Morgunblaðið - 04.04.2000, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 2000 63
BRIDS
Ilmsjón Guðmundur Páll
Arnarson
UNDANKEPPNI íslands-
mótsins í sveitakeppni fór
fram í Bridshöllinni í
Þönglabakka um helgina.
Þetta er hörkukeppni 40
sveita, sem skipt er í 5 átta
sveita riðla og markmiðið er
að velja 10 sveitir til að
keppa til úrshta um páska-
helgina. Samtals voru 168
spil lögð að baki og við skul-
um líta á nokkur þeirra á
næstu dögum. Hér er fyrst
skemmtilegt þvingunarspil
úr sjöttu umferð:
Vestur gefur; NS á
hættu.
Norður
* KD1052
¥ 95
♦ Á94
* Á95
Vestur Austur
+ G87 + A93
V K10764 » D82
♦ - ♦ G875
+ K10643 + G87
Suður
+ 64
¥ ÁG3
♦ KD10632
+ D2
Vestur Norður Austur Suður
Pass lspaði Pass 2 tíglar
Dobl Pass 2hjörtu 2grönd
Pass 3grönd Allirpass
í kerfi NS er svarið á tveim-
ur tíglum ekki krafa og því
freistast vestur til að blanda
sér í sagnir með úttektar-
dobli. Austur velur hjartað
og það verður til þess að
vestur finnur besta útspilið
gegn þremur gröndum -
smátt hjarta.
Sagnhafi er með átta ör-
ugga slagi - sex á tígul og
tvo ása - og ýmsa mögu-
leika á þeim níunda. Hann
gæti til dæmis dúkkað
hjartað tvisvar og sótt svo
spaðaásinn, en það væri
tæplega gæfulegt ef ásinn
væri í vestur. Sem verður
að teljast líklegra. í reynd
drap suður hjartadrottn-
ingu austurs með ás og tók
sex slagi á tígul. Vestur
henti fyrst tveimur spöðum
og síðan þremur laufum. En
hverju átti hann að kasta í
siðasta tígulinn? Hjarta
kom ekki til greina, því þá
gæti sagnhafi sótt sér
spaðaslag. Ef vestur hendir
spaðagosa, getur sagnhafi
spilað hjartagosa og neytt
vestur til að spila frá lauf-
kóng í lokin. Þriðji mögu-
leikinn er sá að vestur kasti
laufi, en þá má fella kónginn
og taka níunda slaginn á
laufdrottningu.
Vestur kaus að fara niður
á stakan laufkóng, enda var
til í dæminu að makker ætti
drottninguna. En sagnhafi
las ekki rétt í skiptinguna -
hann átti von á þvi að hjart-
að lægi 4-4 - og spilaði því
spaða. Þar með komst aust-
ur inn og gat sent hjarta í
gegnum gosann: Einn nið-
ur, þrátt fyrir allt, og
skemmtilegt tækifæri fór
forgörðum.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki afmæl-
isbarns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsima 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilia,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík
ÍDAG
COSPER
Þú og þínar hugmyndir um landslagsarkítektúr
valda því að ég er að missa af strætú.
Með morgunkaffinu
vöðvabólgan og gigtar-
verkirnir væru bara eðli-
legir miðað við aldur.
SKAK
Umsjðn Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
24.-25. mars sl. lauk ís-
landsflugsdeildinni með
sigri A-sveitar Taflfélags-
Ást er...
rÍM! »! vxjETtí
yirtr\
w L
1-31
... að taka samband- ið mjög alvarlega.
TM R*g. U.S. P«t. Ott. — «11 rlghu res+rved C2000 Lo* Ang*ta» Time* Syndcate
ins Hellis. Þetta voru tíma-
mót í sögu Deildakeppninn-
ar því að í fyrsta skipti
tókst öðru félagi en Taflfé-
lagi Reykjavíkur að vinna
Islandsmeistaratitilinn tvö
ár í röð. Meðfylgjandi staða
er frá keppninni og kom
upp á milli stórmeistarans
Þrastar Þórhallssonar,
svart, (2480) og Halldórs
Grétars Einarssonar
(2280).
25...Rg4+! 26.fxg4 hxg4
27.Kg2 g3 og hvítur gafst
upp. Þó að uppgjöfin líti út
fyrir að vera ótímabær er
staða hvíts harla vonlítil
þar sem eftir t.d. 28.DÍ3
Dxg5 komast frípeð svarts
á skrið eftir Bd7-g4.
UOÐABROT
ÍSLAND
Ó, fógur er vor fósturjörð
um fríða sumardaga,
er laufin grænu litka börð
og leikur hjörð í haga,
en dalur lyftir blárri brún
mót blíðum sólar loga
og glitrar flötur, glóir tún
og gyllir sunna voga.
Og vegleg jörð vor áa er
með ísi þakta tinda,
um heiðrík kvöld að höfði sér
nær hnýtir gullna linda
og logagneistum stjörnur strá
um strindi hulið svellum,
en hoppa álfar hjarni á,
svo heyrist dun í fellum.
Þú fósturjörðin fríð og kær,
sem feðra hlúir beinum
og lífið ungu fijóvi fær
hjá fornum bautasteinum,
ó, blessuð vertu, fagra fold
og fjöldinn þinna bama,
á meðan gróa grös í mold
og glóir nokkur stjarna!
Jón Þ. Thoroddsen.
STJÖRMJSPA
cftir Frances Drake
HRUTUR
Aímælisbarn dagsins:
Þú ert maður frumkvæðisins
og þér líður bezt,þegar hug-
kvæmni þín ogframtakfá að
njóta sín.
