Morgunblaðið - 14.06.2000, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 14.06.2000, Qupperneq 6
6 B MIÐVIKUDAGUR14. JÚNÍ 2000 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundsson „Ætlum að klifra hægt upp „ÉG er mjög sáttur við stig í Eyj- um, sérstaklega þar sem við töp- uðum 5-0 síðast," sagði Jens Mart- in Knudsen, spilandi þjálfari Leifturs, eftir jafnteflið gegn ÍBV á laugardag. „Ég er óánægður með að við náðum ekki að skora mark en við vorum pínulítið heppnir líka að fá ekki á okkur mark. Við höfum að- eins skorað þijú mörk ísex leikj- um, sem er allt of lítið. Ég var ánægður með að halda hreinu í leiknum en ég var ósáttur með fyrri hálfleikinn en þetta var svona baráttuleikur," sagði Jens Martin, sem var afburðagóður í markinu. „Staða okkar núna er ekki góð en út úr þessum þremur úti- leikjum í fyrra á móti KR, ÍBVog IA fengum við tvö stig en nú náð- um við einu. Staðan er því ekki mikið verri en í fyrra og þá náðum við þriðja sætinu. Ég held enn þá að ég sé með betra lið en í fyrra og ég vona að við klifrum hægt upp töfluna. Ég held að spilið sé styrk- leiki liðsins, en í dag tók ég bar- áttustráka inn f liðið eins og Júhus Tryggvason og þá fáum við kannski ekki fallega spilið en við komum í veg fyrir að hinir skori.“ Leiftur leikur gegn FC Luzem í Intertoto keppninni 18. júní á Ól- afsfírði. „Við teljum að við eigum að slá Luzem út því við emm með reynslumikið lið, þannig að við teljum möguleika okkar góða,“ sagði Jens Martin. töfluna“ Ingi Sigurðsson sækir að marki Leiftursmanna í Eyjum, en Jens Martin Knudsen og samherjar hans sáu við Eyjamönnum. Jens Martin sá við Eyjamönnum LEIFTUR hefur aðeins skorað þrjú mörk á íslandsmótinu í sumar en fengið á sig níu. í fyrri hálfleik á laugardag í Eyjum leit út fyrir að markahlutfall þeirra kæmi til með að versna til muna en ótrúleg markvarsla Jens Martins Knudsen kom í veg fyrir það. Eyjamenn sem skorað hafa 10 mörk á tímabilinu náðu með engu móti að koma knettinum framhjá þessum lit- ríka markverði þrátt fyrir miklar tilraunir. Leikurinn í Vestmannaeyjum byrjaði með miklum látum Eyjamanna. Sóknarmenn IBV léku á als oddi og æddu hvað eftir annað í IrisiB gegnum opna vörn Eysteinsdóttur Leiftursmanna. AU- an Mörköre komst snemma í leiknum aleinn inn fyrir vörnina eftir frábæra sendingu frá Inga Sigurðssyni. Allan skaut góðu skoti sem Jens Martin varði með til- þrifum. Leiftursmenn spiluðu stífan varn- arleik en voru ósmeykir við að sækja fram völlinn er færi gáfust. Úr einni slíkri sókn fengu þeir auka- spyrnu rétt utan teigs sem Birkir Kristinsson gerði vel að verja. Eyjamenn héldu áfram að sækja hart að marki Leifturs og fengu eitt besta færi leiksins þegar Steingrím- ur gaf frábæra sendingu á Inga sem var einn fyrir opnu marki, skaut góðu skoti framhjá Jens Martin í markinu en Steinn Viðar Gunnars- son bjargaði naumlega á línu. Fjörugum fyrri hálfleik lauk síð- an með hörkusókn Leifturs. Sámal Joensen átti laglegt skot sem Birkir varði, Páll Viðar Gíslason fylgdi vel á eftir en skaut framhjá markinu í opnu færi. Eftir skemmtilegan og opinn fyrri hálfleik voru áhorfendur vissir um að mörkin færu að rúlla inn í síðari hálfleik. Svo varð hins vegar ekki og þeir urðu fyrir nokkrum vonbrigð- um. Fátt markvert gerðist í hálf- leiknum og var eins og eldmóður Leiftursmanna í vamarleiknum dræpi niður allan kraft í Eyjamönn- um. Sóknum Eyjamanna fækkaði tals- vert og meira varð um miðjuþóf. Leiftursmenn sóttu nokkuð í sig veðrið og virtust líklegir til að stela öllum stigunum þremur þegar Sám- al átti hnitmiðað skot sem hafnaði í innanveðri markstöng Eyjamanna. Alexandre Santos kom inn á í stað Sergio Mecedo og hleypti hann nokkru lífi í sóknarleik Leifturs. Leiftursmönnum tókst þó ekki að skora og ljóst er að þeir þurfa að leggja höfuðið í bleyti til að finna lausn á markaleysinu. Hugmyndaflug skorti í sóknarleik Eyjamanna sem missti nokkuð broddinn þegar Steingrímur fór út af um miðjan hálfleikinn. Ingi átti þó lokatilraun að marki er hann skaut föstu skoti, þar sem Jens Martin var enn á tánum og náði að verja. Með jafnteflinu komst Leiftur úr fallsæti en ÍBV fór niður í 5. sætið og ljóst er að Eyjamenn