Morgunblaðið - 14.06.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
EM I KNATTSPYRNU
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 B 13
Vemdarengill á
marklínu okkar
Reuters
Frönsku leikmennirnir Laurent Blanc, Marcel Desailly og Bixente Lizarazu veifa til áhorfenda eft-
ir sigurinn á Dönum.
■ DIDIER Deschamps, fyrirliði
Frakka, neitaði að ræða við frétta-
menn eftir leikinn við Dani og fylgdi
þar með eftir svipuðum viðbrögðum
fyrir leik en hann vildi ekkert við þá
tala á laugardaginn. Franskir
fréttamenn svöruðu þá í sömu mynt
og mættu ekki á fréttamannafund
franska liðsins. * '
■ THIERRY Henry skoraði sitt 6.
mark í 16 landsleikjum fyrir
Frakka og hann og Nicolas Anelka
mynda nú án efa fljótasta fram-
herjapar í Evrópu. Það er líka eitt
hið yngsta því Henry er 22 ára og
Anelka 21 árs.
■ FRAKKAR tefldu fram gegn
Dönum sjö leikmönnum sem urðu
heimsmeistarar fyrir tveimur ár-
um. Með Henry og Anelka í
fremstu víglínu virðast þeir enn
sterkari en sóknarmennimir þóttu
veikustu hlekkir liðsins á HM 1998.
■ RADOSLAVLatal, vamarmaður
Tékka, fékk rauða spjaldið nokkru
eftir að honum var skipt meiddum
af leikvelli. Latal mótmælti víuV
spyrnunni sem Hollendingar fengu
og var rekinn af varamannabekkn-
um. Hann verður í banni þegar
Tékkar mæta Frökkum á föstudag.
■ PATRIK Berger lék ekki með
Tékkum og verður heldur ekki með
gegn Frökkum. Hann fékk tveggja
leikja bann fyrir brottrekstur í
lokaleik undankeppninnar.
UPAVEL Nedved, leikmaður
Tékka, var áminntur fyrir fram-
komu sína en hann sparkaði boltan-
um í átt að öryggisverði og síðan
upp í stúku í reiði yfir að vera skipö
afleikvelli.
■ NEDVED sagði fyrir leikinn að
Tékkar yrðu að vara sig á dómaran-
um, Pierluigi Collina. Engin furða,
Collina hefur tvívegis rekið Nedved
af velli í ítölsku knattspymunni, í
bæði skiptin fyrir munnsöfnuð.
■ COLLINA var heldur betur
gagnrýndur í tékkneskum blöðum
eftir leikinn. Dagblaðið Blesk skart-
aði risastórri fyrirsögn, „Hneyksli",
í mánudagsútgáfu sinni.
■ PAVEL Smicek, markvörður
Tékka, sagði að um augljóst sam-
særi væri að ræða gagnvart veikari
þjóðunum, þeim og Tyrkjjum. Dóm-
aramir hefðu hjálpað ftölum og
Hollendingum til að sigra með
að gefa þeim vítaspymur.
■ FRANK de Boer, fyrirliði Hol-
lendinga, sem skoraði úr vítaspym-
unni í lokin, sagði að í lok hverrar
æfingar tæki hver leikmaður liðsins
tvær vítaspymui-. „Ég hef skorað
úr öllum til þessa,“ sagði fyrirliðinn
og hann kvaðst ennfremur hafa sof-
ið illa nóttina eftir leikinn vegna
slakrar frammistöðu liðsins.
■ MARC Overmars var ekki í byrj-
unarliði Hollands þar sem Frank
Rijkaard þjálfari taldi hann ekki
vera í 100 prósent æfingu eftir
meiðsli. Overmars kom þó inn á í
seinni hálfleiknum.
■ JAAP Stam, varnarmaður Hol-
lendinga, fékk slæman skurð unágp-
augabrún og var saumaður á vara-
mannabekknum. Rijkaard vonaðist
til að geta sent hann inn á völlinn
aftur en Stam reyndist of dasaður
og sá ekki nægilega vel að aðgerð-
inni lokinni. Stam sagðist þó vera
viss um að geta spilað gegn Dan-
mörku á föstudag.
