Morgunblaðið - 14.06.2000, Page 10

Morgunblaðið - 14.06.2000, Page 10
10 B MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 jr " " 1 1 ............ KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ Loks Skaga mark EFTIR þrjá markalausa leiki í röð náðu Skagamenn loks að skora mark þegar þeir unnu nauman sigur á Stjörnunni í Garðabæ. Mark varamannsins Hjartar Hjartarsonar átta mínútum fyrir leikslok skildi liðin að og með sigrinum eru Akurnesingar komnir í efri hluta deildarinnar en nýliðar Stjörnunnar sitja sem fyrr á botninum, eru aðeins með eitt stig og hafa einungis náð að skora eitt mark í fyrstu sex umferðunum. Sigurinn hefði allt eins getað endað hjá Garð- bæingum. Þeir voru síst lakari aðilinn og fengu nokkur góð færi á að skora en lukkan var ekki á þeirra bandi frekar en i fyrri leikjum. Akurnesingar höfðu undirtökin í fyrri hálfleik og þrívegis á fyrsta hálftíma leiksins skall hurð ^■■■1 nærri hælum við Guðmundur Stjörnumarkið. Uni HHmarsson Arge komst næst skrifar því að skora þegar hann átti skalla í stöngina eftir góða fyrirgjöf Sturlaugs Haralds- sonar. Stjörnumenn voru með lið sitt frekar aftarlega á vellinum og leikaðferð þeirra gekk út á að sækja hratt á Skagaliðið. Heimamenn náðu nokkrum mjög hættulegum skyndisóknum á flata vörn Skagamanna og undir lok hálfleiksins voru þeir klaufar að skora ekki. Asgeir Asgeirsson komst einn gegn Ólafl Gunnars- syni markverði á 41. mínútu en Ól- afur sá við Ásgeiri með góðu út- hlaupi. Frákastinu náðu heimamenn en Akurnesingar náðu að bægja hættunni frá á síðustu stundu. í síðari hálfleik var meira jafn- ræði með liðunum úti á vellinum. Skagamenn voru þó áfram heldur með frumkvæðið en sóknir Stjörnumanna voru aftur á móti hættulegri. Uni Arge ógnaði j. ,Stjörnumarkinu tvívegis snemma í ^ kíðari hálfleik. Fyrst átti hann þrumuskot sem markvörður Stjörnunnar varði vel og síðan skallaði hann fram hjá úr mjög góðu færi. Þá munaði minnstu að FOLK H UNI Arge kom inn í lið Akurnes- Inga að nýju eftir meiðsli en hann meiddist á öxl í 1. umferðinni gegn Leiftri. ■ KÁRI Steinn Reynisson, miðju- maður ÍA, lék sinn 100. leik í efstu deild í leik ÍA og Stjörnunnar. 82 þessara leikja eru fyrir ÍA en 18 fyrir Leiftur. ■ BALDUR Bjarnason lék sinn fyrsta leik á Islandsmótinu síðan sumarið 1996 þegar hann kom inn á í liði Stjömunnar í síðari hálfleik gegn ÍA á laugardaginn. Þá lék Birgir Sigfússon sinn fyrsta leik -411 eð Garðabæjarliðinu á þessu sumri en hann lék með KR-ingum í fyrra. ■ SKAGAMENN unnu 7. sigur sinn í röð gegn Stjörnunni í efstu deild. Fyrsta árið sem liðin áttust við gerðu liðin jafntefli í fyrri leiknum en Stjaman vann þann síðari. Eftir það hafa Skagamenn ávallt farið með sigur af hólmi. Jóhannes Harðarson skoraði en skot hans, sem hafði viðkomu í varnarmanni, skoppaði í stöngina. Stjörnumenn fengu líka sín færi. Ólafur Gunnarsson markvörður ÍA gerði vel að verja skot Bobans Ristic á 50. mínútu og sömuleiðis skalla frá Valdimari Kristóferssyni á 76.mínútu. Heimamenn vildu svo fá vítaspyrnu á 77. mínútu þegar Ristic féll við í vítateignum en Gylfi Orrason dómari sá ekkert at- hugavert og lét leikinn halda áfram. Það stefndi því allt í markalaust jafntefli, sem hefðu í raun verið sanngjörn úrslit, þegar varamaðurinn Hjörtur Hjartarson tryggði gestunum stigin þrjú með laglegu skallamarki, marki sem stuðningsmenn IA voru búnir að bíða eftir í margar, margar mínút- ur. Stjörnumenn hafa ekki haft heppnina með sér á þessu íslands- móti. Þeir hafa oft á tíðum náð að spila ágætlega úti á vellinum en slagkraft hefur skort í sóknarleik- inn. Leikurinn gegn ÍA var engin undantekning og sem fyrr háir markaleysi liðinu og skortur á sjálfstrausti. Vladimir Sandulovic og Ragnar Arnason voru sterkir í miðvarðarstöðunum og Birgir Sig- fússon átti góða endurkomu í bak- varðarstöðuna. Valdimar Krist- ófersson gerði marga góða hluti á miðjunni og sömuleiðis Veigar Páll Gunnarsson sem kom frískur inn á í seinni hálfleik. Stjörnuliðið hefur verið að spila