Morgunblaðið - 07.04.2000, Síða 2
2 C FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BÍÓBLAÐIÐ
Aðalsteinsson
Skipa-
fréttir
KEVIN Spacey (American
Beauty) og Lasse Hallström
(Cider House) sem leiddu sam-
an hesta sína (eða þannig) í
óskarsbaráttunni hafa ákveðið
að tvímenna í byrjun næsta árs,
þegar tökur á „ The Shipping
News“ hefjast. Hallström mun
teikstýra Spacey í myndinni
sem fjallarum mann sem reynir
aö byrja nýtt lífmeð dætrum
sínum á Nýfundnaiandi.
Reyndar rtöur þaö ekki
viö einteyming, hæfi-
leikafólkiö sem kemur
aö gerö myndarinnar,
sem byggö er á Pulitzer-
verðlaunaðri skáldsögu E. Anne
Proleux. Ron Bass (óskar f.
„Rain Man“) mun skrifa hand-
ritið ásamt Tom Epperson. Irwin
Winkler (óskarf. "Rocky") verð-
ureinn afframleiöendunum.
Þaö stóö lengi til að John Tra-
volta léki skipafréttaritarann og
aö kona hans KellyPreston
myndi leika á móti honum. Þau
duttu útúrmyndinni s.l. sumar.
Spaceyer
núna við tök-
urá „Payit
Forward“
þar sem
hann leikur
ásamt Hel-
enHunt(As
GoodAslt
Gets) og Ha-
leyJoelOs-
Kevin ment (Sixth
Spacey Sense). Os-
ment er alveg búinn aö ná sér
eftir aö hafa ekki fengiö aö leika
Harry Potter. Steven Spielberg
er lika kominn yfir sjokkið. Spiel-
berghefur áhuga á aö ráöa Os-
mentí hlutverk í myndina sem
hann gerir á eftir „A.l“ „A.l.“
stendur fyrir Artificial Intelig-
ence, eða Gen/igreind. Tom
Cruise mun leika aöalhlutverkiö
í myndinni sem byggö er á sögu
eftir Phillip K. Dick(Biade Runn-
er). Hún gerist í framtföinni þeg-
artækningeriryfirvöldum kleyft
að handtaka og dæma fólk áður
en þaö fremurglæpi. (Væri ekki
hægt að nota þessa aðferð á
fólk sem er að fara aö gera
óheyrilega lélegar kvikmyndir?).
Stanley Kubrick ætlaöi að leik-
stýra „A.l“ en eins ogThe Holly-
wood Reporter orðaöi svo
skemmtilega, þá „kom dauöi
hansívegtyriraö úrþvíyröi."
Næsta mynd sem viö munum
sjá Kevin Spacey í er „ The Big
Kahuna“ verðurfrumsýnd hérí
þessum mánuöi, en þar leikur
hann á móti DannyDe Vito.
Sjálfur ætlar Lasse Hallström
ekki aö setja auöum höndum og
bíöa eftir Spacey.. Hann erað
fara af stað með „Cholcolat
þar sem stöllumar úr „Óbæri-
legum léttleika tilverunnat
leika saman á ný. Þetta eru þær
Juliette Binoche og Lena Olin,
sem reyndarereiginkona Hall-
ströms. Johnny Depp og Judi
Denchveröa líka meö í súkku-
laðinu. Þetta eru sérlega góöar
fréttir fyrir hinn hæfileikarika
Hallström (Mit Liv Som Hund)
sem var eiginlega kominn út í
horn eftir aö honum tókst að
fæla fólk frá Júlíu Roberts með
því að leikstýra henni í „Somet-
hingTo Talk About. “ Hann geröi
ekki mynd í fjögur ár, þar til Mira-
max bauð honum CiderHouse
Rules. ■
Nýr kvíkmyndaklúbbur
í Háskólabíói
• • ---------------
OFLUGUR
Filmundur
GHOST Dog - The Way
Of the Samurai, nýjasta
mynd Jims Jarmusch, eins
helsta óháða kvikmynda-
leikstjóra Bandaríkjanna,
reið á vaðið í gærkvöldi
þegar nýr kvikmynda-
klúbbur, Filmundur, hóf
starfsemi sína í Háskóla-
bíói. „Þetta verður mjög
öflugur klúbbur,“ segir
einn forsvarsmanna Fil-
mundar, Þorbjörn Orri
Tómasson við Bíóblaðið,
en að klúbbnum standa Háskólabíó,
kvikmyndaklúbbur háskólastúdenta
Hreyfimyndafélagið og vikublaðið
24-7.
