Morgunblaðið - 28.07.2000, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 28.07.2000, Qupperneq 4
i 4 D FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ + TVEIR Ameríkumenn standa á hafnarbakkanum við Austurbugt og virða fyrir sér seglskútumar sem þar ligga við festar. Jack Conn- olly frá Viginíu-ríki segir blaðamanni í óspurðum fréttum að sjálfur stundi hann siglingar í sínu heimalandi. „Hann er nokkuð hvass núna,“ segir hann ennfremur. „Þú verður að fara varlega ef þú ert byrjandi. Halda þér í eitthvað með annarri hendi og vinna með hinni. Og passaðu þig á bóm- unni. Það er ekkert þægilegt að fá hana í hausinn en gullna reglan er þessi: Haltu vatninu fyrir utan bát- inn og sjálfum þér fyrir utan vatnið.“ Félagi hans hlær og Connolly færist allur í aukana. „Önnur góð regla er að ef þú elskar siglingar skaltu ekki kaupa bát. Nældu þér í vin sem á bát.“ Með þessa speki í veganesti knýr blaðamaður dyra á félagsheimili Siglingafélags Reykjavíkur - Brok- eyjar, sem er í gamla húsinu við hafn- arbakkann og er kallað „Batteríið“ til minningar um virkið sem Jörundur hundadagakonungur lét reisa til vamar í Reykjavík árið 1809. Þar em fyrir Jón Rafn Sigurðsson, eigandi og skipstjóri seglskútunnar Blæs og sonur hans, Ingólfur Rafn, sem einn- ig á í skútunni, þaulvanur siglinga- maður og „fyrsti stýrimaður" í þeirri ferð sem framundan er. Þeir feðgar hafa góðfúslega fallist á að taka blaðamann og ljósmyndara með í siglingu um sundin blá, svona rétt til að gefa innsýn í um hvað siglinga- sportið snýst. Þeir em báðir virldr félagsmenn í Brokeyju og Jón Rafn er þar reyndar stjómarmaður. Náið samstarf Siglingafélag Reykjavíkur - Brok- ey á og rekur flotbryggjumar við Austurbugt, þar sem að jafnaði liggja 24 seglskútur, en Jón Rafn segir leguplássið taka um 33 skútur. Náið samstarf er á milli siglinga- klúbbanna á suðvesturhominu, Brokeyjar úr Reykjavík, Ýmis úr Kópavogi, Þyts frá Hafnarfirði og Knarrar í Reykjanesbæ. Skútur frá hinum klúbbunum liggja til dæmis oft við festar í Reykjavíkurhöfn og öfugt. Auk þess em siglingakiúbb- amir hér heima í sambandi við sam- svarandi klúbba erlendis bæði hvað varðar miðlun upplýsinga og gagn- kvæma aðstoð ef svo ber undir. Að sögn Jóns Rafns átti Brokey til dæm- is afar ánægjulegt samstarf við •franska siglingaklúbba i tengslum við „Paimpol - Reykjavík - Paimpol“ siglingakeppnina fyrr í sumar. DAGLEGT LÍF Feðgamir Jón Rafh Sigurðs- son og Ingólf- ur Rafn, skipsstjórnar- menn á Blæ. Svifið seglum þöndum um sundin blá. Um 300 manns era skráðir í Brok- ey, þar af á annað hundrað manns virkir félagar þegar tekið er mið af öllum deildum félagsins. „Starfsemin skiptist í nokkrar deildir," segir Jón Rafn um starfsemi Siglingafélags Reykjavíkur. „Kjöl- bátadeildin er fyrir þá sem sigla á þessum stærri seglskútum, sem em hér í höfninni. Kænudeildin er starf- rækt í Nauthólsvík og þar höfum við litlar skútur sem era hentugar fyrir krakka. Krakkamir vaxa upp úr kænunum svona um tvítugt og vilja þá fara að sigla stærri bátum. Róðra- deildin er einnig starfrækt í Naut- hólsvík og hún er mjög virk, það er að segja kappróðradeildin, þar sem koma saman krakkar og æfa allt upp í fjómm sinnum í viku. Það væri al- veg þess virði að fjalla um kapp- róðradeildina í sérstakri grein að mínum dómi,“ segir Jón Rafn. Hann getur þess ennfremur að félagið eigi báta, sem það leigir út eða lánar mönnum til að prófa sig áfram í sigl- ingasportinu áður en þeir taka ákvörðun um að fjárfesta í bát. „Kjölbátadeildin stendur fyrir æf- ingum og