Morgunblaðið - 10.05.2000, Page 2

Morgunblaðið - 10.05.2000, Page 2
10. MAÍ 2000 BLAÐE 13netid@mbl.is 120 milljónir hafa verslað á Netinu Búist er við að um 120 milljónir netnot- enda, eða 40% þeirra sem nota Netiö, hafi þegar verslað á Netinu, eða allt frá því að viöskipti á Netinu hófust að einhverju marki fyrir fáeinum árum. Bandaríkjamenn eru iðnir að versla á Netinu en 50% við- skipta má rekja þangað. Notandi er sagður hafa verslað sjö sinnum og eytt taspum sex þúsundum ísl. króna að meðaltali á stðustu þremur mánuðum. Á sama tíma eyddi notandi annars staðar í heiminum minna en 3.500 krónum. Bandaríkjamenn greiða mun oftar með korti heldur en aörar þjóðir, sem greiöa fremur með netgreiðsl- um, færslum úr þanka eða með því að staðgreiða vöru við afhendingu. Þjóðverjar netvæðast Þjóðverjar hafa tekiö Netinu opnum örm- um undanfarna mánuði en notkun hefur aukist um 50% á sex mánuöum, að því erfram kemurí könnun Gfk Online- Monitor. 15,9 milljónir Þjóðverja hafa aögang að Netinu, þar af 21% heimila í landinu. Viöskipti á Netinu hafa náð traustri fótfestu í Þýskalandi en 20%, um 3,4 milljónir manna, segjast versla með þeim hætti. Bækur, geisladiskar, hugbúnaður, farsímar og skartgripir eru vinsælustu vörurnar sem keyptar eru. Vinsælasta vefstðan t Þýskalandi er Yahoo.de, en 7,6 milljónir manna hafa notað síðuna undanfarna þrjá mánuði. Tólvupóstur sendur með penna í framtíðinni verður hægt að nota skó sem hljóðfæri og senda tölvupóst með penna, að því erfram kom á ráðstefnu Intel-fyrirtækisins. Ekki er gert ráð fyrir að slíkar framleiðsluvörur rati í hillur verslana á næstunni — þær eru miklu fremurtil marks um hve stafræn tækni er langt á veg komin og hægt er að koma slíkri tækni fyrirí hversdagslega hluti. David Tenn- enhouse framkvæmdastjóri rannsókna hjá Intel sagði á ráðstefnunni, sem haldin varfyrir skömmu, að meðal þeirra byltinga sem hægt sé að hugsa sér sé tölvupóstsendingar með penna. Hann segir líklegt að í framtíöinni verði komnir á markað pennar sem nemi það sem skrifaö er og að hægt verði að senda uþp- lýsingarnarfrá þeim ítölvureða síma. EVRÓPUFRUMSÝN Gateway Profile á markað EVRÖPUFRUMSÝNING NÝJUSTU AFURÐAR GATEWAY Gateway, sem er með- al stærstu tölvufram- leiöenda heims, hefur gefið út Gateway Profile-tölvuna, en Evrópufrumsýning tölvunnar var haldin hér á landi fyrir skemmstu. TOLVU félagsstofnunstuden: Bein- tengdir stú- dentar HÁSKÓLASAMFÉLAGIÐ NETVÆÐIST Vk±7Í Hægt er að panta ferðir hjá ferðaskrjj stofunni, bæku hjá bóksölunni, sækja um húsnæði hjá Stúdentagörðum og atvinnu í Atvinnu- miðstöðinni með aö-1 stoð Netsins. Alltaf eitthvað nýtt á mbl.is Pantanir á síð- ustu stundu ódýrt að kaupa bíla á NeUnu Bandaríkjamenn sem kaupa bíla í gegnum Netiö eru sagðir geta sparað sér talsveröa fjárhæð í stað þess aö kaupa farartæki á hefðbundnari hátt. Bflasalar sem tóku þátt í könnun um bílasölu I gegnum Netið sögðu að netnotendur fengju yfirleitt afslátt, allt að 35 þúsund ísl. króna þegar þeir keyptu bíl. í könnuninni kom fram aö bílasalar voru tilbúnir að aka nýjum bíl til netnot- enda fyrir reynsluakstur. Þá kemur fram að tvisvar sinnum fleiri bflasalar reiða sig á Netið til þess að selja bíla heldur en á síðasta ári, en þeir eru sagðir eiga erfitt með að anna eftirspurn vegna sölu á Netinu. Bílaiðnaöurinn er sagður sá sem hraöast vex af öðrum iönaði á Net- inu. íslenskur bílavefur Það er ekki aðeins erlendis sem bíla- iðnaðurinn blómstrar á Netinu. Hér á landi hefur hugbúnaðarhúsið Juventus opnað vefsetur, www.mobil.is, þar sem hægt er aö finna vefsíður íslenskra bíla- umboða og bílasala. Einnig er að finna ýmsan fróðleik um bíla. Vefnum er ætlað að aöstoöa