Morgunblaðið - 04.04.2000, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 2000 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Morgunblaðið/Sverrir
Víkurskóli mun hefja starfsemi haustið 2001 og tók Sigrún Magnúsdóttir, formaður
Fræðsluráðs Reykjavíkur, fyrstu skóflustunguna í gær.
Fyrsta skóflustungan að nýjum grunnskóla
Víkurskóli kostar
um 660 milljónir
Ýmsar nýjungar eru í hönnun Víkurskóla. Útveggirnir eru
steyptir, klæddir með stáli, bárujárni eða torfhleðslu.
Grafarvogur
FYRSTA skóflustungan að
Víkurskóla, nýjum grunn-
skóla í Borgahverfi í Grafar-
vogi, var tekin í gær af Sig-
rúnu Magnúsdóttur, formanni
Fræðsluráðs Reykjavíkur.
Aætlað er að ljúka við bygg-
ingu skólans, sem mun standa
við Hamravík, árið 2002, en
hann mun hpfja starfsemi
haustið 2001. Áætlaður heild-
arkostnaður vegna fram-
kvæmdanna er um 660 millj-
ónir króna en inni í þeirri
upphæð er ekki kostnaður
vegna leiktækja og búnaðar.
„Mér finnst þetta vera mikil
hátíðarstund og Víkurskóla-
byggingin er mjög sérstök því
hönnun hennar tekur mið af
fyrstu gerð húsa á Islandi og
er m.a. vísað að nokkru leyti
til þjóðveldisbæjarins Stang-
ar í Þjórsárdal," sagði Sigrún.
„I skólanum verður mjög skýr
aðgreining á milli aldurshópa,
því byggingin skiptist í þrjú
hús, sem tengjast ákveðnu
miðrými, en hvert hús er fyrir
ákveðinn aldurshóp."
Torfhleðsla og báriyárn
Sigurður Gústafsson arki-
tekt hannaði bygginguna og
er margt nýtt að finna í hönn-
uninni. Meðal nýjunga er
frágangur veggja utanhúss.
Veggirnir verða steyptir, ein-
angraðir með steinull utan á
og klæddir með stáli, en loft-
ræst bil er á milli einangrun-
arinnar og klæðningarinnar.
Hluti veggjanna verður báru-
járnsklæddur og einnig verð-
ur torfhleðsla utan á veggjun-
um að einhverju leyti. Henni
er ætlað að vera eins konar
einangrun og veðrunarkápa, í
anda gömlu torfhúsanna.
Skólinn verður um 4.200
fermetrar að stærð. Hann
verður heildstæður einsetinn
grunnskóli fyrir 300 til 350
nemendur í 1. til 10. bekk.
Byggingin rúmar 16 heima-
stofur, 7 sérgreinastofur,
tölvuver, skólasafn, leikfimi-
sal, hátíðar- og matsal, heilsu-
gæslu og skóladagvist.
Um 120 nemendur heíja
nám haustið 2001
Víkurskóli er þriðji skólinn,
sem byggður er í Borgahverf-
inu í norðanverðu Grafarvogs-
hverfi, en hinir tveir eru
Engjaskóli og Borgaskóli.
Engjaskóli, sem tekur 400 til
450 nemendur, hóf störf árið
1997 en Borgaskóli, sem mun
taka 350 til 400 nemendúr,
hefur starfsemi í eigin hús-
næði haust.
Sigrún sagðist búast við því
að skólastarf hæfist með um
120 nemendum en nemendur í
Víkurhverfi hefðu frá því síð-
asta haust verið í Korpuskóla
á Korpúlfsstöðum, ásamt
nemendum úr Staðahverfi.
Hún sagði að eftir að Víkur-
skóli yrði tekinn í notkun
myndi Korpuskóli aðeins
sinna nemendum úr Staða-
hverfi og að það myndi hann
gera allt þar til nýr skóli
myndi rísa í því hverfi.
Korpuskóli mun
starfa áfram
Nokkrar deilur voru um
Korpuskóla þegar hann hóf
starfsemi og sögðu borgaryf-
irvöld að um bráðabirgða-
lausn væri að ræða. Sigrún
sagði að mikil ánægjan væri
með skólann nú, það mikil að
kennarar, skólastjómendur
og foreldrar hefðu beðið sig
um að flytja ekki skólann frá
Korpúlfsstöðum.
