Morgunblaðið - 14.06.2000, Page 11

Morgunblaðið - 14.06.2000, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR14. JÚNÍ 2000 B 11 EM I KNATTSPYRNU Bara viðvörun þeg- ar England skoraði Nuno Gomes (21) fagnar sigurmarki sínu gegn Engiendingum ásamt Dimas. Reuters PORTÚGALIR sýndu á mánu- daginn að það er óhætt að taka þá alvarlega í Evrópukeppninni. Þeir áttu magnaðan leik gegn Englendingum og unnu mjög verðskuldað 3:2 eftir að hafa lent 0:2 undir eftir aðeins 18 mínútna leik. Þeir standa þar með best að vígi í A-riðlinum því á undan gerðu Þýskaland og Rúmenía 1:1 jafntefli í slakasta leik keppninnar til þessa. Evrópumeistarar Þjóðverja þóttu ekki hefja meistaravörn- ina á sannfærandi hátt. Paul Scholes og Steve McMana- man skoruðu fyrir Englend- inga á 3. og 18. mínútu, bæði mörkin eftir fyrirgjafir frá David Beckham, og öruggur sigur þeirra virtist í uppsiglingu. En glæsileg mörk frá Luis Figo og Joao Pinto jöfnuðu leikinn fyrir hlé og Nuno Gomes skoraði sigurmarkið snemma í síðari hálfleiknum. Eftir það voru Portúgalir nær því að bæta við mörkum en Englendingar að jafna; hraði og útsjónarsemi Luis Figo, Rui Costa og félaga var meira en ensku leikmennirnir réðu við. Þeir nýttu sér vel breidd vall- arins og fóru hvað eftir annað illa með þá ensku, sérstaklega Neville- bræðurna í bakvarðastöðunum. „Byrjunin var frábær hjá okkur en Portúgalir komust inn í leikinn með stórkostlegu marki. Við gerð- um okkur seka um mistök sem refsað er fyrir þegar leikið er gegn svona sterkum mótherjum. Miðjan skilaði ekki varnarhlutverki sínu nægilega vel og það bitnaði á varn- armönnunum. Þetta var frábær knattspyrnuleikur en mjög erfiður, hraðinn var mikill og Portúgalir spiluðu virkilega vel. Þetta er mik- ið áfall fyrir okkur, sem verður erfitt að vinna okkur upp úr, en við munum gera það,“ sagði Kevin Keegan, þjálfari Englendinga. „Það var bara viðvörun fyrir okkur þegar Englendingar skor- A-RIÐILL Rúmenía - Þýskaland 1:1 Liege, Belgíu, 12. júní. Viorel Moldovan 5. - Mehmet Scholl 27. Áhorfendur: 25.000. Þýskaland: 1-Oliver Kahn; 2-Markus Babbel, 4-Thomas Linke (3-Marko Rehmer 46.), 6-Jens Novotny, 7-Mehmet Scholl, 8- Thomas Hassler (14-Dietmar Hamann 73.), 10-Lothar Matthaus (18-Sebastian Deisler 77), 11-Paulo Rink, 16-Jens Jeremies, 17- Christian Ziege, 20-01iver Bierhoff (fyrir- liði). Rúmenía: 12-Bogdan Stelea; 2-Dan Pet- rescu (22-Cosmin Contra 69.), 3-Liviu Ciobotariu, 4-Iulian Fibpescu, 5-Constan- tin Galca, 6-Gheorghe Popescu, 8-Dorinel Munteanu, 9-Viorel Moldovan (15-Ioan Lupescu 85), 10-Gheorghe Hagi (fyrirliði) (7-Adrian Mutu 73.), 11-Adrian Ilie, 13- Cristian Chivu. Markskot: 11:11. Hom: 4:8. Portúgal - Engiand 3:2 Eindhoven, Hollandi, 12. júní. Luis Figo 22., Joao Pinto 37., Nuno Gomes 59. - Paul Scholes 3., Steve McManaman 18. Áhorfendur: 30.000. Portiígal: 1-Vitor