fólk í bílakaupum, upplýs- ingar um viðhald á bifreiðum og upp- hafssíða fyrir áhugafólk um bíla og tengd málefni. Þarftu að panta gistingu, flugfar, miða í leikhús eða panta borð á veitinga- húsi í París eða Lundúnum eða i Bandaríkjunum? Skoðaðu þá www.lastminute.com. Á síðunni er hægt, eins og nafnið gefur til kynna, að velja úr fjölda veitingahúsa, gisti- staða eða flugferða. Einnig er hægt að fá fréttabréf með tölvupósti til þess að skoða hvaða tilboð eru til staðar hverju sinni. Síðan, sem leggur áherslu á þjón- ustu í Bretlandi, gefur einnig færi á að panta flugfar og ferðir til Skot- lands, friands eða til annarra staða i Evrópu, með skömmum fyrirvara. Nú þarf ekki lengur að skipuleggja sum- arfríið með löngum fyrirvara. www.lastminute.com T Æ K N I I I S I M I S J O Ástarveiran, vírus sem xj réðst á tölvupóstkerfi og ' hrelldi töluvkerfi um víða veröld síöastliðinn fimmtudag, er nýjasta út- spil tölvuþrjóta á Netinu. Útþreiðsla ást- arveirunnar og afbrigða hennar er sögð vera sú hraöasta sem um geturí sögu tölvuvírusa. Hann dreiföi sérmeð þeim hætti að þegar notandi opnaði netþréf sendi tölva viökomandi sjálfkrafa svipað bréf til allra skráðra netpóstfanga í tölv- unni. Veiran var meðal annars sögð hafa valdiö skemmdum á svokölluöum MP3- skjölum, sem vista tónlistarhljóöritanir. Einnig vann vírusinn skemmdir á Ijós- myndum sem vistaðareru á hörðum diski tölva. Nokkur afbrigði af tölvuvírusinum komu fram degi síðar en ollu minna tjóni. Ástarveiran er sögð hafa valdið tjóni sem nemur milljörðum ísl. króna um heim allan og er talinn útbreiddasti tölvuvandi sem komiö hefur upp á íslandi, ef miðaö er við fjölda véla sem hann hafði áhrif á. Virðisttjón af völdum vírusa aukast árfrá ári, en þess má geta að fyrsti ormurinn, NVARP IITÖLVUR II tölvulirjótar valda usla á Netinu kenndur við Morris, er sagður hafa smit- aö 10% allra tölva árið 1988, en ástar- veiran er strangttil tekið ormur. En hvað er það sem rekurtölvuþrjóta til slíkrar stigamennsku? Brian Martin, sem áyngri árum sá sér hag í að brjótast inn á vef- svæöi og senda tölvuvírusa vítt og breitt um heiminn, telur að það sem reki tölvu- þrjóta áfram sé þörf þeirra til að sjá hve þekking þeirra fleytir þeim langt; hversu áhrifaríkur vírusinn sé og hversu vel þeir geta breitt yfir aðgeröir sínar. Þá skipti máli fyrir þá að auka sjálfsálit sitt með því að fá viöurkenningu annarra þrjóta. Mart- in, sem nú starfar við að tryggja öryggi á Netinu, segir að flestirtölvuþrjótar geri sér enga grein fyrir því hvaða afleiðingar N E T I Ð [GÍSLIÞORSTEINSSON gislith@mbl.is] nimimiimii gjörðir þeirra valda. Kevin Poulsen, tölvu- þrjótur sem sat í fangelsi í fimm ár fyrir tölvuglæpi en kveðst hafa snúið frá villu síns vegar, tekur undir orð Martins í sam- tali við BBC-vefsíöuna. Poulsen telur að sjálfsdekur hafi knúið höfund ástarveir- unnar áfram. Höfundurinn er sagður ung- ur að árum en Poulsen telur að von hans um að komast eins langt og kostur er sem og að hljóta viröingu annarra tölvu- þrjóta sé kveikjan að sendingunni. Poul- sen ætti að vita um hvað hann er að tala því hann braust inn í vefsíðu bandaríska varnarmálaráðuneytisins þegar hann var 17 ára gamall. Það er engum vafa undirorpið að ástar- veiran er ekki síðasti vírusinn sem ræöst á tölvukerfi. Þráttfyrirfullkomnari tækni verður vírusum seint útrýmt að fullu því tölvuþrjótar munu ávallt reyna að finna leiðirtil þess að komast framhjá þeim vörnum sem við þeim blasa. En hvað er þá til ráða? Eina ábendingin sem sérfræð- ingar geta stungið upp á er að fólk sé á varöbergi ogforðist að opna óumbeðinn póst og viðhengi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.