Morgunblaðið - 14.06.2000, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 B 15
KNATTSPYRNA
Þjálfarinn
skoraði
markið
MARGRÉT Ákadóttir, þjálfari
ÍA, var allt annað en ánægð
með að hafa deilt stigum með
Eyjastúlkum í 4. umferð
Landssímadeildar kvenna í
gærkvöldi. „Ég eralls ekki sátt
við það að fá ekki öll stigin
þrjú. Við fengum fullt af færum
til að gera út um leikinn í fyrri
hálfleik en náðum aðeins að
setja eitt,“ sagði Margrét, en
það var einmitt hún sem skor-
aði eina mark ÍA í leiknum,
með skalla eftir hornspyrnu.
Hjördís Halldórsdóttir jafnaði
leikinn fyrir ÍBV á 43. mínútu
og hafði undirtökin í leiknum lengst
af síðari hálfleiks.
. .. ... Þasr fengu kjörið
HMksdóttir tækifæri til að
skrifar tryggja sér stigin
þrjú þegar ÍA fékk
dæmda á sig vítaspymu á 63. mínútu
en Bryndís Jóhannesdóttir brenndi
af. Bryndís fékk síðan að líta rauða
spjaldið á 77. mínútu eftir að hafa
haft í frammi ósæmilegan munnsöfn-
uð við mótherja sinn.
Þrír gamalreyndir leikmenn komu
til liðs við IA í þessum leik, þær
Magnea Guðlaugsdóttir og systurn-
ar Steindóra og íris Steinsdætur
sem allar eru komnar aftur eftir
barneignaleyfi, auk þess sem Magn-
ea lék erlendis um tíma og þær syst-
ur léku báðar með RKV á síðasta
tímabili.
Stjörnuskin í Garðabæ
Stjaman vann öruggan 5:1 sigur á
botnliði FH í Garðabæ. FH-ingar
sem tefldu fram þremur enskum
leikmönnum náðu ekki að gera
Stjörnunni skráveifu og fylgja
Stjörnustúlkur KR eftir sem skugg-
inn á toppi deildarinnar, en hvoragt
liðið hefur tapað leik það sem af er
tímabilinu.
Elfa B. Erlingsdóttir kom Stjörn-
unni á bragðið á 15. mínútu með lag-
legu marki eftir stungusendingu frá
Steinunni H. Jónsdóttur og Steinunn
átti einnig heiðurinn af öðra marki
Elfu á 42. mínútu þegar hún sendi
boltann fyrir úr aukaspyrnu frá
hægri. Heiða Sigurbergsdóttir bætti
þriðja mai'ki Stjörnunnar við á 44.
mínútu.
Ásgrímur H. Einarsson og Arnar
Ægisson gerðu breytingu á liði sínu í
leikhléi. Þeir færðu Tammy Shriv-
ers, sem leikið hafði á miðjunni, aftur
í vörnina þar sem hún ásamt Lisu
Buckley og Leanne Hall markverði
náðu að halda aftur af sóknarmönn-
um Stjörnunnar en þeim tókst þó
ekki að koma í veg fyrir fjórða mark
þeirra, sem var sjálfsmark.
„Ég er þokkalega sáttur við ensku
leikmennina. Markvörðurinn er
mjög sterkur en hinar tvær eiga eftir
að komast betur í takt við liðið og lið-
ið í takt við þær. Það era auðvitað
vonbrigði að þama skuli ekki vera á
ferð leikmenn af sama styrkleika og
Sammy Britton og Karen Burke í
IBV, en það býr samt mikið í þessum
stelpum,“ sagði Arnar Ægisson,
annar þjálfara FH.
KR situr á toppnum
KR situr sem fastast á toppi deild-
arinnar með 12 stig eins og Stjaman
en KR-ingar hafa hagstæðara
markahlutfall. KR sigraði Þór/KA
5:1 á Akureyri.
Morgunblaðið /Amaldur
Markaskorari Blika, Erna Björk Sigurðardóttir, reynir að komast framhjá Rósu Júlíu Steinþórs-
dóttur, fyrirliða Vals. Erna skoraði fyrsta mark Breiðabliks með hörkuskoti.
Þriðja tap
Vals í röð
VALUR tapaði þriðja leiknum sínum í röð á íslandsmóti kvenna í
knattspyrnu er liðið tapaði 3:0 fyrir Blikum á heimvelii í 4. umferð
í gærkvöldi. Hafa Valsstúlkur aldrei byrjað íslandsmótið jafn illa
og eru nú í sjötta sæti með þrjú stig. „Ég á enga skýringu á þessu
slaka gengi,“ sagði Rósa Júlfa Steinþórsdóttir, fyrirliði Vals að
leikslokum. „Mórallinn er í fínu lagi, æfingarnar fínar og hópur-
inn því sem næst sá sami og undanfarin ár. Við höfum rætt mikið
um hvað getur verið að og erum staðráðnar í að vinna okkur út úr
þessu, en því miður hefur það ekki enn tekist,“ sagði Rósa enn-
fremur.
