Morgunblaðið - 26.05.2000, Síða 33

Morgunblaðið - 26.05.2000, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 2000 33 ERLENT Fulltrúadeild Bandarikjaþings samþykkti að taka upp eðlileg viðskiptatengsl við Kína Kínamarkaður opnaður bandarískum fyrirtækjum Kínversk stjórnvöld segja ákvörð- unina skynsamlega en gagnrýna harðlega ákvæði um eftirlit með ástandi mannréttindamála Washington, Peking. AP, AFP, Reuters. AP Kínverskur verkamaður í Peking. Viðskiptasamningurinn við Banda- ríkin og væntanleg aðild að Heimsviðskiptastofnuninni munu hafa mikl- ar breytingar í för með sér í kínversku þjóðlífi. Flóttinn úr sveitum til borganna mun aukast og milljónir manna munu missa vinnuna hjá ríkis- fyrirtækjum, sem haldið er gangandi með opinberu fé. A móti munu mörg ný störf verða til er kínversku fyrirtækin verða orðin fullgildir þátttakendur á heimsmarkaði. FULLTRUADEILD Bandan'kja- þings samþykkti í fyrrakvöld að koma á eðlilegum viðskiptatengslum við Kína og með meiri mun en búist hafði veríð við. Er niðurstaðan mikill sigur fyrir Bill Clinton forseta, jafnvel þótt atkvæðagreiðslan hafi ekki farið eftir flokkslínum, en mestur er fögnuður- inn í bandarísku atvinnulífi, allt frá landbúnaði til hátæknifyrirtækja. Að sama skapi er ósigur verkalýðsfélag- anna mikill en þau börðusþ hatramm- lega gegn samningnum. I Kína hafa talsmenn atvinnulífsins fagnað sam- komulaginu og einnig stjómvöld, sem em þó mjög óánægð með það ákvæði, að sett verði á laggimar sérstök nefnd tii að fylgjast með ástandi mannréttindamála í landinu. Nokkur óvissa var um niður- stöðuna fram undir það síðasta en til að tillagan yrði samþykkt í fulltrúa- deildinni vai'ð hún að fá 218 atkvæði. Ríkti mikil spenna í deildinni er at- kvæðagreiðslan fór fram en er þess- um þröskuldi var náð bmtust út mikil fagnaðarlæti meðal stuðningsmanna tillögunnai'. Svo fór, að hún var sam- þykkt með 237 atkvæðum gegn 197. Dennis Hastert, forseti fulltrúa- deildarinnar og repúblikani, sem tók höndum saman við Clinton um að koma tillögunni í gegn, lýsti því yfir að atkvæðagreiðslunni lokinni, að kínverski markaðurinn hefði verið opnaður. „Nú fá einhverjir tækifæri til að selja vöm sína á þessum mikla markaði. Um það var spurt hveijir þeir ættu að vera.“ Talsmenn bandarísku stórfyrir- tækjanna fögnuðu úrslitunum ákaf- lega en þau vörðu hundruðum millj- óna króna í áróður fyrir samþykkt tillögunnar. Sögðu þeir, að nú hefði þingið tekið hagsmuni þjóðarinnar allrar fram yfir pólitíska stundar- hagsmuni. Markaðsopnun og tollalækkanir Samningurinn felur það í sér, að komið verði á eðlilegu viðskiptasam- bandi við Kína í stað bestu-kjara- samninganna, sem gerðir hafa verið sl. 20 ár en endurskoðaðir af Banda- ííkjaþingi á hverju ári. Kínverjar heita því að opna markaðinn fyrir bandarískri framleiðslu, landbúnað- ai’vömm, rafeinda- og fjarskiptabún- aði, fjármálaþjónustu, skemmtiefni og raunar flestri annaiTÍ framleiðslu. Þá ætla þeir að lækka verulega háa innflutningstolla á bandarískid vöra og afnema takmarkanir við fjárfest- ingu Bandaríkjamanna í landinu. Meðal þehTa, sem hagnast mest á samningnum, eru fyrirtæki í bíla- framleiðslu, fjármálaþjónustu og fjarskiptum en ein helsta röksemd stuðningsmanna hans var sú, að yrðu Bandaríkjamenn ekki fyrri til, myndu Kínverjar einfaldlega taka viðskipti við Evrópuríkin fram yfir. Bændur himinlifandi Sem dæmi um tollalækkanimar má nefna, að tollai- á bandarískum bifreiðum í Kína eru nú á bilinu 80 