Morgunblaðið - 15.08.2000, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 15.08.2000, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2000 25 ERLENT AP Sund- hetjan PETRE Roman, utanríkisráðherra Rúmeníu, tók þátt í maraþonsundi í Dóná um stund í gær til þess að vekja athygli á þeim truflunum er orðið hafa á skipaumferð á ánni. Synti ráðherrann, sem talinn er vera væntanlegur forsetaframbjóð- andi í Rúmeníu í haust, um tvo kíló- metra. Að því loknu veifaði hann rúmenska fánanum fyrir framan ljósmyndara og aðra fréttamenn. Hann sagði eftir sundsprettinn að sér hefði fundist vatnið í Dóná til- tölulega hreint og hefði hann ekki orðið var við neina „augljósa meng- un“. Fréttaskýrendur segja að með sundinu hafi Roman verið að vekja athygli á framboði sínu, þótt hann hafi ekki sagt það beinlínis. Þegar Atlantshafsbandaiagið gerði loftárásir á Júgóslavíu í fyrra eyðilögðust þijár brýr yfir Dóná og hefur brak úr þeim, og ósprungnar sprcngjur komið í veg fyrir sigling- ar um ána. Hefur þetta haft mjög neikvæð áhrif á efnahag á svæðinu. NATOlokar málmbræðslu í Kosovo-héraði Kosovska Mitrovica. AFP. FRIÐARGÆSLULIÐAR Atlants- hafsbandalagsins (NATO) lokuðu í gær fyiir starfsemi málmbræðslu- verksmiðju við bæinn Kosovska Mitrovica og hugðust koma stjórn hennar í hendur yfirstjórnar Sam- einuðu þjóðanna í héraðinu. Olli það nokkrum átökum við serbneska starfsmenn verksmiðjunnar. Hundruð friðargæsluliða um- kringdu verksmiðjuna í dögun í gær en yfírstjórn SÞ á svæðinu segir hana spúa miklu magni af blýi út í andrúmsloftið og að viðvaranir vegna þessa hafi verið gefnar út mörgum sinnum. Sættu friðargæslu- liðarnir grjótkasti og öðrum árásum vegna yfirtökunnar. Bernard Kouchner, yfirmaður SÞ í Kosovo, sagði í gær að ákveðið hefði verið að loka verksmiðjunni tíma- bundið vegna mengunarinnar, sem væri fólki afar hættuleg. „Við lokuð- um Zvecan-verksmiðjunni af heil- brigðisástæðum. Verksmiðjan er hættuleg fólki.“ Sagði hann jafn- framt að SÞ myndu hrinda í fram- kvæmd endurbótum á verksmiðj- unni og að verkamenn myndu senn geta snúið aftur til fyrri starfa. Oliver Ivanovic, leiðtogi Serba í Kosovska Mitrovica, sagði að mál- efni verksmiðjunnar hefðu ætíð ver- ið mikilvæg og að ríkisstjórn Serbíu hefði allan rétt til að hlutast til um mál og verja verksmiðjuna. „[Þetta] er ekki aðeins verksmiðja, þetta er lífsviðurværi meirihluta íbúa í Kos- ovska Mitrovica og Zvecan.“ Talið er að um 600 Serbar starfi í verksmiðjunni sem er hluti af Trepca-námafyrirtækinu sem hefur starfsemi á yfir 40 stöðum í Kosovo, Serbíu og Svartfjallalandi. Sendi- fulltrúar snúa heim Leyniskýrsla bresku stjórnarinnar um árangur loftárásanna sem gerðar voru á Júgóslavíu Meirihluti sprengna rataði ekki rétta leið Lundúnum. AFP. SAMKVÆMT leynilegri skýrslu breska varnarmálaráðuneytisins rataði meirihluti þeiiTa sprengna sem varpað var úr vélum breska flughersins yfir Júgóslavíu í átökurn um um Kosovo, ekki rétta leið. I skýrslunni kemur fram að aðeins um 40% flugskeyta Breta hafi, að jafn- aði, lent á tilætluðum skotmörkum og að sumar tegundir hafi aðeins hæft í 2% tilvika. I skýrslunni kemur fram að aðeins um 31% svokallaðra klasasprengna, sem sætt hafa mikilli gagnrýni vegna óhóflegs manntjóns af þeirra völd- um, hafi ekki hæft tilætluð skotmörk og að leysistýrð flugskeyti hafi að- eins hæft í 66% tilvika. Talið er að hlutfall þetta skýrist einkum af þeirri ákvörðun ráðamanna