Morgunblaðið - 06.05.2000, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 06.05.2000, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Blaðurskjóðan Isafold segir af Leifi heppna Morgunblaðið/Ásdís Helga Arnalds og Þórhallur Sigurðsson með Leif heppna Eiríksson á víkingasýningunni í Washington nýverið. Helga Arnalds hefur samið brúðuleikrit um Leif heppna og ferðir hans. Verkið var frumsýnt í Washington í tilefni opnunar víkinga- sýningar Smithsonian- stofnunarinnar. LEIFUR heppni heitir brúðuleik- ritið og er sett upp af brúðuleikhús- inu Tíu fingur í samvinnu við Reykjavík, menningarborg Evrópu árið 2000 og Landafundanefnd. Höfundur leikmyndar er Petr Matásek. „Þegar velja þurfti íslenskt atriði til að sýna í tengslum við víkinga- sýninguna uppgötvaðist að í raun var ekkert beinlínis ætlað fyrir börn á henni. Börn eru stór hluti þeirra gesta sem sækja sýningar sem þessa og því kom sú hugmynd upp að við settum upp skemmtilega og fræðandi sýningu um Leif heppna Eiríksson," segir Helga þegar spurt var út í tildrög þess að brúðuleikhús hennar er komið til höfuðborgar Bandaríkjanna. „Þessi sýning ætti sérstaklega að höfða til barna, en raunar einnig til fólks á öllum aldri,“ bætir Helga við. Brúðuleikhús hennar hefur einn- ig sett upp söguna um Ketil flatnef, prinessuna með gulltárin og fleiri verk frá stofnun árið 1994. Þórhallur Sigurðsson, leikstjóri leikritsins um Leif heppna, segir að það sé skemmtilegt verkefni en um leið ögrandi að setja upp slíkt verk fyrir enskumælandi áhorfendur. „Við fengum ábendingar um ákveðin atriði sem þurfti að hafa í huga,“ segir hann. „Þannig má ekki nefna ákveðna líkamsparta á nafn, sem ekki þættu mikið tiltökumál í Evrópu.“ Byggt á íslendingasögunum Leikverk Helgu er byggt á Is- lendingasögunum og er blaður- skjóðan Isafold látin leiða áhorfend- ur gegnum söguna meðan hún tekur þvottinn niður af snúrunum og hlýð- ir á eftirlætis útvarpsþátt sinn um víkingana. Smám saman verður ísafold hluti af sögunni og lendir í margskonar óvæntum og skemmtilegum upp- ákomum. Alls var brúðuleikritið um Leif heppna sýnt þrisvar sinnum í Blair- fyrirlestrarsalnum í Náttúrusögu- safni Smithsonian-stofnunarinnar, og sáu nokkur hundruð manns sýn- inguna í hvert sinn. Helga segir að spennandi verk- efni séu framundan. „Áhorfendur tóku verkinu mjög vel og hlógu mik- ið og virtust skemmta sér hið besta. Það kom mér skemmtilega á óvart að bandarísk börn hlógu ekki aðeins á þeim stöðum sem ég hafði vænst, heldur oftar,“ sagði hún. Meðal gesta á sýningunum var fjöldi íslendinga sem búsettir eru í Bandaríkjunum og komu margir þeirra að máli við þau Helgu og Þór- hall að sýningunni lokinni og þökk- uðu fyrir. Fer Leifur í Disneyworld? „Ég er ekki í vafa um að sýningin á eftir að fara víðar í Bandaríkjun- um. Meðal annars hefur komið til tals að hún fylgi víkingasýningunni eftir,“ segir Helga aðspurð um næstu verkefni. Víkingasýningin mun ferðast víða í Bandaríkjunum og Kanada á næstu tveimur til þremur árum, sækja heim borgir á borð við New York, Los Angeles, Houston og Ottawa. Þá kemur komið til tals að Helga kynni verkið um Leif heppna fyrir áhorfendum í þeim þekkta skemmtigarði Disneyworld í Orlan- do í Flórída. Ef til kemur yrði Leifur settur upp í haust hjá Mikka mús og félög- um í undraveröld Disneys. „Óneit- anlega yrði það mjög spennandi. Málin eru enn aðeins á umræðu- stigi, en maður bíður bara og von- ar,“ sagði Helga Arnalds. Rætt um viðhald gatna í borgarsljórn Gatnavið- hald verði tekið föst- um tökum BORGARFULLTRÚAR Sjálf- stæðisflokksins gagnrýndu á fundi borgarstjórnar í fyrra- kvöld forgangsröðun meirihlut- ans á verkefnum borgarinnar; gæluverkefnum hefði verið sinnt á kostnað lögbundinna verkefna á borð við viðhald gatnakerfis borgarinnar. Kjartan Magnússon, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokks, ósk- aði eftir því á fundinum að séð verði til þess að viðhald gatna- kerfis borgarinnar verði tekið föstum tökum. Kjartan sagði fulla ástæðu til þess að leggja viðbótarfjár- magn í viðhald gatnakerfisins, á móti mætti skera niður fjár- framlög til verkefna sem ekki eru lögbundin. Þessu samsinnti Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokks. Hann gagnrýndi að jafnmikilvæg framkvæmd og