Morgunblaðið - 06.05.2000, Page 62
62 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
HÚSFREYJAN Á KÁLFA-
TJÖRN FLÆMD BURT AF
FÖÐURLEIFÐ SINNI
„MAFÍA er hún og
mafía skal hún heita“;
^þessi orð urðu fleyg er
þau hrukku eitt sinn af
vörum þjóðkunns
manns á Alþingi Is-
lendinga þegar hann
var að lýsa einhverjum
sem hann taldi ofsækja
sig. Undirrituðum eru
engin kjarnyrði hug-
stæðari en þessi, þegar
fjalla skal um þá aðila,
sem sótt hafa að Her-
dísi Erlendsdóttur,
húsfreyju á Kálfatjörn
á Vatnsleysuströnd og
hennar fólki undanfar-
in ár og misseri. Ný-
lega féll hæstaréttardómur Herdísi í
óhag um rétt hennar til æsku- og
''“■'æviheimilis síns svo halda mætti að
þeim málum væri þar með lokið.
En því fer víðsfjarri, að þetta mál
hafi aðeins verið í farvegi dómstól-
anna, því bæði fyrir, samtímis og eft-
ir allan málareksturinn hefur ýmis-
legt átt sér stað sem ekki er hægt að
nefna annað en hatrammar ofsóknir
á hendur Kálfatjarnarfólkinu og
þessi aðför öll sem er næsta sefasýk-
iskennd er enn í fullum gangi.
Áður en lengra er haldið, skal rifj-
að upp fyrir lesendum, sem ekki
M^ckkja til, um hvað Kálfatjamarmál-
ið snýst. Á þessari kirkju- og ríkis-
jörð bjó faðir Herdísar frá árinu 1920
og hafði á henni erfðafestu. Það
merkir að þótt sveitarstólpinn Er-
lendur á Kálfatjörn væri í raun leigu-
liði á ríkisjörð gekk leigan í erfðir og
að honum gengnum gat ríkið ekki
ráðstafað jörðinni til vandalausra. I
byrjun áttunda áratugarins tóku
þrjú af Kálfatjarnarsystkinunum við
býlinu og bjuggu þar, en aðeins eitt
þeirra, Gunnar, var skrifað fyrir
jörðinni. Eftir að Gunnar lést árið
1995 hefur málið snúist
um það hvort Herdís
héldi erfðafesturéttin-
um eða í það minnsta
lífstíðarábúð á jörðinni.
Hvorttveggja hefur
verið dæmt af henni.
Það væri efni í aðra
grein að fjalla um
dómsniðurstöðurnar en
þó skal hér farið um
þær fáum orðum. Á
báðum dómsstigum var
komist að þeirri niður-
stöðu að erfðalög leyfðu
ekki að erfðafesta
gengi milli systkina. Þá
kom að varakröfu kon-
unnar um að hún fengi
lífstíðarábúð á jörðinni í ljósi nútíma-
réttlætis. Það mál má einnig sjá sem
jafnréttismál þar sem hægt er að
halda því fram að konan hafi óbeint
goldið kynferðis síns þar sem aðeins
bróðirinn en ekki hún var skrifaður
Eiga laun heimsins
að vera vanþakklæti,
spyr Einar Jdnsson,
og höfnun þegar fólk
er komið á efri ár?
fyrir jörðinni. Því fer víðsfjarri að
tekið sé undir þessa kröfu. Hæsti-
réttur gengur reyndar feti framar en
undirréttur og vísar Herdísi burt af
staðnum. Má helst skilja af dómnum
að almennur réttur fólks fari mjög
þverrandi þegar komið er á eftir-
launaaldur. Ekki virðist hafa hvarfl-
að að þeim háu dómurum að með
brottvísuninni væru þeir að fara yfir
þau mörk sem dómstóll nokkur úti í
Brussel sem kenndur er við Evrópu
dregur um almenn mannréttindi.