Sýningar Filmundar verða fjór-
þættar: I fyrsta lagi nýjar kvikmynd-
ir sem vakið hafa athygli á kvik-
myndahátíðum erlendis og má nefna
sem dæmi War Zone eftir Tim Roth,
sem sýnd verður síðar í mánuðinum; í
öðru lagi sígildar myndir eftir helstu
höfunda kvikmyndasög-
unnar og verður sú fyrsta
Jour de Fete eftir Jacques
Tati; í þriðja lagi verða
forsýndar úrvalsmyndir af
sýningarskrá Háskólabíós
tveimur til fjórum mánuð-
um fyrir almennar sýning-
ar; í fjórða lagi verða
þemasýningar þar sem
teknir verða fyrir kunnir
leikstjórar, þjóðlönd eða
kvikmyndagreinar og má
nefna að í maí verða verk
Pedros Almódóvar í brennidepli.
Sýningar Filmunds verða kl. 10 á
fimmtudagskvöldum og á sama tíma
á mánudagskvöldum. Filmundur er
áskriftarklúbbur. Arskortið kostar
1000 kr. og eru tveir frímiðar innifa-
ldir, en miðaverð á hverja sýningu er
450 kr.. Klúbbkortin eru til sölu í Há-
skólabíói. Næsta sýning á eftir Ghost
Dog verður á bresku myndinni East
Is East.
Jim Jarmusch:
Fyrstur hjá Fil-
mundi.
w
Okeypis á japanskar
bíómyndir
JAPÖNSK kvikmyndahátíð hefst í
dag í Háskólabíói. Hún er fyrsti við-
burðurinn sem Japanska menning-
armiðstöðin stendur fyrh- en hún hóf
starfsemi í vikunni. Á hátíðinni verða
sýndar sex japanskar kvikmyndir af
ýmsu tagi.
Týndur í óbyggðum er sjálfsævis-
aga ævintýramannsins Uemura Na-
omi, sem klifrað hefur öll hæstu fjöll
heims. Leikstjóri er Sato Jun’ya.
Unglingar snúa aftur eftir Takeshi
Kitano er gamansöm dramatísk
mynd um unglinga í Tókýó.
Sumo Do Sumo Dont eftir Suo
Masayuki segir frá ungum sumo-
glímukappa.
Tsuro eftir hinn fræga leikstjóra
Kon lchikawa er ævintýri, sem ger-
ist í afskekktu þorpi.
Saga Sadakos eftir Seijiroh
Kohyama segir frá baráttu ungrar
stúlku við hvítblæði af völdum kjarn-
orkusprengingar.
Peking vatnsmelóna er pólitísk
gamanmynd eftir Nobuhiko
Obayashi. Aðgangur að sýningunum
í Háskólabíói er ókeypis.
Sjónarhorn
I SjóndeJJdar- \
i hrmgunnn \
\ breikRaðurl
I Eftir flrnald Indliðason S4GA kvikmyndaklúbba á íslandi er talsvert I
I ____________ merkileg þótt ekki fari mikið fyrir henni. Hún I
I er um 45 ára gömul, sem teljast verður nokkuð hár aldur, og hún hef- I
I ur alltaf haft að markmiði að auka breiddina í kvikmyndamenningu ís-
J lendinga og tekist það framúrskarandi þegar best lét. Klúbbunum hef- J
[ ur verið stefnt gegn Hollywood-myndunum sem gerðar eru undir
■ merkjum hreinnar afþreyingar og hafa mestanpart stjórnað markaðn-
I um þessi 45 ár.