þurfa að klára færin sín betur til að verða í toppbaráttunni í sumar. Leiftur Leikskipulag: 4-4-2 Birkir Kristinsson m Páll Guðmundsson Hlynur Stefánsson m Kjartan Antonsson m Hjalti Jóhannesson Ingi Sigurðsson m Baldur Bragason Goran Aleksic (Bjarni Geir Viðarsson 62.) Momir Mileta mm Allan Mörköre Stelngrímur Jóhannesson (Jóhann G. Möller62.) Rangstöður: 4-0 Islandsmótið I knattspyrnu tandssimadeild karla, 6. umf. Hásteinsvöllur laugardaginn 10. júní 2000 Aðstæður: Suðaustan gola og sól. Hiti um 10 stig. Völlurinn góður. Áhorfendur: Um 700. Dómari: Gísli Hlynur Jóhannsson, Keflavík, 3. Aðstoðardómarar: Pjetur Sigurðsson, Einar Sigurðsson. Skot á mark: 26 - 9 Hornspyrnur: 8 - 5 Leikskipulag: 5-3-2 Jens Martin Knudsen mm Sergio Macedo____________ (Alexandre Santos 74.) Hlynur Jóhannsson Steinn Viðar Gunnarsson Júlíus Tryggvason (Albert Arason 81.) Alexandre Da Silva gB Sámal Joensen fE Páll V. Gíslason m Jens Erik Rasmusson m (Ingi Hrannar Heimisson 87.) John Petersen Örlygur Þór Helgason Gul spjöld: Momir Miletta, ÍBV, (63.) -fyrir brot, Ingi Sigurðsson, ÍBV, (64.) - fyrir brot, Kjartan Antonsson, ÍBV, (77.) - fyrir brot, John Petersen, Leiftri, (28.) - fyrir brot, Páll V. Gíslason, Leiftri, (43.) - fyrir brot, Jens Martin Knudsen, Leiftri, (67.) - fyrir munnsöfnuð, Alexandre Da Silva, Leiftri, (85.) - fyrir brot. Rauð spjöld: Engin. „Of mörg jafn- w Eg hefði viljað sjá stöðu okkar að- eins betri. Ég hefði viljað ná allavega tveimm- af þessum jafntefl- isleikjum sem sigrum, þá væri stað- an allt öðruvísi hjá okkur. Við erum ekki búnir að tapa leik, gera fjögur jafntefli og höfum einungis unnið tvo leiki,“ sagði Birkir Kristinsson markvörður ÍBV eftir leikinn gegn Leiftri um helgina. „Þau eru alltof dýr þessi jafntefli. Við mættum kannski taka meiri sénsa en hugsanlega kæmi það niður á okkur að við fengjum á okkur fleiri mörk. Við erum samt ekkert útúr myndinni. Staðan er ekkert alslæm. Við eigum öll þessi stærri lið eftir sem eiu fyrir ofan okkur þannig að það er bara mjög gott fyrir okkur og með sigri á móti þeim erum við nátt- úrulega bara komnir efst. Að mínu mati er betra að eiga þessa leiki inni heldur en á móti lakari liðunum því þá erum við að taka stig af þeim. Útivellirnir hafa verið okkur erfið- ir. Við dettum niður - spilum ekki eins og við erum að spila héma heima. Það er mikilvægt að reyna að vinna útileikina og við verðum að fara að reyna að gera það,“ sagði . landsliðsmarkvörðurinn. Erum enn með í baráttunni „Við fengum færi til að klára þetta í fyrri hálfleik en þeir voru aftur hættulegir í skyndiupphlaupum og hefðu getað refsað okkur þá,“ sagði Hlynur Stefánsson fyrirliði Eyja- manna. „Ég er náttúrulega mjög ósáttur við þetta - bara eitt stig á heimavelli, það er of lítið eins og staðan er í dag í i deildinni. Við fengum mikið af dauðafærum í fyrri hálfleik en náð- um ekki að setja punktinn yfir i-ið og I klára þetta og þá kemur svona óþol- inmæði í spilið hjá okkur - við fórum að flýta okkur of mikið og sendingar fóru að klikka. Það eru ekki nema þrjú til fjögur stig í efstu lið þannig að það er svo sem nóg eftir af mótinu. Við höfum ekki tapað leik og það er ákveðið styrkleikamerki en við þurfum að vera aðeins hvassari fyrir framan mark andstæðinganna og það er það sem við ætlum að vinna í núna í frí- j inu okkar. Við erum tvímælalaust enn með í toppbaráttunni. Ég er bara bjartsýnn á framhaldið og við þurfum bara að vinna í okkur vanda- málum, sem er markaskorun eins og er,“ sagði Hlynur. ■ HVORKI Hlynur Birgisson, né Þorvaldur S. Guðbjörnsson léku með Leiftursmönnum gegn ÍBV á laugardag vegna meiðsla. Þeir von- ast þó báðir til að vera tilbúnir í slaginn er Leiftur mætir sviss- neska liðinu FC Luzem í Intertoto- kppninni 18. júní á Ólafsfirði. • LEIFTURSMENN ætluðu ekki að láta það sama henda og í fyrra er þeir töpuðu 5-0 gegn ÍBV í Vest- mannaeyjum og komu því til Eyja kvöldinu áður til að vanda undir- búning fyrir leikinn. ■ EYJAMENN stóðu fyrir fjöl- skyldudegi á laugardag. Ef öll fjöl- | skyldan kom saman á leikinn fengu allir frítt nema pabbamir, þeir þurftu að borga fullt gjald.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.