Morgunblaðið - 15.08.2000, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐ JUDAGUR 15. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
f
LANDIÐ
Sendi-
herra
Breta
á Höfn
Höfn - Sendiherra Breta á Islandi,
James McCullock, sem brátt lætur
af störfum, er nú á hringferð um
ísland ásamt konu sinni Margaret,
til að kveðja land og þjóð. Sendi-
herrahjónin komu til Hornafjarðar
íyrir skömmu og skoðuðu þar Jök-
lasýninguna sem sett hefur verið
upp í Sindrabæ.
Á myndinn eru frá vinstri: Frú
Margaret McCullock, James
McCullock sendiherra, Guðrún
Ingimundardóttir starfsmaður
Jöklasýningar og Inga Jóna Hall-
dórsdóttir aðstoðarmaður bæjar-
stjóra Hornafjarðar. Að baki þeirra
eru jöklatjald og fleiri munir.
Morgunblaðið/Sigurður Hannesson
Morgunblaðið/Hafþór
D orgveiðikeppni
Húsavík - Dorgveiðikeppni er einn
hluti dagskrár mærudaga og fór
hún fram á suðurgarðinum. Þátt-
takendur voru margir og veitt
voru verðlaun frá Bókaverslun
Þórarins Stefánssonar. Fyrstu
verðlaun fyrir stærsta fískinn
hlaut Ingibjörg Valdimarsdóttir
og hlaut hún einnig önnur verð-
laun fyrir flesta físka. Þriðju
verðlaun fyrir næstflesta físka
hlaut Ásþór Sigurgeirsson.
Myndin sýnir þau Óla, Birgi og
Þóru en þau tóku þátt í dorgveið-
inni.
Morgunblaðið/B FH
Víðirhólskirkja
Sami organ-
istinn í 55 ár
Mývatnssveit - Árleg sumarmessa
hjá einum fámennasta söfnuði
landsins, Víðirhólssöfnuði fór fram
laugardaginn 5. ágúst að viðstöddu
fjölmenni, eða eins og kirkjan
frekast rúmaði. Sóknarpresturinn
sr. Örnólfur J. Ólafsson á Skútu-
stöðum predikaði, tók fjölmarga til
altaris og skýrði eitt barn.
Aðeins eru nú 6 sóknarbörn í
Víðirhólssöfnuði, þar á meðal org-
anistinn Kristín Axelsdóttir, sem
rekur sumargistingu í Gríms-
tungu. Kristín hefur verið organ-
isti síðan 1945, hún lék við þessa
athöfn eins og allar aðrar í 55 ár, á
orgelið sem er jafngamalt
kirkjunni og er enn hið ágætasta
harmóníum. Hlín Torfadóttir org-
elleikari á Dalvík lék forspil og
eftirspil. Söngur var mikill og góð-
ur enda fjölmargt þjálfað söngfólk
í kirkjunni. Að athöfn lokinni var
öllum viðstöddum boðið í kirkju-
kaffi til Margrétar Pálu Ólafsdótt-
ur meðhjálpara, sem á þarna sum-
arhús á föðurleifð sinni.
Kirkja var fyrst byggð á Víðir-
hóli 1864 en áriðl880 varð Víðir-
hóll prestssetur til 1907 eftir það
tilheyrði sóknin Skinnastaða-
prestakalli til 1966 er sóknin var
lögð til Skútustaðaprestakalls.
Verulegar lagfæringar
Núverandi kirkja var byggðl926
og var Ingvar Jónsson frá Kópa-
skeri yfirsmiður. Á sl. tveim sumr-
um hafa verið framkvæmdar veru-
legar lagfæringar á henni og sá
Aðalsteinn Marinósson frá Sauðár-
króki um þær. Ástand byggingar-
innar er nú mjög gott. Kirkjan er
látlaus en stílhreint steinsteipuhús
með fallega bogadregnum glugg'
um í stálumgjörðum. Sæti eru fyr-
Fujifilm Ijósmyndapappír endist 334% lengur en sá næst besti*
~ FUJI FRAMKÖLLUN Ljósmyndavörur, Skipholti 31 • Úlfarsfell, Hagamel 67 • Barna og fjölskylduljósmyndir, Núpalind 1 • Ljósmyndastofa Grafarvogs • Framköllun Mosfellsbæjar • Framköllunarþjónustan, Borgarnesi
U UM LAND ALLT Ljósmyndavörur, Akureyri • Myndsmiðjan, Egilsstöðum • Ljósey, Höfn • Filmverk, Selfossi • Fótó, Vestmannaeyjum • Geirseyrarbúðin, Patreksfirði • Myndastofan, Sauðárkróki.