Leikur Vals og Breiðabliks var
fjörugur í fyrri hálfleik og
skemmtilegur á að horfa þar sem
bæði lið fengu ágæt færi.
Léttleikandi lið
[rís e Blika var meira
Eysteinsdóttir með boltann og
skrifar sýndi skemmtilega
takta í sóknarleik
sínum. Valsstúlkur sátu aftarlega
á vellinum, vörnin var þétt og þær
freistuðu þess að sækja í hraða-
upphlaupum.
Snemma leiks hóf Rósa eitt slíkt
upphlaup er hún vann boltann í
vörninni, gaf upp kantinn á Rakel
Logadóttur sem sendi laglega
sendingu fyrir markið á Hjördísi
Símonardóttur sem átti hörkuskot
rétt framhjá marki Blika.
Stuttu síðar átti Rakel
Ögmundsdóttir þrumuskot fram-
hjá Ragnheiði Jónsdóttur í marki
Vals en Rósa bjargaði naumlega á
línu. Um tíu mínútum síðar var
Rakel aftur á ferðinni þar sem hún
skallaði í slá af stuttu færi.
Valsvörnin lét svo loks undan á
33. mínútu þegar Erna Björk Sig-
urðardóttir fékk boltann hægra
megin í teig Valsstúlkna og skaut
bylmingsskoti í markið.
Stuttu fyrir leikhlé virtust Vals-
stúlkur líklegar til að jafna leikinn
þegar Hjördís átti fyrst hörkuskot
framhjá og síðan komst Ásgerður
Ingibergsdóttir ein í gegnum vörn
Blika en Þóra Helgadóttir mark-
vörður varði vel.
Blikastúlkur byrjuðu síðari hálf-
leikinn af miklum krafti og að
sama skapi virtist nokkur kraftur
úr Valsstúlkum.
Það kom því ekki á óvart er
Rakel Ögmundsdóttir stökk hæst
allra í teig Vals og skallaði bolt-
ann í markið eftir hornspyrnu
Laufeyjar Ólafsdóttur. Aðeins 7
mínútum síðar bættu Blikastúlk-
ur þriðja markinu við er Hrefna
Jóhannesdóttir skaut þrumu-
skoti af 25 metra færi yfir Ragn-
heiði í markinu og efst í mark-
netið.
Blikastúlkur voru líklegri til að
bæta við marki það sem eftir lifði
leiks heldur en Valur að minnka
muninn og áður en yfir lauk
skaut Laufey Ólafsdóttir í stöng
Vals. Valsstúlkur reyndu þó að
klóra í bakkann á lokamínútunni
þegar Erla Dögg Sigurðardóttir
skallaði rétt yfir markið af stuttu
færi.
Blikastúlkur voru betri aðilinn í
leiknum og sigurinn því sanngjarn.
Boltinn gekk vel á milli manna og
ungu stúlkurnar í liðinu voru afar
sprækar. Blikastúlkan Rakel var
besti leikmaður vallarins en ásamt
henni voru þær Erna Björk, Hjör-
dís Þorsteinsdóttir og Hrefna
einnig góðar í annars mjög jöfnu
liði Blika.
Valsstúlkur hófu leikinn ágæt-
lega en þær misstu móðinn er á
leið. Oft á tíðum leit út fyrir að
leikmenn hefðu ekki fulla trú á því
sem þeir vora að gera þar sem
skot vora fá og einfaldar sending-
ar fóra oft forgörðum. Hjá þeim
voru þær Erla Dögg, Rósa Júlía
og Ásgerður ágætar.
Júlíus aftur til Leifturs
LEIFTURSMAÐURINN Júlíus
Tryggvason var lánaður til síns
gamla félags, Þúrs, í byijun tíma-
bils þar sem hann átti við lítilleg
meiðsli að stríða. Nú er Júlíus
kominn aftur í Iið Leifturs og átti
ágætan leik gegn ÍBV á Iaugar-
dag þar til hann neyddist til að
fara af velli í lok leiks þar sem
hann meiddist aftur.
„Ég tognaði aftan á læri. Ég
ætla rétt að vona að ég geti verið
með í næsta Ieik. í sjálfu sér get-
um við alveg verið sáttir við þetta
stig. Með smá heppni hefðum við
getað stolið sigrinum,"
Hvemig fhmst þér liðinu hafa
gengið hingað til?
