Morgunblaðið - 20.06.2000, Síða 14
14 C ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
Sudurlandsskjálftar
MORGUNBLAÐIÐ
Suðurland hefur oft beðið mikið afhroð í landskjálftum
Talið að bæir hafí fallið 17
sinnum á Rangárvöllum
Sagan sýnir að skjálftar
á Suðurlandi koma
gjarnan saman margirí
runu. Slíkar skjálftarun-
ur viröast ganga yfir einu
sinni til tvisvar á öld og
geta staðið í nokkra
daga og allt upp í fáein
ár. Oft byrjar runa með
tiltölulega miklum
skjálfta austarlega á
svæðinu, en síðan
verða minni skjálftar
vestar. Fyrr á öldum varð
verulegt manntjón í land-
skjálftunum en á síð-
ustu öldum hefur
það verið lítið, ótrúlega
lítió, miöað við lýsingar
á hamförunum.
ENGINN hluti landsins hefur orðið
fyrir jafnmörgum og hörðum land-
skjálftum, sem sögur fara af, og und-
irlendi Suðurlands. Á öllum öldum
hafa þeir gert miMð tjón á húsum,
mönnum og fénaði og svo mun enn
verða, segja jarðeðlisfræðingamir
Sveinbjöm Bjömsson og Páll Einars-
son í jarðskjálftakafla ritsins Náttúm
íslands (1985).
Nú á dögum em hús þó til muna
traustari en áður, og því getum við
vænst þess að líkur á manntjóni séu
minni, segir í ritgerðinni en þar segir
- einnig: Hins vegar er það nokkurt
áhyggjuefni, að með breyttum at-
vinnuháttum hefur víða byggst upp
þéttbýli á landskjálftasvæðum og
hætta á eignatjóni er að líkindum
meiri en fyrr á öldum.
Skjálftarunur geta
varað fáein ár
Skjálftar á Suðurlandi koma gjam-
an margir saman í ranu. Slíkar
skjálftarunur virðast ganga yfir einu
sinni til tvisvar á öld, og geta staðið í
nokkra daga og allt upp í fáein ár. Oft
byrjar runa með tiltölulega miklum
skjálfta austarlega á svæðinu, en síð-
an verða minni skjálftar vestar. Þessi
færsla á skjálftavirkni er til dæmis
greinileg á skjálftaranunum 1732-34,
1784 og 1896.
Suðurland hefur oft beðið mikið af-
hroð í landskjálftum. Það era einkum
tvö svæði, sem oftast hafa orðið illa
úti. Annað er Ölfus, Grímsnes og
vestanverður Flói. Hitt er Land og
Rangárvellir. Öraggt er, telja Svein-
bjöm Bjömsson og Páll Einarsson,
að í Ölftjsi hafa bæir hrunið í jarð-
skjálftum fjórtán sinnum á átta öld-
um og líklegt að það hafi gerst nítján
sinnum. Síðan um 1700 hafa sex jarð-
skjálftar þar haft áhrif sem nemur
VIII stigum eða meira. Svipað er að
segja um Rangárvelli. Þar hafa bæir
öragglega fallið tólf sinnum á átta
öldum, og þó líklega sautján sinnum,
og þar hafa að minnsta kosti fimm
skjálftar síðan um 1700 haft áhrif sem
metin era VIII stig.
Elstu ritaðar heimildir eru fáorðar
um jarðskjálfta. í nokkram ritum er
Þjóðmiry'asafnið/LjÓ8myndasafn Sigfúsar Eymundssonar
Þúsundir húsa hrundu í Suðurlandsskjálftanum 1896. Á þessari mynd sem tekin er á Gljúfurholti í Ölfusi eftir skjálftana sjást mæðgurnar Margrét Jónína
Hinriksdóttir og Ingibjörg Bessadóttir. Myndin er kölluð fyrsta íslenska fréttaljósmyndin, tekin af Daníel Daníelssyni starfsmanni Sigfúsar Eymundssonar.
þó stuttlega minnst á skjálfta, meðal
annars að 1164 hafi orðið landskjálfti í
Grímsnesi og nítján menn látist. Fyrr
á öldum því verulegt manntjón af
völdum jarðskjálfta. Á verðlauna-
vefnum, Náttúrahamfarir & mannlíf
(www.islandia.is/hamfarir) sem nem-
endur Menntaskólans við Simd gerðu
1996 er birtur annáll Suðurlands-
skjálfta og er listinn sem fylgir þess-
ari grein unninn upp úr honum. Á list-
anum sést að tiltölulega fáir hafa
látist í Suðurlandsskjálftum síðustu
alda, í raun ótrúlega fáir miðað við
lýsingar á hamforanum. Rétt er að
geta þess að tekið er fram í skýring-
um við annálinn að heimildir um
skjálftana allt til 17. aldar eru taldar
femur óljósar og óáreiðanlegar og
ekki ólíklegt að einhverja skjálfta
vanti í heimildir.
Mestu skjálftar sem komið hafa
Skjálftamir árið 1784 era lfldega
mestu skjálftar sem komið hafa síðan
land byggðist. Eftirfarandi frásögn
er byggð á jarðskjálftakaflanum úr
Náttúra íslands. Fyrsti skjálftinn
kom 14. ágúst, síðari hluta dags, og er
stærðin áætluð 7,5 stig á Richters-
kvarða. Upptök hans vora nálægt
Vörðufelli á Skeiðum. Þessi skjálfti
Þjóðminjasafnið/Ljósmyndasafn Sigfúsar Eymundssonar
Þótt þekjur og stafnar hafi verið uppistandandi á bænum Arnarbæli eftir jarðskjálftana 1896 voru allir veggir hrund-
ir svo ekki varð hægt að komast um bæinn. Sjá má hvernig veggirnir milli bæjardyra, baðstofu og skemmu hafa
kastast fram á hlaðið.