Morgunblaðið - 14.06.2000, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 14.06.2000, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 B 7 Qjaf- mildir Blikar FRIDRIK A. Jl GRINDVÍKINGAR halda áfram velgengni sinni í efstu deild karla í knattspyrnu, lögðu lán- lausa Breiðabliksmenn 3:0 á laugardaginn. Sigurinn var sanngjarn en heldur voru mörkin ódýr og má segja að Blikar hafi sýnt eindæma gjaf- mildi í því sambandi því eftir tæpar tvær mínútur var staðan orðin 1:0 og fjórum mínútum síðar 2:0. Sinisa Kekic gerði bæði mörkin og var síðan rek- inn út af í síðari hálfleik þannig að það má segja að hann hafi komið mikið við sögu i leikn- um. Skúli Unnar Sveinsson skrifar likar komu KR-ingum í opna skjöldu í síðustu umferð, skor- uðu strax á fyrstu mínútu, en nú voru það heima- menn sem komu Blikum í opna skjöldu með marki á annarri mínútu og öðru eftir óttaleg varnarmistök Andra Marteinssonar á sjöundu mínútu. Blikar voru hreinlega úti á þekju í upphafi leiks og það nýttu Grindvíkingar sér svo sannarlega. Ef Atli Knútsson hefði ekki verið í stuði í marki gestanna hefði staðan getað verið orðin 4:0 eftir 12 mín- útna leik því Atli varði vel gott skot Scott Ramsey úr aukaspyrnu og skömmu síðar áttu heimamenn þrjú skot eftir mikla pressu, eitt fór í vanarmann og Atli varði tvö þeirra. Þrátt fyrir þessa stöðu í upphafi leiks voru Grindvíkingar alls ekki að sækja af miklum krafti því þeir lágu nokkuð til baka og sóttu síðan hratt á gestina þegar færi gafst. Þau færi gáfust hvert af öðru á upphafs mínútunum og þeir Óli Stefán Flóventsson og Ólafur Örn Bjarnason drógu sig vel til baka til aðstoðar varnarmönnunum. Sókn- irnar voru beittar enda virtust leik- menn Breiðabliks enn vera á leið- inni til Grindavíkur. Andri varð að yfirgefa völlinn meiddur á 20. mínútu, tognaði greinilega á læri, og inn á í hans stað kom Robert Russell. Við þetta vöknuðu Blikar loks til lífsins og á 26. mínútu voru heimamenn heppn- ir að missa ekki mann út af þegar brotið var á Hreiðari Bjarnasyni rétt utan vítateigs Grindvíkinga þegar hann var rétt við það að komast einn inn fyrir vörn heima- manna. Bragi Bergmann, sem hafði byrjað leikinn mjög vel og af ák- veðni, sá ekkert athugavert við brotið og dæmdi ekkert. Hreiðar mótmælti full harkalega og fékk gult spjald að launum. I stað þess að vera manni yfir og fá aukaspyrnu á hættulegum stað fékk Bliki gult spjald og fimm mín- útum síðar komust heimamenn í 3:0 með marki Óla Stefáns upp úr engu. Mínútu síðar braut Hákon Sverrisson, fyrirliði Blika, illa á Kekic án þess að fá gula spjaldið, en hann hafði fengið ótímabært gult spjald nokkru áður og hefði með réttu átt að vera rekinn út af við þetta. Eina hættulega skot gestanna kom rétt fyrir leikhlé er Hjalti Kristjánsson átti fast skot af 25 metra færi en Albert Sævarsson Morgunblaðið/Friðþjófur Morgunblaðið/Friðþjófur Óli Stefán Flóventsson sést hér innsigla sigur Grindvíkinga á Blikum án þess að Atli Knútsson markvörður komi vömum við. Á efri myndinni lætur Óli Stefán skotið ríða af - og á