Morgunblaðið - 16.04.2000, Side 2
2 B SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR
Joan Allen og William H. Macy í kvikmyndinni
„Pleasantville".
Associated Press
Macy í myndinni „Happy, Texas“ sem varð talsvert umdeild á sínum tíma.
Associated Press
í myndinni „The Mystery Men“ ræðst Macy gegn glæp-
um með skófluna eina að vopni.
Macy og
aularnir
Bandaríski skapgerðarleikarinn William H.
Macy er með skemmtilegri leikurum bíó-
myndanna að mati Arnaldar Indriðasonar,
sem kynnti sér feril hans og komst að því að
Macy þarf á stórri, feitri Hollywood-mynd
að halda.
ER HÆGT að ímynda sér nokkurn
rolulegri mann en William H. Macy
í þeim skepnulega gamantrylli Far-
go eftir Joel og Ethan Coen? Macy
lék bílasala sem lifði undir ofur-
valdi tengdaföður síns. Þegar hann
fékk frábæra hugmynd um leið til
þess að auðgast í viðskiptum og
kynnti hana fyrir tengdapabba stal
sá gráðugi djöfull hugmyndinni án
þess að blikna. Þegar Macy fékk
öllu verri hugmynd um rán á eigin-
konu sinni, dóttur gamla mannsins,
til þess að hafa af honum lausnarfé,
keypti hann óafvitandi þjónustu
gersamlega samviskulausra morð-
ingja, sem stútuðu kerlingunni við
fyrsta tækifæri. Og þarna sat Macy
á bílasölunni, í framan eins og sá
guðsvolaði aumingi sem hann var,
og í stað þess að hafa með honum
einhvem vott af samúð hló djöfull-
inn innra með manni og hlær enn.
Fæddur í aulahlutverkin
Það þarf snilling í hlutverk af
þessu tagi og Macy er sá snilling-
ur. Meðferð hans á hinum alger-
lega misheppnaða ráðabruggara í
Fargo veitti manni einhverja eftir-
minnilegustu kvikmyndaskemmtun
síðasta áratugar ef ekki hreinlega
síðustu áratuga. Síðan þá hefur
Macy tekist að fullkomna ímynd
þess sem alltaf verður undir í lífmu
fyrir sakir eigin ístöðuleysis, hug-
leysis eða aðgerðarleysis. Dæmi
um það má sjá í tveimur myndum
Paul Thomas Andersons, Boogie
Nights og Magnolia. I fyrrnefndu
myndinni lék hann hálfgerða fram-
lengingu á bflasalanum í Fargo;
eiginkona hans var klámdrottning
sem var sífellt að gera það fyrir
augunum á honum og hlustaði ekk-
ert á aumingjalegar mótbárur hans
þangað til hann fékk nóg og réðst á
hana og nýjasta riðUinn með
skammbyssu. I Magnolia lék hann
enn mann sem hafði orðið undir í
lífinu, barnastjörnu mikla úr vin-
sælum spurningaþáttum sjónvar-
psins, sem orðin er að engu. Ljóst
er að Anderson tekst sérstaklega
vel að nýta sér leikarann í rullur af
þessu tagi.
Við hér á Islandi tókum fyrst
eftir William H. Macy í sjónvarps-
þáttum. Þá var hann röggsamur
stjórnandi og yfirmaður á stóru
sjúkrahúsi og það var eins og hann
hefði aldrei verið neitt annað.
Þættirnir hétu Bráðavaktin og
vöktu athygli á leikaranum þannig
að honum fór að bjóðast kvik-
myndahlutverk í Hollywood. Joel
og Ethan Coen voru einna fyrstir
til þess að sjá í honum þann magn-
aða leikara sem hann er og fengu
hann í Fargo. Hann hafði leikið lítil
hlutverk í ómerkilegum myndum
fram að því en Fargo var eitthvað
allt annað.
„Eg vissi það fyrir víst, og ég er
ekkert að þykjast með það, að ég
var fæddur til þess að fara með
hlutverk bílasalans í Fargo,“ segir
Macy í nýlegu viðtali í breska kvik-
myndatímaritinu Empire. Hann
vissi af hlutverkinu og að bræðurn-
ir væru ekki búnir að finna leikara
til þess að túlka það og hann flaug
á fund þeirra og hótaði öllu illu ef
hann ekki fengi að vera eigin-
mannsrolan. „Ég held að ég hafi
sagt við þá að ég myndi skjóta
hundinn þeirra ef ég fengi ekki
hlutverkið," segir Macy og bætir
við: „Ég veit ekki hvort þeir eiga
hund.“
Macy var útnefndur til Óskarsins
fyrir hlutverkið (hann fékk ekki
styttuna) og varð eftirsóttur í
Hollywood. Það hafði tekið hann
tuttugu ár að koma sér áfram inn-
an kvikmyndanna. Hann var í
Boogie Nights, Mystery Men og
Happy, Texas svo nokkrar séu
nefndar og oftar en ekki var hann
aulinn. Fæddur til þess að verða
undir í lífinu. „Já, það er heilagur
sannleikur,“ segir hann. „Veistu, ég
William H. Macy,
á eftir að kaupa mér hús með þess-
um aulahlutverkum.“ Þegar honum
er bent á að hann hafi í sannleika
sagt útlitið með sér í þessar rullur,
jánkar hann því. „Það er líklega
ástæðan, ég hef útlitið með mér.
