Morgunblaðið - 15.08.2000, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
s
Arshlutauppgjör Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn hf.
Mikið bókfært tap
af skuldabréfaeign
HAGNAÐUR Eignarhaldsfélagsins
Alþýðubankans hf., EFA, lækkaði um
65% á fyrri helmingi þessa árs miðað
við sama tíma í fyrra og var 46,6 millj-
ónir króna nú en 132,7 milljónir króna
í fyrra. Samkvæmt tilkynningu frá fé-
laginu skiptist hagnaðurinn í 60 millj-
óna króna óinnleystan hagnað vegna
hækkunar á markaðsvirði hlutabréfa-
eignar og 13,3 milljóna króna innleyst
tap. Við samanburð á milli ára er rétt
að athuga að félagið stofnaði þrjú
dótturfélög á miðju síðasta ári og ger-
ir nú upp miðað við samstæðuna, en
það var ekki gert á fyrri helmingi síð-
astaárs.
Umskipti urðu á fjármunaliðum
sem voru jákvæðir um 297,5 milljónir
króna í fyrra en neikvæðir um 37,6
milljónir króna á fyrri hluta þessa árs.
Hrein gjöld af skuldabréfaeign voru
186,6 miUjónir króna nú en í fyrra
voru hreinar tekjur af skuldabréfa-
eign upp á 87,1 milljón króna. Til fjár-
munagjalda telst meðal annars óinn-
leyst gengistap vegna lækkunar á
markaðsvirði skuldabréfa. Hreinar
tekjur af hlutabréfaeign námu 149,1
milljón króna.
Rekstrartekjur félagsins námu 58
milljónum króna en rekstrarkostnað-
ur 38,6 milljónum króna. Starfsmenn
voru að meðaltali sex á tímabilinu og
laun og launatengd gjöld 17,6 milljón-
ir króna.
800 milljóna króna
duldar eignir
Á fyrri hluta ársins fjárfesti félagið
fyrir 1.591 milljón króna í hlutabréf-
um, þar af voru 94% í óskráðum inn-
lendum og erlendum félögum.
í júní síðastliðnum keypti EFA
ásamt hópi fjárfesta nær öll hlutabréf
í Kaupási hf., sem rekur Nóatún, 11-
11 og KÁ-verslanir, og er stefnt að því
að skrá Kaupás á markað á næsta ári.
í tilkynningu frá EFA segir að
starfsemi félagsins byggist á því að
fjárfesta í óskráðum innlendum og er-
lendum félögum og taka síðan virkan
þátt í því að auka verðmæti þessara
félaga. Að því loknu sé stefnt að því að
skrá félögin á hlutabréfamarkað. Þá
kemur fram í tilkynningunni að EFA
færir óskráð félög á framreiknuðu
kostnaðarverði í bækur sínar og er
verðmætaaukning félaga í heild ekki
færð til bókar. Stjóm félagsins og
framkvæmdastjóri þess telja að
myndast hafi verulegar duldar eignir
umfram bókfært eigið fé í félaginu. í
tilkynningu félagsins kemur fram að
þessi dulda eign sé nú rúmlega 800
milljónir króna og að hún hafi hækkað
nokkuð frá síðustu áramótum.
Vamaruppgjör
Gylfi Ambjömsson, framkvæmda-
stjóri EFA, segir milliuppgjör félags-
ins nú vera vamaruppgjör og að hann
hafi trú á að afkoma seinni hluta árs-
ins verði betri en á fyrri hluta þess.
„Miðað við þau markmið sem við setj-
um okkur eram við ekkert ánægðir
með þessa afkomu," segir Gylfi, „hins
vegar emm við tiltölulega stórir þátt-
takendur á skuldabréfamarkaði og ef
eitthvað einkennir þetta uppgjör öðm
fremur er það sú óvissa sem var á
þeim markaði." Gylfi segir jafnframt
að þó hann sé ekki ánægður með af-
komuna af skuldabréfunum hafi af-
koman af hlutabréfunum verið viðun-
andi miðað við aðstæður. Hann segist
ennfremur telja að skuldabréfamark-
aðurinn muni batna og sá bati sé
raunar þegar hafinn.
Verð EFA veltur á Kaupási
Edda Rós Karlsdóttir hjá Búnaðar-
bankanum verðbréfum, segir afkom-
una endurspegla aðstæður á markaði.
® Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn hf.