„Við sögðum að þetta væri
bráðabirgðaskóli og við mun-
um standa við það. Forsendur
þurfa að breytast mikið til
þess að annað verði ákveðið.
En tvö til þrjú ár í viðbót er
viðunandi því það rýmkar
mikið til þarna þegar öll börn-
in úr Víkurhverfi fara.“
Sigrún sagði að næstu
grunnskólar sem stæði til að
byggja í Reykjavík yrðu í
Grafarholtshverfi og við Sól-
tún.
Skeljungur og Toyota
til liðs við Knatthús
Garðabær
SKELJUNGUR og P. Sam-
úelsson, umboðsaðili Toyota,
hafa hug á samvinnu við
Knatthús ehf. um byggingu
knattspyrnuhúss í Garðabæ.
Bæjan-áð Garðabæjar mun í
dag fjalla um erindi þar sem
þessir þrír aðilar sækja sam-
eiginlega um að fá úthlutað 7,9
ha lóð í Vetrarmýri, á svæði
sem afmarkast af Reykjanes-
braut í vestri og Vetrarmýrar-
braut í austri.
Á heimasíðu Garðabæjar
segir að í erindinu komi fram
að félögin hyggi á samstarf
um byggingu og rekstur fjöl-
nota knattspymuhúss og að-
laga bygginguna þeirri at-
vinnustarfsemi sem fyrir-
tækin standa fyrir að öðru
leyti.
Garðabær hefur fyrir sitt
leyti samþykkt að leggja til
hlutafé að fjárhæð 15,0 mkr. í
Knatthús ehf. og Bessastaða-
hreppur hefur samþykkt að
leggja fram 2 m.kr. hlutafé en
Kópavogur hefur hafnað þátt-
töku. Afstaða bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar liggur ekki fyr-
ir.
„Menn eru að velta fyrir sér
hugsanlegu samstarfi," sagði
Þorbergur Karlsson, for-
svarsmaður Knatthúsa, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
„Við höfum verið að leita að
fjárfestum sem gætu komið að
þessu máli og það lítur út fyrir
að þarna geti tekist samstarf."
Hann sagði að það væri
ekki markmið Knatthúsa að
byggja knattspymuhús held-
ur sjá til þess að slíkt hús risi.
„Við höfum verið að leita að
fjárfestum eða aðilum sem
sæju hagsmunum sínum
borgið í samstarfi við íþrótta-
félög um byggingu knatt-
spyrnuhúss,“ sagði Þorberg-
ur.
Þjónusta við bfleigendur?
Hann sagðist ekki geta sagt
til um hver áform P. Samúels-
sonar og Skeljungs væm í
sambandi við byggingu
Knatthússins en knattspyrnu-
hús drægju til sín margt fólk
og ekki ólíklegt að rekstur
ýmiss konar þjónustu við bif-
reiðaeigendur gæti farið sam-
an við slíkan rekstur. Hann
sagði fyrirkomulag fjármögn-
unar og aðra raunhæfa þætti
samstarfsins á frumstigi.
„Formið á samstarfinu er
órætt. Þessi þrjú fyrirtæki
sækja um lóðina en við eigum
eftir að ræða um samstarfið,“
sagði Þorbergur og sagðist
gera ráð fyrir að þær viðræð-
ur hæfust fljótlega fengjust
jákvæðar undirtektir frá bæj-
arráði í dag.
Til skoðunar að stækka Austurbæjarskóla
Byggt verði ofan á
spennistöðinni
Austurbær
BORGARRÁÐI hafa verið
kynntar hugmyndir um
byggingu 400 fermetra
skólahúsnæðis ofan á gömlu
spennistöðinni sunnan við
Austurbæjarskóla, eða á
milli hans og Vörðuskólans.
Þetta kom fram í samtali
Morgunblaðsins við Ámunda
Brynjólfsson, verkefnisstjóra
á byggingardeild borgar-
verkfræðings, en tillagan er
upphaflega komin frá
fræðslunefnd og er bygging-
in hugsuð sem viðbótarhús-
næði við Austurbæjarskóla.
„Það ætti jafnvel að vera
hægt að taka þessa bygg-
ingu í notkun um næstu ára-
mót, ef þetta hlýtur endan-
þegt samþykki,11 sagði
Ámundi.
