Morgunblaðið - 01.04.2000, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
IHtfittttiUiiMh
Ghana-búi til liðs
við FH-inga
EFNILEGUR knattspymumaður frá Ghana,
sem einnig er með bandarískt ríkisfang og er
búsettur vestanhafs, kemur til reynslu hjá 1.
deildarliði FH næsta miðvikudag. Hann fer með
Hafnaríjarðarliðinu í æfingabúðir í Portúgal
viku síðar og eftir það verður tekin ákvörðun
um framhaldið. „Þessi piltur er aðeins 19 ára
en hefúr verið kallaður í æfingabúðir með 21-
árs landsliðum Ghana og Bandaríkjanna, þann-
ig að hann getur valið um fyrir hvora þjóðina
hann spilar. Það gefur vísbendingar um að
hann ætti að vera nægilega sterkur til að leika
með okkur. Hann er sóknarmaður, sagður
hlaupa 40 jarda á 4,2 sekúndum og er sam-
kvæmt því geysilega sprettharður," sagði Logi
við Morgunblaðið í gær. Hann kvaðst ekki geta
staðfest fyllilega nafn leikmannsins en Mondele
Opuku væri ekki fjarri lagi.
Rönd-
unum
fækkar
ÁKVÖRÐUN hefur verið tekin um nýjan búning knattspyrnuliðs
KR, en fyrirætlanir KR-inga um breytt útlit hans komu fram í
Morgunblaðinu á dögunum. Einn þekktasti einkennisbúningur
íslensks íþróttafélags mun skarta færri röndum en hann hefur
gert, en litirnir verða þeir sömu.
KR mun leika í búningum frá
íþróttavöruframleiðandanum
Reebok á komandi keppnistímabili,
en ekki frá Lotto, eins og liðið hefur
gert síðustu ár. Forsvarsmenn
knattspyrnunnar í KR höfðu gefið til
kynna að útliti búninga félagsins yrði
breytt fyrir sumarið og að þeir yrðu
„ekki eins röndóttir“. Það hefur
komið í ljós, eins og myndin hér til
hliðar ber með sér, og því virðist einn
allra þekktasti _ einkennisbúningur
íþróttafélags á Islandi hafa runnið
sitt skeið.
Við tekur nýtt og breytt útlit KR-
liðsins. KR á sér fjölmarga fylgis-
menn og ekki er víst að einhugur ríki
um breytinguna. Þormóður Egils-
son, fyrirliði KR, sem hampaði
Islandsbikamum síðastliðið haust
eftir 31 árs bið KR-inga, mun leiða
sína menn til sóknar eftir öðrum
meistaratitli í nýjum búningi. Þor-
móðtu- hefur aldrei leikið í öðru en
hefðbundnum búningi félagsins, með
svörtu og hvítu röndunum, sem allir
þekkja. Rendurnar em enn til staðar
og em jafnbreiðar, nema hvað þær
em um helmingi færri og þekja að-
eins um hálfa treyjuna. „Vissulega
em þetta mikil viðbrigði, alltént fyrst
um sinn. Það á sérstaklega við um
mig. Eg er vanur gamla búningnum,
en ég er fullviss um að við venjumst
þessu fljótt og við erum svo sem ekk-
ert að spá allt of mikið í hvernig bún-
ingarnir okkar líta út þegar við emm
að spila,“ sagði Þormóður.
Opið hús í Frostaskjóli
í tilefni af hinu breytta útliti
standa KR-ingar fyrir sýningu í
íþróttahúsi félagsins við Frostaskjól
í dag, sem hefst kl. 11. Þar verður nýi
aðalbúningurinn og varabúningur
kynntur formlega auk þess sem eldri
búningar félagsins verða til sýnis
fyrir almenning auk fjölmargra ljós-
mjmda. Annar KR-varningur verður
einnig kynntur, til dæmis pennar,
treflar og fleira, sem samræmist allt
nýju útliti og ímynd félagsins, sem
fagnaði aldarafmæli sínu á síðasta
ári. Sýningin stendur yfir eftir því
sem aðsókn leyfir og er aðgangur
ókeypis.
Morgunblaðið/Sverrir
Þormóður Egilsson, fyrirliði KR, í nýja búningnum.
Kríslján mætir líklega þeim besta
Kristján Helgason, atvinnumað-
ur í snóker, gerði sér lítið fyrir
í gær og lagði Jamie Bumett 5-3 og
er þar með kominn í 32 manna úrslit
á Opna skoska meistaramótinu. I 32
manna úrslitum mætir hann trúlega
Mark nokkrum Williams, sem er
efstur á heimslista snókerspilara og
því besti spilari heims um þessar
mundir. „Það verður bara gaman og
ffinn undirbúningur fyrir heims-
meistaramótið síðar í mánuðinum,"
sagði Kristján í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi.
Sýnt verður frá 32 manna úrslit-
unum í sjónvarpi víða um heim þann-
ig að Kristján hefur fengið talsvert
verðlaunafé íyrir að ná þetta langt.
„Ég hugsa aldrei um það fyrr en ég
er fallin út úr keppninni þannig að ég
hef ekki hugmynd um það,“ sagði
Kristján spurður um verðlaunafé.
Mai-k Williams og John Lardner
leika á þriðjudaginn og sigurveg-
arinn mætir Kristjáni daginn eftir.
„Ég hef leildð ágætlega í þessu
móti en þó ekki alveg eins vel og í
mótinu um daginn, en einbeitingin
hjá mér hefur tekið stökkbreyting-
um og mér finnst ég velja skotin
miklu betur en áður,“ sagði Kristján
og sagði hann leikinn í dag hafa tekið
verulega á því hann stóð lengi, mikið
lagt upp úr vamarleik.
Það gekk ýmislegt á í mótinu í
Skotlandi í dag og meðal annars bar
það til tíðinda að Skotinn Jimmy
White, sem hefur leikið sex sinnum
til úrslita um heimsmeistaratitilinn,
tapaði óvænt 5:4 fyrir Marcus
Campbell. Hann á nú á hættu að
detta nokkuð langt niður á heimslist-
anum en þar var hann í 18. sæti fyrir
mótið og virðist kominn út af topp-16
listanum í einhvern.
ÍSLENDINGAR FIMM SINNUM Á WEMBLEY? / B2