til 100% en fara í 25% 2006. Þá verða kvótar á bílainnflutningnum afnumd- ir og einnig takmarkanir við rekstri bílaumboða. Eftir tvö ár mega banda- rískir bankar hefja starfsemi í Kína og fjarskiptaiðnaðurinn verður opn- aður fyrir bandarískri fjárfestingu upp að 50%. Annar stór vinningshafi er banda- rískur landbúnaður. Kínverjar féllust á að lækka tolla á maís, sojabaunum, baðmull og öðram afurðum og draga einnig úr niðurgreiðslum í sínum landbúnaði. Til jafnaðar verður búið að lækka þessa tolla úr 31% í 18% 2004. Kínverjar keyptu bandarískar sojabaunir og sojabaunaafurðir fyrir um 70 milljarða kr. á síðasta ári og eru mestu kaupendur þessarar vöru erlendis. Sojabaunabændur era því að sjálfsögðu ánægðir. „Þetta er fyrsta tilraun banda- rískra stjómvalda í langan tíma til að koma afurðum okkar á heimsmark- að,“ sagði Tony Anderson, sojabauna- bóndi í Ohio. „Við eram himinlifandi, þettar eru bestu fréttir, sem ég hef fengið." Kína er nú þegar fjórða mesta við- skiptaland Bandaríkjanna á eftir Kanada, Japan og Mexíkó en í þess- um viðskiptum hallai- skelfilega á Bandaríkjamenn. Kínverjar fluttu á síðasta áii vörur til Bandaiíkjanna fyiir 6.200 rnilljarða ísl. kr. en keyptu í Bandaríkjunum aðeins fyrir 995 milljarða kr. Með samningnum mun vafalaust verða mikil breyting á þessu enda lækka tollar á bandarísk- um varningi í Kína almennt úr 24,6% í 9,4% á næstu fimm áram. Er þá ótal- inn sá gífurlegi ávinningur, sem felst í mai’kaðsopnuninni að öðru leyti. Mikið áfall fyrir bandarísku verkalýðsfélögin Eins og fym segir er samningurinn mikið áfall fyrir bandarísku verka- lýðsfélögin, sem börðust á sínum tíma árangurslaust gegn NAFTA, Frí- verslunarbandalagi N-Ameríkuríkja, og ætluðu sér ekki að láta þann ósigur endurtaka sig nú. Þau segjast óttast, að með samningnum muni tugþús- undir starfa glatast í Bandaríkjunum, einkum í alls konai’ láglaunaiðnaði, og verða flutt til Kína. Ýmsir baráttu- menn fyrir mannréttindum gagnrýna samninginn líka og segja, að nú þurfi kínversk stjórnvöld ekki lengur að óttast refsiaðgerðir þótt þau virði að vettugi réttindi þegnanna. Greiðir fyrir WTO-aðild Samningurinn greiðir einnig fyrir aðild Kína að Heimsviðskiptastofnun- inni, WTO, og var samþykkt hans fagnað þar sérstaklega. Sagði yfir- maður hennar, Mike Moore, að um væri að ræða mikilvægt skref í þá átt en Kínverjar eiga enn ósamið við nokkur ríki um markaðsopnun. Kvaðst Moore viss um, að bandaríska öldungadeildin myndi samþykkja samninginn efth' fáar vikur enda er almennt búist við því. Talsmenn kínverskra einkafyrir- tækja fögnuðu samkomulaginu inni- lega og sögðu, að með væntanlegri WTO-aðild myndu Kínverjar verða fullgildir þátttakendur í heimsvið- skiptununi. Talsmenn kínverskra stjómvalda sögðu, að niðurstaða full- tráadeildarinnar hefði verið skynsamleg en fóru hins vegar hörð- um orðum um það ákvæði samnings- ins, sem segir, að sett skuli upp sér- stök nefnd til að fylgjast með mannréttindamálum í Kína. Sögðu þeir, að Kínverjar áskildu sér rétt til að bregðast við þessu ákvæði með viðeigandi hætti en gáfu þó í skyn, að staðið yrði við alla skilmála samnings- ins og væntanlegrar WTO-aðildar. Tveir virtir fréttamenn myrtir í Sierra Leone Freetown, Lundúnum, Sameinuðu þjöðunum. Reuters, AP. störfum í Kosovo-héraði árið 1998. TVEIR virtir stríðsfréttamenn og fjórir hermenn voru myrtir í Sierra Leone sl. miðvikudag eftir árás, að því að talið er, skæruliða á bílalest á miklu átakasvæði nærri Freetown. Talsmenn Sameinuðu þjóðanna í Freetown sögðu að Bandaríkjamaðurinn Kurt Schork, stríðsfréttamaður Reuters-frétt- astofunnar, og Spánverjinn Miguel Gil Moreno, myndatökumaður AP, hefðu látist eftir árásina sem gerð var úr launsátri er þeir voru við fréttaöflun á svæðinu. Morðin hafa verið fordæmd víðs vegar um heim og hefur fréttamannanna verið minnst sem hugprúðra manna sem fórnuðu lífi sínu til að miðla sann- leikanum. Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, sagðist í gær vera afar hrygg- ur vegna atburðanna. Mennirnir hafi tekið áhættu svo að almenn- ingur gæti verið upplýstur um stöðu mála. „Þetta voru atvinnu- menn sem leituðust við að miðla fréttum frá átökum sem þegar hafa orðið allt of mörgum að bana.“ Þá sagðist Bill Clinton Bandaríkjaforseti vera afar sorg- mæddur yfir tíðindunum en Kurt Schork var á árum áður samnem- andi Clintons í Oxford-háskóla í Englandi. Sagði hann morðin und- irstrika mikilvægi friðargæslu í hinu stríðshrjáða landi. Kurt Schork var einn reynslumestu stríðsfréttaritara Reuters og hafði unnið á átakasvæðum í Afganistan og víða í Afríku. Þekktastur varð hann fyrir störf sín í Bosníustríð- inu og umsátrinu um Sarajevo en þar var hann er átök þjóðarbrot- anna stóðu sem hæst. Richard Holbrooke, sendiherra Bandaríkj- anna hjá SÞ, kynntist Schork vel í og eftir Bosníustríðið þar sem Hol- brooke gegndi stöðu aðalsamn- ingamanns við Dayton-samning- inn, og sagði hann Schork hafa verið „einn hugaðasti og besti fréttamaður sem ég hef unnið með í 35 ár.“ Christiane Amanpour, aðalfrétt- aritari ClVN-sjónvarpsstöðvarinn- ar, starfaði mikið með Schork í Bosníustríðinu og sagði að hann hefði borið af öðrum fréttamönn- um hvað skilning, þekkingu og samúð með fólki varðar. Var fasteignasali í New York Eftir störf sín sem fasteignasali og í borgarstjórn New York ákvað Schork að reyna fyrir sér sem stríðsfréttaritari sem ætíð hafði verið gamall draumur hans. Er hann talinn hafa verið einn sá fremsti í sínu fagi en hafi verið sérstakur að því leyti að hörm- Reuters Kurt Schork var fréttaritari Reuters í Bosníustríðinu árið 1992 og er myndin tekin það ár. Hún sýnir Schork koma konu til hjálpar er sprengjuárás var gerð á syrgjendur við jarðaför. ungar einstaklingsins á átaka- svæðum voru fyrir honum eins mikilvægar og framvinda stríða. Ein þekktasta frétt Schorks er úr Bosníustríðinu og segir frá brjáli stríðsins - ungu pari, Serba og múslíma, sem fannst látið í faðm- lögum eftir að hafa orðið fyrir skotárás leyniskyttna. Miguel Gil Moreno, hafði verið myndatökumaður AP-fréttastof- unnar um nokkurra ára skeið og hóf feril sinn í Bosníustríðinu. í desember sl. var hann í Grozní, höfuðborg Tsjetsjeníu, er stríðsátök stóðu sem hæst og rit- aði í dagbók sína: „Hvern einasta dag hitti ég fólk og gef því sígar- ettur, og það er dáið morguninn eftir. Þetta er hryllilegur raun- veruleikinn í Grozní við upphaf nýrrar aldar. Hverja mínútu, hvern einasta dag, heldur maður að maður muni deyja,“ sagði Gil Moreno. Hann slapp óskaddaður frá Tsjetsjeníu sem og öðrum átökum í Kosovo, Irak og Kongó og var oftsinnis eini vestræni fréttamaðurinn sem hætti sér inn á átakasvæði. Síðastliðið ár var hann t.a.m. eini fréttamaðurinn sem hélt kyrru fyrir í Pristina höf- uðstað Kosovo-héraðs, er loftárás- ir Atlantshafsbandalagsins hófust. Alls hafa nú 26 fréttamenn látist við störf á átakasvæðum veraldar það sem af er árinu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.