Úr milliuppgjöri 2000 Samstæða Móðurfélag
Rekstrarreikningur jan. -júní 2000 1999 Breyting
Fjármunatekjur Milljónir króna 80,0 355,4 -77,5%
Fjármagnsgjöld 117,6 57,9 +103,1%
Hreinar fjármunatekjur (gjöld) -37,6 297,5 -112,6%
Reiknaðir skattar 4,9 6,7 -27,3%
Hagnaður til hækkunar á eigin fé 46,6 132,7 -64,9%
Efnahagsreikningur 30.06.OO 31.12.99 Breyling
Eignir samtals Milljónir króna 6.946,6 5.346,6 +29,9%
Eigið fé 3.279,2 3.124,4 +5,0%
Skuldir 3.667,4 2.222,2 +65,0%
Skuldir og eigið fé samtals 6.946,6 5.346,6 +29,9%
Kennitölur og sjóðstreymi 2000 1999 Breyting
Arðsemi eigin fjár 7,4% 11,0%
Eiginfjárhlutfal! 47,2% 58,4%
Handbært fé frá rekstri M. króna 55,2 44,7 +23,5%
, Arðsemi eiginfjár var 7,4% á tímabil-
inu,“ segir hún, „sem er auðvitað óvið-
unandi. Eignarhaldsfélagið er fjár-
festingafélag og verðmæti eigna þess
sveiflast því í takt við markaðinn.
F élagið er þó að fikra sig inn á nýj-
ar brautir með stofnun áhættusviðs
og ráðgjafar- og þjónustusviðs. Með
þessu er félagið að nýta sérfræði-
þekkingu sem þegar er til staðar og ef
vel tekst til mun þetta minnka
afkomusveiflur í framtíðinni. Rekstr-
artekjur sem rekja má beint til þess-
arar starfsemi vom 58 milljónir króna
á fyrri helmingi ársins og vega vel
upp aukin rekstrargjöld. Innra virði
eignarhaldsfélagsins er 2,7 og miðað
við að duldar eignir séu 800 milljónir
króna, eins og fram kemur í tilkynn-
ingu frá félaginu, þá er markaðsvirði
félagsins (4,1 milljarður króna.) mjög
í takt við upplausnarvirðið. Stærstu
einstöku eignir félagsins em hlutur í
íslandsbanka FBA og nýleg eign í
Kaupási hf. og því skiptir gengi þeirra
miklu máli. Eignarhaldsfélagið lagði
mikið undir við kaupin á Kaupási í vor
og núverandi verð félagins veltur á
því að hlutafélagavæðing þess gangi
vel.“
Afkoma deCODE genetics á öðrum ársfjórðunffl
Heildartap 22 milljón-
ir Bandaríkjadala á
fyrri helmingi ársins
HEILDARTAP deCODE genetics,
móðurfélags Islenskrar erfðagrein-
ingar, á fyrri helmingi ársins 2000
nam 22,0 milljónum Bandaríkjadala,
sem jafngildir um 1.760 milljónum
íslenskra króna. Til samanburðar
var heildartap samstæðunnar 13,5
milljónir Bandaríkjaldala, um 1.080
milljónir íslenskra króna, á sama
tímabili á síðasta ári. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá deCODE um
helstu afkomutölur samstæðunnar
fyrir annan ársfjórðung þessa árs
sem lauk 30. júní síðastliðinn og birt
var í gær. Heildartap deCODE á
öðram ársfjórðungi 2000 var 12,8
milljónir Bandaríkjadala, um 1.020
milljónir íslenskra króna, en var um
8,0 milljónir dala, um 640 milljónir
íslenskra króna, á sama tímabili á
síðasta ári. í janúar síðastliðnum til-
kynnti Islensk erfðagreining að fyr-
irtækið ætlaði að leggja fram hluta-
bréf í deCODE til stofnunar á
Velferðarsjóði íslenskra bama. Bók-
færður kostnaður vegna þessa nam
um 3 milljónum dala, eða um 240
milljónum íslenskra króna.
Tap á hvern almennan hlut var
2,91 Bandaríkjadalur á fyrstu sex
mánuðum ársins 2000 en var 2,25
dalir á sama tímabili á síðasta ári.
