Morgunblaðið - 26.05.2000, Page 65

Morgunblaðið - 26.05.2000, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 2000 65*>í Trúnaðarlæknar trygginga- félaga á Landspítala-háskóla sjúkrahúsi og stjórnsýslan Bryndís Þorvaldsdóttir Súsanna Davíðsdúttir Margrét Pálsdúttir Láttu bara taka það SJÚKRAHÚS Reykjavíkur og Ríkisspítalar hafa nú verið samein- uð í Landspítala-háskólasjúkrahús til að bæta ímynd yfirstjórnar SHR. Ingibjörg Pálma- dóttir heilbrigðisráð- herra segir þessa sam- einingu eitt mesta framfaraspor sem hægt væri að taka í skipu- lagningu heilsugæslu framtíðarinnar. Er hluti af þessari skipulagn- ingu sá að gefa trúnað- arlæknum tryggingafé- laga fullan aðgang að sjúkraskrám Land- spítalans, eins og þeir hafa haft að sjúkra- skrám Sjúkrahúss Reykjavíkur með fullu og ótakmörkuðu leyfi yfirstjórnar þar? Hverjir eru trúnaðar- læknar tryggingafélagana hjá sjúkrahúsum? Er Jóhannes M. Gunnarsson lækningaforstjóri trúnaðarlæknir tryggingafélags? Er það þess vegna sem trygginga- félögin fá sjúkraskrár slasaðra án þess að biðja um þær skriflega og þurfa ekki að kvitta fyrir þær? Eða er það bara tryggingafélagið VÍS sem fær svona góða þjónustu hjá honum? Af hverju er því haldið svona vel leyndu hverjir trúnaðar- læknar tryggingafélagana eru? Er það til þess að þeir geti læknað sjúklinga með vinstri hendi og síð- an unnið í sjúkraskrá þeirra með hægri hendi fyrir tryggingafélagið og verið á sama tíma á fullum laun- um hjá sjúkrastofnuninni? Jóhann- es M. Gunnarsson, lækningafor- stjóri SHR og stjórnarmaður í hinu nýja háskólasjúkrahúsi, sagði í svarbréfi til mín að það væri laga- skylda hans að afhenda örorku- nefnd allar sjúkraskrár mínar sem til voru hjá SHR. Þetta er ekki rétt og sorglegt þegar yfirmaður sjúkrahúss er ber fulla ábyrgð á sjúkraskrám hefur ekki meira vit á lögum. Örorkunefndin fær frjálsar hendur hjá honum til að stela öllum sjúkraskrám mínum og annarra og það án þess að biðja um þær skrif- lega og eða kvitta fyrir þær. Hver hefur þá hugmynd um hvaða sjúkraskrár þeir tóku eða er öllum sama um þessi lögbrot? í ritstjórnargrein Morgunblaðs- ins 27. ágúst 1998 er vitnað í ræðu Davíðs Oddssonar, forsætisráð- herra, þar gerði hann m.a. að um- talsefni varðveislu sjúkraskráa og sagði meðal annars: Því miður höf- um við Islendingar ekki gætt nægi- lega vel að því fram að þessu, að sjúkrasaga tiltekinna einstaklinga komist ekki að hluta til eða öllu leyti í rangar hendur. Síðar í sömu grein er vitnað í Ólaf Ólafsson landlækni og þar segir hann að þegar sjúkraskrár eru fullunnar eru þær fluttar í skjalageymslu, þar sem mjög strangar reglur gilda um afhendingu og menn verða að gera nákvæma grein fyrir sér og erindinu. Er þetta brandari hjá landlækni, hann fór ekki eftir þessu sjálfur í kærumáli mínu til hans. Mannvernd segir í Morgunblaðinu 1. apríl 1999: Sjúkra- skýrsla er trúnaðar- mál sjúklings og læknis hans og með afhendingu hennar til þriðja aðila, án skriflegs samþykkis viðkomandi einstak- lings, er höggvið að friðhelgi einkalífs sem varið er af stjórnaskrá og mannréttindasátt- málum. Hvernig stendur á því að trúnaðarlæknar tryggingafélaga og örorkunefnd á vegum dómsmála- ráðherra geta farið á skítugum Sjúkraskrár Ég gaf ekki örorkunefnd skriflegt leyfí til að af- rita