Morgunblaðið - 06.05.2000, Síða 65
moKguíMLXöIÖ
KIRKJUSTARF
LltföÁiíöÁGíJR ö'. ffiM áooö ’ 65 9
Safnaðarstarf
Fimm ára
vígsluafmæli
Vídalíns-
kirkju
SUNNUDAGINN 7. maí efnir
Garðasókn í Garðabæ til árlegrar
Vídalínshátíðar í Vídalínskirkju.
Jafnframt verður minnst fimm ára
vígsluafmælis Vídalínskirkju, en
kirkjan var vígð þann 30. aprfl 1995.
Dagskráin hefst með guðsþjónustu í
kirkjunni kl. 14. í guðsþjónustunni
verður fjölbreyttur tónlistarflutn-
ingur, m.a. flytur kór Vídalínskirkju
kafla úr kantötu eftir J.S. Bach og
hluta úr messu eftir Schubert. Einn-
ig munu einsöngvararnir Marta
Guðrún Halldórsdóttir og Hjálmar
Pétursson syngja einsöng við at-
höfnina. Með kór og einsöngvurum
leikur strengjakvartett og organisti
verður Sólveig Anna Jónsdóttir.
Stjórnandi verður organisti Gai’ða-
sóknar, Jóhann Baldvinsson.
Predikun sr. Friðrik J. Hjartar.Við
guðsþjónustuna þjóna prestar
kirkjunnar og djákni, Nanna Guðrún
Zöega.
Að lokinni guðsþjónustu verður
kaffisala í safnaðarheimilinu til
styrktar gluggasjóði kirkjunnar.
Leifur Breiðfjörð hefur verið feng-
inn til að hanna steinda glugga í hina
sjö glugga á suðurhlið Vídalíns-
kirkju. Er hér um að ræða mjög
spennandi útfærslu á sköpunarsög-
unni í Genesis, fyrstu Mósebók.
Verður kaffi selt við vægu verði eða
kr. 500. Vídalínshátíð er árviss at-
burður í safnaðarstarfinu, þar sem
leitast hefur verið við að hafa menn-
ingarlegt efni á boðstólum auk þess
sem lesið er úr Vídalínspostillu.
í kaffisamsætinu munu koma
fram Anna Júlíana Sveinsdóttir
söngkona, ásamt Sólveigu Önnu
Jónsdóttur undirleikara. Lögreglu-
kórinn syngur undir stjórn stjórn-
anda, Guðlaugs Viktorssonar. Flutt
verður ágrip af byggingarsögu
kirkjunnar. Lesið verður úr Vídalín-
spostillu.
Hans Markús Hafsteinsson, sókn-
arprestur Garðaprestakalls, sem
inniheldur þrjár sóknir, Bessastaða-
sókn, Garðasókn og Kálfatjarnar-
sókn á Vatnsleysu-strönd. Þessar
þrjár sóknir eru hluti af hinu víð-
feðma Kjalarnesprófastsdæmi.
Fundur safnað-
arfélags Grafar-
vogskirkju
SÍÐASTI fundur safnaðarfélags
Grafarvogskirkju á þessum vetri
verður mánudaginn 8. maí. Eins og
venja hefur verið undanfarin ár ljúk-
um við vetrarstarfinu með því að
fara í kvöldferð út í vorið. Að þessu
sinni verður farið í Bláa lónið. Boðið
er upp á rútuferð og farið frá
kirkjunni stundvíslega kl. 20.
Drukkið verður kaffi í Bláa lóninu og
kostar það kr. 550. Kynnt verður
saga staðarins og tekið lagið.
Verum nú dugleg og drífum okkur
í skemmtilega kvöldferð. Allir vel-
komnir og takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
Þjóðlagamessa
í Landakirkju
VESTMANNEYINGAR hafa notið
þess síðustu árin að geta farið í
poppmessur í Landakirkju annað
veifið. Nú verður bryddað upp á
nýrri tegund af messu í Landa-
kirkju. Næstkomandi sunnudags-
kvöld verður sungin þjóðlaga-messa.
Það er messuform ættað frá Svíþjóð.
