Morgunblaðið - 16.04.2000, Qupperneq 28
28 B SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ekki einungis að sækjast eftir mat
heldur ferðalagi yfir í annan heim í
eina kvöldstund. Fyrsti staðurinn er
varðaði þessa leið var Buddha Bar (8,
Rue Boissy d’Anglas, sími 0033-1
53059000) sem er í hliðargötu við hlið
glæsihótelsins Hotel Crillon við
Place de la Concorde. Buddha Bar er
líklega fyrsti Parísarstaðurinn sem
hægt er að skilgreina sem nútíma
gastroclub, skemmtistaður ekM síð-
ur en veitingastaður. Hann var um
skeið sá staður, þar sem allir er ein-
hvers máttu sín urðu að láta sjá sig,
varð síðan passéum stund er þotulið-
ið færði sig annað en hefur nú fest sig
ágætlega í sessi sem stofnun á þessu
sviði. Þegar komið er inn á Buddha
er gengið inn í gríðarstórt rými.
Ferkantaður bar er á svölum um-
hverfis geiminn, og líMega er göngu-
leiðin einir 150 metrar, ef gengið er
hringinn í kring. Þegar gengið er nið-
ur tröppurnar í stóran veitingasalinn
blasir við heljarinnar búddhalíkneski
í lótusstöðu, hátt í tíu metrar á hæð.
A matseðlinum má finna franska
jafnt sem asíska rétti eða þá einhvers
konar bræðing. Yfirleitt er maturinn
ágætur en ekM stórkostlegur, þjón-
ustan þægileg og stemmningin
skemmtileg, íyrir þá sem kunna að
meta svona staði. Eftir því sem líður
á kvöldið hækkar tónlistin, sem er
fjölþjóðleg blanda af asísk-ind-
verskri, evrópskri og norður-afrískri
tónlist og danstakturinn verður
meira áberandi og kliðurinn frá
barnum uppi á svölunum hærri.
Ennþá stærri er Asian (30, Avenue
George V, sími 0033-1 56891100),
risavaxinn veitingastaður er tekur
heila 400 gesti í sæti og maður veltir
því fyrir sér hvernig hægt hafi verið
að fá þetta stórt húsnæði á þessum
rándýra stað, steinsnar frá Champs-
Elysées. Asian, sem opnaður var á
síðasta ári af frönsku, víetnömsku og
laótísku teymi, er á nokkrum pöllum,
á efri hæðinni er hægt að nýta sér
barþjónustu á asískum bekkjum, er
minna meira á legubekki en á veit-
ingasvæðinu á neðri hæð breiða
borðin úr sér yfir geysistórt rými, án
þess þó að mynda heila breiðu. Þetta
sköpunarverk arMtektsins Francois
Wapler (sem til að mynda á heiður-
Asísk áhrif
í París
París er borg einfaldra kaffíhúsa jafnt sem
glæsilegra Michelin-stjörnustaða. Undan-
farin misseri eru það hins vegar ekki síst al-
þjóðlegir veitingastaðir sem notið hafa vin-
sælda meðal Parísarbúa. Steingrímur
n Sigurgeirsson snæddi á nokkrum þeirra og
komst að því að asísk áhrif eru greinilega í
miklu uppáhaldi.
FAAR borgir búa yfir jafn rót-
gróinni veitingahúsamenn-
ingu og París. Á hverju horni
er að finna einföld kaffihús (bistro),
einfalda veitingastaði (brasserie) eða
fínni veitingastaði (restaurant). Veit-
ingahúsamenning Parísarborgar
hefur verið fyrirmynd umheimsins
en hins vegar minna um að straumar
og stefnur utan Frakklands nái að
brjótast í gegnum hinn gallíska vam-
armúr. Það er þá helst hin banda-
>ríska skyndibitamenning er náð hef-
ur þeim árangri til þessa, líkt og hinn
mikli fjöldi slíkra staða í París er til
vitnis um.
Þar með er þó ekM sagt að hin par-
íska veitingahúsamenning sé ekM al-
þjóðleg. Fá Evrópuríki eru í raun
jafnalþjóðleg menningarlega séð og
Frakkland. Oldum saman var Frakk-
land stórveldi er teygði anga sína um
allan heim og enn í dag er sjóndeild-
arhringur Frakka víðari en flestra
annarra, þótt þeir séu stundum sak-
aðir um einangrunarhyggju þar sem
þeir leggja ekki sama skilning í al-
þjóðahyggju og engilsaxneskar þjóð-
ir. Alþjóðahyggja Frakka er menn-
ingarleg miklu frekar en
markaðsleg. Sjálfstraust Frakka
hvað eigin menningu snertir er jafn-
framt það sterkt að þeir óttast ekM
sMpbrot hennar vegna samneytis við
aðra menningarheima. Það á ekM
síður við um matarmenninguna, sem
sést kannski best á því að helsta mat-
argoð þeirra Frakka þessa stundina.
Aiain Ducasse (sem rekur tvo
þriggja Michelin-stjömu staði) opn-
aði fyrir nokkru staðinn Spoon, Food
and Wine, sem ekki einungis heitir
ensku nafni heldur er jafnframt und-
ir mjög kalifomískum áhrifum.