■ FRAKKAR þykja sigurstrang-
legastir á EM eftir sannfærandi
sigur sinn á Dönum. Veðbankar
meta líkur þeirra 3:1 en Hollend-
ingar, sem léku illa gegn Tékkum,
em dottnir niður í annað sætið með
hlutfallið 11:3. Síðan koma Spáb-
verjar með 11:2 og ítalir með 13:2.
mRUUD GuIIit, HoUendingurinn
hárprúði, sagði um helgina að hann
hefði áhuga á að taka að sér knatt-
spyrnustjóm eða þjálfun á ný. Gull-
it hefur verið í fríi síðan hann hætti
störfum hjá Newcastle síðasta
haust en segir að Evrópukeppnir
hafi kveikt áhuga sinn á ný. fL
FRAKKAR og Hollendingar unnu
sína leiki í fyrstu umferð D-
riðilsins á sunnudaginn eins og
reiknað hafði verið með. Ólíkt
höfðust þessar þjóðir þó að;
Frakkar lögðu Dani á nokkuð
sannfærandi hátt, 3:0, á meðan
Hollendingar voru stálheppnir
gegn Tékkum og skoruðu sigur-
mark sitt úr umdeildri víta-
spyrnu á síðustu stundu.
Holland - Tékkland 1:0
Amsterdam, Hollandi, 11. júní.
Frank de Boer 89. víti. Áhorfendur: 50.833.
Holland: 1-Edwin van der Sar; 2-Michael
Reiziger, 3-Jaap Stam (13-Bert Konterman
73.), 4-Frank de Boer, 12-Giovanni van
Bronckhorst; 5-Boudwíjn Zenden (11-Marc
Overmars 78.), 6-Clarence Seedorf (16-
Ronald de Boer 57.), 7-Phillip Cocu, 8-Edg-
ar Davids; 9-Patrick Kluivert, 10-Dennis
Bergkamp.
Tékkland: 1-Pavel Smicek; 2-Tomas
Repka, 3-Radoslav Latal (13-Radek Bejbl
70.), 19-Karel Rada, 21-Petr Gabriel; 4-Pa-
vel Nedved (12-Vratislav Lokvenc 90.), 7-
Jiri Nemec, 8-Karel Poborsky, 11-Tomas
Rosicky; 10-Jan Koller, 17-Vladimir
Smicer (9-Pavel Kuka 83.)
Markskot: 11:10. Hom: 9:4.
Frank de Boer, fyrirliði Hollend-
inga, tryggði þeim 1:0 sigur á
Tékkum með marki úr vítaspymu á
síðustu stundu eftir að brotið var á
bróður hans, Ronald de Boer. Tékkar
voru afar óhressir með þann dóm,
Jiri Nemec virtist reyndar toga í
peysu Ronalds sem féll með miklum
tilþrifum í markteignum. „Þetta var
brot, hann togaði í mig, en ég viður-
kenni að hafa gert mikið úr byltunni,"
sagði Ronald de Boer eftir leikinn.
Hollendingar réðu ferðinni gegn
varnarsinnuðum Tékkum í fyrri hálf-
leik en í þeim síðari var nánast um
stórsókn Tékka að ræða allan tím-
ann. Pavel Nedved átti skot í innan-
verða stöngina og risinn Jan Koller
skallaði í þverslána á hollenska mark-
inu.
„Þetta er afar sárt tap og mjög
óréttlátt, og vítaspyman var hreint
hneyksli. Nokkrir minna manna há-
grétu í búningsklefanum eftir leik-
inn, þeir telja sig hlunnfarna en ég
hef fulla trú á því að þeir nýti sér það
með enn meiri ákveðni í næsta leik.
Dómgæslan var ótrúleg, dómarai'nir
reyndu meira að segja að stjóma inn-
áskiptingunum okkar,“ sagði Jozef
Chovanec, þjálfari Tékka.
Frank Rijkaard, þjálfari Hollend-
inga, sagðist sannfærður um að
vemdarengill hefði staðið á marklínu
sinna manna í leiknum. „Við vomm
mjög heppnir og erum hæstánægðir
með stigin þrjú. Öll lið þurfa heppni,
ég vona að sá hluti sé að baki hjá okk-
ur og við getum farið að spila okkar
D-RIÐILL
Frakkland - Danmörk 3:0
Brugge, Belgíu, 11. júní.
Laurent Blanc 16., Thierry Henry 64.,
Sylvain Wiltord 90. Áhorfendur: 29.000.