Presturinn, Per Harling, hefur sam-
ið tónlist og endurgert messusvör
hefðbundnu messunnar. I þjóðlaga-
messunni er tónlistin ráðandi. Ljúf-
ar hendingar með
innihaldsríkum texta líða fram
hver af annarri og lifir tónlistin í
huga og sinni lengi eftir að heim er
komið. Eldri börn í Litlum læri-
sveinum leiða sönginn undir stjórn
Guðrúnar Helgu Bjamadóttur og
Ósvalds Guðjónssonar. Þrír kennar-
ar úr Tónlistarskóla Vestmannaeyja
hafa myndað þjóðlagagrúppu í tilefni
messunar. Þau eru Michelle Gask-
ell sem spilar á harmonikku og
margskonar flautur, Ósvaldur Guð-
jónsson á gítar og Eggert Björgvins-
son á slagverk.
Prestur er séra Bára Friðriks-
dóttir. Allir Vestmanneyingar sem
unna fagurri tónlist mega ekki láta
þessa messu fram hjá sér fara. Hver
sem ann lögum Oddgeirs Kristjáns-
sonar kann vel að meta lögin sem
flutt verða í þjóðlagamessunni í
Landakirkju, sunnudagskvöldið 7.
maí kl. 20:30. Athygli er vakin á því
að messan kl. 14 fellur niður.
Kaffisala kven-
félags Háteigs-
sóknar
SUNNUDAGINN 7. maí verður
kaffisala í safnaðarheimili kirkjunn-
ar (gengið inn að norðan) og stendur
frá kl. 14.30 til kl. 17. Um kl. 15. stíg-
ur fram barnakór kirkjunnar og
syngur undir stjórn Birnu Björns-
dóttur. Þetta er aðal fjáröflunardag-
ur kvenfélagsins, sem er nær jafn-
gamalt sókninni, sem nálgast nú
fimmtíu árin. Kvenfélagið hefur frá
upphafi látið til sín taka í starfsemi
safnaðarins og veitt fé til fegrunar
kirkjunnar og vil ég þar minna á kór-
mynd í kirkju og altaristöflu í kap-
ellu og er þá fátt eitt nefnt, auk þess
sem þær hafa stundað mikið félags-,
líknar- og menningarstarf. Þær eru
enn að og huga að nýjum landvinn-
ingum til að gera kirkju og safnaðar-
heimili hæfari til að gegna því hlut-
verki, sem þeim er ætlað. Um leið og
ég færi Kvenfélagi Háteigssóknar
þakkir safnaðarins fyrir heilladrjúgt
starf hvet ég alla þá sem unna
kirkjunni og félaginu að koma og
njóta glæsilegra veitinga og styrkja
kvenfélagið til nýrra átaka.
Tómas Sveinsson sóknarprestur.
s
Biskup Islands
á fundi í Hall-
grímskirkju
MÁNUDAGINN 8. maí kl. 20 verð-
ur fundur í safnaðarsal Hallgríms-
kirkju á vegum áhugahóps um
kristniboð og hjálparstarf. Eitt ár er
síðan hópurinn var stofnaður og hafa
verið mánaðarlegir fundir í allan vet-
ur. Á þessum síðasta fundi vetrarins
mun biskup íslands, Karl Sigur-
björnsson, ræða um málefni kristni-
boðs og hjálparstarfs á kristnitöku-
hátíðarári. Einnig verður gerð grein
fyrir vetrarstarfi, reikningar lesnir
og kosin stjóm næsta starfsárs.
Messur liðinna
alda í Hjalla-
kirkju
SUNNUDAGINN 7. maí kl. 11.
Messa Jóns Vídalíns. í tilefni af
1000 ára kristnitökuafmæli íslend-
inga var ákveðið að á dagskrá
Reykjavíkurprófastsdæma yrðu sér-
stakar messur er fjölluðu um gamla
messusiði og sýndu okkur lítillega
inn í þjóðlíf fyrri alda.