Rekstrartekjur deCODE á fyrri
helmingi ársins 2000 vom 8,4 mill-
jónir Bandaríkjadala, um 670 millj-
ónir íslenskra króna, en vom um 8,1
milljón dala á sama tímabili árið
1999, en það jafngildir um 650 millj-
ónum íslenskra króna. Útgjöld á
fyrri helmingi ársins 2000 til rann-
sóknar- og þróunarstarfsemi vom
19,2 milljónir Bandaríkjadala, um
1.530 milljónir íslenskra króna, en
vom 14,6 milljónir dala á sama tíma-
bili í fyrra, eða um 1.170 íslenskar
krónur.
Hinn 30. júní síðastliðinn hafði
deCODE um 34 milljónir Banda-
ríkjadala, um 2.700 milljónir ís-
lenskra króna, til ráðstöfunar í
handbæm fé.
Hinn 8. mars 2000 lagði deCODE
inn skráningammsókn hjá banda-
rísku verðbréfa- og kauphallar-
nefndinni (SEC) í þeim tilgangi að
hefja almennt hlutafjárútboð. Út-
boðinu lauk 21. júlí síðastliðinn og
aflaði félaginu hlutafjár alls að fjár-
hæð 198,7 milljónir dala, eða um
15,9 milljarða íslenskra króna.
Svokallað „þagnartímabil“ hófst
þegar deCODE lagði inn skráning-
aramsóknina, og hafði það í för með
sér að deCODE mátti aðeins ræða
það sem fram kom í útboðslýsingu
þess fram að staðfestingu umsóknar
um skráningu á almennan hluta-
bréfamarkað í Bandaríkjunum.
Þessu „þagnartímabili" er nú lokið.
Félagið komið vel á veg til að
takast á við verkefni sem bíða
Hannes Smárason, framkvæmda-
stjóri Islenskrar efðargreiningar,
segist vera mjög sáttur við afkomu-
tölur deCODE genetics á öðmm
ársfjórðungi þessa árs og að þær
séu mjög I samræmi við það sem
gert hafi verið ráð fyrir. „Síðastliðn-
ir átta mánuðir fóra í að ljúka útboði
á hlutabréfum í deCODE og þáð
kláraðist að okkar mati með miklum
sómabrag. Þetta er líklega annað
stærsta líftækniútboð frá upphafi.
Aðaláhersla hefur verið lögð á að
gera þetta vel. Samhliða útboðinu
tókst þó að ljúka einum af þeim
samningum sem hafa verið í bígerð,
við Partners HealthCare System
Inc., en þeir skipta félagið miklu
máli. Við erum því mjög ánægð með
stöðuna og teljum að félagið sé kom-
ið vel á veg méð þá fjárhagslegu
burði sem þarf til að takast á við þau
verkefni sem bíða,“ segir Hannes.
Viggó Þórir Þorsteinsson hjá
Kauphöll Landsbréfa segir að af-
koma deCODE sé enn sem komið er
í samræmi við væntingar. Hann seg-
ir félagið nýkomið á markað og að
fjárfestar séu meðvitaðir um að
nokkur tími geti liðið þar til félagið
fari að skila hagnaði. „Þó að tekjur
hafi ekki aukist í takt við útgjöld má
búast við því að þær muni aukast á
næstu ámm eftir því sem að félagið
treystir sig í sessi og samstarfsverk-
efnum við önnur lyfjafyrirtæki
fjölgar.“
^CODE
fxxxxxf
Rekstrarreikningur jan. -júni 2000 1999 Breyting
Rekstrartekjur Dollarar 8.446.913 8.069.650 +5%
Rekstrargjöid 26.946.803 18.042.063 +49%
Rekstrartap 18.499.890 9.972.413 +86%
Áhrif af rekstri dlutdeildarf. -68.237 -309.679 -78%
Fjármunatekjur (gjöld) 1.278.540 174.371 +633%
Skattar 0 0
Tap tímabilsins 17.289.587 10.107.721 +71%
Tap almennra hluthafa 22.049.458 13.550.416 +63%
Tap á hvern alm. hlut 2,91 2,25 +29%
Viggó segir að deCODE standist
vel samanburð við önnur félög í
genageiranum sbr. Human Genome
(HGSI) og Celera Genomics (CRA).
HGSI hafi aðeins verið með tekjur
upp á 21 milljón Bandaríkjadala á
seinasta ári en tap upp á 108 millj-
ónir dala. CRA hafi á sama tíma ver-
ið með tekjur upp á 48 milljónir dala
en tap upp á 93 milljónir.
