Morgunblaðið - 09.08.2000, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2000 43
MINNINGAR
degi sorgarinnar. Megi allar góðar
minningar sem við eigum um hana
Hönnu lýsa ykkur á erfiðum stundum
sem fram undan eru. Við Pálmar,
Siggi, Sirrí og Ingvar sendum ykkur
öllum okkar innilegustu samóðar-
kveðjur.
Valgerður K. Sigurðardóttir.
Kveðja frá Söngsveitinni
Fflharmóníu
í dag verður jarðsungin Jóhanna
Ögmundsdóttir sem verið hefur einn
af dyggustu liðsmönnum Söngsveit-
arinnar Fílharmóníu um árabil. Hún
gekk til liðs við kórinn árið 1976 og í
stuttu blaðaviðtali við hana sem birt-
ist ári síðar lýsti hún ánægjunni sem
því fylgdi að taka þátt í kórstarfinu.
Hún var strax kosin til þess að sitja í
stjóm Söngsveitarinnar þar sem hún
átti sæti að undanteknu einu ári allt
til dauðadags. Lengst af gegndi hún
starfi gjaldkera og sinnti því hlut-
verki af stakri samviskusemi og ár-
vekni. Hún var vakin og sofin yfir vel-
ferð kórsins og átti sinn drjúga þátt í
móta starfið alla tíð eftir að hún gekk
til liðs við hann. Jóhanna var ráðagóð
og leysti umsvifalaust þau verkefni
sem henni voru falin. Hún hafði
ákveðnar skoðanir á viðfangsefnun-
um og oft kom það sér vel hversu
margt fólk hún þekkti sem hún gat
leitað til um hvaðeina sem snerti
kórstarfið. Gilti þá einu hvort um var
að ræða útvegun einsöngvara, radd-
þjálfara eða að leita eftir liðsinni kór-
félaga við ýmis tilfallandi störf. Þegar
að tónleikum kom var hún ævinlega
sú sem mest og best hugsaði íyrir
bæði því smáa og stóra.
Fyrir nokkrum árum greindist Jó-
hanna með sjúkdóm sem að lokum
hafði betur.
I veikindunum lét hún aldrei bug-
ast og tók þátt í störfum Söngsveitar-
innar eins og kraftar leyfðu. I maí
síðastliðnum, þegar Söngsveitin
fagnaði fjörutíu ára aímæli sínu, var
þó svo komið að Jóhanna var á meðal
áheyrenda á tónleikum þar sem
frumflutt var nýtt tónverk sem samið
var sérstaklega íýrir kórinn. Æfingar
hafði hún sótt í allan vetur og ætíð
með slíkri reisn að fáa grunaði sem til
sáu hversu alvarlega veik hún í raun
var orðin.
Söngsveitin Fílharmónía kveður
nú látinn félaga með virðingu og þökk
fyrir óeigingjamt starf í þágu
blómstrandi tónlistarlífs á Islandi.
Það er ósk okkar að tónlistaráhugi
Jóhönnu og óbilandi kjarkur verði
Söngsveitinni leiðarljós um ókomin
ár.
Öldruðum föður og eftirlifandi ást-
vinum eru færðar innilegar samúðar-
kveðjur.
Lilja Ámaddttir.
• Fleirj minningíirgreinnr um Jó-
hönnu Ogmundsdóttur bíða birt-
ingar og munu birtast íblaðinu
næstu daga.
r 3lóm<abúð«n
C\avösWow\
v/ FossvogsUirUjugat^ a
554 0500 /
S >■
OSWALDS
sími 551 3485
ÞJÓNUSTA ALLAN
SÓLARHRINGINN
MMISIIM II ill* 101 HI-VKJAVÍK
Díiviö lngev Ölefir
l ■tfimmtj. I hj'ararstj. Útfararstj.
LÍK KISTUVIN N l J STO FA
EYVINDAR ARNASONAR
t
Innilegar þakkir til þeirra, sem sýndu okkur
samúð við andlát og útför ástkærs föður
okkar,
JÓHANNESAR HELGA JENSSONAR,
Sóivallagötu 66,
Reykjavík.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jens Karl Magnús Jóhannesson,
Brynjar Halldór Jóhannesson,
Gunnlaug Olsen Jóhannesdóttir,
Helga Dóra Jóhannesdóttir,
Emilía Brynhildur Jóhannesdóttir,
Magnús Jóhannesson.
t
Faðir okkar, afi og langafi,
HELGI STEINSSON,
Hæðargarði 8,
lést á heimili sínu föstudaginn 4. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 11. ágúst kl. 15.00.