Messur liðinna alda eiga að vekja
fólk til umhugsunar um andblæ lið-
ins tíma, bæði þjóðfélagslega og guð-
rækilega, þannig er notað tiltækt
efni frá ákveðnum tímum fyrri alda
til að vinna úr. Þá er einnig reynt að
varpa ljósi á hvernig kristin messa
þróaðist í gegnum aldirnar, með því
að velja hverri messu stað á mismun-
andi tímabili. I messunni er sungið
tón og sálmar þess tíma sem messan
er tileinkuð, í predikun er tíðarand-
anum gerð skil og aðrir hlutar mess-
unnar framkvæmdir eins og talið er
að þeir hafi verið iðkaðir á því tíma-
bili sem er til umfjöllunar í hvert
sinn, þó með hliðsjón af okkar tím-
um. Þessar messur eru almennar
messur, en ekki leiksýningar, þannig
koma almennir kirkjugestir til
kirkju eins og venjulega og taka þátt
í messunni.
Bæklingi sem útskýrir messurnar,
svo og hvar og hvenær þær eru
haldnar og um hvaða tíma þær fjalla,
hefur verið dreift í allar kirkjur í
prófastsdæmunum og er fólk hvatt
til að ná sér í eintak.
Messan í Hjallakirkju er sjötta
messan af sjö messum undir heitinu:
Messur liðinna alda. Þessi messa er
tileinkuð Jóni Vídalín og er tímabilið
18. öldin.
Athygli er vakin á sýningu í and-
dyri kirkjunnar á bókum og munum
sem tengjast þessum tíma. Kirkjuk-
affi verður að lokinni messu.
Messa fyrir
Súðvíkinga í
Dómkirkjunni
Á SUNNUDAGINN kl. 14. verð-
ur messa í Dómkirkjunni í tilefni af
samkomu á vegum Félags Álftfirð-
inga og Seyðfirðinga vestra. Sam-
koman verður haldin í Safnaðar-
heimili Dómkirkjunnar að messu
lokinni. Við messuna mun sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson prédika og
þjóna fyrir altari en hann var prest-
ur Súðavíkur og Eyrarkirkju í Seyð-
isfirði árin 1977-1989. Á samkom-
unni verða kaffiveitingar og
tækifæri til þess að rifja upp forn
kynni og leita frétta af gömlum
kunningjum. Gamlir Súðvíkingar
hugsa til liðinnar tíðar en gleðjast
einnig yfir uppgangi og framförum
byggðarinnar þar vestra um þessar
mundir. Þeir senda
hlýjar kveðjur vestur.
KR-guðsþjón-
usta í Neskirkju
ÞAÐ verður KR-stemmning í guðs-
þjónustu i Neskirkju nk. sunnudag
7. maí kl. 11. Félagar úr hinum ýmsu
meistaraflokkum á vegum KR að-
stoða við helgihaldið, ræðu flytur
Kristrún Heimisdóttir, fv. knatt-
spyrnukona, og Selma Björnsdóttir
mun syngja. Prestur er sr. Örn
Bárður Jónsson.
Á undan guðsþjónustunni frá kl.
10 verður boðið upp á léttan morg-
unverð og kaffi í safnaðarheimilinu í
umsjá KR-kvenna og Neskirkju og
eru allir velkomnir.
Þetta er í þriðja sinn sem haldinn
er slíkur KR-dagur með Neskirkju á
jafn mörgum árum og hafa þeir verið
fjölsóttir og þótt takast með afbrigð-
um vel. Allir KR-ingai’ og vestur-
bæingar eru hvattir til að fjölmenna
og taka þátt í góðri og uppbyggilegri
stund.
Kaffisala Kven-
félags Grensás-
sóknar
Á MORGUN, sunnudaginn 7. maí,
verður kaffisala Kvenfélags Grens-
ássóknar að lokinni messu í Grens-
áskirkju. Vakin er athygli á því að
messan hefst kl. 14 og kaffisalan í
beinu framhaldi af messunni eða upp
úr kl. 15. Um morguninn kl. 11 verð-
ur lokasamvera barnastarfsins fyrir
sumarhlé en sjálfum messutímanum
Fríkirkjan
í Reykjavík
Messa kl. 14.00
Fermd verður Rakel Ingólfsdóttir.
Organisti Jón Ólafur Sigurðsson.
Kyrrðarstund í kapellunni í
hádeginu á miðvikudögum.
