Morgunblaðið - 14.06.2000, Blaðsíða 8
8 B MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Fylkir jafnaði
einum færri
EINUM leikmanni færri sýndu Fylkismenn mikla þrautseigju gegn
værukærum KR-ingum og tókst að jafna áður en yfir lauk. Tryggðu
þeir sér þannig annað stigið úr viðureign liðanna í Árbænum á laug-
ardaginn, 1:1. Leikurinn bar þess merki að Fylkismenn urðu að
leika einum leikmanni færri frá 27. mínútu er Sævari Þór Gíslasyni
var vikið af leikvelli er hann lenti í klafsi við Einar Þór Daníelsson.
Leikmenn Fylkis léku af skynsemi, létu ekki etja sér út í neina vit-
leysu og þótt KR-ingar hefðu stöðulega yfirburði höfðu þeir ekki
rænu á að færa sér þá í nyt.
Attum að
fá þrjú stig
„VIÐ stjórnuðum leiknum allan
timann en Fylkismenn skoruðu úr
eina markskotinu sem hitti mark
okkar allan leikinn," sagði Pétur
Pétursson, þjálfari KR. „Það var
vissulega nokkuð sárt að tapa
tveimur stigum í leik þar sem við
vorum miklu betri."
Voru þið ekki orðnir fullværu-
kærir f síðari hálfleik?
„Mér fannst við stjórna leiknum
frá upphafi til enda. Við fengum
þijú til fjögur góð færi sem því
miður nýttust ekki. Sanngjarnast
væri að við fengjum öll stigin úr
þessum leik.“
Pétur segpr að enginn vafi leiki á
að brottrekstur Sævars Þórs Gísla-
sonar, hafi verið fyllilega réttmæt-
ur. „Sævar gaf Einari Þór oln-
bogaskot þannig að það fossblæddi
úr Einari á eftir. Rauða spjaldið
var því alveg réttur dómur, það
hefði varla farið að blæða úr Ein-
ari upp úr þurru,“ sagði Pétur.
■ GUNNAR Oddsson fékk vænan
blómvönd frá Keflvíkingum fyrir
leikinn gegn Fram, í tilefni þess að
hann sló leikjametið í efstu deild.
■ HÓLMBERT Friðjónsson var
heiðursgestur Fram og heilsaði
upp á leikmenn liðanna. Hólmbert
þjálfaði Keflavík 1969-1970, 1977
og 1985-1986, auk nokkurra leikja
1989, og Fram 1979-1981. Hann
gerði Keflvíkinga að Islan-
dsmeisturum 1969 og Framara að
bikarmeisturum 1979 og 1980.
■ GUÐMUNDUR Steinarsson hjá
Keflavík, markahæsti leikmaður
úrvalsdeildar, fór meiddur af velli
snemma í seinni hálfleiknum gegn
Fram. Guðmundur meiddist og
fór af velli, kom aftur inn á en var
greinilega ekki í standi og var
skipt út af skömmu síðar.
■ ANDRI Sigþórsson lék ekki
með KR gegn Fylki. Andri tognaði
á lærvöðva gegn Breiðabliki í síð-
ustu viku og hafði ekki jafnað sig.
Hann sagðist síður reikna með því
að leika með félögum sínum í bik-
arkeppninni í kvöld gegn Þrótti
Neskaupstað eystra en verða klár
í slaginn þegar KR mætir Grinda-
vík á heimavelli í næstu umferð
efstu deildar karla.
Leikurinn í Árbænum hófst nokk-
uð fjörlega og greinilegt var að
heimamenn komu fullir sjálfstrausts
í leikinn og staðráðn-
/var ir í að vinna. Herslu-
Benediktsson muninn vantaði hins
skrifar vegar til að brjóta
upp agaða og reynda vamarmenn
KR. Á19. mínútu stakk Gylfi Einars-
son sér inn fyrir vörn KR á eftir
sendingu frá Sverri Sverrisyni, en
Kristján Finnbogason kom út og
hirti knöttinn andartaki á undan
Gylfa. Skömmu áður hafði Gylfi átt
skot utan vítateigs sem fór rétt yfir
mark KR.
KR-ingar sóttu heldur í sig veðrið í
blíðunni á Árbæjarvelli er á leið, en
Fylkismenn voru ekki af baki dottnir
og beittu skyndisóknum þannig að
KR-ingar urðu að hafa varann á.