Frakkland: 16-Fabien Barthez; 15-Lilian
Thuram, 8-Marcel Desailly, 5-Laurent
Blanc, 3-BLxente Lizarazu; 17-Emmanuel
Petit, 7-Didier Deschamps (fyrirliði), 10-
Zinedine Zidane, 6-Youri Djorkaeff (4-
Patrick Vieira 58.); 12-Thierry Henry, 9-
Nicolas Anelka (13-Sylvain Wiltord 81.)
Danmörk: 1-Peter Schmeichel fyrirliði); 2-
Michael Schjönberg, 3-Rene Enriksen, 5-
Jan Heintze, 12-Sören Colding; 7-Allan
Nielsen, 15-Stig Töfting (20-Thomas Gra-
vesen 72.), 19-Morten Bisgaard (10-Martin
Jörgensen 72.), 8-Jesper Grönkjær, 9-Jon
Dahl Tomasson (21-Mikkel Beck 79.), 11-
Ebbe Sand.
Markskot: 13:7. Horn 5:9.
Reuters
Tékkinn Tomas Repka stekkur yfir hollenska miðherjann Patrick Kluivert til að skalla knöttinn.
fótbolta,“ sagði Rijkaard. Frakkar
sluppu reyndar með skrekkinn á
upphafsmínútunum gegn Dönum
þegar Jon Dahl Tomasson og Ebbe
Sand nýttu ekki upplögð færi. En eft-
ir að Laurent Blanc skoraði fyrir
heimsmeistarana í kjölfarið vora þeir
með imdirtökin og Thierry Henry og
Sylvain Wiltord bættu við mörkum.
Roger Lemerre, þjálfari Frakka,
var að vonum sáttur við sína menn.
„Það er ekki hægt annað en að vera
ánægður með 3:0 sigur á Dönum.
Þeir hefðu þó verðskuldað betri úr-
slit, þeir ollu okkur miklum vandræð-
um framan af leik. En heimsmeistar-
ar hafa jafnan sérstaklega mikla
löngun til að sýna sig og sanna," sagði
Lemerre.
Bo Johansson, þjálfari Dana, var
ekki hress með færin sem fóra for-
görðum í byrjun leiks. „Við lögðum
okkur alla fram og upphaf leiksins
var okkar besti kafli. Við reyndum
líka að auka hraðann í seinni hálfleik-
num en Frakkar vora skynsamir og
beittu skyndisóknum á okkur. Það
var einmitt þannig sem ég hélt að við
ættum mesta möguleika gegn þeim,
með því að nota skyndisóknir. Við
gerðum það sem við gátum og voram
ákveðnir í að sækja í stað þess að
leggjast í vöm. En Frakkar spiluðu
vel og það er ekki hægt annað en að
dást að leikmanni á borð við Zinedine
Zidane,“ sagði Johansson.
Peter Schmeichel, fyrirliði og
markvörður Dana, sagði að úrslitin
endurspegluðu ekki getumuninn á
liðunum. „Þeir náðu að skora og eftir
það gátu þeir beitt skyndisóknum, en
um það snýst knattspyman í dag.
Það er erfitt að lenda marki undir við
þær kringumstæður,“ sagði
Schmeichel.
„Barthez vakti okkur með því að
verja tvisvar á fyrstu 10 mínútunum.
Eftir það voram við betur stemmdir
og vissum að við gætum skorað hve-
nær sem er. Þetta var svo skemmti-
legur leikur að ég vildi ekki að hann
væri flautaður af. Við hlupum og sótt-
um boltann til að taka innköstin þó
við væram með forystuna í leiknum,"
sagði Zidane, sem var frábær á miðj-
unni hjá Frökkum.
Tyrkir sektaðir
E VRÓPSKA knattspymusambandið hefur sektað tyrkneska
knattspymusambandið um rúmar400.000 krónur vegna óláta
tyrkneskra áhorfenda.
Stuðningsmenn Tyrkja vom óánægðir þegar skoski dómarinn
dæmdi vítaspymu á Tyrki og létu hana í ljós með því að henda
fiöskum, kveikjumm og öðm lauslegu inn á völlinn. Þetta ætlar
UEFA ekki að Iíða og sektaði tyrkneska sambandið.
Fjöldi leikja U J T Mörk Stig
Frakkland 1 1 0 0 3:0 3
Holland 1 1 0 0 1:0 3
Tékkland 1 0 0 1 0:1 0
Danmörk 1 0 0 1 0:3 0