„Það er búið að kynna
þetta fyrir skipulagsnefnd
og byggingarnefnd og hefur
þetta fengið jákvæðar undir-
tektir þar.“
Ákvörðun tekin
í mánuðinum
„Við erum að vinna að
nánari hönnun á þessu og at-
hugunum á hvort þetta sé
gerlegt og síðan verður mál-
ið lagt fyrir byggingar-
nefnd.“
Að sögn Ámunda má
vænta þess að ákvörðun um
það hvort byggt verði ofan á
spennistöðinni verði tekin í
þessum mánuði til þess að
hægt verði að gera húsnæðið
tilbúið um næstu áramót.
Ámundi sagði að bygging-
in myndi samanstanda af
fjórum kennslustofum og
miðrými og að húsnæðið
væri hugsað fyrir yngri
börnin. Hann sagði að áætl-
aður kostnaður væri á bilinu
50 til 60 milljónir króna.
Mjög þröngt
um nemendur
Guðmundur Sighvatsson,
skólastjóri Austurbæjar-
skóla, sagði að full þörf væri
á viðbótarhúsnæði.
„Það er orðið mjög þröngt
um okkur og ef við ætlum að
hafa hér eðlilegt skólahald
þarf að byggja,“ sagði Guð-
mundur. „Skólinn er þegar
sprunginn og við kennum í
húsnæði sem er ekki hugsað
sem kennsluhúsnæði heldur
sem félagslegt rými fyrir
nemendur.“
Guðmundur sagði greini-
legt að íbúar hverfisins væru
að yngjast því nemendum
hefði fjölgað mikið í skólan-
um á síðustu árum og frá því
1996 hefði þeim fjölgað um
tæp 20% og væru nú um
570.
„Síðustu ár höfum við út-
skrifað tvær bekkjardeildir í
10. bekk, en tekið inn þrjár
bekkjardeildir í 1. bekk. Þótt
byggt verði þarna ofan á
spennistöðinni rétt dugar
það til að halda í horfinu.“
Skólinn 70 ára í sumar
Á næsta ári er fyrirhugað
að breyta húsnæðinu þannig
að skrifstofur verði fluttar í
miðálmu hússins en við það
tapast fjórar kennslustofur.
„Upphaflega var áætlað að
gera þetta í sumar en það er
bara ekki mögulegt vegna
skorts á kennslurými."
Guðmundur sagði að klár-
að yrði að taka risið í gegn í
sumar og að við það yrði til
félagslegt rými sem til að
byrja með yrði nýtt undir
kennslu.
„Við leggjum mikla
áherslu á að bætt verði úr
húsnæðisvandanum og það
væri tilvalið að gera það á
þessu ári þar sem skólinn á
70 ára afmæli í sumar.“
Starf fullorð-
inna fatlaðra
kynnt
Reykjavík
KYNNING á starfi Fullorð-
insfræðslu fatlaðra var
opnuð í Ráðhúsi Reykjavík-
ur um hclgina, að viðstödd-
um Birni Bjarnasyni
menntamálaráðherra og
fjölmörgum gestum.
Fullorðinsfræðsla starfar
víða um land og skipulegg-
ur kennsiu fyrir fullorðna
sem vegna námsörðugleika
eiga ekki kost á námstil-
boði við sitt hæfi í al-
mennri fullorðinsfræðslu.
Höfuðstöðvarnar eru í
Blesugróf í Reykjavík en
einnig er t.d. kennt á Sel-
fossi og Akureyri.
Kennslan fer fram í nám-
skeiðsformi en stærð hópa
er mismunandi eftir eðli
viðfangsefna. Flest nám-
skeiðin standa í eina önn,
önnur skemur eða lengur.
Morgunblaðið/Sverrir
Fjölmenni sótti kynningu á starfi Fuilorðinsfræðslu
fatlaðra í Ráðhúsinu.
Morgunblaðið/Jim Smart
Fullorðinsfræðsla fatlaðra býður m.a. upp á tónlistarnám-
skeið.
Markmið kennslunnar er
m.a. að auka sjálfstæði, ör-
yggi og vellíðan nemenda
með því að efla skilning
þeirra og þekkingu, auka
ýmsa færni og kunnáttu,
ýta undir þroskandi nýt-
ingu tómstunda og stuðla
að almennu heilbrigði. Fyr-
ir hvern nemanda er gerð
einstaklingsnámskrá þar
sem gerð er úttekt á náms-
stöðu í upphafi námskeiðs
og síðan er gert símat á
framvindu til loka nám-
skeiðs.