ágætan varnarleik en sóknarleik- urinn er vandamál sem Goran Kristófer Micic þjálfari Garðabæj- arliðsins þarf að hressa upp á ef Stjörnumönnum á að takast að halda sæti sínu í deildinni. Skagamenn eru að glíma við sama draug og undanfarin ár. Þeim gengur illa að skora mörk og meðan svo er verður erfitt fyrir þá gulklæddu að vera með í barátt- unni um Islandsmeistaratitilinn. Enginn efast um að Skagaliðið er vel mannað og er öflugt varnarlið en til þessa hefur sóknarleikur liðsins verið hálf máttlítill. Gunn- laugur Jónsson var firnasterkur í öftustu línu og hinn ungi Andri Karvelsson átti góða spretti í ba- kvarðarstöðunni, sem og Sturlaug- ur. Þetta voru bestu leikmenn IA ásamt Ólafi Gunnarssyni mark- verði sem var mjög öruggur í öll- um sínum aðgerðum. Miðjuspilið gekk ekki sem skyldi og oftar en ekki voru miðjumennirnir fyrst og fremst að hugsa um varnarleikinn í stað þess að sækja fram og styðja við bakið á sókninni.Skaga- menn hafa alla burði til að blanda sér alvarlega í slaginn um titilinn en það verður ekki fyrr en þeir ná að skerpa sóknarspil sitt verulega og gera bragarbót á markaleysinu. Morgunblaðið/Kristinn Uni Arge lék á ný með Skagamönnum. Hér á Arge (t.h.) í höggi við Ragnar Árnason. Sjálfstraustið kemur hjá okkur „ VIÐ bjuggumst alveg við því að sumarið yrði okkur erfítt. Það er hins vegar stutt í önnur lið og um leið og við náum að vinna leik er- um við komnir inn í pakkann. Við þurfum að fá sjálfstraust í liðið og ég er sannfærður um að það komi með fyrsta sigrinum. Þetta hefur verið þannig hjá okkur í sumar að við höfum átt síst minna í leikjun- um en okkur hefur verið refsað fyrir að nýta ekki færin. Skagalið- ið er mjög öflugt lið. Það spilar vel í vörn og er hættulegt í föstum leikatriðum og ekki skemmir fyrir þeim að hafa reynslumikla menn í liðinu. Það vantar hins vegar ein- hveija sprengju inn í lið ÍA til að tæta aðeins upp í liði and- stæðinganna,“ sagði Ragnar Ámason, vamarmaðurinn sterki hjá Stjörnumönnum, í samtali við- Morgunblaðið eftir leikinn. „Við fengum færi til að skora fleiri mörk en vomm í raun heppnir að okkur skyldi ekki vera refsað fyrir að nýta þau ekki. Við lékum ekkert sérstaklega vel en markið kom og við náðum 1 þrjú dýrmæt stig og eram þremur stig- um frá toppnum. Okkur hefur gengið erfiðiega að skora en von- andi fer þetta að rúlla nú þegar við höfum fengið alla okkar sókn- armenn til baka eftir meiðsli. Mér fínnst Stjörnuliðið baráttuglatt lið sem er hættulegt fram á við. í lið- inu em leikmenn sem geta skapað og vörn þeirra er sterk. Hlutimir hafa ekki dottið með þeim en mér fínnst þetta vera ferskasta Stjörn- uliðið sem ég hef séð í deildinni,“ sagði Gunnlaugur Jónsson, hinn öflugi miðvörður Skagamana. £ Stjarnan Leikskipulag: 4-4-2 Zoran Stojadinov » Islandsmótið í knattspyrnu Landssímadeildin, 6. umf. Blrgir Sigfússon (Bemharður M. Guðmundss, 76.þ Stjörnuvöllur laugardaginnlO. júní 2000 Vladimir Sandulovic m Friðrik Ómarsson irsson Aðstæður: Hægur vindur, skýjað og 13 stiga hiti Völlurinn góður Áhorfendur: 450 Dómari: Gylfi Orrason, Fram, 4. Aðstoðardómarar: Ólafur Ragnarsson Eyjólfur Finsson Leikskipulag: 4-4-2 Ólafur Gunnarsson $11JH Sturlaugur Haraldsson m (Grétar Steinsson 69.)___ Alexander Högnason_______ Gunnlaugur Jónsson Andri Karvelsson m Kári Steinn Reynisson Sigurður Jónsson Jóhannes Harðarson (Pálmi Haraldsson 77.) Haraldur Hinriksson Skot á mark: 11-13 Hálfdán Gíslason Hornspyrnur: 5-10 (Hjörtur Hjartarson 66.) Rúnar P. Sigmundsson (Veigar P. Gunnarss. 46.) JB Zoran Stocic Valdimar Kristéfersson _m Garðar Jéhannsson_________ (Baldur Bjarnason 65.) Boban Ristic______________ 0:1 (83.) Hjörtur Hjartarson sneiddi knöttinn með kollinum í bláhornið eftir sendingu Haraldar Hinrikssonar frá vintri kanti. Gul spjöld: Gunnlaugur Jónsson, ÍA, (44.) fyrir brot, Veigar P. Gunnarsson, Stjörnunni, (46.), fyrir brot Sigurður Jónsson, ÍA, (68.) fyrir brot. Rauð spjöld: Enginn Rangstöður: Uni Arge M

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.