Morgunblaðið - 09.08.2000, Blaðsíða 1
wngpntilritoMfe
STOFNAÐ 1913
178. TBL. 88. ARG.
MIÐVIKUDAGUR 9. AGUST 2000
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Flugslys í Skerjafirði • Bílslys í Eyjafirði • Drukknun í Lóni
Fimm látnir og þrír
í lífshættu eftir
slys helgarinnar
ÞRÍR létust og þrennt liggur þungt haldið á sjúkrahúsi eft-
ir að eins hreyfils flugvél af gerðinni Cessna 210 Centaurion
II hrapaði í sjóinn í Skerjafírði, rétt vestan við Nauthólsvík,
kl. 20.36 á mánudagskvöld. Þá lést þýsk kona í umferðar-
slysi skammt frá Þelamörk í Eyjafírði á sunnudag þegar
rúta lenti í hörðum árekstri við bifreið sem kom úr gagn-
stæðri átt. A sunnudag drukknaði sex ára drengur í tjörn í
sumarbústaðalandi Hornfírðinga í Stafafellsfjöllum í Lóni.
TF-GTI, flugvél Leiguflugs ísleifs
Ottesen, var að koma írá Vestmanna-
eyjum til Reykjavíkur með fimm far-
þega innanborðs, auk flugmanns.
Vélin var á lokastefnu yfír Tjörninni
fyrir lendingu á braut 20 á Reykja-
víkurflugvelli þegar flugmaður henn-
ar fékk fyrirmæli um að hætta við
lendingu og fara einn hring, þar sem
önnur flugvél væri á flugbrautinni.
Flugmaðurinn flaug því yfir brautina
og hækkaði flugið og tók síðan hægri
beygju er vélin kom að Skerjafirði.
Þegar hún var komin yfir fjörðinn til-
kynnti flugmaðurinn vélarbilun og
örskömmu síðar, eða kl. 20.36, skall
hún í sjóinn. Virðist sem vélin hafi
skyndilega misst afl og hrapað við
það í sjóinn.
Björgunarsveitir voru þegar send-
ar á vettvang og komu fyrstu björg-
unarmenn að slysstað aðeins örfáum
mínútum eftir að vélin fór í sjóinn.
Greiðlega gekk að kafa niður að vél-
inni og voru fimm af sex komnir í land
kl. 21.05. Allt var fólkið, fjórir karl-
menn og ein kona, án meðvitundar en
einum tókst ekki að bjarga strax úr
flaki vélarinnar. Báru lífgunar-
tilraunir árangur á þremur, tveimur
sautján ára drengjum og tvítugri
stúlku, en hinir þrír voru úrskurðaðir
látnir. Voru það allt karlmenn, fædd-
ir 1965,1971 og 1977, og var flugmað-
ur vélarinnar þeirra á meðal.
Hinir slösuðu liggja á Landspítala
- háskólasjúkrahúsi í Fossvogi og við
Hringbraut og eru taldir í lífshættu.
A1 Gore velur
Joseph Lieberman
„Eftirlætis
demókrat-
inn okkar“
Nashville, Washington. Reuters, AFP.
AL Gore, væntanlegur forseta-
frambjóðandi Demókrataflokksins
í Bandaríkjunum, tilkynnti form-
lega í gær að hann hefði valið
Joseph Lieberman öldungadeild-
arþingmann til þess að verða
varaforsetaefni flokksins. Gore og
Lieberman komu fram á útifundi í
Nashville í Tennessee-ríki
síðdegis í gær.
Lieberman er fyrsti gyðingur-
inn sem er í forsetaframboði fyrir
stóru flokkana tvo í Banda-
ríkjunum. „Ég get ekki lýst með
orðum því þakklæti sem ég fyllist
fyrir að fá að verða fyrsti banda-
ríski gyðingurinn sem er í fram-
boði til varaforseta fyrir stóran
flokk,“ sagði hann.
Samkvæmt skoðanakönnunum
sem gerðar voru eftir að óform-
lega var tilkynnt um valið á
mánudag hefur Gore saxað veru-
lega á forskotið sem for-
setaframbjóðandi Repúblikana-
flokksins, George W. Bush, hafði í
fyrri könnunum og segjast nú
45% ætla að kjósa Bush og 43%
Gore. í síðustu viku var forskot
Gore og Lieberman í Nashville.
Bush um 17%. Bandarisk blöð
Iýstu í gær ánægju sinni með val-
ið á Lieberman og sagði Wall
Street Journal að hann væri „eft-
irlætis dcmókratinn okkar“. Gore
minntist þess þegar John F. Kenn-
edy var útnefndur forsetaefni
demókrata en hann varð fyrsti
kaþólski forseti Bandarfkjanna.
Lieberman sagði í Nashville í
gær að sumir myndu kannski lýsa
útnefningunni sem „chutzpa" sem
er jiddískt orð sem kannski mætti
helst þýða á íslensku sem „aðdá-
unarverð óskammfeilni".
■ Gore vill fjarlægjast/28
Þeim er haldið sofandi í öndunarvél.
Engar upplýsingar fást frekar um
líðan þeirra.
