Morgunblaðið - 09.08.2000, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
ÍDAG
Árnað heilla
ágúst, verður sjötugur
Björn Björnsson, verslun-
arstjóri í MR-búðinni, til
heimiiis að Álftamýri 34,
Reykjavík. Björn og frú
Anna, kona hans, taka á
móti gestum í Oddfellow-
húsinu, Vonarstræti 3,
föstudaginn 11. ágúst kl.
19.30-23.
BRIPS
tlmsjón riiiðmundur
I’áll Amarson
EINS og svo oft áður fær
lesandinn að njóta þeirra for-
réttinda að sjá allar hendur.
En viðfangsefnið er eigi að
síður snúið. Suður spilar sex
tígla og fær út spaðagosa. Og
spurningin er: Er hægt að
vinna slemmuna með bestu
vöm?
Norður
* KD764
¥ K873
♦ 73
+ 102
Vestur Austur
+G1095 +Á832
¥D962 ¥G1054
♦ 5 ♦ 1094
+D976 +G5
Suður
+-
¥Á
♦ ÁKDG862
+ÁK843
Hættan er auðvitað sú að
gefa tvo slagi á lauf, því inn-
komuleysi bhnds gerir það
að verkum að ekki er hægt
að nýta slagina tvo á hjarta-
kóng og spaða. Eða hvað?
Kannski er mögulegt að nota
vörnina sem stökkpall inn í
borð.
Þú leggur spaðakónginn á
gosann og trompar ás aust-
urs. Tekur svo tígul þrisvar
og hjartaás, en spilar síðan
laufás og smáu laufi! Ef aust-
ur á slaginn á gosann verður
hann að spila blindum inn á
spaða eða hjarta og þá er
spilið unnið. Og ekki dugir
það vörninni að vestur hoppi
upp með laufdrottningu, því
þá verður laufátta suðurs að
stórveldi, sem myndar gaffal
með kóngnum á móti 97 vest-
urs.
Þótt þessi þraut sé á opnu
borði er þetta vafalaust besta
spilamennskan í reynd, því
helsta von suðurs er 3-3 lega
í laufi og þá getur ekkert
sakað að reyna að nýta há-
slagi blinds ef annar mót-
herjinn á háspil annað í laufi.
En spumingin í upphafi
var þessi: Vinnst slemman
með bestu vörn? Og svarið
við því er neitandi, því ef
austur leggur ekki spaðaás-
inn á kónginn í íyrsta slag
mun vömin alltaf hafa betur!
En þá vörn er útilokað að
finna nema á opnu borði.
ÁRA afmæli. í dag, 9. ágúst, em áttræðir tvíbura-
O V/ bræðurnir Jens Guðmundsson og Móses Guðmunds-
son sjómenn. í tilefni dagsins taka þeir og fjölskyldur þeirra
á móti gestum í veitingasalnum Catalinu í Hamraborg 11,
Kópavogi, milli kl. 19.30 og 22.30 á afmælisdaginn.
ÁRA afmæli. í dag,
DU miðvikudaginn 9.
ágúst, verður sextugur
Hilmar Leifur Sveinsson,
húsasmiður, Tryggvagötu
14b, Selfossi. Hann tekur á
móti gestum á Hótel Sel-
fossi, laugardaginn 12. ágúst
kl. 20-23.
ÁRA afmæli. Á
morgun, fimmtudag-
inn 10. ágúst, er fimmtug
Hólmfríður S. Kristinsdótt-
ir, Hraunbæ 172, Reykja-
vík. Eiginmaður hennar er
Gunnar Christiansen. Þau
taka á móti gestum á afmæl-
isdaginn kl. 18 í safnaðar-
heimih Fella- og Hólakirkju.
I7A ÁRA afmæli. í dag,
I V/ miðvikudaginn 9.
ágúst verður sjötug Gerður
Petra Ásgeirsdóttir, Birki-
teig 4, Keflavík. Hún tekur
á móti ættingjum og vinum
12. ágúst nk. kl. 15-18 í
Kiwanishúsinu að Iðavöllum
3c, Keflavík.
Alþjóðlegt stærðfræðiár
Arið 2000 er alþjóðlegt stærðfræðiár. 27. september stendur
Flötur samtök stærðfræðikennara fyrir Degi stærðfræðinnar.
Þá munu vonandi sem flestir skólar landsins hafa stærðfræð-
ina í fyrirrúmi. Flötur er með bækling í undirbúningi sem sendur
verður í alla skóla. í honum verða hugmyndir að verkefnum til
þess að vinna þennan dag. Þema dagsins verður rúmfræði.