„Þar sem fjárfestar bjuggust við
þessum niðurstöðum úr áarshluta-
uppgjöri deCODE hafa þessar frétt-
ir ekki haft teljandi áhrif á gengi
félagsins í dag,“ segir Viggó Þórir.
Lehman Brothers í Bandaríkjun-
um spá því að framtíðarverð á gengi
hlutabréfa í deCODE sé 35 Banda-
ríkjadalir og Morgan Stanley Dean
Witter spá verðinu 37 dalir. Gengi
bréfa deCODE var 18 dalir við
skráningu í sumar.
Furstadæmið Sealand og ör-
uggar fjárhagslegar aðgerðir
UM tíu kílómetra suðaustur af strönd
Englands er jámeyja, borin uppi af
tveimur steinsteyptum súlum. Bretar
reistu eyju þessa í seinni heimsstyrj-
öldinni til vamar skipalestum sem
sigldu inn og út um mynni Thamesár.
Um 200 hermenn vom þá staðsettir á
eyjunni. Bresk stjómvöld yfirgáfu
hana skömmu eftir að styijöldinni
lauk og var hún mannlaus til ársins
1966 er maður að nafni Roy Bates,
fyrrverandi major í breska hernum,
og fjölskylda hans tók sér bólfestu
þar. Þann 2. september árið eftir dró
fjölskyldan sinn eigin fána að húni á
eyjunni og lýsti jafnframt yfir stofn-
un nýs ríkis, furstadæmisins Sealand.
í dag gæta fjórir vopnaðir verðir ör-
yggis eyjarinnar allan sólarhringinn.
Bresk stjómvöld hafa ekki sýnt
furstadæminu Sealand mikinn áhuga
á undaníornum ámm ef undan em
skildar tilraunir til að loka útvarps-
stöð sem var þar fyrir rúmum þrem-
ur áratugum. I viðtali við vikuritið
Newsweek nýlega er hins vegar haft
eftir manni að nafni David Cantor,
sem stýrir alþjóðlegri fjarskiptadeild
bandaríska lögfræðifyrirtækisins
Weil, Gotshal & Manges í Brussel, að
breyting geti orðið á afstöðu breskra
stjómvalda til Sealand. Hann segir að
ef stjómendur á Sealand fari að gera
eitthvað ólöglegt eða það sem stjómir
vestrænna ríkja sætti sig ekki við
verði hún rýmd. Ástæða þessara orða
David Cantor era fyrirætlanir um
uppsetningu á tölvubúnaði og starf-
rækslu eins konar tengifyrirtækis
sem nefnt er HavenCo á Sealand.
Roy Bates, „prinsinn" af Sealand,
eins og hann kallar sig, hefur boðið
Bandaríkjamanni að nafni Sean
Hastings, stofnanda og forstjóra fyr-
irtækisins HavenCo, aðstöðu á Sea-
land. Á heimasíðu HavenCo á Netinu
(www.havenco.com) segir meðal ann-
ars að öryggi í varðveislu gagna og
fjárhagslegum aðgerðum ýmiss kon-
ar verði sífellt mikilvægari fyrir fyrir-
tæki, stjómvöld og samsteypur víðs
vegar um heiminn og að fleiri og fleiri
geri sér grein fyrir þessu. Þá segir að
HavenCo muni bráðlega bjóða upp á
öragga varðveislu gagna og mögu-
leika á fjárhagslegum aðgerðum með
mesta og besta öryggi sem nokkurs
staðar verður völ á. Engin leið verði
fyrir stjómvöld í nokkm landi að gera
gögn fyrirtækja í vörslu HavenCo
upptæk og fjárhagslegar aðgerðir,
sem fari fram í gegnum tölvubúnað
þess, muni fara fram án nokkurs
möguleika á þvi að óviðkomandi aðil-
ar fái vitneskju þar um.
David Cantor segir að ef þær ör-
uggu fjárhagslegu aðgerðir sem Hav-
enCo ætlar að bjóða upp á nái til pen-
ingaþvotts eða undanskots frá skatti
verði líftími fyrirtækisins varla mikið
yfir stundarfjórðungur. Newsweek
segir hins vegar frá því að Roy Bates
og Sean Hastings reikni með því að
starfa töluvert lengur, því þeir hafi
sankað að sér matarbirgðum og öðr-
um nauðsynjum ef til þess skyldi
koma að jámeyjan verði lokuð af frá
umheiminum.