Morgunblaðið - 25.05.2000, Síða 4

Morgunblaðið - 25.05.2000, Síða 4
Ræktar þú garðinn þinn? Sameinaðu kosti HeimilisÍfhu og Heimilisbanka 4 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sýmngin Stefnumót við íslenska sagnahefð opnuð í Washington Reuters Stefán Karlsson var einn ræðumanna á þingi um Islendingasögumar. Björn Bjarnason menntamálaráðherra ávarpaði málþingið. Reuters BJÖRN Bjarnason menntamála- ráðherrafærði í gær bandarísku þjóðinni Islendingasögur að gjöf. Richard W. Riley, menntamála- ráðherra Bandaríkjanna, veitti gjöf- inni, sem er 650 samstæður íslend- ingasagna í enskri þýðingu, viðtöku við opnun sýningarinnar „Stefnu- mót við íslenska sagnahefð" íþjóð- arbókhlöðu Bandaríkjanna, Library of Congress, í höfuðborginni Wash- ington. Islendingasögunum verður dreift í bandarísk bókasöfn. Björn Bjarnason sagði þegar hann afhenti bókagjöfina að fyrir þúsund árum hafí saga þjóðanna tengst þegar Islendingurinn Leifur Eiríksson kom til landsins sem Bandaríkjamenn byggja nú. „Nú höfum við tekið tæknina í þjónustu okkar og á Söguvefnum er h ægt að skoða handritin um allan heim. Það er einnig mikilvægt að sýningin hér í Bandarísku þjóðarbókhlöðunni er haldin á sama tíma og víkingasýn- ingin í Smithsonian.“ Menntamálaráðherra Banda- B andaríkj amönn- um afhentar Is- lendingasögur ríkjanna þakkaði gjöfína og sagði að vinátta þjóðanna tveggja myndi án efa skapa eigin sögu sem myndi endast önnur þúsund ár. Sýning- unni er ætlað að varpa ljósi á sagna- hefð íslensku þjóðarinnar og menn- ingu. Á henni er m.a. að finna ýmis merk handrit, sem flest eru í eigu Landsbókasafns, auk tveggja hand- rita frá bandarísku þjóðarbókhlöð- unni, fjögurra frá háskólanum í Manitoba og skinnhandrits af Jóns- bók, sem er í eigu Fiske-safnsins við Cornell-háskóla. Auk þessa leggur Stofnun Árna Magnússonar til skinnhandrit af Njáls sögu. Á sýningunni er nýjustu tækni að fínna innan um forn handrit því sýn- ingargestum gefst færi á að leita upplýsinga um sagnahefðina í tölvu- tæku formi þar á meðal á Saguanet- Málþing um sagnaritun f gær svar einnig sett málþing í bandarísku þjóðarbókhlöðunni um Islendingasögurnar og mótun ís- lenskrar menningar. Á málþinginu, sem stendur í tvo daga, eru saman komnir fræðimenn frá ýmsum lönd- um sem munu fjalla um sagnaritun- ina og tengsl hennar við nútímann. Við setningu málþingsins sagði menntamálaráðherra m.a. að Is- lendingasögurnar væru bókmennta- perlur sem lýstu merkilegri upp- byggingu þjóðveldis á íslandi og við ritun þeirra hefðu ýmsir atburðir verið skráðir sem ella hefðu fallið í gleymsku, t.d. sigling Leifs Eiríks- sonar til Vínlands. Hann þakkaði Comell-háskóla og þjóðarbókhlöðu Bandaríkjanna sérstaklega fyrir að skipuleggja málþingið og kalla á einn stað alla helstu sérfræðinga í íslendingasögunum. Ráðherra sagðist þess fullviss að málþingið myndi vekja nýjar hugmyndir og auðga enn fræðin og jaftivel finna svör við ýmsum leyndardómum sagnanna. Menntamálaráðherra færir full- trúum George Washington- háskólans fslendingasögumar í enskri þýðingu að gjöf í dag, fimmtudag, en heimsókn hans til höfuðborgar Bandaríkjanna lýkur síðdegis. Áskriftar- vefur á mbl.is OPNAÐUR hefur verið áskriftarvef- ur fyrir Morgunblaðið. Á þessum vef er hægt að kaupa áskrift að blaðinu jafnt innanlands og erlendis og end- urnýja áskrift. Sömuleiðis er á vefn- um hægt að gefa áskrift. Hægt er að tengjast vefnum, sem er á slóðinni http://askrift.mbl.is, með hnapp á mbl.is. Á vefnum má sjá hvað áskrift kostar hvar sem er í heiminum. Þar má einnig sjá hverjir eru dreifingar- aðilar blaðsins úti á landi og hægt að senda tölvupóst til áskriftardeildar t.d. ef heimilisfang áskrifanda breyt- ist. Jakob Þorsteinsson, í áskriftar- deild Morgunblaðsins, segir að þetta sé aðeins byrjunin á þeirri þjónustu sem muni standa til boða á vefnum fyrir áskrifendur þar sem fleiri þætt- ir eiga eftir að bætast við síðar. Tveir menn grun- aðir um smygl TVEIR menn voru yfirheyrðir í Reykjavík í gær og beðnir um að gera grein fyrir rúmlega 200 lítr- um af áfengi