Hjördís Thors, sem býr í Skild-
inganesi, sá þegar flugvélin flaug út á
hlið og lenti síðan í sjónum skammt
undan ströndinni. „Ég sá út um
gluggann að vélin kom í mjög ein-
kennilegri stefnu yfir þveran endann
á flugbrautinni þar sem verið er að
gera við, yfir húsin hérna í Skildinga-
nesi, og þegar ég sé hana er hún
þannig að vinstri vængurinn snýr al-
veg niður og sá hægri alveg upp í loft.
Hún var sem sagt alveg á hliðinni.
Síðan fer hún fram á nefið og þannig
skall hún beint ofan í sjóinn."
Flugmálastjórn vinnur nú að því að
safna saman öllum þeim gögnum sem
varpað gætu Ijósi á tildrög slyssins.
Meðal gagnanna er skrá yfir það sem
fór á milli flugtums og flugmanns
vélarinnar fyrir slysið, ratsjárgögn
og annað sem tengist flugi vélarinn-
ar. Að þessari vinnu lokinni verða
rannsóknarnefnd flugslysa afhent
gögnin en nefndin fer nú með rann-
sókn málsins.
I yfirlýsingu hennar í gær kom
fram að rannsókn á slysinu hafi þeg-
ar hafist og muni standa yfir næstu
daga. Niðurstöðu sé hins vegar ekki
að vænta fyrr en eftir nokkrar vikur.
■ Missti/36
Morgunblaðið/Kristinn
Flak vélarinnar híft upp
FLAK flugvélarinnar TF-GTI híft
af botni Skerjafjarðar, rétt vestan
Nauthólsvíkur á tólfta tímanum á
mánudagskvöld. Krani á köfunar-
pramma var notaður til verksins og
var prammanum síðan siglt til hafn-
ar í Kópavogi þar sem flakið var af-
hent rannsóknarnefnd flugslysa.
Sjö manns fórust í sprengjutilræði í miðborg Moskvu
Tsjetsjenskir upp-
reisnarmenn grunaðir
Moskvu. AP, Reuters.
SJÖ manns fórust og 51 slasaðist er
sprengja sprakk í undirgöngum við
Púskhín-torg í miðborg Moskvu í
gær. Lögregla telur að um hryðju-
verk hafi verið að ræða. Grunur leik-
ur á að tsjetsjenskir uppreisnar-
menn hafi staðið að tilræðinu.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands,
boðaði í gærkvöldi til neyðarfundar
með yfirmönnum öryggismála í land-
inu vegna atburðarins og sendi að-
standendum fórnarlambanna sam-
úðaróskir. Segja heimildamenn að
Pútín muni sjálfur stjórna rannsókn
málsins. Enginn hafði í gærkvöldi
lýst yfir ábyrgð á tilræðinu.
Önnur sprengja fannst ósprungin
skammt frá þeim stað þar sem
sprengingin varð og var hún gerð ó-
virk. Lögregla hafði gert sérstakar
varúðarráðstafanir vegna ótta við að
tsjetsjenskir skæruliðar létu til skar-
ar skn'ða því 6. ágúst var ár liðið síð-
an þeir hertóku Grosní, höfuðborg
Tsjetsjníu.
Sprengjan sprakk á einum fjöl-
farnasta stað Moskvu á háannatíma
og voru mörg hundruð manns á ferð
um undirgöngin sem tengja tvær
stórgötur og þrjár jarðlestastöðvar.
Borgarstjóri Moskvu, Júrí
Lúzhkov, sagði augljóst að um
hermdarverk hefði verið að ræða og
örugglega væri við Tsjetsjena að
sakast. „Aðferðin sýnir það svo ekki
verður um villst - sprengjan spring-
ur á stað sem er troðfullur af fólki á
háannatíma,“ sagði borgarstjórinn
við fréttamenn á torginu.
Sprengiefni gert upptækt
Rússneskir fjölmiðlar greindu frá
því að lögreglan leitaði að tveim
mönnum frá Kákasushéruðunum og
hafði fnterfax-fréttastofan eftir
innanríkisráðherranum að lögreglan
hefði lýsingu á mönnum sem giunað-
ir væru um tilræðið.
Ibúar Moskvu og annarra borga
hafa haft varann á síðan fjöldi
sprengjutilræða var framinn í
fjölbýlishúsum síðastliðið haust og
varð um 300 manns að bana. Rúss-
nesk stjórnvöld kenndu tsjetsjensk-
um skæruliðum um þau tilræði og
sendu her inn í Tsjetsjníu skömmu
síðar. Tsjetsjenar neita því að hafa
verið ábyrgir.
Fyrr í gær gerðu sérsveitarliðar
sem berjast gegn skipulögðum glæp-
um upptækt mikið magn sprengiefna
í Moskvu og borginni Ryazan, að því
er fréttastofan ITAR-Tass hafði eftir
innanríkisráðuneytinu. Sérsveitar-
liðarnir fengu upplýsingar um að
sprengiefnið væri eign tsjetsjenskra
uppreisnarmanna og ætlunin væri að
nota það til hryðjuverka.
MORGUNBLAÐH) 9. ÁGÚST 2000
690900
090000