum ást-
vinum Ingu mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur og bið guð að styrkja
ykkur öll á þessari sorgarstundu.
Einar Sigmundsson.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þásælterað vitaafþví
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þ.S)
Inga mín, ég vil þakka þér allar
góðu stundirnar okkar bæði fyrr og
nú, ýmislegt höfum við brallað sam-
an í gegnum árin. Alltaf var jafn
gott að koma á heimilið ykkar Gísla
hvort sem það var í Norska húsinu
eða Silfurgötunni, alltaf var tími til
að setjast niður og rabba. Minning-
arnar hrannast upp og eru vel
geymdar.
Inga og Gísli eignuðust fjögur
börn, sem þau bæði eru og mega
vera stolt af, og oft sagði Inga við
mig: „Olla, ég er svo ánægð með
börnin mín, því þau eru svo yndis-
lega góð við mig.“
Og dáðist ég oft að því hvílíkan
kærleika þau sýndu henni í þessum
veikindum og baráttu hennar og
ekki má nú gleyma honum Gísla
hennar, það var aðdáunarverð um-
hyggja sem þau báru fyrir henni og
var hún svo þakklát og stolt af þeim
fyrir það.
Kæra fjölskylda, þið eigið góðar
minningar.
Þó sorgin sé sár,
og erfitt er við hana að una.
Við verðum að skilja,
og alltaf við verðum að muna,
að Guð hann er góður,
+ Ragmheiður Jdnsdóttir fædd-
ist á Botni í Dýrafirði 9. sept-
ember 1909. Hún lést á hjúkrun-
arheimilinu Garðvangi í Garði 19.
mars síðastliðinn og fór útför
hennar fram frá Keflavíkurkirkju
24. mars.
Látin er Ragnheiður Jónsdóttir,
Aðalgötu 17 í Keflavík. Hún var
Vestfirðingur að uppruna og kom úr
stórum systkinahópi frá Botni í
Dýrafirði. Ég og mín fjölskylda höf-
um verið svo heppin að vera ná-
grannar þessarar glaðværu og táp-
miklu konu síðustu 45 árin. Þegar
hún var komin á níræðisaldurinn fór
hún að eiga erfitt með gang, en
glöggt minni hennar og fróðleiksfýsn
entust henni til æviloka.
Hún bjó mjög lengi á Aðalgötu 17 í
Keflavík ásamt manni sínum Jóni V.
Elierssyni, sem látinn er fyrir mörg-
um árum. Þótt Ragnheiður byggi
langt frá átthögum sínum leitaði
hugur hennar oft til Vestfjarðanna
og þótt við hjónin séum bæði Vest-
firðingar gat hún ætíð miðlað okkur
fróðleik um gömlu bústólpana fyi-ir
vestan, búsetu þeirra og ættir.
Vestfirðingar hafa lengi verið fjöl-
og veit hvaó er best fyrir sína.
Því treysti ég nú,
að hann geymi vel sálina þína.
Þótt farin þú sért
og horfin ert burt þessum heimi.
Ég minningu þína,
þá ávallt í hjarta mér geymi.
Astvini þína, ég bið síðan
Guð minn að styðja,
og þerra burt tárin,
ég ætíð skal fyrir þeim biðja.
(B.J.)
Hvil í friði kæra vinkona.
Ólafía Gestsdóttir.
Sárt er vinar að sakna,
sorgin er djúp og hljóð.
Minningar mætar vakna,
svo var þín samfylgd góð.
Daprast hugur og hjarta,
húm skuggi féll á brá,
lifir þó Ijósið bjarta,
lýsir upp myrkrið svarta,
vinur þó falli frá.
Góðar minningar geyma
gefur syrgjendum fró.
Til þín munu þakkir streyma.
Þér munum við ei gleyma.
Sofðu í sælli ró.
(Höf. ók.)
Við viljum með þessum orðum fá
að kveðja og þakka henni Ingu okk-^
ar, vinkonu og samstarfskonu, fyrir
samfylgdina í tíu ár. Fyrir rúmu ári
greindist Inga með krabbamein og
vissi hún að hverju stefndi, en þrátt
fyrir það var alltaf stutt í léttleikan
og glettnina sem einkenndi Ingu,
sem dæmi um það kom hún í deild-
arpartý með okkur og var hress að
vanda, um mitt síðasta ár, eins sár-
þjáð og hún var þá.
Ingu fylgdi hressandi andblær
sem hafði góð áhrif á bæði sjúklinga
og samstarfsfólk. Hjá okkur á
sjúkradeildinni var hennar staðuf,
þar naut hún sín. Það var gaman að
koma á vaktina og sjá að Inga P. var
í hópnum því það var aldrei nein
lognmolla nálægt henni, hún var svo
vinnufús og samviskusöm.
Við viljum minnast Ingu okkar
með þakklæti fyrir allt og allt. Fjöl-
skyldu Ingu, eiginmanni, börnum og
barnabörnum vottum við okkar
innilegustu samúð og vitum að góð-
ar minningar um hana eiga eftir að
ylja ykkur.
Inga okkar, þakka þér fyrir vakt-
ina, eins og kveðja okkar hljómar í
lok vinnudags á deildinni.
Hjartans þökk fyrir liðnar stund-
ir.
Samstarfsfólk á sjúkradeild
St. Fransiskusspítala
í Stykkishólmi.
mennir í Keflavík og nágrenni og
eiga hér sitt átthagafélag. Oft var
það svo að þegar líða fór að þeim
tíma sem allir Vestfirðingar drekka
sitt sólarkaffi hugsuðum við til
Rögnu, sem lengi stýrði kaffinefnd-
inni og tók drjúgan þátt í pönnu-
kökubakstrinum fyrir hátíðina. -
Ragnheiður var bæði Ijóðelsk og las
mikið bækur, einkum um gamlan
fróðleik. Oft vakti það undrun mína
hversu létt hún átti með að rekja
ættir manna beint úr sínu skarpa
minni. Hún vann lengi verslunar:
störf hjá Kaupfélagi Suðurnesja. í
því starfi ávann hún sér bæði traust
og virðingu og enginn efaðist um
dugnað hennar og samviskusemi.
Hún var ákaflega trygglynd og góð-
ur vinur vina sinna. Margt var henni
vel gefið og að lokum var hún svo
lánsöm að fá sína eðlilegu hvíld að
loknum löngum starfsdegi þegar
kraftar hennar þrutu.
Að ferðarlokum skilur hún eftir
góðar minningar hjá þeim sem urðu
henni samferða á hennar löngu leið.
Blessuð sé minning Ragnheiðar
Jónsdóttur.
Sigfús Kristjánsson,
Jónína Kristjánsdóttir. v
RAGNHEIÐUR
JÓNSDÓTTIR