Baia (fyrirliði); 14-Abel Xavier, 5-Femando Couto, 2-Jorge Costa, 13-Dimas; 7-Luis Figo, 4-Jose Vidigal, 10- Rui Costa (16-Beto 85), 17-Paulo Bento, 8- Joao Pinto (11-Sergio Conceicao 76); 21- Nuno Gomes (19-Nuno Capucho 90). England: 1-David Seaman; 2-Gary Neville, 4-Sol Campbell, 5-Tony Adams (6-Martin Keown 82), 3-Philip Neville; 7-David Beck- ham, 14-Paul Ince, 8-Paul Scholes, 11- Steve McManaman (17-Dennis Wise 58); 9- Alan Shearer (fyrirliði), 10-Michael Owen (19-Emile Heskey 46). Markskot: 14:7. Hom: 11:6 FJöldi leikja u J T Mörk Stig Portúgal 1 1 0 0 3:2 3 Rúmenía 1 0 1 0 1:1 1 Þýskaland 1 0 1 0 1:1 1 England 1 0 0 1 2:3 0 uðu þessi mörk, sem bæði voru mjög ódýr. Við réðum leiknum frá fyrstu mínútu en menn verða að gæta sín á því að þetta er bara einn leikur, einn sigur. En ég er ánægður með að við gátum snúið blaðinu við og það sýnir að liðið er tilbúið í slíkan slag, bæði andlega og líkamlega," sagði Humberto Coelho, þjálfari Portúgals. Gátum ekki unnið lélegasta liðið Rúmenar fengu óskabyrjun gegn Þjóðverjum þegar Viorel Moldovan skoraði eftir aðeins fimm mínútur. Mehmet Scholl jafnaði fyrir Þjóðverja með glæsi- legu skoti 20 mínútum síðar og þar við sat. Rúmenar voru nær því að tryggja sér sigurinn og Moldovan fór illa að ráði sínu þegar hann hitti ekki opið markið í dauðafæri um miðjan síðari hálfleik. „Úrslitin eru sanngjörn þegar horft er á leikinn i heild. Það er vel hægt að segja að við höfum spilað illa og verið heppnir að fá eitt stig en ég tel að við höfum á köflum sýnt að við getum spilað vel og skapað okkur færi. Það gekk ekki allt eins og það átti að gera en það er ekki auðvelt að jafna eftir að hafa lent undir í fyrsta leik sínum á stórmóti,“ sagði Erich Ribbeck, þjálfari Þjóðverja. „Við erum vonsviknir. Rúmenar eru með lélegasta liðið í riðlinum og við gátum ekki unnið þá, vorum meira að segja heppnir að ná jafn- tefli,“ sagði þýski varnarmaðurinn Markus Babbel. Gheorghe Hagi, fyrirliði Rúm- ena, sagði að ein mistök hefðu kostað sitt lið sigurinn. „Þetta voru einu varnarmistök okkar all- an leikinn og þau voru dýrkeypt. Við fengum góð færi til að klára leikinn en verðum að vera sáttir við stig gegn Evrópumeisturun- um,“ sagði Hagi. „Við yfirspiluðum þýska liðið og fórum illa með færin,“ sagði Viorel Moldovan. ■ DAVID Beckham slapp við sekt vegna atviks eftir leik Englands og Portúgals. Hann gekk í átt að hópi enskra áhorfenda og klappaði íyrir þeim en þegar nokkrir úr hópnum hrópuðu ókvæðisorð að honum svaraði Beckham með kunnri „kveðju", lyfti löngutöng á loft. ■ KEVIN Keegan, landsliðsþjálf- ari Englands, var foxillur vegrfá' orðbragðs áhorfenda í garð Beck- hams og fleiri leikmanna eftir leik- inn. „Beckham átti einn besta landsleik sinn frá upphafi, yfirferð- in á honum var ótrúleg. Hvorki hann né aðrir eiga skilið að fá svona svívirðingar,“ sagði Keegan. ■ LUIS FIGO var valinn maður leiksins þegar Portúgal sigraði England. Flestir fjölmiðlar voru þó á því að Rui Costa, félagi hans, hafi verið besti maður vallarins í Eind- hoven. ■ ROBERT Waseige, þjálfari Belga, var í hópi þeirra sem lofuðu frammistöðu Portúgala. „Þeir léku fallega knattspymu en ég var mest hissa á því að þeir skyldu haflS3 nægilegan líkamlegan styrk. Það reyndist þeim mun auðveldara að spUa gegn Englendingum en ég bjóst við,“ sagði Waseige. ■ ENGLENDINGAR urðu síðast fyrir því fyrir 30 árum að tapa 2:3 eftir að hafa komist 2:0 yfir. Það var gegn Vestur-Þjóðverjum í átta liða úrslitum heimsmeistarakeppn- innar í Mexikó árið 1970. ■ ENGLENDINGAR eru þegar farnir að rifja upp ófarirnar í Evrópukeppninni árið 1988 þegar þeir töpuðu öllum þremur leikjuin sínum í riðlakeppninni. ■ STEVE McManaman, sem skor- aði síðara mark Englauds, meiddist á hné þegar hann lenti í návígi við Rui Costa. Tvísýnt er um hvort hann spUi gegn Þjóðverjum á laug- ardaginn. ■ TONY Adams leikur ekki meira með enska liðinu í riðlakeppninni vegna meiðsla í kálfa en Adams þurfti að fara af velli vegna meiðsl- anna í seinni hálfleiknum gegn Portúgölum. ■ THOMAS Hássler lék sinn 100. landsleik fyrir Þýskaland á mánu- daginn. Lothar Mattliaus lék sinn 148. leik og bætti heimsmet sitt. ■ ULF Kirsten meiddist í baki síb æfingu með Þjóðveijum á sunnu- daginn og gat ekki leikið með gegn Rúmenum. Carsten Jancker varð líka fyrir meiðslum og það var því Paulo Rink sem var í fremstu víg- línu með Oliver Bierhoff. ■ FRANZ Beckenbauer, forseti Bayern Munchen og fyrirliði Vest- ur-Þjóðveija um árabU, gagnrýndi Erich Ribbeck, þjálfara þýska liðs- ins, fyrir að nota menn sem væru ekki heilir eftir meiðsli. Becken- bauer sagði að hvorki Lothar Matt- haus né Jens Jeremies hefðu átt að spila gegn Rúmenum, það væri of dýru verði keypt að vera með meidda menn í lykilstöðum. ■ GHEORGHE Popescu, sem sinn 98. landsleik fyrir Rúmena gegn Þjóðveijum, framlengdi samning sinn við Galatasaray í Tyrklandi tU þriggja ára um helg- ina. ■ EMERICH Jenei, þjálfari Rúm- ena, sagði að lið sitt hefði ekki efni á að fara illa með dauðafærin eins og það gerði á móti Þýskalandi. „Við eigum möguleika á að ná langt í þessari keppni en til þess þurfum við að nýta færin betur,“ sagði Jen- ei. ■ ALLIR rúmensku leikmennirnir eru heilir og tilbúnir í næsta stege sem er gegn hinu fríska liði Portú- gala á laugardaginn. ■ ENSKIR pítsustaðir virtust græða á ósigri Englendinga gegn Portúgal. I hvert skipti sem Portú- galir skoruðu í leiknum urðu síma- línur pítsustaðanna rauðglóandi, markamínútumar voru sölutoppar kvöldsins. < Reuters Mehmet Scholl (7) skorar glæsimark gegn Rúmeníu án þess að Galca, markvörðurinn Bogdan Stelea eða Gheorghe Popescu komis vömum við.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.