sjúkraskrár mínar, segir Guðmundur Ingi Kristinsson, enda er ekkert í lögum eða reglum sem leyfír henni að fara fram á það. skónum um sjúkraskrárgeymslur Sjúkrahúss Reykjavíkur og tekið þær sjúkraskrár er þá langar í? Þetta gera þeir ólöglega með fullu samþykki forstöðumanns og ekki athugar hann hvað þeir taka eða hvað verður um þessi afrit af sjúkraskrám. Landlæknir bullaði eins og hon- um einum er lagið vegna kæru minnar til hans um þjófnaðinn á sjúkraskrám mínum og fölsun á einni þeirra. Heilbrigðisráðherra staðfesti bullið í landlækni og vitn- aði í reglugerð er segir: í hvert sinn sem afrit sjúkraskrár er af- hent skal það skráð í sjúkraskrána þannig að fram komi dagsetning og nafn þess sem fékk afritið. Enginn fór fram á það skriflega eða kvitt- aði fyrir sjúkraskrám minum hjá Sjúkrahúsi Reykjavíkur og ekki fór ráðuneytið eftir þessari reglugerð sinni og kórónaði síðan vitleysuna með því að segja að ég hafi verið í læknismeðferð hjá örorkunefnd- inni. Er heilbrigðisráðherra farinn að gefa lögmanni lækningaleyfi vegna lögfræðistarfa og eftir hvaða lögum er það leyfi veitt? Tölvu- nefnd var sama um það þótt ör- orkunefndin gæfi henni rangar upplýsingar enda eini læknirinn hjá henni starfsmaður Sjúkrahúss Reykjavíkur og landlæknisembætt- isins og því vanhæfur til meðferðar kæru minnar á yfirmenn hans hjá SHR og landlækni. Ég gaf ekki ör- orkunefnd skriflegt leyfi til að af- rita sjúkraskrár mínar, enda er ekkert í lögum eða reglum sem leyfir henni að fara fram á það. En tölvunefnd segir að með undirritun minni á umboð lögmanns míns þar sem hann hefur fullt og ótakmark- að leyfi mitt til þess að gæta hags- muna minna og semja við Scandia hf. um bætur vegna umferðarslyss 1993 hafi lögmaður minn með und- irskrift sinni á ólöglega beiðni VIS í nóv. 1996 til örorkunefndar heim- ilað örorkunefnd fullan aðgang að sjúkraskrám mínum? Er það ekki hámark fáránleikans hjá tölvu- nefnd að kenna lögmanni mínum um eigið getuleysi? Ef það er hægt að láta sjúkling skrifa upp á umboð þar sem sjúkraskrá er ekki nefnd og það á að leyfa þriðja aðila að- gang að sjúkraskrám mínum og annarra og hvaða hagsmuni mína á þetta að tryggja? Og síðan var beiðni tryggingafélagsins VÍS í þokkabót ólögleg. Þessir aðilar eiga svo að bera ábyrgð á sjúkra- skrá þeirra er ekki vilja fara í gagnagrunn? Er maður þá ekki mun betur kominn dulkóðaður hjá íslenskri erfðagreiningu eða til hvers yfir höfuð að vera að dulkóða sjúkraskrár? Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala-háskólasjúkrahúss, segir samstarf einkafyrirtækja og spítalans einkar áhugavert en óráð- ið og þar sem hagsmunir liggja saman, þar tökum við saman hönd- um. Á hann þarna við trygginga- félögin og áframhaldandi aðgang þeirra að sjúkraskrám. Getur nýi forstjórinn svarað mér því hvað verður um afritin af þeim sjúkra- skrám er tryggingalæknar fá hjá hinu sameiginlegu sjúkrahúsum? Eru tryggingafélögin að setja upp gagnabanka með þeim og gömlu sjúkraskránum sem þau hafa feng- ið hjá SHR. Ég hef áður skrifað um þetta sama mál til yfirstjórnar sjúkrahúsanna og engin svör fengið og ef það sama verður nú, hjá hinni nýju yfirstjóm háskólasjúkrahús mun ég taka þögn sem samþykki og að lögbrot á sjúkraskrám mín- um og annarra muni halda áfram. Höfundur er