Morgunblaðið - 07.04.2000, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
FRIDAY 7, APRIL 2000 C 3
BÍÓBLAÐIÐ
Freaks: Glæpakvendið fær makleg málagjöld þegar viðundrin skrumskæla hana og hafa til sýnis.
eftir Nagisa Oshima. Popparinn er gamall lát-
bragðsleikari og mætti að ósekju sjást oftar á
breiðtjaldinu. Gagnrýnendur tóku hann aldrei í
sátt sem kvikmyndaleikara. Bowie hefur verið
mjög seinheppinn í hlutverkavali í seinni tíð.
Hann lék elliæra blóðsugu í Hungrinu (The
Hunger) og Pontíus Pílatus í Síðustu freistingu
Krists í leikstjóm Martins Scorseses, en reis úr
öskustónni sem föndrarinn Andy Warhol í
myndinni Basquiat um árið. Fóstbróðir
Bowies, Mick Jagger, fékk svipaða útreið hjá
gagnrýnendum á áttunda áratugnum, en átti
hana fyllilega skilið þar sem goðið er afleitur
leikari. Glíma hans við leiklistargyðjuna er þó
hátíð í samanburði við tilþrif Madonnu á breið-
tjaldinu. Annar afbragðssöngvari sem aldrei
ætlaði að hljóta náð hjá gagnrýnendum var
Frank Sinatra, svo að ekki sé talað um Dean
Martin í meistaraverkinu Rio Bravo.
Köld eru kvennaráð
Japanska myndin Konan í sandsköflunum
(Suna no Onna) líður seint úr minni. Skordýra-
fræðingur hittir konu sem býr í hreysi ofan í
sandpytti. Sú lokkar hann til sín og heldur hon-
um föngnum. Leikstjórinn Hiroshi Teshiga-
hara var einnar myndar maður, náði aldrei að
fylgja þessu meistaraverki eftir sem skyldi og
féll í gleymskunnar dá. Myndin hefur að geyma
ógleymanleg atriði. Leikstjórinn magnar fram
mikla dulúð og spennu án þess að fara hefð-
bundnar leiðir. Með fáum myndum sem eru
bullandi erótískar án þess að særa blygðunar-
kennd áhorfandans.
Úr glatkistunni
Jónas Knútsson
Skáldsagan Maðurinn
sem féll til jarðar (The
Man Who Fell To
Earth) er eftir Walter
Tevis. Sá samdi bókina The Hustler en Paul
Newman lék á sínum tíma í eftirminnilegri
mynd sem gerð var eftir þessari sögu. Upp-
haflega stóð til að Peter O’Toole léki manninn
sem féll til jarðar, en leikstjórinn Nicholas
Roeg ákvað sem betur fer að tefla á tæpasta
vað í hlutverkavali. Tónlistarmaðurinn David
Bowie er vanmetinn leikari og sómdi sér vel í
hlutverki geimverunnar. Söguhetjan leggur
upp í langa ferð í leit að vatni, til plánetu sem
byggð er frumstæðum lífverum, en lendir í
mestu hrakningum þegar þangað er komið.
Einhver gagnrýnandi taldi frammistöðu Candy
Clark, sem lék mennska ástkonu geimmanns-
ins, einn mesta leiksigur áratugarins. Leik-
stjórinn töfrar fram ákveðna dulúð án þess þó
að taka sig of hátíðlega.
Furðufuglinn Roeg hefur
gjaman farið ótroðnar slóðir
og gert margar magnaðar
myndir þar sem saman fara
listræn tilraunastarfsemi og
vandað handbragð af gamla
skólanum. Áhorfandinn veit
venjulega ekki hvaðan á hann
stendur veðrið. Stundum get-
ur verið gjöfult að sjá myndir
eftir Roeg oftar en einu sinni.
Greinarhöfundur hefur séð
þessa merku mynd að
minnsta kosti fimm sinnum
og botnar hvorki upp né nið-
ur í henni. Bowie lék einnig
vel í myndinni Gleðileg jól,
herra Lawrence (Merry David Bowie í The Man Who Fell to Earth: Sómdi sér vel íhlut-
Christmas, Mr. Lawrence) verki geimverunnar.
Viðundur veraldar
Leikstjórinn Tod Browning gerði garðinn
frægan á dögum þöglu myndanna, gjarnan í fé-
lagi við leikarann Lon Chaney, sem gat brugðið
sér í allra kvikinda líki. Frægasta talmynd eftir
hann er eflaust Drakúla en ungverski stór-
leikarinn Bela Lugosi eignaði sér hlutverk
greifans til frambúðar. Myndin Viðundur
(Freaks) er merkileg fyrir þær sakir að þar
segir frá vansköpuðu fólki sem haft er til sýnis i
fjölleikahúsi. Leikararnir voru í raun afmynd-
aðir og sáu sér farborða með þessum hætti.
Sjálfur var Browning gamall sirkuskarl og
gjörþekkti þennan undarlega heim. Þegar
menn dást að handbragði Brownings vaknar
óneitanlega sú spuming hvort margur kvik-
myndaneminn hefði ekki betur fengið vinnu í
sirkus en lagt út í rándýrt háskólanám. Þótt
handritið hafí ekki verið upp á marga fiska nær
þessi mynd enn að hrista upp í áhorfendum.
Browning hvarf frá vinnu í hartnær tvö ár. Að-
spurður hverju þetta sætti kvaðst hann hafa
gert heiðarlega tilraun til að klára allan afslátt-
arlanda sem til var í heiminum. Mörgum hefur
þótt óverjandi að nota vanskapað fólk í kvik-
mynd líkt og Browning gerði. Viðundrin eiga
þó samúð leikstjórans alla þótt myndin sé laus
við væmni. Reyndar notast hver leikstjóri á
fætur öðrum við Leonardo DiCaprio og fær
ekki bágt fyrir, svo að Browning hlýtur að fyr-
irgefast þótt hann hafi vissulega hætt sér út á
hálan ís.
anM
sHemmJ®
STIIART
LITI I
I I |n| ^
www.stuartlittle.com
Frá adstodarleikstjóra “The Lion liing”
Frumsýnd 14. apríl
a* með íatewslai tali.
• Litla krílið, Stuart hefur allstaðar slegið í gegn og nú er komið að litla íslandi.
AAaður þarf ekki að vera hór í loftinu til að gera stóra hluti. Stuart er engum líkur.
• Krakkaklúbbs-og Sportklúbbsfélqgqr sem leggia inn ó Lgndsbók ? næsta Lqndsbqnka fó
miða* á „Stuart Litla", Afsláttur á mvndina gegn framvísun félagaskírteinis.
*Meðan birgðir endast.
• Bókin um Stúart Litla er komin út.
Landsbanki Islands
U
Mál og menning