neðri myndinni er knötturinn á leið í netið. varði vel. Blikar hófu síðari hálfleikinn á þokkalegri sókn sem ekkert varð úr en heimamenn komu sér síðan í enn eitt færið eftir vel útfærða skyndisókn sem endaði með því að Paul McShane kastaði sér fram og skallaði en Atli varði enn eina ferð- ina. Mínútu síðar skallaði ívar Sig- urjónsson yfir mark heimamanna eftir hornspyrnu og skömmu síðar átti Ramsey hörkugott langskot en Atli varði mjög vel. Breiðabliksmenn léku framar en í fyrri hálfleik en sóknir þeirra voru hálf bitlausar og Grindvíking- ar voru nær því að bæta við en gestirnir að minnka muninn. Kekic var rekinn af velli á 69. mínútu og er þetta í annað sinn sem hann er rekinn af velli í deild- inni. Að þessu sinni var það mjög ósanngjartn því hann var í baráttu um knöttinn við vítateig Blika og féll við og taldi Bragi dómari að hann væri að leika og reyna að fá vítaspyrnu og sýndi honum gula spjaldið öðru sinni í leiknum og rautt í kjölfarið. Þetta var í fyrsta sinn sem svona tilvik kom upp, ef Kekic var að reyna að fiska brot, og því hefði tiltal verið betur við hæfi. Marel J. Baldvinsson kom inn á er 10 mínútur voru eftir og er þetta í fyrsta sinn sem þessi snjalli knatt- spyrnumaður kemur við sögu í deildinni í sumai-. Hann lét nokkuð til sín taka og fékk meðal annars ágætt færi á lokamínútu leiksins en Albert markvörður sá við honum. Grindvíkingar léku af mikilli skynsemi, vörnin var þétt og miðj- an sterk þannig að Blikar komust hvorki lönd né strönd þegar þeir reyndu að sækja. Þegar færi gafst var sótt mjög hratt og þar var Kek- ic sterkur, hélt boltanum hæfilega lengi þannig að miðjumennirnir fengju tækifæri til að aðstoða. Þetta gekk fullkomlega, liðið skap- aði sér fjölmörg færi og hefði á góðum degi getað gert talsvert fleiri mörk en sá sem kom í veg fyrir það var Atli markvörður Breiðabliks sem átti góðan dag. Guðjón fyrirliði var sterkur í vörninni eins og Zoran Djuric, á miðjunni áttu allir góðan dag og frammi var Kekic mjög sterkur en oft hefur komið meira út úr leik Ramsey. Blikar voru ekki sannfærandi í leiknum og ljóst að leiki liðið svipað það sem eftir er sumars verður það í bullandi fallhættu. Atli var besti maður liðsins og Russell kom mjög sterkur inn og var allt í öllu í vörn- inni í fyrri hálfleik eftir að hann kom inn á, auk þess sem hann sótti nokkuð fram. Hjalti átti ágætan leik í vinstri bakverðinum og reyndi stöðugt að spila út úr vörn- inni og Hreiðar lék ágætlega á miðjunni. IGrindavík 3:0 Beiðablik Leikskipulag: 4-5-1 Albert Sævarsson jb Ray Jónsson Guðjón Ásmundsson JW Zoran Djuric JW Vlgnir Helgason Goran Lukic JW (Róbert ó. Sigurðsson 86.) Óafur Örn Bjarnason JW Paul McShane JW (Jóhann H. Aðalgeirsson 89.) Óli Stefán Flóventsson JW Sinisa Kekic JBJB Leikskipulag: 4-5-1 Atli Knútsson awiB GuðmundurÖ. Guðmundsson (Pétur Jénsson 46.)