Morgunblaðið - 14.06.2000, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 B 5
BÞRÓTTIR
FOLK
■ RÚNARI Geir Gunnarssyni, úr
Nesklúbbi, brá í brún þegar hann
opnaði skottið á bfl sínum fyrir utan
golfskála GS snemma á laugar-
dagsmorguninn. Golfsettið hafði
orðið eftir heima!
■ HANN fékk lánað sett hjá Sig-
urði Hafsteinssyni golfkennara
sínum sem aftur fékk lánað sett
Harðar Þorsteinssonar, fram-
kvæmdastjóra Golfsambandsins
sem var með settið í skottinu.
■ RÚNAR Geir lék fyrsta hringinn
með lánssettinu og lék á 83 högg-
um, næsta hring lék hann á 77
höggum með sínu setti, en faðir
hans brunaði með það úr Reykjavík
til að strákur gæti leikið með því
síðari hringinn á laugardaginn.
Hringinn á sunnudaginn lék Rúnar
Geir síðan á 82 höggum og notaði
eigið sett til þess.
■ ANNAR kylfmgur gleymdi pútt-
er sínum heima og varð að notast
við önnur verkfæri í pokanum.
Mest notaði hann trékylfu númer
eitt og gekk bara ágætlega. Hann
fékk pútterinn sinn eftir fyrstu níu
holumar og byrjaði með stæl, setti
niður 40 metra pútt á 12. holu.
UÞEGAR einn ráshópurinn kom
inn á síðari degi hafði einhver á orði
að þessi hópur gæti farið að keppa
á LEK-mótum, [mótum eldri kylf-
inga] en þarna voru á ferðinni nafn-
amir Björgvin Sigurbergsson og
Þorsteinsson auk Sigurðar Sigurð-
arsonar. Þeir félagar hafa allir orð-
ið íslandsmeistarar og hafa verið í
fremstu röð lengi.
■ ÖRN Ævar Hjartarson úr GS lék
síðasta hringinn á 67 höggum, fimm
höggum undir pari vallarins, en
vallarmetið er 66 högg og það á
Björgvin Sigurbergsson úr Keiii,
sett í júlí 1998. Menn höfðu þó á
orði að Örn Ævar hefði sett met á
„götóttum" velli.
■ GUNNSTEINN Jónsson úr GSE
var hástökkvari sunnudagsins en
fyrir síðasta hring var hann í 46.
sæti á 160 höggum. Síðasta hring-
inn lék hann á 68 höggum og endaði
í 9. sæti.
Morgunblaðið/Óskar Sæm
Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR sigraði á öðru stigamótinu um helgina og er langefst í stigakeppni kvenna.
Nú fer ég að æfa meira
„EIGUM við ekki að segja það?“
sagði Ragnhildur Sigurðardóttir
úr GR spurð hvort hún ætlaði að
hafa þetta svona í sumar, en
hún hefur sigrað á báðum stiga-
mótunum og er því efst að stig-
um.
Ragnhildur náði ein fárra í mót-
inu að pútta vel. „Þegar ég var
úti á Spáni við æfingar í vor breytti
ég strokunni hjá mér og það virðist
virka. Ég var orðin mjög stíf í öxl-
unum, var alltaf að hugsa um að
strjúka rétt, en náði því ekki vel. Ég
er að strjúka rétt núna, þetta virkar
að minnsta kosti vel. Ég einbeitti
mér að því að horfa ekki á flatirnar,
skoðaði bara línuna og púttaði eftir
bestu vitund og það var fullt af pútt-
um sem duttu,“ segir Ragnhildur.
„Hebba [Herborg] var að spila
mjög vel í dag og það var æðislegt
að horfa á hana,“ segir Ragnhildur
en spurð hvort hún hafi ekki gert
eitthvað fleira en horfa á hana leika
sagði hún: „Já, ég reyndi að hugsa
um mig, en það er alltaf gaman að
keppa þegar mótherjinn er að gera
sitt besta, þá þarf maður að leggja
allt sitt í leikinn. Við vorum jafnar
eftir fyrri níu, þá var hún búin að ná
mér. Ég átti í smá erfiðleikum með
sveifluna á þessum hring og var að
draga nokkra bolta og gera mér
leikinn erfiðari. Ég sá að ég þurfti
að taka á honum stóra mínum til að
verða ekki skilin eftir og einhvern
veginn tókst það, þó naumt hefði
verið.“
Ragnhildur segist eiga von á
skemmtilegu og jöfnu sumri. „Eftir
þetta mót sé ég betur hvað ég þarf
að leggja áherslu á við æfingar. Ég
gerði smávægilegar breytingar á
sveiflunni í vetur og þarf að festa
þær í sessi. Bömin mín sjá stundum
lítið af mömmu sinni og undanfarið
hef ég verið að reyna að sinna móð-
urhlutverkinu betur. Ég ætla þó að
fara að setja meiri kraft í æfingarn-
ar enda er þetta jú allt spurning um
góða skipulagningu,“ segir Ragn-
hildur og bætir við að hún geti fljót-
lega tekið dætur sínar með sér á æf-
ingar, en þær eru 6 og 8 ára og er sú
yngri full ólolinmóð fari hún með á
æfingar.
