Morgunblaðið - 07.05.2000, Síða 4
4 B SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Beaufort-
■...haf
Norðvesturleiðin I
*■
Norður-
* Pó" .
4
'VV Ward
Huntlsl.v
Eureka^
Resduté y ^
' v.Qaanaaq
. Cj, -» r'- ’ (Thule)
Baffins-
flói
l Wx .
v Davis■
sund
Upernavik
O
f» Iqalult SU i? Ammassalik
>(FrpbisherBay) ^
yp£sgS*5®|j
NÝFUNDNA-
LAND
Labrador- Narsarsuaq
haf
sss»:—•.
í þjóðbúningi í snjónum. Ungstúlka leikursértyrirframan heimili sitt í Resolute Bay. I víðri hettunni hvíiirbrúða.
Hringlaga
þorp í ísnum
Resolute Bay er lítið þorp nyrst í Kanada
sem eflaust bæri ekki mikió á í íslenskum
fréttum, ef noröupólsfarar ættu ekki leið
þar um. Einar Falur Ingólfsson litaóist
um í þessu 198 manna þorpi í
inúítaríkinu Nunavut.
Hann er kaldur vindurinn sem tekur á
móti ferðalanginum sem kemur út úr
flugstööinni í Resolute Bay; í raun
nístingskaldur og fsnálar þyrlast um
loftið. Þaö ereitthvað um fjörutíu
gráðu frost, segir bílstjórinn ogfinnst
ekki mikiðtil um; ekursíöan af stað
eftir þessum eina vegi sem liggurfrá
flugbrautinni þar sem herstöðin stóð
fýrrum, að þorpinu.
Þetta er hvftt land og hallar niður að
hvítri sléttu hvar undir er víst hafið,
Norðvesturleióin sem margirland-
könnuðir reyndu að finna hér áöur.
Þessi sjávarrenna er einungis opin í
ágúst og september og þá fá íbúar
svæðisins allan þá þungavöru sem
þeir þurfa á að halda; byggingarefni,
bíla, olíu.
Sfðasta manntal segiríbúa Resol-
ute Bay vera 198. Þeir búa í þorpi
sem er hringlaga; hannað eftir skand-
inavískri framtíðarsýn þarsem sífellt
stærri hringvegir áttu að skipta vax-
andi byggðinni upp í hverfi. Hringurinn
varð aldrei nema einn ogerfitt að sjá
að byggöin eigi eftir að stækka mikiö.
Húsin eru byggð úrtimbri, hverskyns
skálar, ferkantaðir og braggalaga. Co-
Op er kaupfélagið og eina verslunin,
þar sem má kaupa kuldaskó og
súkkulaði, hnífa ogíspinna. Nyrsta
pósthús Kanada er þar innandyra. Við
hliðina er kirkjan, lítil, grænmáluð og
vinaleg, með tröllvaxin grýlukerti
hangandi frá þakinu og klakabúnt
milli glerja. Annars staðar standa
myndarlegur leik- og grunnskóli, í hon-
um er hátt í helmingur íbúanna, svo
lágur er meöalaldurinn; heilsugæslu-
stöð, þar sem starfar áströlsk hjúkr-
unarkona;ogveðurstofa. Þá eru
ónefnd gistiheimilin, sem eru þrjú, og
öll sérhæfa þau sigí aðstoð við leiö-
angra og ævintýramenn. Þvífrá Res-
olute Bay erekki einungis haldið
norður á pól í flugvél, eða áleiðis í
flugi, hvort sem menn ganga síöan,
fara á bifhjóli, vélsleðum eða hunda-
sleðúm alla leið. Þetta ereinnig við-
komu- og upphafsstaður fólks sem
fer á segulskautiö, sem er nokkur
hundruð km leið, mun styttri og auð-
veldari en á Pólinn, fólks sem erað
skoöa þjóðgarða á eyjunum í kring og
kynna sér náttúrulífið á noröurhjara.
Ennfremur er þar þjónusta við ís-
bjarnaveiöimenn.
í hlutíbúa Resolute Bayfellur25
bjarndýra kvóti árlega. Ef heimamenn
leggja vænt bjamdýr að velli geta þeir
í mesta lagi gert sér vonir um
300.000 krónurfyrirskinn, höfuð-
kúpu og kjöt. Ef þeir selja leyfið hins-
vegar auðugum sportveióimanni,
geta þeirfengið eina og hálfa milljón
fyrir dýrið og aöstoöina við veiðimann-
inn, en það kostar allt að tíu daga út-
hald úti á ísnum, með fylgdarmönnum
með hunda-ogvélsleöa. Samferöa
mér í flugvélinni voru tveir vígalegir
Bandaríkjamenn með kúrekahatta og
stórar töskur sem innihéldu víst úrval
dýrra vopna. Annar þeirra hafði náð í
bjöm síöast þegarégvissi.
Resolute Bay er eitt þorpanna í
hinu gríðarstóra ríki kanadísku norð-
ursvæðanna, Nunavut, sem varðtil 1.
apríl fyrir rúmu ári og lýtur að hluta til
sjálfstjórn inúíta. Þetta svæði ertutt-
ugu sinnum stærra en ísland en á því
búa einungis 27.000 manns. Ogþað
er dýrt að halda þessari byggð úti. í
þessu þorpi er rafmagn framleitt með
olíurafstöð og mikiö mannvirki heldur
vatni úr nálægu stöðuvatni á stans-
lausri hreyfingu til að það frjósi ekki.
Sú dæling kostar hátt í milljarð króna
á ári.
Annars er fátt að sjá í Resolute Bay
á köldu vori. Mannlífinu er lifað innan-
dyra; ef fólk fer út skýst það til og frá á
vélsleðum, eða brunarum á stórum
pallbílum. Veiðimenn hverfa út á ísinn
af ogtil, sækja sel í hunda sem eru
víða bundnir viö húsin oggamma að
einsömlum göngumanni sem gengur
dúðaður eftir þessum fáu götum og
bíöurfregna af pólförum á úfnu breiö-
stræti ennþá lengra fyrir noróan.
Eldsneyti anda og efnis. Bakviö kirkjuna liggja nokkrar olíutunnur en olía er flutt einu sinni á ári til þorpsins.
Dúðuð í frostinu. Það er foreldradagur í skólanum og börnin í Resolute Bay leika sér úti með hunda sína.
i