Saga klúbbanna er að nokkru leyti samofm kvikmyndaþróun í
| Evrópu. Fyrsti klúbburinn sem stofnaður var um bætta kvikmynda-
I menningu, Filmía, varð til í kjölfar uppsveiflu í evrópskri kvikmynda-
I gerð um miðja öldina og lagði höfuðáherslu á að sýna evrópskar
• myndir en einnig myndir af öðrum og fjarlægari svæðum. Sýningar
[ voru haldnar lengst af í Tjarnarbíói, klúbburinn var fjölmennur og má
[ segja að hann hafi haft mikið uppeldislegt gildi því hann gaf fólki
■ tækifæri til þess að lesa í annars konar myndir en fjöldaafþreyinguna |
I og bauð upp á óvenju mikla fjölbeytni í kvikmyndavali.
I Þorgeir Þorgeirsson stofnaði kvikmyndaklúbb og rak um nokkurt
I skeið og Fjalakötturinn varð til sem kvikmyndaklúbbur framhaldsskól- I
I anema og hélt uppi öflugu sýningarstarfi í Tjarnarbíói þar sem sýndar
I voru bæði nýjar og gamlar myndir meistara á borð við Kurosawa og
• Fellini og hafði mikil áhrif á þá kynslóð íslendinga sem síðar áttu eftir J
j að verða fyrstu kvikmyndagerðarmennirnir; Friðrik Þór Friðriksson,
[ sem var starfaði hvað lengst við klúbbinn, hefur lýst því hversu mikill
• áhrifavaldur Fjalakötturinn var honum.
Því er þetta rifjað upp hér fáum orðum að ég var minntur á það um |
| daginn að kvikmyndaklúbbsstarfiö er enn viö lýði og að nýr klúbbur
I hefur verið stofnaður, sem tekur við sögulegu hlutverki. Hann heitir I
I Filmundur og að honum standa Hreyfimyndafélagiö, Háskólabíó, sem I
I áður hélt uppi einskonar klúbbi með svokölluðum Mánudagssýning-
J um, og vikublaðiö 24 - 7. í starfslýsingu segir að Filmundur ætli að
[ standa fyrir sýningum á klassískum myndum kvikmyndasögunnar í
j bland við nýjar og nýlegar myndir, sem sýndar hafa verið á kvikmynda- .
I hátíðum. Þá segir að klúbburinn muni taka fyrir einstaka leikstjóra,
I þjóðlönd, kvikmyndategundir eða tímabil.
| Er ástæða til þess að fagna framtaki þessu sérstaklega. Svo virð- |
I ist sem fákeppnin sé að aukast á kvikmyndamarkaðinum, eins og á I
I öðrum sviðum, en nú eru aðeins fjórir aðilar sem reka kvikmyndahús I
I í Reykjavík. Hollywood-myndirnar verða sífellt ágengari (þótt margt af
[ því besta í kvikmyndunum sé gert vestra er líka að finna þar margt af J
[ því versta) og bruðlmyndirnar að verða sífellt stærri í beinu hlutfalli
. við innihaldsleysið.
Þess vegna er óskandi að Filmundi takist að inna starf sitt af hendi y
I og víkka sjóndeildarhringinn því hann hefur að sönnu verið of þröngur j
I of lengi. I
I______________________________________________I
Um þessar mundir er fyrsta sérhannaða íslenska kvikmyndaverið að komast í gagn-
ið. Framkvæmdastjóri íslenska kvikmyndaversins ehf. er Guðjón Ó. Davíðsson og
Páll Krístinn Pálsson spjallaði við hann um starfsemina sem er að fara í gang.
lökur að hefjast í
Stúdío Oskari
og Stúdíó Lofti
„Vigdís Finnbogadóttir tók fyrstu skóflu-
stunguna um miðjan ágúst á síðasta ári og nú
erum við að taka fyrsta áfangann í notkun,“
segir Guðjón. „Framkvæmdir hafa gengið mjög
vel, fyrir utan smávægilega seinkun vegna veð-
urs. Við stefnum að formlegri opnun í lok mán-
aðarins, en erum byrjaðir að bóka tíma og það
er nú þegar hægt nota stúdíóið. Við leigðum
það til dæmis út fyrir skömmu undir heljar-
mikla veislu, svo það er hægt að nýta aðstöðuna
fyrir ýmsar uppákomur."