Hrútur
(21. mars -19. apríl) ^
Sumum hlutum fær enginn
breytt. Sættu þig við það, þótt
erfitt sé og taktu til hendinni
við þau nýju verkefni, sem
bíða þin. Lífið þarf að halda
áfram.
Naut
(20. apríl - 20. maí) í**
Betur sjá augu en auga. Ekki
slá á framrétta hönd þess, sem
vill veita þér aðstoð í við-
kvæmu vandamáli.Það verður
að leysa það farsællega.
Tvíburar . ^
(21.maí-20.júní) nA
Þú átt að venja þig á að tala
vafningalaust. Ekkert er eins
vandræðalegt og þegar manns
nánustu misskilja það sem
sagt er og bregðast við þvi.
Krabbi
(21. júní - 22. jiílí)
Heimurinn hefúr upp á ýmis-
legt að bjóða; ævintýri handan
hornsins. Vertu hvergi
smeykur; hleyptu heimdrag-
anum og skoðaðu þig um í ver-
öldinni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) m
Það er ástæðulaust að ganga
um með spumingarnar í mag-
anum. Upplýsingatæknin er
orðin slík að það er bara að
rétta út hendina og fá svar á
augabragði.
Meýa
(23. ágúst - 22. sept.) fClL
Leggðu þig fram um að skilja
samferðarmenn þína. Þú þarft
hreint ekki að vera sammála
þeim í öllu, en umburðarlyndi
og tillitssemi eru sjálfsögð.
Vog
(23. sept. - 22. október) 4*
Einbeittu þér að þeim verk-
efnum, sem þú þegar hefur og
láttu ógert að skima eftir fleir-
um á meðan þau endast. Tíma-
setningar eru mikilvægar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Reyndu að draga skörp skil á
milli raunveruleikans og
draumaheimsins. Það getur
reynzt svo snúið að blanda
þessu tvennu saman. Hafðu
þitt á hreinu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.) StSr
Það má margt af reynslu ann-
arra læra. Leggðu því við
hlustir, þegar aðrir tala, sér-
staklega ef þeir taka þér fram
um aldur og þroska.
Steingeit ~
(22. des. -19. janúar) mC
Notaðu nú uppátektarsemi
þína til þess að gleðja vini og
vandamenn. Það væri óvit-
laust að efna til ættarmóts
með tilheyrandi glaumi og
gleði.
Vatnsberi
(20.jan,- 18.febr.)
Notaðu nú nýjan mánuð til
þess að fara vandlega yfir fjár-
málin. Settu þér takmörk á út-
gjöldin og haltu þig við þau.
Batnandi manni er bezt að lifa.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Nú er rétti tíminn fyrir þig til
þess að söðla alveg um. Gerðu
upp fortíðina, skildu hana eftir
og gakktu öruggur og djarfur
mót framtíðinni.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
I grunni vísindafegra staðreynda.
FRETTIR
Skóg- og trjárækt fyrir
sumarbústaðaeigendur
GARÐYRKJUSKÓLI ríkisins, Á námskeiðunum verður farið yfir
Reykjum í Ölfusi verður með tvö
námskeið á næstunni um skóg- og
trjárækt fyrir sumarbústaðaeigend-
ur. Annars vegar laugardaginn 8.
apríl í húsakynnum skólans, og hins
vegar laugardaginn 22. apríl í Fé-
lagsheimilinu Borg í Grímsnesi.
Bæði námskeiðin standa frá kl. 10 til
17. Leiðbeinendur verða garðyrkjuf-
ræðingarnir Kristinn H. Þorsteins-
son og Anna María Pálsdóttii’, ásamt
Steinunni Kristjánsdóttur, fagdeild-
arstjóra á umhverfisbraut Garð-
yrkjuskólans.
allt það helsta sem skiptir máli i
skóg- og trjárækt í sumarbústaða-
löndum, s.s. um val á hentugum
trjátegundum, jarðveg, áburð, skjól,
klippingar, meindýr og illgresi, svo
eitthvað sé nefnt.
Skráning og upplýsingar fást hjá
endurmenntunarstjóra Gai’ðyrkju-
skólans, og einnig er hægt að kynna
sér námskeiðin á heimasíðu skólans,
www.reykfr.is
Hjóloglínur
flugustangir
lífstíðarábyrgð
Útsölustaðir:
Útilíf
Veiðibúð Lalla
Vesturröst
Fermingarná ttföt
Verð frá kr. 1.280-3.500
Nýbýlavegi 12, Kóp.,
sími 554 4433.
Léttu
hjartanu
Hjartað púlar fyrir þig allan
sólarhringinn, allt þitt líf.
Þú getur styrkt hjartað
og auðveldað því puðið:
Taktu til fótanna. Rösk ganga í samtals 30 mínútur á dag dregur úr
blóðfitumyndun, lækkar blóðþrýsting og styrkir hjartað og æðakerfið.
Hreyfðu þig reglulega og taktu fjölskylduna með.
Borðaðu góðan og hollan mat; litríka ávexti, ferskt grænmeti, fitulítið
kjöt, ferskan fisk, léttar mjókurvörur og pasta. Njóttu matarinns í
næði.
Mundu að reykingar orsaka hjartasjúkdóma. Reykingamaður er í
tvöfalt meiri hættu á að fá kransæðastíflu.
Er blóðþrýstingur þinn í lagi? Eftir fimmtugt ætti að mæla hann
annað hvert ár.
Léttu hjartanu lífið og líf þitt verður betra.
Landlæknisembættið
Nánari upplýsingar á www.landlaeknir.is
Fræ3sluauglýsing frá Landlæknisembætbnu
www.landlaeknir.is