innan hersins að láta flugmenn fljúga vél- um sínum í mikilli flughæð til að koma í veg fyrir að þeir yrðu skotnir niður en flugskeytum og sprengjum var oft á tíðum varpað úr 30.000 feta hæð. Hafa ráðamenn einnig bent á að þættir líkt og slæm veðurskilyrði og „mikil flugumferð á svæðinu" hafi haft sín áhrif. John Spellar, ráðherra í breska varnarmálaráðuneytinu, sagði í gær að aðeins hefði verið gerð grein fyrir þeim sprengjum er vitað væri að hefðu lent, fleiri gætu hafa hæft skotmörk þótt ekki væri um það vit- að. Talsmenn forsætisráðuneytisins lögðu einnig áherslu á þessa skýr- ingu. „Fleiri skotmörk voru hæfð. Þetta eru aðeins þær [árásir] sem unnt var að staðfesta með berum augum. Að öllu samanteknu voru þetta einar best heppnuðu hernaðar- aðgerðir í sögu hersins. Enginn myndi búast við 100% árangri. Þetta er ekki leikur í leikjatölvu, þetta er stríð,“ sagði talsmaður forsætisráð- herrans í gær. Ófyrirsjáanlegt Ijón mun meira BBC og tímaritið Flight Inter- national komust að leyniskýrslu vai'nannálaráðuneytisins og greinir BBC frá því að af niðurstöðum skýrslunnar sé ljóst að ófyrirsjáan- legt tjón af völdum aðgerða hersins, s.s. árásir á almenna borgara og byggingar ótengdar hernaði, hafi líklega verið mun meiri en áður hafi verið haldið fram. Komi upplýsingar þessar jafnframt í kjölfar frétta- mannafundar varnarmálaráðuneyt- isins í febrúar sl. þar sem fullyrt var að hernaðaraðgerðir breska flug- hersins hefðu aldrei tekist eins vel og í Kosovo. Segist BBC hafa heim- ildii' fyi-ir því að á fundi næsta dag hafi önnur mynd verið dregin upp af aðgerðunum. Samkvæmt tímaritinu Jane’s De- fence Weekly er varhugavert að túlka hlutfallið sem kemur fram án allra fyrirvara. „2% hlutfallið er vill- andi vegna þess að þótt það sé viður- kennt að hlutfallið hafi verið 10-12%, þá er ekki hægt að staðfesta hin 89% þar eð fjöldi árása á tiltekin skot- mörk olli ringulreið er telja átti skot- mörkin,“ sagði Paul Beaver, sér- fræðingur tímaritsins. TVEIM konum, sendifulltrúum Al- þjóðaráðs Rauða krossins í Georg- íu, sem rænt var af óþekktum mönnum fyrr í mánuðinum, var sleppt úr haldi um helgiua og á sunnudag komu þær til Genfar, heilar á húfi, eftir að stjórnvöld í Georgíu höfðu haft milligöngu um lausn þeirra. Angelo Gnádiger, formaður Al- þjóðaráðs Rauða krossins, sagði í gær að ekki hefði verið greitt neitt lausnargjald fyrir þær Sophie Procofieff og Natascia Zullino og að enn væri á huldu hverjir það voru sem tóku þær og bflstjóra þeirra höndum. Mikið af fólki af tsjetsjneskum uppruna býr í norð- austurhluta Georgíu, þar sem fólk- inu var rænt, og telja kunnugir að mannránið hafi e.t.v. verið fram- kvæmt vegna innbyrðis deilna Tsjetsjena. Taldi Gnádiger fullvíst að þeir sem rændu fólkinu hefðu ekki beint aðgerðum sínum gegn Rauða krossinum en að mannræn- ingjarnir hafi notað gislana í ákveðnum tilgangi. Vildi hann þó ekki tjá sig um hvaða aðila mann- ræningjarnir vildu beita þrýstingi. Þeim Procofieff (t.v. á myndinni) og Zullino var fagnað innilega af ástvinum sínum við komuna til Genfar og sögðust afar fegnar að vera sloppnar úr prísundinni. 14.000 kr. meö flugvallarskatti báöar leiöir 250 kr. aukaafsiáttur ef bókað er á www.go-fly.com bókunarsími 00 44 12 79 66 63 88 miðast við eftirspurn i samkvæmt skilmálum I nýja lágfajrgjaldaflugfélagið í eigu british airways I flýgur til stansted
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.