íslenska kvikmyndaverið er í eigu fyrirtækj-
anna Saga Film, Islensku kvikmyndasamsteyp-
unnar og Hins íslenska kvikmyndafélags og
einstaklinganna Gísla Baldurs Garðarssonar,
Sævars Jónssonar og Kristjáns Jóhannssonar.
Það er til húsa að Fossaleyni 19 við ána Korpu
í fallegu og rólegu umhverfi. Lóðin er 14.700
fermetrar og heildarflatarmál þeirra bygginga
sem ætlunin er að reisa er um 5.500 fermetrar.
Ráðgert að hafa þarna tvö stúdíó, annars vegar
Stúdíó Óskar, sem tileinkað er minningu Osk-
ars Gíslasonar, frumkvöðuls íslenskrar kvik-
myndagerðar, og hins vegar Stúdíó Loftur, sem
nefnt er eftir öðrum brautryðjanda, Lofti Guð-
mundssyni. Síðan er ætlunin að á lóðinni verði
einnig ýmis fyrirtæki sem tilheyra kvikmynda-
framleiðslu, smíðaverkstæði, ljósa- og tækja-
leiga og búningaleiga svo eitthvað sé nefnt, svo
þarna geti myndast einskonar kvikmyndaþorp.
„Fyrsti áfangi er Stúdíó Óskar,“ segir Guð-
jón „og hann skiptist í þrennt: 200 fermetra
skemmu með góðu aðgengi og stórum hurðum
þar sem hægt að smíða ýmislegt; síðan stúdíóið
sjálft sem er 1200 fermetrar og með 10 metra
lofthæð; og loks þjónustuálma, sem er 500 fer-
metrar á tveimur hæðum og þar er mötuneyti,
skrifstofur, förðun, fundaraðstaða og búnings-
herbergi. Kostnaðaráætlunin við þennan áfanga
hljóðar upp á 120 milljónir króna.“
Guðjón segir markmiðið að þjóna kvikmynda-
iðnaðinum hér innanlands sem og erlendis og
veita góða og aðgengilega aðstöðu fyrir fram-
leiðslu kvikmynda, auglýsinga og dagskrár-
gerðar fyrir sjónvarp. „Hér hefur vantað til-
finnanlega varanlegt stúdíó, menn hafa bara
komið sér upp bráðabirgðaaðstöðu tengda
ákveðnum verkefnum. Síðan er ætlunin að
sníða þjónustustarfsemina að þeim þörfum sem
upp koma hjá þeim sem þarna vinna.Við höfum
orðið varir við mikinn áhuga hjá innlendum
kvikmyndagerðarmönnum og erlendum fram-
leiðendum auglýsinga, sem komið hafa að skoða
aðstæður. Við göngum út frá því að þarna verði
allt á fullu alla daga.“
Hvað leiguverð áhrærir segir Guðjón að um
það verði samið fyrir sérhvert verkefni, þau séu
svo ólík að ekki henti að vera með staðlaða
Morgunblaöið/Golli
Guðjón með íslenska kvikmyndaverið í baksýn:
Aiit á fullu alla daga.
verðskrá. „Og þetta er að sjálfsögðu öllum op-
ið,“ bætir hann við. „Stúdíóið er ekki reist ein-
göngu fyrir þá sem eiga það sjálfir, heldur til
að skapa betri aðstöðu fyrir allt hið fram-
úrskarandi kvikmyndagerðarfólk sem hér er að
störfum."
Athugasemd
í VIÐTALI við Friðbert Pálsson í síðasta
Bíóblaði voru eftir honum höfð ummæli sem
unnt er að misskilja á þann veg að í þeim fæl-
ist gagnrýni á myndaval núverandi stjórn-
enda Háskólabíós. Því er tekið fram að slíkt
var hvorki ætlun viðmælanda né blaða-
manns.