Mikil breyting varð hins vegar á
leiknum þegar Sævari Þór var vísað
réttilega af velli. Leikmenn KR náðu
betri tökum á leiknum um leið og
Fylkismenn urðu að sýna meiri vark-
árni en áður. Haukur Ingi Guðnason
fékk tvö prýðileg marktækifæri til
þess að koma gestunum á bragðið en
tókst ekki að skora. I fyrra skiptið
var það Sverrir Sverrisson sem
komst fyrir boltann á markteigs-
horni áður en skot Hauks hitti mark-
ið og í síðara skipti varði Kjartan
Sturluson vel í opnu færi.
Sjö mínútum fyrir hálfleik átti sér
stað umdeilt atvik er Theódór
Óskarsson komst inn fyrir vörn KR
vinstra megin með Sigurð Örn Jóns-
son á eftir sér. Við vítateigshomið
kom Kristján markvörður KR á móti
og kom boltanum út af en hindraði
Theódór um leið. Kristján slapp hins
vegar athugasemdalaust frá atvik-
inu.
Allan síðari hálfleik hafði KR
stöðulega yfirburði á vellinum en
nýtti sér þá harla lítið og fá færi litu
dagsins ljós í blíðunni. Einar Þór
kom KR yfir með laglegu marki á 58.
mínútu eftir frábæran undirbúning
Sigþórs Júlíussonar. Eftir það var
harla lítið um að vera á leikvellinum
lengst af. KR-ingar léku á tíðum bolt-
anum laglega sín á milli en út úr því
kom ekkert og um tíma var leikurinn
óttalega bragðlaus. Leit einna helst
út fyrir að meistaramir ætluðu að
halda fengum hlut. Slíkt kann ekki
góðri lukku að stýra einu marki yfir.
Fylkismenn börðust af fullum þunga
og vora staðráðnir í að jafna metin.
Bjarni Jóhannsson nýtti allar skipt-
ingar sem honum var heimilt að nota
og reyndi þannig að fríska upp á lið
sitt. Það bar árangur og fimm mínút-
um fyrir leikslok jöfnuðu heima-
menn.
Seigla Fylkisliðsins og baráttuandi
endurspeglaðist í þessum leik. Menn
gáfust aldrei upp þótt á móti blési og
undirstrikaði það að árangur liðsins
fram til þessa er engin tilviljun.
KR-ingar fengu að súpa seyðið af
því að ætla sér að halda fengnum
hlut. Leikmenn og ekki síst þjálf-
arinn hljóta að draga einhvem lær-
dóm af þessum leik.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sigurður Öm Jónsson, KR, sækir hér að Fylkismanninum
Sævari Þór Gíslasyni, sem fékk að sjá rauða spjaldið í leiknum.
Óviljaverk
Eg tók nokkra áhættu með inn-
áskiptingum undir lokin en
það var ekki um annað að ræða
síðasta stundarfjórðunginn því við
höfðum engu að tapa eins og stað-
an var,“ sagði Bjarni Jóhannsson,
þjálfari Fylkis, eftir jafnteflið við
KR. „Mér fannst vanta upp á ógn-
unina fram á við og því varð að
hressa upp á leikinn og það bar
árangur áður en yfir lauk.“
Bjarni sagði það hafa verið afar
ósanngjarnt hefði KR hirt öll stig-
in þrjú. „Vissulega getum við prís-
að okkur sæla með að fá eitt stig
úr leiknum. Við vomm einum leik-
manni færri í rúman klukkutíma
en fengum okkar færi.“
Bjarni var afar óhress með
brottrekstur Sævars Þórs Gísla-
sonar á 27. mínútu. „Ég tel að
Sævar hafi þarna unnið algjört
óviljaverk. Sævar var einfaldlega
að koma sér á fætur á ný og
saósjálfrátt hreyfast handleggirn-
ir. Ég er viss um að Einar Þór
Daníelsson sé einnig þeirra skoð-
unar að þetta hafi verið óviljaverk.
Menn verða einnig að velta því fyr-
ir sér hvort það sé einhver sann-
girni í því að reka menn út af sem
eru að losa sig við andstæðinginn
sem viljandi hangir á þeim.
Einar Þór var í þessu tilfelli tví-
mælalaust að hindra hraðaupp-
hlaup okkar. Reyndar fékk Einar
gult spjald fyrir sinn þátt og það
er framför frá því að líkt atvik átti
sér stað í leik gegn IA, þá slapp
KR-ingurinn við gult spjald þrátt
fyrir að hann héldi í Skagamann-
inn.“
Bjarni segir að sínir menn hafi
ætlað að vinna öll stigin þrjú sem í
boði voru, með það var lagt upp.