_____ Andri Marteinsson (Robert Russell 20.) Scott Ramsey fslandsmótið í knattspyrnu Landssimadeildin, 6. umf. Grindavíkurvöllur laugardaginn 10. júní 2000 Aðstæður: Norðan vindur og nokkur vindkæling. Völlurinn ágætur. Áhorfendur: Um 300 Dómari: Bragi Bergmann, Árroðanum, 3. Aðstoðardómarar: Einar Guðmundsson Erlendur Eiríksson ________________________ Skotámark: 11-11 (Marel J. Baldinsson 80.) Hákon Sverrisson Hjalti Kristjánsson Björn Jakobsson Kjartan Einarsson Hreiðar Bjarnason Árni K. Gunnarsson JW Hornspyrnur: 5 - 5 Rangstöður; 2 - 0 Salih Heimir Porca fvar Sigurjónsson 1:0(2.) Ramsey sendi fyrir markið frá endamörkum vinstra megin, yfir markteiginn þar sem Sinisa Kekic var einn og óvaldaður og skoraði af öryggi. 2:0 (7.) Andri ætlaði að gefa þversendingu á vítatiegslínu, Kekic komst inn í sendinguna og skoraði auðvelt mark. 3:0 (33.) Ólafur Örn skallaði í þverslá eftir horn og sóknin virtist runnin út í sandinn því boltinn var á leið útaf hægra megin við markið þegar Óli Stefán Flóventsson skaust fyrir aftan varnarmann og skoraði. Gul spjöld: Sinisa Kekic, Grindavík (52.) fyrir brot, (69.) fyrir meintan leikaraskap Hákon Sverrisson, Breiðabliki (22.) fyrir brot Hreiðar Bjarnason, Breiðabliki (26.) fyrir mótmæli /Æjwjw Kjartan Einarsson, Breiðabliki (37.) fyrir brot. íp Rauð spjöld: Sinisa Kekic, Grindavík (69.) fyrir meintan leikaraskap ' Groning- en með sóknar- menn í sigtinu ÚTSENDARI frá Groningen, nýliðunum í hollensku úrvals- deildinni í knattspyrnu, var hér á landi um helgina og fylgdist með þremur leikjum í úrvalsdeildinni, auk leikja í 2. og 3. flokki. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins var hann fyrst og fremst að huga að sóknarmönnum og fylgdist sérstaklega með Keflvíking- unum Guðmundi Steinarssyni og Magnúsi Þorsteinssyni en skoðaði einnig Framarana Ronny B. Petersen og Þor- björn Atla Sveinsson. Hol- lendingurinn sá aðeins þijú mörk í úrvalsdeildarleikjun- um þremur en var að sögn án- ægðastur með leik Keflavík- ur og Þórs í 2. flokki þar sem margir pilta sýndu góð sókn- artilþrif. ■ GRIND VÍKINGAR hafa til þessa ávallt mætt því liði sem leik- ið hefur við KR í umferðinni á und- an. A þessu verður þó breyting í næstu umferð því þá fara Grind- víkingar í Vesturbæinn. ■ MIKILL hugur er í mönnum í Grindavík en þar á bæ á að stofna hlutafélag um rekstur knattspyrn- unnar. Búið er að teikna glæsileg- an nýjan grasvöll þar með stúku með annari langhliðinni og glæsi- legri aðstöðu fyrir leikmenn og áhorfendur. Fyrirhugað er að þetta verði allt tilbúið eftir tvö ár. ■ SIGURÐUR Grétarsson, þjálf- ari Breiðabliks, var fjarri góðu gamni á laugardaginn en hann var í leikbanni. Jón Þórir Jónsson var skráður þjálfari, en hann var vara- markvörður hjá Blikum er þeir léku við Fylki á dögunum og gegn- ir því fjölda hlutverka hjá félaginu. ■ SIGURÐUR fór ekki með Blik- um suður með sjó, kom á sínum einkabíl á eftir og var meðal áhorf- enda á leiknum og hefur örugg- lega ekki liðið of vel. ■ SINISA Kekic setti nýtt marka- met hjá Grindavík í efstu deild með fyrra marki sínu gegn Breiðabliki. Kekic hefur nú skor- að 18 mörk fyrir Grindavík, tveim- ur fleiri en næsti maður, Ólafur Ingólfsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.