Hvergi er heldur slegið á fingur
ráðuneytis fyrir að hafa beinlínis ráð-
stafað jörðinni af konunni áður en
nokkur dómur um rétt hennar hafði
gengið. Má því segja að lög, sem
heimila sveitarfélögum afskipti af
jörðum sem menn eru að standa upp
af (um forkaupsrétt o.fl.), hafi hér
verið notuð í öfugum tilgangi, það er
að flæma burtu af jörð manneskju
sem sat þar fyrir. Það er umhugsun-
arvert fyrir Alþingi sem setti þessi
lög til þess að bjarga sveitum lands-
ins.
En hver var það sem vildi bola
þessari góðu konu burt þaðan sem
hún hafði alið allan sinn aldur? Varla
er það þorri sveitunga hennar. Suður
í Vogum situr fámennur hópur
manna sem kallar sig golfkúbb. Ekki
eru þeir fleiri en svo að þeir munu
hafa tekið höndum saman við sér
fleiri höfuðborgarbúa. Fyrir tæpum
áratug lét Gunnar heitinn á Kálfa-
tjörn, af stórmennsku sinni og
víðsýni, þessum veikburða klúbbi
eftir hjálendur, er hann hafði til um-
ráða og námu að stærð nær helmingi
túnsins á staðnum, undir golfvöll
enda var hann þá mikið farinn að
minnka við sig búskap. Ef þetta var
vinarbragð þá hefur það aðeins verið
á annan veginn. Því hinum megin
voru menn, sem að vísu þáðu gírugir
boðið en kunnu ekki einu sinni að
þakka fyrir sig því ekki leið langur
tími þar til sjálfur velgjörðarmaður
klúbbsins fékk að heyra það beint frá
einum forystumanna kylflnga að
hann, bóndinn á staðnum, væri orð-
inn fyrir þeim félögum.
í nær heila öld hafði Erlendur á
Kálfatjöm og afkomendur hans brot-
ið þetta land úr úfnu hrauni, mest
með hörðum höndum. Eftir þessum
grasvinjum sóttust nú kylfunnar
menn, fyrst með hægð, en síðan æ
meiri þunga og loks slíku offorsi, að
líkja má við tryllta varga í blóðslóð.
Eftir að Gunnar bóndi lést tók ým-
islegt að gerast þar á landareigninni.
Á lognkyrrum sumardegi brann hús-
ið Hátún; húskríli frá kreppuárunum
sem byggt hafði verið á samnefndri
hjáleigu við Kálfatjörn. Föst búseta
heyrði þar sögunni til en aðili vestur
á fjörðum eignaðist húsið og notaði
eitthvað um hríð sem sumarbústað
en síðan lítið sem ekkert því örlögin
höguðu því þannig til að það lenti inn
á miðjum golfvellí þeim sem hafði
orðið til með hjálp Gunnars. Var sú
staða báðum aðilum til ama, þ.e. bæði
eigandanum og golfurum, en þó eink-
anlega þeim síðamefndu, sem buðu
eitthvert málamyndafé fyrir húsið
svo það mætti hverfa af vellinum en
eðlilega gekk ekki saman um verðið.
Það mál leystist þó farsællega fyrir
báða aðila þegar húsið, sem var án
rafmagns og lokað og læst til margra
mánaða, fuðraði upp í frumeindir sín-
ar áðurnefndan sumardag. Mörgum
sem þekkja þarna vel til, sérstaklega
sumum Vatnsleysustrandarbúum,
þykir þessi eldsvoði dularfullur, svo
ekki sé meira sagt.
Gagnstætt mörgum þar á strönd-
inni hefur undirritaður þó ekkert
fyrir satt í þessu máli. En hitt veit
hann að rannsókn á upptökum elds-
voðans var í skötulíki. I lögreglu-
skýrslu var víst að mestu látið nægja
að bulla eitthvað um sólargeisla og
gler sem hugsanlega hefðu valdið
brunanum (þá sennilega einsdæmi á
íslandi). Hefur því verið fleygt að
þessi hráki hafi þótt svo skamma-
rlegur að hann sé nú torfinnanlegur í
skjalageymslum þar til bærra em-
bætta suður á nesjum. Enginn kvart-
ar undan slíku, ekki heldur trygg-
ingafélagið, sem þó mátti punga út
hárri upphæð í bætur fyrir þennan
eld af himni.