Ég á auðvelt með að vera niður-
dreginn. Það sem ég geri til þess
að fá áhorfendurna til þess að
skilja þessa menn, er að ég leyfi
þeim aldrei að gefast upp.“
Mamet var kennari hans
William H. Macy (H-ið stendur
fyrir Hill) lærði leiklist m.a. í Ver-
mont þar sem kennari hans var
leikritaskáldið, vinur hans og sam-
starfsmaður, David Mamet. Macy
er sjálfur leiklistarkennari og við-
urkennir að hann kenni sínum
nemendum nákvæmlega það sama
og Mamet kenndi honum forðum.
Eitt af því sem nemendur hans fá
strax að vita er að það sé ekki
hægt að læra að leika, þeir eiga
aldrei að kaupa námsbækur um
listina að leika og þeir eiga aldrei
að fara í leiklistarnám. „Þetta er
allt saman dagsatt," segir Macy.
Hann stofnaði leikfélag í New
York ásamt Mamet á áttunda ára-
tugnum en á sama tíma og Mamet
varð með tímanum eitt fremsta
leikskáld Bandaríkjanna og er
núna einn af athyglisverðari kvik-
myndaleikstjórum vestan hafs,
komst Macy ekkert áfram og um
miðjan níunda áratuginn ákvað
hann að hætta þessu rugli og gera
eitthvað af viti. „Ég var leikari í
New York og var að gera sama
hlutinn aftur og aftur, lék í sama
leikritinu endalaust, fátækur eins
og heimilisleysingi. Svo gerðist það
að einhver stelpa sagði mér upp og
meira þurfti ég ekki til þess að
vilja færa mig um set og ég flutti
til Los Angeles til þess að byrja
upp á nýtt.“
Hann þekkir vel hvernig hlutim-
ir ganga fyrir sig í draumaverk-
smiðjunni. „Leikaraliðið hér skipt-
ist í stórstjömur kvikmyndanna,
menn og konur sem fá aðalhlut-
verkin, og skapgerðarleikara eins
og mig og ég er hreykinn af að til-
heyra síðastnefnda hópnum." Hins
vegar er hann ekki frá því að hann
sé efni í stórstjörnu. „Ég tilheyri
barnabylgjunni frá sjötta áratugn-
um. Núna em allir krakkarnir
orðnir fullorðnir og á aldri við mig
svo það hlýtur að vera þörf í þess-
um heimi fyrir rómantíska gaman-
mynd um menn með gyllinæð.“
Þarf stóra, feita
Hollywood-mynd
Hann hins vegar þekkir sín tak-
mörk. „Ég er fimmtugur og hef
ekki útlitið með mér svo það yrði
mér varla til framdráttar að leika á
móti Nicole Kidman." Hins vegar
má geta þess að hann lék í lítilli
ástarsenu á móti Neve Campbell í
óháðri mynd sem sýnd var á
Sundance-kvikmyndahátíðinni ný-
lega og heitir Panic. „Ég spurði
hana að því hvort hún ætlaði að
berhátta sig í atriðinu en hún sagði
nei og spurði mig hvort ég ætlaði
að gera það en ég sagði, nei, en ég
var að vona að þú mundir gera
það.“
Macy hefur kynnst ágætlega hin-
um unga leikstjóra, Paul Thomas
Anderson (hann er 29 ára), og hef-
ur mikla unun af að starfa fyrir
hann. „Ég hitti Paul í fyrsta skipti
eftir að ég las handritið hans að
Boogie Nights sem var ákaflega
eldfimt og miklu klúrara en mynd-
in sem hann gerði; það voru virki-
lega brjálaðir hlutir þar innan um
og saman við. En ég hafði sérstaka
ánægju af handritinu og fór að sjá
myndina hans, Hard Eight. í fram-
haldi af því sagði ég við hann: „Ég
skal leika í Boogie Nights og ég
skal leika í öllum myndum sem þú
átt eftir að gera í framtíðinni."
Þetta boð stendur enn. Ef Paul
hringir í mig og segist vera að fara
af stað með kvikmyndaútgáfu af
símaskránni skal ég leika hvað sem
er í henni.“
Annars kvartar Macy undan
verkefnaleysi þótt ótrúlegt sé. „Ég
verð að komast í stórmynd á næst-
unni,“ segir hann og ber sig aum-
lega hvað launin varðar. „Ég hef að
undanförnu aðeins leikið í einni
mynd sem gerð er af óháðum aðil-
um (sem þýðir að ekkert Holly-
wood-kvikmyndaver dælir í hana
peningum) og í leikriti sem sýnt
var utan Broadway. Ég verð aðeins
með 12.000 dollara í laun á þessu
ári. Ég þarf virkilega á að halda
stórri og feitri Hollywood-mynd.“