„Þetta er ekki núgu gott og
veldur mér miklum vonbrigðum
en menn verða bara að taka sig á,
það eru margir leikir eftir. Auð-
vitað er þetta erfítt að byija svona
en menn verða bara að sýna kar-
akter og rífa sig upp. Ég trúi því
að liðið þurfi að vinna einn leik og
þá kemur sjálfstraustið, við þurf-
um bara að hafa trú á þessu.“
Bakvörður
til reynslu í
Eyjum
SVETLANA Balinskaya,
knattspyrnumaður frá
tíkraínu, kom til Eyja í
fyrradag og mun hún
dvelja til reynslu hjá lið-
inu í 10 daga. „Ef okkur
líst vel á hana þá verður
hún út tímabilið," sagði
Heimir Hallgrímsson
þjálfari Eyjastúlkna og
bætti við að hann vissi
ekki mikið um hæfni hins
nýja leikmanns.
Balinskaya á tvo Jands-
leiki að baki fyrir tíkra-
ínu. Hún er 31 árs og leik-
ur stöðu bakvarðar.
r
Katrín skoraði
í sigurieik
LANDSLIÐSMAÐURINN Katrín
Jónsdóttir, sem leikur með norska
liðinu Kolbotn, skoraði eitt mark í
4:1 sigri á Grand-Bodö um helgina.
Katrín var felld í vítateig andstæð-
inganna, tók spymuna sjálf og skor- «
aði örugglega.
Um þessar mundir leikur Katrín
ýmist á miðjunni eða í framlínu liðs-
ins en henni hefur gengið afar vel á
tímabilinu og skorað 11 mörk. Kol-
botn er í toppbaráttu norsku úrvals-
deildarinnar og er Katrín fyrirliði
um þessar mundir.
Sævar Þór og
Kekic í tveggja
leikja bann
FYLKISMAÐURINN Sævar Þór
Gíslason og Grindvíkingurinn Sinisa
Kekic, sem fengu að sjá rauða
spjaldið í leikjum helgarinnar, vora í
gær úrskurðaðir í tveggja leikja
bann á fundi aganefndar KSÍ.
Þá vora þrír leikmenn liðs Selfyss-
inga, Magnús Karl Pétursson, Mika-
el Nikulásson og Nikolic Miroslav
úrskurðaðir í eins leiks bann vegna
brottvísunar, en þeir vora allir rekn-
h’ af leikvelli í leik gegn KVA um
helgina í 2. deild. Þá var Selfoss sekt-
að um sextán þús. kr.
ÚRSLIT
Landssímadeildin
(Efsta deild kvenna)
Þdr/KA- KR 1:5.......................
Kristín Gísladóttir - Embla Grétarsdóttir
2, Guðlaug Jónsdóttir 2, Olga Færseth.
Stjarnan - FH 5:1....................
Elfa B. Erlingsdóttir (15., 42.), Heiða Sig-
urbergsdóttir (44.), Justine Lorton (90.)
sjálfsmark - Hanna G. Stefánsdóttir (88.)
ÍA - ÍBV 1:1.........................
Margrét Ákadóttir (30.) - Hjördís Hall-
dórsdóttir (43.)
Valur - Breiðablik 0:3...............
Ema B. Sigurðardóttir, Rakel Ögmunds-
dóttir, Hrefha Jóhannesdóttir.
FJöldl lelkja J T Mörk Stlg U
KR 4 4 0 0 21:3 12
Stjaman 4 4 0 0 14:1 12
Breiðablik 3 2 0 112:3 6
ÍBV 3 1 1 1 4:4 4
ÍA 4 1 1 2 6:17 4
Valur 4 i 0 3 3:6 3
Þór/KA 4 0 1 3 3:13 1
FH 4 0 1 3 4:20 1
Coca Cola-bikarinn
(Bikarkeppni KSÍ)
32-liða úrslit:
Fram 23 - FH.......................1:4
Viðar Guðjónsson - Bjami Þór Pétursson
(sjálfsmark), Jón Stefánsson, Hörður
Magnússon, Jónas Grani Garðarsson.
Jafntefli gegn Svíum
ÍSLAND og Svíþjóð gerðu jafntefli, 1:1, í
vináttulandsleik kvenna 21 árs og yngri á
Akranesi á laugardaginn. Rakel Logadóttir
kom íslandi yfir um miðjan fyrri hálfleik en
sænsku stúlkumar jöfnuðu metin í upphafi
síðari hálfleiks. »