öryrki. BROTTNÁM á legi er ein al- gengasta kvensjúkdómaaðgerð sem framkvæmd er. Það lætur nærri að ein af hverjum 200 kon- um á íslandi fari í legtöku á ári hverju. Margar rannsóknir hafa verið framkvæmdar erlendis þar sem leitast er við að varpa ljósi á líðan kvenna fyrir og eftir legtöku og reynslu þeirra af þessari aðgerð. Hins vegar hafa ekki verið fram- kvæmdar neinar rannsóknir á þessu sviði hérlendis. Á Alþjóðlegu hjúkrunarráðstefn- unni, WENR, sem haldin verður í Háskólabíói dagana 25.-27. maí næstkomandi, verður kynnt rann- sókn um upplifun og líðan ís- lenskra kvenna eftir legtöku sem gerð var í kviðarholsaðgerð. Svæf- ingahjúkrunarfræðingarnir Bryn- dís Þorvaldsdóttir, Margrét Páls- dóttir og Súsanna Davíðsdóttir unnu rannsóknina árið 1999. Rann- sókn þeirra nefnist „Láttu bara taka það“, upplifun og líðan ís- lenskra kvenna eftir legtöku. Bætt líðan eftir legtöku Svokölluð eigindleg rannsóknar- aðferð varð fyrir valinu. Hún byggist á því að tekin eru viðtöl við þátttakendur, þau vélrituð upp og síðan lesin vandlega yfir og fundnir sameiginlegir þættir sem einkenna reynslu þátttakenda. Þessi rannsóknaraðferð hefur verið talin sérlega hentug til að auka skilning á reynslu og líðan einstaklinga og á hún því vaxandi fylgi að fagna í hjúkrunarrann- sóknum. Þátttakendur í rannsókninni voru sex konur á aldrinum 40^48 ára sem höfðu farið í legtöku á kvennadeild Landspítalans. í öll- um tilvikum var legtakan fram- kvæmd í kviðarholsaðgerð, leg- hálsinn skilinn eftir og annar eða báðir eggjastokkarnir. Niðurstöður sýndu að tímabilið áður en legtakan var ákveðin var konunum erfitt. Þær þjáðust af miklum blæðingum og verkjum. Þátttakendur litu á legtökuna sem endapunkt á vanlíðan sem hafði staðið yfir í lengri tíma og höfðu einkennin haft áhrif á athafnir daglegs lífs. Þegar kom að aðgerð var lausn í sjónmáli. Allir viðmæl- endurnir voru ánægðir með leg-v - Rannsóknir Kvenleika sínum fannst þeim ekki ógnað með legtökunni, segja Bryndís Þorvaldsdóttir, Margrét Pálsdóttir og Súsanna Davíðsdóttir, t - og að mörgu leyti var kynlíf þeirra betra en áður. tökuna. Verkjaupplifun eftir að- gerð var minni en konurnar áttu von á en þreyta i kjölfar hennar meiri. Kvenleika sínum fannst þeim ekki ógnað með legtökunni og að mörgu leyti var kynlíf þeirra betra en áður. Mikil ánægja var með hjúkrunina og töldu þær hana vera fagmannlega og fullnægja þörfum þeirra að flestu leyti. Helstu ályktanir sem draga má af þessari rannsókn er að legtaka,«t þar sem einungis legið er fjarlægt, virðist bæta líðan mikið. Eru þess- ar niðurstöður í samræmi við nið- urstöður annarra rannsókna sem framkvæmdar hafa verið erlendis. Rannsakendur telja þó að hér sé aðeins um vísbendingar að ræða og mikilvægt sé að gera frekari rannsóknir. Höfundar eru svæfingahjúkrunar- fræðingará svæfingadeild Land- spítalans í Fossvogi og svæfinga- deild Landspítalans við Hringbraut. Guðmundur Ingi Kristinsson Hvort sem þú ætlar í golf, útilegu eða bara fá þér göngutúr þá er klæðnaðurinn frá Sun Mountain næstum eins og sérhannaður fyrir íslenskar aðstæður, 100% vatnsþéttur og 100% vindþéttur. * Skeifunni 11 - Sími 588 9890 - Veffang orninn.is Opiö kl. 9-18 virka daga og kl. 10-16 laugardaga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.