Súpa og brauð á eftir.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hjörtur Magni Jóhannsson.
er hliðrað til svo betur henti vegna
kaffisölunnar. í rúmlega 36 ára sögu
Grensássafnaðar hefur kvenfélagið
verið einn helsti stuðningsaðili safn-
aðarstarfsins, bæði hvað varðar ytri
aðbúnað og aðild að innra starfi. Hér
verða ekki taldir upp allir þeh’ gripir
kirkjunnar sem kvenfélagið hefur
gefið; aðeins minnt á búnað á altari
og glerlistaverk Leifs Breiðfjörðs í
gluggum kirkjuskipsins, sem hvort
tveggja er veglegt framlag sem lýsir
stórhug og hlýju. Enn dýrmætari er
þó sá bakhjarl sem fjölbreytt safnað-
arstarfið á í kvenfélaginu og fyrir
það er þakkað.
Stuðningur við kvenfélagið er
stuðningur við lifandi starf Grensás-
safnaðar. Fjölmennum því á kaffisöl-
una, sóknarböm og aðrir velunnarar
Grensáskirkju.
Aðalfundur í
Safnaðarfélagi
Dómkirkjunnar
og vorferðin til
Akureyrar
AÐALFUNDUR verður haldinn í
Safnaðarfélagi Dómkirkjunnar
sunnudaginn 7. maí nk. um kl. 12 á
hádegi, að lokinni árdegismessu í
Dómkirkjunni. Fundurinn verður
haldinn á 2. hæð í Safnaðarheimili
Dómkirkjunnar, á horni Vonar-
strætis og Lækjargötu, og hefst með
léttum málsverði. Á dagskrá verða
venjuleg aðalfundarstörf.
Á fundinum verður einnig kynnt
dagskrá vorferðar Safnaðarfélagsins
til Akureyrar helgina 13.-14. maí nk.
og geta væntanlegir þátttakendur
skráð sig í ferðina á fundinum. Áætl-
aður kostnaður á hvem ferðalang er
um kr. 4.500 til 5000 og er þar inn-
ifalið gisting og morgunverður,
kvöldverður í Laxdalshúsi og rútu-
ferðir. Fundir Safnaðarfélagsins era
opnir öllum velunnumm Dómkir-
kjunnar, innan sóknar sem utan, og
em þeir tilvalið tækifæri til að
mynda og styrkja tengsl við Dómkir-
kjuna og Dómkirkjufólkið.
Stjórn Safnaðarfélags Dómkir-
kjumiar.
Landakirkja
Kl. 10 mun safnaðarfélag Landa-
kirkju hreinsa reit nr. 26 á hreinsun-
ardegi bæjarins. Allir sem teljast til
safnaðarfélags Landakirkju era
hvattir til að mæta við Sorpu kl. 10
árdegis. Bærinn býður í pulsuveislu
að hreinsun lokinni.
Neskirkja
Félagsstarf aldraðra kl. 12.30. Sr.
Fjalar Sigurjónsson, fyirv. sóknar-
prestur í Hrísey, segir á sinn
skemmtilega hátt frá mannlífi í
eynni. Fram verður borin tvíréttuð
máltíð. Allir velkomnh’. Sr. Frank M.
Halldórsson.
Fríkirkjan Vegurinn
Samkoma kl. 20. Lofgjörð, prédik-
un og fyrirbæn. Allir hjartanlega
velkomnir.
Hvammstangakirkja
Sunnudagaskóli kl. 11.
Akraneskirkja
Kirkjuskóli kl. 11. TTT-starf (10-
12 ára) kl. 13. Stjórnandi Elín Jó-
hannsdóttir.
Safnaðarheimilið í Sandgerði
Kirkjuskólinn kl. 11. Lokasam-
vera og grillveisla.
Grindavikurkirkja
Tónleikar verða í kirkjunni í dag
kl. 17. Flytjendur em nemendur
Söngseturs Estherar Helgu, Regn-
bogakórinn, Brimkórinn og söng-
hópurinn Léttur sem klettur. Stjórn-
andi Esther Helga Guðmundsdóttir.
Undirleikari Hreiðar Ingi Þorsteins-
son.
KEFAS. Dalvegi 24, Kóp.
Samkoma kl. 14. Ræðumaður
Björg R. Pálsdóttir. Mikil lofgjörð
og söngur.
VERSLUNIN
HÆTTIR
Stórlækkað
verð
allt á að seljast
Opið laugardag 10 - 17
.* , ,v ,
i:i: ■ ri
f/OlRE OAilE
Bankastræti 11 ■ Sími 511 6211