Morgunblaðið - 15.08.2000, Síða 1

Morgunblaðið - 15.08.2000, Síða 1
STOFNAÐ 1913 184. TBL. 88. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Rússneskur kafbátur með rúmlega 100 manna áhöfn á botni Barentshafs eftir árekstur Tvisýnt um líf skipverja Kúrsk tvu, Ósló. AFP, Reuters, AP. VLADIMIR Kúrojedov, aðmíráll og yfirmaður rússneska flotans, sagði í gær í samtali við ítar-Tass-frétta- stofuna að ólíklegt væri að takast myndi að bjarga úhöfn kjarn- orkukafbátsins Kúrsk sem lá í gær mikið skemmdur á botni Barents- hafs með 116 manns innanborðs. Tíu skip voru á vettvangi í gær, kafbátar og ofansjávarskip, og búist við að reynt yrði að hefja björgun með að- stoð flugvéla í gærkvöldi. Hvassviðri var sagt torvelda aðgerðir og öflugir hafstraumar eru þar sem báturinn liggur. Kafbáturinn mun hafa lent í árekstri á sunnudag en ekki er ljóst hvað hann rakst á. Hann tók þátt í mikilli æfingu rússneska Norðurflot- ans og mun yfirmaður flotans, Vjatj- eslav Popov, stjórna björgunarðað- gerðunum. Að sögn talsmanna Rússa stafaði engin umhverfishætta frá kafbátnum og geislavirkni um borð var innan eðlilegra marka. „Þrátt fyrir að verið sé að gera allt sem hægt er, þá eru litlar líkur á að það takist að bjarga Kúrsk,“ sagði Kúrojedov í viðtali við Ítar-Tass. „Það bendir allt til mikilla og alvar- legra skemmda ...ástandið er slæmt.“ Breskur hermálasérfræð- ingur sagði í gær að tíminn væri naumur vegna þess að ekki væri víst að áhöfnin hefði súrefni til meira en tveggja sólarhringa. Yfirvöld í Múrmansk sögðu síðdegis í gær að hættu á súrefnisskorti hefði verið bægt frá þar sem björgunarskipið Kolokol dældi nú súrefni og elds- neyti niður til skipverja. Ljóst er að slökkt var á aðal- kjarnaofninum um borð á sunnudag en ekki er vitað hvort áhöfnin var þar að verki eða hver ástæðan var. Rafmagnslaust var um borð í Kúrsk og því hætta á súrefnisskorti hjá áhöfn kafbátsins en fjarskiptasam- band rofnaði við bátinn á sunnudag. Segja heimildarmenn Itar-Tass að björgunarmenn hafi samband við áhöfnina með því að berja 1 skips- skrokkinn og skiptast þannig á morse-skeytum við þá. Önnur frétta- stofa í Rússlandi sagði á hinn bóginn að tekist hefði að koma aftur á fjarskiptasambandi í gær. Rakst Kúrsk á annan kafbát? Kafbáturinn er sagður vera á um 150 metra dýpi um 135 kílómetra norðan við flotastöðina Severom- orsk. Mun hann hallast um 60 gráður þar sem hann liggur á hafsbotninum, framhlutinn er fullur af sjó og hafa skipverjar leitað skjóls í skutnum. Seint í gærdag hafði Ítar-Tass- fréttastofan eftir heimildarmanni innan rússneska sjóhersins að líkleg- asta skýringin á slysinu væri talin sú að Kursk hefði rekist á erlendan kaf- bát sem þarna hefði verið á ferli og kynni sá kafbátur einnig að liggja skemmdur á hafsbotninum. Bandaríska varnarmálaráðuneyt- ið, Pentagon, sagði í gær að ekkert benti til þess að bandarískt herskip hefði komið við sögu í slysinu. Tals- maður ráðuneytisins, Craig Quigley, sagði að bandarískt herskip hefði verið á svæðinu en „langt frá“ staðn- um þar sem Kúrsk er. Quigley vildi AP Rússneski kjarnorkukafbáturinn Kúrsk, ekki er vitað hvar báturinn var þegar myndin var tekin. Kafbáturinn er um 14 þúsund tonn og einn af full- komnustu kafbátum Rússa. Á innfelldu myndinni er Gennadí Ljatsín, skipstjóri Kúrsk. ekki tjá sig um það hvort bandarísk- ur kafbátur hefði verið í grennd við Kúrsk er slysið varð. Vitað er að stórveldin fylgjast ávallt með flota- æfingum hvort annars og oft eru not- aðir til þess kafbátar. Engin kjarnorkuvopn voru sögð um borð í rússneska kafbátnum sem getur borið allt að 24 stýriflaugar með kjarnaodda eða hefðbundið sprengiefni auk annarra vopna. Tals- maður norskra stjómvalda sagði ástæðulaust að vantreysta yfirlýs- ingum ráðamanna Rússa um að ekki hefðu verið kjamorkuvopn um borð en vandlega var fylgst með gangi mála af hálfu Norðmanna. Geisla- virkni var mæld á svæðinu í gær og reyndist eðlileg. Kúrsk er með fullkomnustu kaf- bátum Rússa, svonefndur árásarkaf- bátur og því aðallega ætlaður til að berjast við aðra kafbáta. Vestrænir sérfræðingar nefna gerðina Osear II en slíkir kafbátar em tæp 14.000 tonn að þyngd, með tvo kjarnaofna og geta náð 28 mílna hraða. Kúrsk var smíðaður árið 1994. ■ Ekkert bendir til/24 Landsþing demókrata í Bandaríkjunum hafíð