Ert þú ekki hrædd við svona góða
byrjun, að þú náir ekki að halda það
út og verðir búin þegar kemur að
Norðurlandamótinu og landsmót-
inu?
„Nei,“ svarar Ragnhildur ákveð-
ið. „Hvert mót er sjálfstætt og ég lít
á það sem nýtt og krefjandi við-
fangsefni. Ég kem til leiks með öðru
hugarfari en oft áður og hlakka til
þess að fá að glíma við stelpurnar
og vona að golfið eigi eftir að verða
mikið betra hjá okkur öllum en það
hefur verið áður.“
Megn óánægja með
framkvæmdina
|egn óánægja var meðal fjöl-
margra kylfinga sem þátt tóku
í öðru stigamóti Golfsambandsins um
mmpg helgina. Mótið var
Eftir haldið á Hólmsvelli í
Skúla Unnar Leiru og það verður
Sveinsson að segjast eins og er
að óánægja keppenda er vel skiljan-
leg og í raun fyrir neðan allar hellur
að halda stigamót þeirra bestu á vell-
inum eins og hann var á sig kominn.
Flathnar voru gjörsamlega ónot-
hæfar enda voru fjölmargir keppend-
ur sem léku aðeins nokkrar holur á
æfingadögunum, nenntu ekki að
spila meira vegna þess hvernig flat-
hnar voru. Málið er að þær voru gat-
aðar hálfum mánuði fyrh mót, og síð-
an viðraði illa þannig að flathnar
tóku lítið við sér fyrr en alha síðustu
dagana. Götin á flötunum voru einnig
óvenjulega stór og greinilegt vai- að
götunarvélin reif upp úr sárinu þann-
ig að þegar menn vippuðu inná flat-
imar vissu þeh aldrei hvert boltinn
fór, það fór allt efth því hvemig hann
lenti í gati. Púttin vora einnig mjög
skrautleg, boltinn hoppaði mikið og
gat síðan þegar hann lenti hoppað til
hægri, vinstri, upp, fram eða jafnvel
til baka. Svona flatir á auðvitað ekki
að bjóða á móti þar sem bestu kylf-
ingar landsins era að reyna með sér
og í raun engum kylfingum. Maður
hefur oft leikið á flötum sem hafa
verið gataðar, en þetta var einum of
mikið. Ætli Golfsambandið að láta
taka sig og mótaröð sína alvarlega
verður það að taka á málum sem
þessu.
Raunar var íhugað að skipta um
völl en það gekk ekki upp. En menn
frá GSI tóku völlinn út á mánudag-
inn, fimm dögum áður en mótið átti
að fara fram. Auðvitað sáu þeh
hvernig flathnar vora og það var far-
ið í að reyna að færa mótið, en það
var of seint. Það þarf að taka vellina
út talsvert fyrr þannig að það sé
hægt að gera eitthvað, standist vænt-
anlegur keppnisvöllur ekki þær kröf-
ur sem gerðar eru til hans.
Annað er það sem GSÍ verður að
taka til athugunar og það er fjöldi
þeirra sem taka þátt í stigamótunum.
I Leirunni vora 88 keppendur í
karlaflokki og 12 í kvennaflokki eða
alls 100 keppendur. Það er of mikið,
en líklega tekst ekki að breyta reglu-
gerð um stigamót fyrr en á næsta
þingi.
I stigamótum era bestu kylfingar
landsins að reyna með sér og það era
leiknar 36 holur fyrri daginn og síðan
18 þann síðari. Fyrri dagurinn er um
margt svipaður og á Norðurlanda-
mótum og öðram mótum þar sem
landsliðið kepph og þvi tilvalið að
nota þá sem æfingu fyrh slík mót. En
þegar líða sjö klukkustundh á milli
þess að menn fara úr í fyrri hring og
þar til þeh leggja í hann á ný í þann
síðari þá er ekki hægt að líta á það
sem æfingu.
Það þarf að finna leið út úr þessum
vanda því það er auðvitað akkur
klúbbanna sem halda stigamótin að
fá sem flesta því það kostar 3.000
krónur að vera með og GS hefur því
fengið 300.000 krónur í þátttökugjald
um helgina. Auk þess má gera ráð
fyrir að allir keppendur borði í golf-
skálanum þannig að það er efth
nokkru að slægjast hvað varðar
fjölda þátttakenda. En það sjónar-
mið má ekki ráða þegar hugmyndin
með mótaröðinni er meðal annars að
bestu spilarar landsins fái einhveija
æfingu.
® TOYOTA
Opin Kerfi Karlar 1. Þorsteinn Hallgrímsson Af i A
- IIIUI GR ,IU 142 stig
2. Örn Ævar Hjartarson GS 136 stig
3. Ólafur Már Sigurðsson GK 133 stig
4-5 Björgvin Sigurbergsson GK 129 stig
Pétur Óskar Sigurðsson GO 129 stig
Konur
1. Ragnhildur Sigurðardóttir GR 144 stig
2. Herborg Arnarsdóttir GR 132 stig
3. Nína Björk Geirsdóttir GKJ 103 stig
4. Kolbrún Sól Ingólfsdóttir GK 96 stig
5. Katrín Dögg Hilmarsdóttir GKj 92 stig
Opið kl. 10 - 18, fimmtudaga kl. 10 - 22, laugardaga kl. 10 - 16.