á plastbrúsum sem fannst í fórum þeirra í fyrrakvöld. Grunur leikur á að áfenginu hafi verið smyglað. Mennirnir, sem eru á miðjum aldri, voru handteknir í fyrra- kvöld. Sá fyrri var stöðvaður á bíl sínum og fannst talsvert af áfengi í bílnum. Hinn var tekinn seinna um kvöldið í tengslum við rannsókn málsins og húsleit síðan fram- kvæmd hjá þeim báðum. Málið er nú í rannsókn. Morgunblaðið/Ami Sæberg Utför séra Heimis Steinssonar ÚTFÖR séra Heimis Steinssonar, þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum og fyrrverandi útvarpsstjóra, var gerð frá Dómkirkjunni í gær að viðstöddu fjölmenni. Séra Jakob Ágúst Hjálm- arsson jarðsöng. Gunnar Kvaran lék á selló við útförina, Marteinn Á. Frið- riksson var organisti og Dómkórinn söng. Líkmenn voru, frá vinstri talið, sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson, sr. Ingólfur Guðmundsson, sr. Rúnar Egilsson, sr. Þorvaldur Karl Helga- son, sr. Gunnþór Ingason, sr. Gísli Jónasson, sr. Jón Helgi Þórarinsson og sr. Bemharður Guðmundsson. Síðdegis var biskup íslands, séra Karl Sigurbjömsson, með kveðjuat- höfn í kirkjunni á Þingvöllum. Með því að nýta sér þjónustu Heimilislínu og Heimilisbankans á Netinu, má ná fram hagstæðari vaxtakjörum og umtaisverðum sparnaði í þjónustugjöldum - og það kostar ekkert að gerast áskrifandi. Þar með tryggir þú þér hærri innlánsvexti, lægri útlánsvexti, sparar kostnað af færslum, millifærslum og reikningsyfirlitum, auk þess að spara tíma. Jfc) pe&miiK ®BÚNAÐARBANKINN Keikó sleppt vegna spreng- ínga STEFNT er að því að fara með háhyrninginn Keikó út úr Klettsvík í dag vegna fram- kvæmda við Nautshamars- bryggju í höfninni í Vest- mannaeyjum. „Þeir þurfa að sprengja þama,“ sagði Hallur Hallsson, talsmaður samtakanna Ocean Futures, í gær. „Á meðan ætl- um við að færa Keikó út fyrir. Það verður gert með því að láta hann fylgja báti. Það stendur ekki til að sleppa honum en maður veit aldrei hvað gerist.“ Hallur sagði að háhyrningur- inn yrði laus meðan á þessu stæði en það gæti orðið um klukkustund. Þjálfarar hans hefðu undanfarið verið að æfa þetta með hvalnum en engin trygging væri fyrir því að þetta tækist. „En þjálfararnir eru mjög bjartsýnir og telja að það sé hægt að taka hvalinn út og koma með hann aftur inn,“ sagði Hallur. Verið er að setja nýjan við- legukant fyrir sfldar- og loðnu- bræðsluna í Vestmannaeyja- höfn. Bein sjónlína er frá viðlegukantinum yfir í Kletts- vík og höfðu menn áhyggjur af því að hljóð- og höggbylgjur af sprengingunni gætu skaddað skynfæri hvalsins. Hvort farið verður með Keikó úr Klettsvfldnni í dag eða á morgun veltur á því hvort þjálfarar hans telja að hann sé tilbúinn, en samið var við hafn- aryfirvöld um að framkvæmd- um yrði frestað fram á föstudag á meðan verið væri að vinna í þessu. Gjaldskrá hita og raf- magns hækkar um 2,9% HEIMILISLÍNAN Traustur banki www.bLU BORGARRÁÐ Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu stjórnar veitu- stofnana um að hæka gjaldskrá hita og rafmagns um 2,9% frá og með 1. júní næstkomandi. Tillagan var samþykkt með þremur at- kvæðum en fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins sátu hjá. í greinargerð frá Orkuveitu Reykjavíkur segir að 6. júlí í fyrra hafi borgarráð falið forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur að leggja fram einu sinni á ári a.m.k. þörf fyrir breytingu á gjaldskrá til að tekjur veitunnar fylgdu kostnaðar- þróun hennar. Unnin hafi verið vísitala fyrir Orkuveituna og sam- kvæmt henni sé hækkunarþörfm vegna hita 3,9% og rafmagns 2,9% en að meðaltali 3,1%. Kostnaðar- hækkanir liggi aðallega í hækkun á launum og launatengdum gjöld- um, sem gefur tilefni til 1,4% hækkunar, hækkun á vélum og bif- reiðakostnaði, sem gefur tilefni til 0,6% hækkunar, vegna hækkunar á verksamningum við verktaka sem gefur tilefni til 0,26% hækk- unar og til að mæta hækkunum vegna viðhalds og rekstrarvöruro þarf að hækka um 0,2%. Hækkun rafmagnsverðs til dælingar á heitu vatni kallar á 0,3% hækkun á heitu vatni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.