keppnum og má meðal ann- ars nefna svokallaða „æfinga- keppni“, sem er jafnan haldin á hverju þriðjudagskvöldi á sumrin. Þá setjum við upp mark og siglum í kringum baujur til æftnga fyrir aðal- keppnimar, sem em nokkrar á ári. Klúbbarnir skiptast á um að halda keppnimar, en það verður að segjast eins og er að við siglingamenn emm ekki mjög sýnilegir í fjölmiðlum og okkur finnst stundum að það mætti sýna þessari íþrótt meiri áhuga,“ segir Jón Rafn þegar talið berst að siglingakeppnum, sem haldnar era hér á landi. Hann nefnir sem dæmi hina árlegu Faxaflóakeppni, þar sem siglt er upp á Akranes, gist þar eina nótt og siglt svo aftur í bæinn. „Um þessa keppni, ekki frekar en aðrar sem haldnar era hér á landi, er lítið sem ekkert fjallað í fjölmiðlum. Skýringin er kannski sú að við notum sér í hlutverk háseta á seglskútunni Blæ og sigldu um sundin blá með begg;ia skauta byr. kostar ekk Daglegt líf heldur nú áfram umfjöllun um sjósport á Islandi. I þetta sinn brugðu Sveinn Guðjónsson og Gulldrengirnir á Sygin: Hafsteinn Ægir Geirsson, Snorri Valdimarsson skipstjóri, Friðrik Örn Guðmundsson og Ármann Kajic Jónsson. Guildrengirnir fyrstir 1 mark Kúnst að beisla byrínn LÖGGIR vegfarendur, sem leið eiga um Skúla- götu um kvöldmatarleyt- ið á þriðjudögum, hafa ef til vill tekið eftir óvenju- mörgum skútum, sem sigla þönd- um seglum á sundunum. Þarna eru á ferð siglingakappar í æf- ingakeppni á vegum Brokeyjar, Siglingafélags Reykjavíkur. Ein slik var haldin síðastliðinn þriðju- dag og tóku níu seglskútur þar þátt. Keppnisstjóri var Jóhann Hall- varðsson, en hann hefur verið í því hiutverki í fjölmörg ár enda öllum hnútum kunnugur þegar siglingar eru annars vegar. Hon- um til aðstoðar að þessu sinni voru feðgamir Jón Rafn Sigurðs- son og Ingólfur Rafn Jónsson, en á meðan keppni fór fram voru keppnisstjóri og aðstoðarmenn hans staðsettir í „s1jómstöð“ í skútunni Blæ, sem lá við ankeri skammt frá markbaujunni. Keppnin fer þannig fram að keppnissljóri ákveður brautina sem siglt er eftir. Á ákveðnum stað er komið fyrir startbauju, þar sem keppni hefst og svo markbauju, þar sem keppni lýkur. Brautin er svo lögð eftir vind- stefnu hverju sinni og farið eftir vissum reglum. Að þessu sinni ákvað Jóhann keppnisstjóri að lagt, skyldi af stað á sundinu milli Viðeyjar og Engeyjar og siglt vestur og norður fyrir Engey, um 6 sjómílna leið, og endað skammt undan landi á móts við gamla Ut- varpshúsið. Rjómalogn var þegar keppnin fór fram, ekki nema 1 til 2 vindstig og alveg á mörkunum að hægt væri að keppa. Það þarf þó ekki mikinn byr til, svo þetta hafðist allt saman. Keppnisstjóri og aðstoðarmenn hans voru sam- mála um að erfiðara væri að keppa við þessar aðstæður, og reyndi meira á Iagni og út- sjónarsemi keppenda í litlum byr. Þar sem seglbátarnir eru mis- stórir og með mismunandi mikil segl er reiknuð út forgjöf á bát- ana og er það gert einu sinni á ári af fyrirtæki úti í Bretlandi sam- kvæmt ákveðnum Evrópustaðli. Reglunum er breytt á hverju ári til þess að menn geti ekki smíðað sér báta eftir staðlinum. Sjólína bátanna er mæld, bátarnir vigtað- ir og seglaflötur mældur og reikn- aður út og eftir því er forgjöfin gefin. Bátur sem er 38 fet siglir mun hraðar, hefur lengri sjólínu og meiri segl en bátur sem er kannski ekki nema 24 fet. For- gjöfin gerir því að verkum að sigur- vegarinn er ekki endilega sá sem er fyrstur í mark. Erlendis er bát- um gjarnan skipt niður í flokka eftir stærð og þyngd, það -ÍBS! k ezo«. i +

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.