„Það þýðir ekkert annað í þessari
baráttu en leika til sigur í öllum
leikjum. Uppskeran var eitt stig og
við eram ennþá taplausir, en höf-
um gert heldur mörg jafntefli. Við
erum nokkuð sáttir við okkar stöðu
og vonandi náum við að þjappa
okkur enn betur saman og leika
enn betri knattspyrnu það sem eft-
ir lifir leiktíðarinnar," sagði Bjarni
Jóhannsson, þjálfari Fylkis.
Fylkir
KR
Leikskipulag: 4-5-1
Kjartan Sturluson m
Helgi Valur Danielsson JR
Ómar Valdimarsson
m
Þórhaliur Jóhannsson mm
Gunnar Þ. Pétursson m
Sævar Þór Gíslason
Kristinn Tómasson
(Sturla Guílaugsson 61.)
Sverrir Sverrisson mm
Hrafnkell Helgason
(Finnur Kolbeinsson 74.)
Theódór Óskarsson p
íslandsmótið i knattspyrnu,
Landssímadeild karla, 6. umf.
Fylkisvöllur
laugardaginn 10. júní 2000
Aðstæður:
Lyngt og sólríkt, 12 gráðu
hiti. Völlurinn ágætur..
Áhorfendur: Um 1.800.
Dómari:
Jóhannes Valgeirsson,
KA, 3.
Aðstoðardómarar:
Haukur Ingi Jónsson
og Gunnar Gylfason.
Skot á mark: 7 -13
Leikskipulag: 4-4-2
Krlstján Finnbogason m
Sigurður Örn Jónsson m
Þormóður Egilsson m
David Wlnnie
Bjarni Þorsteinsson m
Sigþór Júlíusson m
Þórhallur Hinriksson m
Sigursteinn Gíslason m
Einar Þór Daníelsson m
HaukurIngl Guðnason
(Gunnar Einarsson 79.)
Guðmundur Benediktsson JR
Hornspyrnur:
3-3
JlI Rangstöður:
1-4
(Sigurður Karlsson 77.)
Gylfi Einarsson
0:1 (58.) Sigþór Júlíusson vann boltann á eigin vallarhelmingi, óð upp völinn
og að vítateig Fylkis þar sem hann sendi inn á vítateiginn hvar
Einar Þór Daníelsson kom á spretti og skaut rakleitt í mark Fylkis
með vinstri fæti.
1:1 (85.) Löng sending barst í átt að vörn Fylkis, knötturinn fóryfir Þormóð
Egilsson við vítateigslínu og barst til Sigurðar Arnar Jónssonar og
Sturlu Guðlaugssonar, en hrökk frá þeim og fyrir fætur Gylfa
Einarssonar sem var dauðafrír rétt utan markteigs. Gylfi skaut
boltanum hiklaust í markið án þess að Kristján Finnbogason fengi
vörnum við komið.___________________________________________________
Gul spjöld: Einar Þór Daníelsson, KR, (27.) - fyrir peysutog.
1 ‘ I
Rauð spjöld: Sævar Þór Gíslason, Fylki, (27.) - fyrir að gefa andstæðingiN^g*/
olbogaskot.
Gunnar Oddsson var að vanda atk’
hann á fleygiferð en samherjar h<
fylgjast n
Heppi
bakvií
GUNNAR Oddsson, fyrirliði Kefi-
víkinga, sló leikjametið í efstu
deildinni í knattspyrnu í fyrradag.
Hann lék sinn 268. leik í deildinni
þegar Iið hans mætti Fram en fyrir
leikinn deildu þeir metinu hann og
Sigurður Björgvinsson, fyrrum sam-
heiji hans sem leikmaður og þjálf-
ari. _
„Ég hef svo sem ekki hugsað of
mikið um þetta leikjamet en það er
gaman að hafa náð þessu og hafa
tekið þátt í öllum þessum Ieikjum,"
sagði Gunnar við Morgunblaðið eft-
ir leikinn. Hann hefur jafnframt
leikið 178 Ieiki í röð í deildinni, síð-
an í júlí 1990, og hefur hvorki
meiðst né lent í leikbanni á þessum
tíu árum.
„Ég hef verið heppinn með að
sleppa við meiðsli en ég tel að það
sé ekki beint heppni að fá ekki mik-
ið af gulum spjöldum. Galdurinn er
að spila fast en ekki gróft, þetta er
kannski frekar spurning um lagni,“
sagði Gunnar.
Kefivíkingar eru í ágætri stöðu,
tveimur stigum á eftir efsta liði
þegar þriðjungi mótsins er lokið.
„Spekingarnir spáðu því fyrir
mótið að það yrði jafnt, og það virð-