Morgunblaðið - 20.06.2000, Page 16

Morgunblaðið - 20.06.2000, Page 16
'16 C ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 Suðurlandsskjálftar MORGUNBLAÐIÐ Stóri jaróskjálftinn átti upptök undir Kaldárholti. Hægra megin á myndinni, vid ána, er borhola hitaveitu Rangæinga. Jarðskorpan á Suðurlandi er öll á iði eftir þjóðhátíðarskjálftann Gert ráð fyrir öflug- um skj álftum vestar Jarðskorpan á Suöurlandi eröll á iöi vegna eftirskjálfta stóra þjóöhátíöarskjálftans sem varö í vestanverðri Rangárvallasýslu. Vís- indamenn eiga von á fleiri stórum skjálftum, vestar á Suöurlandi, en gera þó heldur ráö ^ fyrirað þeirveröi aflminni en sáfyrsti. LANDSKJÁLFTINN sem varð á Suðurlandi á þjóðhátíðardaginn átti upptök sín í Holtum. Hann er talinn hafa verið 6,5 á Richter. Páll Einarsson, prófessor í jarðeðlis- fræði við Háskóla íslands, telur að skjálftinn hafi orðið á sama mis- genginu og olli upphafi landskjálft- anna 1784 en þeir eru taldir stærstu jarðskjálftar sem gengið hafa yfir landið á sögulegum tíma. Síðan á þjóðhátíðardaginn hefur » orðið vart við fjölda minni skjálfta um allt Suðurland og Reykjanes og telja vísindamenn að gera megi ráð fyrir stórum skjálftum í framhald- inu, þó væntanlega ekki eins stór- um og þeim fyrsta. Jarðskjálftinn varð klukkan 15.40 á þjóðhátíðardaginn. Upptök hans eru talin vera í Holtum í vest- anverðri Rangárvallasýslu og segir Páll Halldórsson, jarðeðlisfræðing- ur hjá Veðurstofu íslands, að upp- tökin liggi um Kaldárholt. Mæli- kerfi Veðurstofunnar gaf upp að stærð skjálftans væri á bilinu 5,5 til 6 og gaf Veðurstofan það út í upphafi. Síðar um daginn bárust Morgunblaðinu fréttir af þýskum jarðskjálftavef og frá Jarðvísinda- stofnun Bandaríkjanna þess efnis að skjálftinn hefði mælst 6,6 stig og staðfesti Veðurstofan þær mæl- ingar um kvöldið. Fram kom í til- kynningu frá Veðurstofunni að jarðskjálftinn væri samsettur úr tveimur skjálftum, tveimur mínút- um á eftir fyrsta skjálftanum hefði komið annar, 5,3 að stærð, og átt upptök 8,5 km austur af Þjórsár- brú. Páll Halldórsson segir að skjálft- amir hafi birst á tækjum Veður- stofunnar sem þrír kippir, 5,5-6 að stærð. Hann segir að fyrstu út- reikningar Veðurstofunnar á stærð skjálftans hafi út af fyrir sig verið réttir, miðað við aðferðina sem not- uð var. Hins vegar væra margar aðferðir notaðar við að meta stærð skjálfta. Talið væri henta betur að mæla stóra skjálfta út frá yfir- borðshreyfingum enda gæfi sú að- ferð betri samanburð við eldri skjálfta. Stöðvar í nágrenni skjálftasvæðanna væru ekki stillt- ar inn á það, að meta skjálfta sem væru yfir 6 á Riehter en það gætu stöðvar gert sem væru langt í burtu eins og reyndin hefði orðið að þessu sinni. Hann nefndi að stærð stórra skjálfta væri einnig mæld með vægisaðferð, þar sem reiknað væri út hversu stórt svæði færðist til og hversu mikið. Sú að- ferð hefði gefið svipaða niðurstöðu og mat á yfirborðsbylgjum. Niðurstaða Veðurstofunnar er 6,5 og samkvæmt því hefur þjóðhá- tíðarskjálftinn verið talsvert af- iminni en síðustu Suðurlands- skjálftar. Þannig er skjálftinn 1784 áætlaður 7,5 stig á Richterskvarða og landskjálftarnir 1896 eru áætl- aðir 7-7,5. Síðasti jarðskjálftinn, árið 1912, var um 7 stig. Forboða leitað Veðurstofan og Raunvísinda- stofnun Háskólans hafa unnið mik- ið að rannsóknum á jarðskjálfta- svæðunum á Suðurlandi. Vitað er að einhverjir jarðskjálftar voru í Holtum fyrir stóra skjálftann en Páll Halldórsson segir að ekkert óvenjulegt hafi verið á ferðinni, að minnsta kosti hafi menn ekki áttað sig á neinum forboðum þess sem á eftir kom. Vandinn væri að fylgjast með forboðum þegar menn vissu ekki eftir hverju þeir væru að leita. Páll Einarsson tekur í sama streng. Báðir segja þeir að nú verði farið ýtarlega yfir öll gögn um ferl- ið áður en skjálftinn kom og leitað með logandi ljósi að því hvort þar finnist einhverjir forboðar sem gætu nýst til að vara við sambæri- legum atburðum, meðal annars fleiri hugsanlegum stórskjálftum á Suðurlandi á næstunni. Meðal ann- ars er fylgst með því hvernig smá- skjálftarnir raða sér til að reyna að átta sig á spennunni í jarðskorp- unni. Markmiðið er klárt en Páll Morgunblaðið/HaUdór Kolbeins Halldórsson viðurkennir að ekki sé sennilegt að það takist að spá fyrir um hvenær næsti stóri skjálfti verði, frekar væru líkur til þess að hægt yrði að áætla hvar hans væri helst von. Spáin rættist Páll Einarsson fjallaði um jarð- skjálftaspár í grein sem birtist í Náttúrufræðingnum árið 1985 og spáði sjálfur: „Meira en 80% líkur eru til þess að á næstu 25 árum gangi meiri háttar jarðskjálftar yf- ir Suðurlandsundirlendi. Jarð- skjálftarnir hefjast líklega á aust- urhluta skjálftasvæðisins með kipp að stærð 6,3-7,5, en á næstu dög- um, mánuðum eða árum færist skjálftavirknin vestur á bóginn, um Skeið, Grímsnes, Flóa eða Ólfus.“ Allt sem enn er komið fram bendir til þess að þessi spá sé að rætast fullkomlega. Páll segir að jarðskjálftaspáin hafi miðast við að upphafsskjálftinn tengdist mis- genginu sem varð til við upphaf Suðurlandsskjáifta árið 1784 en það eru líklega almestu skjálftar sem komið hafa síðan land byggð- ist. Víða á Suðurlandi eru sjáanlegar á yfirborðinu sprungur frá eldri Suðurlandsskjálftum og hefur Páll verið að rannsaka og kortleggja þær. Sprungurnar raða sér í aflöng kerfi sem yfirleitt stefna norður og suður, þvert á flekamótin sem valda spennunni. Sprungurnar gefa væntanlega til kynna legu misgengisins sem skjálftanum olli. Páll Einarsson segir að miklar lík- ur séu á því að jarðskjálftinn nú sé í sama misgenginu og stóri skjálft- inn 1784 en tekur fram að eftir sé að staðfesta það endanlega með rannsóknum. Áður en lengra er haldið er rétt að gera grein fyrir ástæðum jarð- skjálftanna í stuttu máli. Spenna hleðst upp af því yfir Suðurland

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.