Jóhann Torfi Steinsson, Inger Steinsson,
Helga Magnea Steinsson, Unnur Steinsson,
María Steinsson, Eyrún Steinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+ Innilegar þakkir til þeirra, sem sýndu okkur m
samúð við andlát og útför ástkærrar móður
okkar, V"" W
JÚLÍÖNU GÍSLADÓTTUR,
Bogahlíð 9, 4 f
Reykjavík.
Fyrir hönd aðstandenda, Æ t
Helga Dóra Jóhannesdóttir,
Emilía Brynhildur Jóhannesdóttir,
Magnús Jóhannesson,
Guðlaugur Halldór Einarsson.
t
Bróðir okkar og mágur,
BALDVIN MAGNÚSSON
fyrrv. bóndi,
Hrafnastaðakoti,
Dalvík,
lést þriðjudaginn 1. ágúst síðastliðinn.
Jarðsungið verður frá Dalvíkurkirkju föstu-
daginn 11. ágúst kl. 13.30.
Jónína Magnúsdóttir, Árni Magnússon,
Guðmundur Magnússon, Alfa Ragnarsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför elskulegs eigin-
manns míns, föður, stjúpföður, tengdaföður,
frænda og afa,
BIRGIS STEINÞÓRSSONAR,
Hvassaleiti 58,
Reykjavík.
Kristin Ingimundardottir,
Brynja Ríkey Birgisdóttir,
Ragnheiður Magnúsdóttir,
Birgir Aðalsteinsson,
Kristín Stefánsdóttir,
Anna Bryndís Óskarsdóttir,
Alexander Berg Garðarsson,
Ylfa Rakel Ólafsdóttir,
Garðar Berg Guðjónsson,
Steinunn Guðjónsdóttir,
Ólafur Ingþórsson,
Birgir Karl Óskarsson,
Birgitta Ríkey Garðarsdóttir,
Arna Rín Ólafsdóttir.
+
Ástkær faðir okkar, sonur, bróðir og mágur,
HAFÞÓR TORFASON,
Hólabraut 7,
Keflavík,
sem lést fimmtudaginn 3. ágúst, verður
jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
11. ágústkl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda.
Torfi Agnars Jónsson, Jósebina Gunnlaugsdóttir.
+
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
RAGNHEIÐAR HÓSEASDÓTTUR,
Skólavörðustíg 40,
Reylgavík.
Örn Bjarnason,
Gréta M. Bjarnadóttir,
Hreinn Bjarnason,
Sigríður Bjarnadóttír, Jón Davíðsson,
Jón B. Bjarnason, Ingunn Guðmundsdóttir,
Broddi B. Bjarnason, Sóley Guðmundsdóttir,
Ingibjörg Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þegar andlát
ber að höndum
Önnurnst aila þætti útfararinnar.
Vesturhlíð 2
Fossvogi
Sfmi 5S1 1266
www.utfor.is
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
meg þj5nustu a||an
^ 'v sólarhringinn.
% UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
+
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
SIGURÐUR MAGNÚSSON
frá Hnjúki,
Mýrarbraut 25,
Blönduósi,
lést á Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi
sunnudaginn 6. ágúst.
Jarðarförin auglýst síðar.
Guðrún Jónsdóttir og synir.
+
Elskuleg eiginkona mín, dóttir, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
GYÐA ÞORSTEINSDÓTTIR,
Smárahvammi 2,
Hafnarfirði,
(áður Grenigrund 6, Kópavogi),
sem lést á Landspitalanum aðfaranótt föstu-
dagsins 28. júlí, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju föstudaginn 11. ágúst kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hinnar látnu, er bent á MND-félagið, hjúkrunarþjónustu Karitas og Minn-
ingarsjóð Breiðfirðingafélagsins.
Guðmundur Árni Bjarnason,
Guðríður Guðbrandsdóttir,
Þorsteinn Guðmundsson, Unnur Jónsdóttir,
Júlíana Ósk Guðmundsdóttir, Ólafur Björn Heimisson,
Guðmunda Gyða Guðmundsdóttir, Gylfi Bergmann Heimisson,
og barnabörn.
I