Þraut 12
Dagsetningin 31.03.93 (eða 31. mars 1993) erskemmtileg
dagsetning af því að ef þú margfaldar saman daginn og
númer mánaðarins þá færðu út 93 (ártalið).
Getur þú fundlð það ár á tuttugustu öldinni sem hefur flestar
sltkar dagsetningar?
Svarviðþraut11. +333
+ 777
1111
Hér ereu þrjár vefslóðir
fyrir þá sem vilja spreyta http://www.ismennt.is/vefir/heilabrot/
sig á stærðfræði- http://syrpa.khi.is/~stae/krakkar.htm
þrautuum: http://www.raunvis.hi.is/~stak/
UOÐABROT
MARKÚS SKEGGJASON
D. 1107
Ræsir lét af roðnum hausi
Rínar sól á marfjöll skína.
Yngvi helt í óðaströngum
öldugangi skipum þangat;
hlýða skalf, er hristi græðir
hélug borð fyr Vinda görðum.
Fjarðhnna óð fannir
fast vetrliði rastar;
hljóp of húna gnípur
hvalranns íugtanni;
björn gekk fram á fornar
flóðs hafskíða slóðir;
skúrörðigr braut skorðu
skers glymgjötur bersi.
STJÖRJVUSPÁ
eftir Frances Drake
LJÓN
Þú ert sjálfstæður einstakl-
ingur með ríka réttlætis-
kennd, sem þú þarft að læra
að fara betur með.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Þú munt komast að því að
hæfileikar þínir liggja á
mörgum sviðum. Þú þarft að
velja þar í milli og finna þér
svo farveg þar sem þú færð
notið þín.
Naut
(20. aprfi - 20. maí)
Ef ágreiningur rís upp meðal
fjölskyldumeðlima þarf að
komast að málamiðlun. Vertu
skilningsríkur og hlustaðu
vandlega á alla aðila.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) AA
Þú ert friðsæll og í góðu jafn-
vægi og hefur því góð áhrif á
alla í kringum þig. Dekraðu
við þína nánustu og sjálfan
þig í kvöld.
Krabbi
(21. júní-22. júlí)
Ef þú gengur fram fyrir
skjöldu og lætur skoðanir
þínar afdráttarlaust í ljós
muntu undrast hversu marga
skoðanabræður þú átt í raun
ogveru.
Ljón
(23.júh'-22. ágúst) M
Þú ert glaðlyndur og öll sam-
skipti ganga vel bæði í starfi
og einkalífi. Nú er rétti tím-
inn til að ganga að samninga-
borði, en lestu smáa letrið vel.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) Œ
Gættu þess að taka engu sem
sjálfsögðum hlut ella muntu
iðrast þess síðar. Einbeittu
þér að málum heimilisins og
sýndu þar alla þá lipurð sem
þú getur.
Vog rrx
(23. sept. - 22. okt.) A 4*
Þú þarft eð reyna að nálgast
verkefni þín úr annarri átt,
því að öðrum kosti stefnir í að
allt standi fast og þú komist
hvergi áfram.
Sþorddreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú þarft fyrr eða síðar að
horfast í augu við staðreynd-
ir. Ef þú þarft að láta í minni
pokann á annað borð skaltu
umfram allt gera það með
reisn.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) AiO
Þú finnur á þér að eitthvað er
í uppsiglingu milli þín og ást-
vinar þíns. Taktu því við
stjórnartaumunum er færi
gefst og stýrðu málum í höfn.
Steingeit „
(22. des. -19. janúar)
Einhver reynir að gera þér
lífið leitt svo nú reynir veru-
lega á þohnmæðina. Láttu
ekkert verða til að egna þig
upp. Þú átt eftir að hafa bet-
Vatnsberi
(20. jan. -18. febr.)
Þú veltir fyrir þér lífinu og til-
verunni þessa dagana. Gefðu
þér tíma til að njóta fegurðar
náttúrunnar með þínum nán-
ustu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars) >%■*>
Reyndu að gera þér grein
fyrir vandanum og gerðu ekki
úlfalda úr mýflugu. Þú hefðir
gott af því að heyra hvað vin-
um þínum finnst um málið.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísinaalegra staðreynda.
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2000 61
CASCAMITE
RAKAÞOLIÐ
TRÉLIM
ÁRVÍK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
MATHYS^
Vatnsvörn
STÖÐVIÐ LEKANN MEÐ
FILLC0AT
ÁRVÍK
ÁRMÚLA1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
ELÍZUBÚÐIN Skipholti 5
Útsala!
Tilboð
ÁOur kr. 19.900, nú kr. 5.900.
Opið lau^arda^ frá kl. I0 - 16
Mörkinni 6, sími 588 5518
Bílastæði við búðarvegginn.