Um alla París má finna veitinga-
staði er endurspegla hin ólíku heims-
horn. Vilji menn reyna norður-af-
ríska matargerð Maghreb-svæðisins,
gefst kjörið tækifæri á hinum fjöl-
mörgu couscous-veitingastöðum
Parísar. Sama má segja um matar-
gerð IndóMna, er var jú einnig hluti
af Frakklandi langt fram á þessa öld.
En þessir straumar em ekki einung-
is bundnir við fyrrum nýlendur
Frakka. Kínverska, suður-ameríska
og jafnvel ástralska staði má finna
hér og þar. Að ekM sé nú minnst á
japanska sushi-staði, sem líkt og víð-
ar spretta upp eins og gorkúlur í
borg ljósanna.
Almennt séð er augljóst að asísk
matargerð nýtur gífurlegra vinsælda
í París þessa stundina, ekki síst með-
al yngri kynslóða. Hana má jafnt
finna í sínu hreina formi, sem í sam-
bræðingi við evrópska matargerð
líkt og verið hefur vinsælt beggja
vegna Atlantshafsins síðastliðin ár.
Eitt besta taílenska veitingahús
Parísarborgar heitir The Blue
Elephant (45, Rue de la Roquette,
sími 0033-1 47004200) og er raunar
hluti af keðju, sem er óvenjulegt fyr-
ir góð veitingahús. Fyrsti Blue
Elephant-staðurinn var opnaður í
Bmssel árið 1980 af belgískum fom-
munasala og taílenskri eiginkonu
hans og er nú um tugur staða rekinn
undir þessu nafni víða um heim. And-
rúmsloftið á Blue Elephant minnir á
h'tið taílenskt þorp. Þegar gengið er
inn á veitingastaðinn, sem er í veit-
ingahúsagötu í um tíu mínútna
göngufjarlægð frá Bastillutorginu,
kemur maður inn í nýjan heim. Loft-
ið ilmar af hitabeltisgróðri og fram-
andi kryddum og teMð er á móti
manni af taílenskum gyðjum í glæsi-
legum þjóðbúningum. Veitingasalur-
inn er undantekningarlítið þéttset-
inn og era borðin við litla tjörn, þar
sem stórir litríkir fiskar synda um,
auk þess er setið á svölum í kringum
salinn. Þjónusta er hröð og góð en
einkennist kannsM einum of mikið af
afgreiðslu, enda gegnumstreymi
gesta miMð. Matargerðin er sígild,
taílensk og mjög vel útfærð. Kokkar
staðarins hika ekM við að beita
kryddum og ekM er gerð nein tilraun
til að útvatna matargerðina að vest-
rænum smekk. Að máltíð loMnni em
konur leystar út með blómi.
Þrír aðrir staðir tilheyra hins veg-
ar nýrri kynslóð parískra veitinga-
húsa, þar sem Vesturlönd og Austur-
lönd mætast á miðri leið og ekM er
síður lagt miMð upp úr glæsilegum
innréttingum og „svölu“ andrúms-
lofti en sjálfum matnum. Þetta em
spennandi staðir, þar sem gestir eru
Atvinnu-, rað- og smáauglýsingar
Auglýsingatexta og fullunnum
auglýsingum, sem eiga að birtast á skírdag,
fimmtudaginn 20. apríl, þarf að skila fyrir
kl. 16.00 þriðjudaginn 18. apríl.
AUGLYSINGADEILD
Sími: 569 1111 • Bréfasími: 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is
Heilsugæslan í Kópavogi
auglýsir lausar læknastöður
Afleysingastaða læknis
Laus er til umsóknar staða afleysingalæknis
með aðsetur á Heilsugæslustöðinni Borgir,
Fannborg 7-9, Kópavogi. Staðan er laus frá
1. júlí n.k. Umsóknarfrestur er til 1. maí n.k.
Sumarafleysingar
heilsugæslulækna
Lausar eru til umsókna tvær stöður
sumarafleysingalækna. Önnur staðan er við
við Heilsugæslustöðina Borgir, Fannborg 7-
9 og hin við Heilsugæslustöðina Hvammur,
Hagasmára 5. Tímabilið er frá júní til ágústs.
Umsóknarfrestur er til 7. maí n.k.
Umsóknir sendist til:
Heilsugæslan í Kópavogi,
Heilsugæslustöðinni Hvammur,
Hagasmára 5, 200 Kópavogi.
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum
eyðublöðum, sem fást hjá Landlæknis-
embættinu og á báðum heilsugæslu-
stöðvunum í Kópavogi,
Nánari upplýsingar um ofangreindar stöður
veitir Björn Guðmundsson, settur yfir-
læknir, í síma 554-0400 frá kl. 8 - 17 alla
virka daga.
Kópavogi, 16. apríl 2000
Heilsugæslan í Kópavogi
Heilsugæslustöðinni Hvammi,
Hagasmára 5, 200 Kópavogi
Sími 554-0400 Fax 564-2700