Hálfu þriðja ári síðar brann svo
íbúðarhúsið á Kálfatjöm sem al-
kunnugt er. Nokkuð hefur verið fjall-
að um þann eldsvoða í blaðagreinum,
en undirritaður kýs að segja ekki
meira um það mál, þótt ekki sé þar
með sagt að hann hafi engu þar við að
bæta, en „sumt“ má oft kjurt liggja
eins og þar stendur.
Húsbruninn leiddi eðhlega til þess
að Herdís varð að flytja frá Kálfa-
tjörn; þar var í ekkert annað hús að
venda. Hún hafði þó fullan hug á að
bæta úr því. Keypti hún strax lítið
gámahús sem sett var niður á hlaðið.
Var það í fyrstu notað sem afdrep
meðan hún og hennar fólk fín-
kembdu brunarústimar í leit að ýms-
um munum svo sem borðsilfri. Þá
skyldi þetta og vera vinnuskúr og
skjól meðan verið væri að byggja
nýtt íbúðarhús.
En nú hófst langur ferill atgangs
sem allur virtist miða að því að
hindra að Herdís kæmi aftur alkom-
in að Kálfatjörn. Ljóst sýnist hverjir
stóðu þar að baki en síðan hafa yfir-
völd af öllu tagi verið notuð sem vopn
í þeirri báráttu og þeim sigað á Her-
dísi og hennar fólk með slíku offorsi
að lyginni er líkast og minnir helst á
hliðstæða hluti sem henda oft á eyju
syðst við Italíuskagann.
Ekki hafði áðurnefnt gámhýsi
staðið þar nema veturinn þegai- hvat-
vísir embættismenn héraðsins fóru
að fetta fingur út í það á þeirri for-
sendu að það þætti ljótt en húsið er
nýlegt og hið snyrtilegasta. Skipti þá
engum togum, að eftir að einhverjar
nótur höfðu farið milli aðila um málið
hvarf hýsi þetta með öllu sem í því
var svo sem ísskáp fullum af mat,
hlífðarfatnaði og ýmsum smámunum
sem bjargað hafði verið úr rústun-
um. Yfirvöld játuðu hústökuna (þótt
hver benti á annan með þá ákvörðun)
en hafa ekki skilað feng sínum enn,
nær ári eftir brottnámið, en húsið
var á sínum tíma keypt fyrir um
hálfa milljón króna. Það er fáheyrð
ósvífni að níðast á fólki sem stendur
yfir brunnum híbýlum sínum og rífa
af því neyðaraðstöðu sem komið hef-
ur verið upp á staðnum. Þessi gjörn-
ingur er því hreint óhæfuverk og
óskiljanlegt hvernig nefndir embætt-
ismenn hafa beitt valdi sínu í þessu
máli og hljóta þar annarlega hvatir
að hafa ráðið ferð. Hverjum voru
þessir menn að þjóna?
En fleira átti eftir að fylgja í þessa
Verð kr. 1750
Sundtöskur og íþróttatöskur
í miklu úrvali
Langur laugardagur
^díóLuöAaiiijl. IOI?^ajlfwik, 0|3lð tll kl« 17«00
$mi55l-5814.rTax.552-966si
Einar
Jónsson
veru og alltaf voru yfirvöld notuð
sem skjöldur. Fjölskylda Herdísar
hafði um margra ára skeið haft út-
hagabeit hrossa á jörðinni og nýtt
túnin til slægna og síðustu ár hresst
upp á gripahús og haft þar hross á
vetrum. Kvöld eitt í september sl.
léku Vogaklúbbsmenn þann leik að
handsama hestana og reka burt í
vörslu. Til þess að réttlæta þessar
aðgerðir var því haldið fram að hest-
amir hefðu sloppið inn á Kálfatjarn-
artúnið. Þótt sveitarstjórn hafi stutt
hestatökumennina er mjög vafasamt
að hér hafi verið um löglegar aðgerð-
ir að ræða þar sem lög gera ráð fyrir
að eigendur dýra séu kallaðir til áður
en til þess kemur að þau séu tekin og
flutt í geymslu.
Hér er látið að því liggja að þetta
hafi verið sett á svið að mestu eða
öllu leyti. Til þess liggja margar aug-
Ijósar ástæður. Enginn var til frá-
sagnar nema forsvarsmenn golfara.