Reuters Forsetaefni demókrata, A1 Gore, faðmar Betty Hoover eftir að hafa ávarpað samkomu í bænum Independence í Missouri-ríki i gær. Hotanir skæruliða í Kasmír Boða sjálfs- morðsárásir Srinagar, Nýju-Delhí. AFP, The Daily Telegraph. Höfðað til miðj- unnar BILL Clinton Bandaríkjaforseti átti í nótt að flytja kveðjuræðu sína á fyrsta degi flokksþings Demókrata- flokksins sem hófst í Los Angeles í gær. Al Gore varaforseti verður formlega útnefndur forsetaefni flokksins á þinginu og mun flytja ávarp á fimmtudagskvöld, en þá lýk- ur þinginu. Clinton sagði í blaðavið- tali í gær að stefna repúblikana væri röng í öllum meginmálum er hefðu áhrif á líf Bandaríkjamanna, efna- hagsmálum, löggæslu og umhverfis- málum. Hillary Clinton, eiginkona forset- ans, átti einnig að ávaipa þingið í nótt en hún er nú í framboði í New York til öldungadeildar Bandaríkja- þings. Demókratar höfðu af því nokkrar áhyggjur að forsetahjónin myndu stela senunni og gera Gore erfitt um vik að koma fram sem sterkur, óháður leiðtogi, en Hillary hefur lofað því að forsetahjónin muni láta nægja að lýsa yfir stuðn- ingi við framboð Gores og verða síð- an,,algjörlega á brott“ af þinginu. I dag munu þingfulltrúar sam- þykkja stefnuskrá flokksins sem á að keppa við stefnu Repúblikana- flokksins um hylli miðjusinnaðra kjósenda. I stefnu demókrata verður áhersla lögð á að skólar verði gerðir ábyrgir fyrii' frammistöðu nemenda sinna, gæsla við landamærinverði hert, heimsviðskipti aukin, herinn styrktur og dauðarefsingu viðhaldið. En stefna demókrata er frábrugð- in stefnu repúblikana að því leyti að þeir fyrrnefndu eru hlynntir rétti til fóstureyðinga, að skylda verði að hafa gikklás á byssum og að endur- bætur verði gerðar á reglum um fjáröflun til kosningabaráttu. Samkvæmt niðurstöðum skoðana- könnunar sem Gallup gerði um síð- ustu helgi sögðu 47% aðspurðra lík- legra kjósenda að það væri „alls enginn möguleiki" á að þeir myndu kjósa Gore í forsetakosningunum 7. nóvember nk. Aðeins 30% sögðu það sama um frambjóðanda repúblíkana, George W. Bush. Samkvæmt ann- arri skoðanakönnun hefur Gore sax- að mjög á það forskot sem Bush náði í kjölfar landsþings repúblikana í þarsíðustu viku og styðja nú 40% Gore og 43% Bush. Frambjóðandi Græningja, Ralph Nader, hefur 7% fylgi, og nýútnefndur frambjóðandi Umbótaflokksins, Pat Buchanan, 2% stuðning meðal aðspurðra. HARÐLÍNUMENN úr röðum skæruliða í Kasmír-héraði, studdir af pakistönskum stjórnvöldum, sögðu í gær að þeir myndu hefja um- fangsmiklar árásir, þ.á m. sjálfs- morðsárásir, í héraðinu í dag og krefjast þannig sjálfstæðis héraðsins en í dag er sjálfstæðisdagur Ind- verja. Mikil spenna ríkir í héraðinu eftir öldu oíbeldisaðgerða undan- farna daga og á sunnudag féllu 22 og 52 særðust átök skæruliða og her- sveita Indlandshers. „Skæruliðar okkar munu hefja umfangsmiklar og grimmilegar ár- ásir á hersveitir sem halda Kasmír- héraði og breyta sjálfstæðisdegi Ind- verja í dag eyðileggingarinnar," sagði Amiruddin Mughal, talsmaður eins hóps Mujahideen-skæruliða í gær. Þá lýsti annar hópur skæruliða því yfir að sérsveitir hefðu verið skipaðar til að framkvæma sjálfs- morðsárásir á herstöðvar Indverja í héraðinu. „Við munum koma Ind- verjum verulega á óvart á sjálfstæð- isdaginn þrátt fyrir miklar öryggis- ráðstafanir þeirra," sagði talsmaður Lashkar-e-Taiba skæruliðahópsins. Mikill viðbúnaður var í Srinagar, höfuðstað Kasmír, um helgina og sagðist talsmaður öryggissveitanna í héraðinu mundu gera allt til að koma í veg fyrir yfirlýstar aðgerðii' skæru- liða. Þá er öryggisviðbúnaður mikill í Nýju-Delhí enda talið að skæruliðar kunni að láta til skarar skiíða þar. Pervez Musharraf, hershöfðingi og leiðtogi Pakistana, hét því í gær að koma á „ósviknu lýðræði" í Pak- istan og hvatti til þess að Indverjar og Pakistanar hæfu viðræður um málefni Kasmír-héraðis. I sjónvarpsávarpi sínu í gær sagði Musharraf þó að pakistönsk stjórn- völd styddu réttmæta baráttu íbúa Kasmír fyrir sjálfstæði héraðsins. Kenndi hann indverskum stjórn- völdum um það hættuástand sem skapast hefur í héraðinu á undan- fömum dögum. „I Suður-Asíu er af- ar ótryggt öryggisástand af völdum þrjósku Indverja vegna Kasmír," sagði Musharraf í ávarpi sínu. MORGUNBLAÐIÐ 15. ÁGÚST 2000

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.