nauðsynleg og viðhald gatna í borginni hefði setið á hakanum. Vill kanna hvað veldur ástandinu nú Borgarstjóri tók undir það með sjálfstæðismönnum að við- hald gatna borgarinnar væri mikilvæg framkvæmd og nauð- synleg en hafnaði því að R-list- inn hefði ekki sinnt því sem skyldi, viðhald gatnakerfisins hefði ekki farið versnandi á um- liðnum árum. Hún benti hins vegar á að hún teldi ástæðu til þess að kanna hvað ylli því að ástand þess væri jafn slæmt nú og raun ber vitni, hvort eitt- hvað væri í malbikinu eða efna- notkun sem færi svo illa með göturnar. Fundur iðnaðarráðherra um möguleika fiarvinnslu á landsbyggðinni ___ j -mm starf lofað góðu. Ireg’öa stjornenda helsti þröskuldurinn Morgunblaðið/Sverrir Forstöðumenn ráðuneyta og ríkisstofnana kynntu sér möguleika fjarvinnslu á fundinum á Hótel Sögu. MÖGULEIKAR á flutningi stofn- ana og fyrirtækja út á landsbyggð- ina eru víða fyrir hendi út frá tækni- legu sjónarmiði, en tregða stjórnenda er helsti þröskuldurinn í slíkri þróun. Þetta kom ma. fram á fundi sem iðnaðarráðherra boðaði til að kynna forstöðumönnum ráð- uneyta og ríkisstofnana nýjustu tækni á sviði gagnaflutninga og fjarvinnslu. í lok fundarins opnaði Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- ráðherra, nýjan vef sem ber heitið Markaðstorg og er ætlað að styðja við þróun fjar- og gagnavinnslu á landsbyggðinni. Jóhannes Pálsson frá Hönnun og ráðgjöf á Reyðarfirði flutti erindi um tækifæri á flutningum verkefna, stofnana eða fyrirtækja út á lands- byggðina og taldi því fátt til fyrir- stöðu. Tæknilega væru slíkir mögu- leikar fyrir hendi í gagnaflutningum og fjarvinnslu á landsbyggðinni að engu máli skipti hvar stofnanir væru staðsettar. Hins vegar væri tregða stjórnenda erfiðasti þrösk- uldurinn sem þyrfti að yfirstíga. „Ein meginforsendan sem þarf að liggja fyrir er kjarkur stjórnenda. Þetta er ekki einfalt því þeir sem sitja í einhverri stöðu vilja auðvitað ekki missa hana eða flytja til.“ Á fundinum kynntu nokkur fyrir- tæki reynslu sína af flutningi verk- efna til landsbyggðarinnar í gegn- um fjarvinnslu og var niðurstaðan sú að yfirleitt hefði það gengið vel og að verkefnin hefðu jafnvel staðið sterkari á eftir. Skráningarstofan hefur samið við íslenska miðlun um flutning ýmissa verkefna og við nánari skoðun hefur komið í ljós að fleiri verkefni er mögulegt að vinna á landsbyggðinni sem nú eru unnin á vegun Skráningarstofunnar í Reykjavík. Forsvar er fyrirtæki sem stofnað var í desember sl. á Hvammstanga og hefur tekið að sér það verkefni að vinna gagnagrunn fyrir Alþingi, en það felst í því að tölvuskrá mála- skrá Alþingis til að auðvelda aðgang að málum Alþingis. Sparisjóður Siglufjarðar hefur unnið að skrán- ingu fyrir lífeyrissjóði í samvinnu við Kaupþing, og hefur það sam- Nýr vefur opnaður um fjar- vinnslu á landsbyggðinni Þeir sem kynntu þessi verkefni voru sammála því að helstu kostirn- ir við flutninga á verkefnum til landsbyggðarinnar fælust í starf- skröftunum og ódýrara húsnæði en í boði væri á höfuðborgarsvæðinu. Vinnuaflið væri að öllu jöfnu stöð- ugra á landsbyggðinni og starfsum- hverfið styrkti því verkefnin sem þar væru unnin. Helsti þröskuldurinn sem menn stæðu fyrir væri þó tregða stjórn- enda fyrirtækja og stofnana við að flytja verkefni til fyrirtækja á landsbyggðinni. Einnig er hár kostnaður við gagnaflutninga hjá landsbyggðarfyrirtækjum talinn ós- anngjarn miðað við sambærilegan kostnað hjá fyrirtækjum á höfuð- borgasvæðinu. I lok fundarins opnaði Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra nýj- an vef, fjarvinnsla.is, undir heitinu Markaðstorg fjar- og gagnavinnslu. Markaðstorgið er hugsað til þess að auðvelda fyrirtækjum á lands- byggðinni markaðssetningu og fyrir væntanlega verkkaupa til að kynna sér þá þjónustu sem er í boði. Jafn- framt er hugmyndin að vefsíðurnar nýtist sem upplýsingaveita um hvað er að gerast í fjar- og gagnavinnslu á landsbyggðinni. Það er fyrirtækið Snerpa ehf. á Isafirði sem sá um uppbyggingu vefsins. Valgerður sagðist líta á Markaðs- torgið sem tengilið á milli fyrir- tækja og opinberra stofnana og að vonir sínar væru bundnar við það, að torgið muni leiða af sér fleiri op- inber störf á landsbyggðinni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.