Hestamir áttu að hafa sloppið rétt
eftir að eigendur þeirra höfðu yfir-
gefið svæðið og straumur fór af raf-
magnsgirðingu á óútskýrðan hátt.
Áður en hendi væri veifað höfðu þeir
allir verið reknir í hestarétt meira en
3 km frá svæðinu og síðan kallað á
lögreglu. Hestamir ollu engum sjá-
anlegum skemmdum, hvorki á golf-
velli né annarsstaðar. Reyndar var
því ekki haldið fram að þeir hefðu
farið inn á golfvöllinn heldur að allt
stóðið hefði vaðið yfir ógirtan kirkju-
garðinn, sögðu hestatökumenn og
börðu sér á brjóst af vandlætingu og
horfðu til himins orðum sínum til
áherslu um þennan „hræðilega" at-
burð. Nákvæm rannsókn á garðinum
leiddi ekki í ljós svo mikið sem eitt
hóffar né nokkur merki um meintan
atburð. Fullyrðingar um annað vom
auðsjáanlega helgaðar tilganginum
og virðast hafa haft lítið með vera-
leikann að gera.
Eftirmáli þessa hesttökumáls var
annað óhæfuverk og nú algerlega af
hálfu yfirvalda. Gert var einskonar
heiðursmannasamkomulag í deilunni
(milli lögfræðinga Kálfatjarnarfólks
og sveitarfélagsins) enda bæði yfir-
völd og hestatökumenn orðin leið á
málinu eftir stöðuga varðgæslu yfir
gæðingunum. Greiða skyldi lausnar-
gjaldið, að upphæð kr. 60 þúsund, í
ávísun sem ekki skyldi innleyst. Var
það skilið sem svo að þetta væri eins-
konar skilorðssátt. Sektir féllu niður
ef ekki drægi aftur til tíðinda. En yf-
irvöld sviku þetta samkomulag eins
og að drekka vatn einhverjum vikum
seinna og innleystu ávísunina þó að
engin ásökun hafi komið fram um að
skilorðið hafi verið rofið í millitíðinni.
Síðan snera þessir embættismenn
aðeins upp á sig þegar leitað var eftir
skýringum á því hversvegna nefnt
samkomulag var brotið enda erfitt að
viðurkenna að maður sé ekki heið-
ursmaður heldur hið gagnstæða.
Tæpu hálfu ári seinna var sami
leikur leikinn öðra sinni. Sakir
margskonar atgangs kylfinga sem
þóttust nú æðstir herrar á Kálfa-
tjöm, eftir tilskipan ráðuneytis og
síðar héraðsdóms, hafði smám sam-
an verið hörfað með hestana inn á
litla eignarjörð fjölskyldunnar,
Norðurkot, samliggjandi Kálfatjarn-
artorfunni að vestan. En jafnvel ekki
þarna á eignarlandi var Herdísi og
fólki hennar nú vært með hesta sína.
í miðjum mars fóra „hrossaþjófar"
aftur á stjá og smöluðu 11 hestum
sem þar voru á útigangsgjöf, upp í
flutingabíl og flutt í girðingu á bæ
uppi í Kjós. Eigendui- fréttu ekki af
þessu fyrr en daginn eftir og enn var
borið við að hestamir hefðu sloppið
yfir á land Kálfatjarnar og hefðu ver-
ið „á beit“ í kirkjugarðinum sem enn
var ógirtur en það mun vera lög-
leysa. Ekki var minnst á spjöll á
þessu meinta beitarlandi enda lá það
undir þykkum klaka og klofasnjó
sem aðrir hlutar okkar ísalands síð-
astliðinn vetur. Hér er um kolólög-
legar aðgerðir að ræða af ástæðum
sem áður voru raktar auk þess sem
hér bætist við að algerlega er bannað
að flytja dýr milli lögsagnarumdæma
undir slíkum kringumstæðum. Þeg-
ar þetta er skrifað er málið enn
óleyst enda nú um stórfé að tefla og
hestamir búnir að vera fangnir vik-
um saman og lögregluyfirvöld tvíst-
ígandi í málinu. Hvernig á venjulegt
fólk að bregðast við slíkum firnum af
mannavöldum?