Morgunblaðið - 15.08.2000, Page 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Líf í orku-
stöðvum
Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson
Hluti af verki Kristínar Jónsdóttur frá Munkaþverá, Laxárvirkjun.
Vatnsflauta Hafsteins Austmanns við Ljósafoss. Lokan (túban) listræna, Laxárstöð.
MYNDLIST
Ljðsafossstöð
Laxárstöð
/ Landsvirkjun
LIST í ORKUSTÖÐVUM
Framlag Félags islenzkra mynd-
listarmanna til dagskrárinnar
Reykjavík menningarborg Evrópu
árið 2000. Ljósafossstöð: Guðjón
Bjamason/ Ilmur María Stefáns-
dóttir/Anna Jóa/ Eyjólfur Einars-
son/ Gréta Mjöll Bjamadóttir/
Guðrún Gunnarsdóttir/ Gunnar
Om/ Hafsteinn Austmann/ Jó-
hanna Bogadóttir/ Jóhanna Þórð-
ardóttir/ Kristin Geirsdóttir/
Magðalena Margrét Kjartansdótt-
ir/ Margrét Jóelsdóttir og Stephen
Fairbaim/ Pjetur
Stefánsson/ Steinunn Helgadótt-
ir/ og Sveinn Lúðvík Bjömsson/
Valgarður Gunnarsson. Laxár-
stöð: Eggert Einarsson/ Guðbjörg
Lind Jónsdóttir/Guðrún Einars-
dóttir/ Guðrún Kristjánsdóttir/
Kristín Jónsdóttir frá Munka-
þverá/ Ólöf Oddgeirsdóttir/ Sara
Vilbergsdóttir/ Sigurður Örlygs-
son. Sýningarstjórar Jón Proppé
listheimspekingur og Aðalstcinn
Ingólfsson listfræðingur. Opið alla
daga eftir hádegi og eftir sam-
komulagi. Til 15. september.
Aðgangur ókeypis. Sýningarskrá
300 krónur.
FRAMLAG FÍM til dagkrárinn-
ar, Reykjavík - menningarborg
Evrópu árið 2000, er hin tvískipta
sýning, List í orkustöðvum í Ljósa-
fossstöð og Laxárstöð. Hún telst
með svipmeiri viðburða menning-
arárs og þótt báðir framníngamir
séu utan borgarmarkanna, annar
jafnvel hinum megin á landinu, er
framtakið fullgilt og góðra gjalda
vert. Þannig skal ekki litið framhjá
að þetta er einnig ár Listahátíðar í
Reykjavík, sem í þrjátíu ára sögu
sinni hefur í vaxandi mæli smitað
út frá sér til landsbyggðarinnar,
sem er mikið vel og ber að fylgja
eftir. Má þó vera áleitin spurn,
hvort listasamtök eigi að biðla til
menningarviðburða eða menning-
arviðburðir til listasamtaka og
listamanna, hvort hérlendir lista-
menn eigi að þjóna eða miðla og
uppskera um leið full mannréttindi
til lífs, en það hæfir öðrum vett-
vangi að ræða það og skilgreina.
Einnig hvort listamenn telji eigin
hyggjuvit metnað og yíirsýn full-
gildar stærðir líkt og fyrrum, sbr.
sýningamefndir, eða þurfi er svo
er komið að leita forsjár utanað-
komandi. Þá er nokkuð undarlegt, í
ljósi 'þess að af 40 félagsmönnum
sem sendu inn hugmyndir vora 23
valdir, en að auk þrír gestir, sem
hlýtur að virka eins og köld vatns-
gusa framan í þá sem var hafnað,
sem væri þó réttlætanlegt ef um
heimsþekktar stærðir væri að
ræða. En í þessu formi er eðlilega
hætta á að þeir 17 sem eftir sátu
hugsi sig tvisvar um áður en þeir
borga félagsgjöldin næst, en inn-
heimta slíkra er (eðlilega) mesti og
afdrifaríkasti höfuðverkur ís-
lenzkra listasamtaka og hefur alla
tíð staðið þeim fyrir þrifum. Hér er
ég þó ekki á nokkurn hátt að amast
við boðsgestunum en í þessari
mynd virkar sem frákastið hafi
verið undirmáls og þessi háttur því
brýn nauðsyn.
Ekki verður þó annað séð, en að
FÍM sé hér í stórsókn við að skapa
félagsmönnum sínum verðug verk-
efni, hvort sem það getur talist
hlutverk félagsins að hafa þar for-
ustu í þessa vera og láta félags-
menn um að borga með sér. Þó er
framtakið hvernig sem á málið er
litið, til stórra muna metnaðar-
fyllra en hinar svonefndu smá-
mynda- eða frímerkjasýningar,
sem endurvaktar Haustsýningar
félagsins era nefndar manna á
meðal ...
- Framkvæmdin í Ljósafossstöð
er öllu viðameiri en fyrir norðan,
þar era 18 myndlistarmenn mættir
til leiks, bæði inni í stöðvarhúsinu
sem úti kringum það. Sjálft stöðv-
arhúsið er ekki ýkja vel fallið til
listsýninga þótt fallegt sé og mynd-
rænt og gjalda flest verkanna inni
þess. Birtan eðlilega einhæf og
stöðluð þar sem ekki hefur verið
gert ráð íyrir þesslags fyrirtektum
í húsinu. Einn veggur getur verið
vel fallinn fyrir málverk, en annar
ekki, þannig tóku formsterk mál-
verk Kristínar Geirsdóttur, er við
blasa er inn í sýningarrýmið kemur
sig mjög vel út, en málverk Eyjólfs
Einarssonar á vegg til hliðar síður,
hálfvegis úti að aka ef svo má kom-
ast að orði. I hinum salnum er það
samsett málverk Pjeturs Stefáns-
sonar sem hefur vinninginn, en
önnur njóta sín síður. Við slíkar að-
stæður er rýnirinn í vanda, því inn-
setning verka í rými er mikið mál
og þegar borðleggjandi er að verk
njóta sín ekki sem skyldi, nái ekki
eðlilegu flugi er allur samanburður
út í hött. Þannig taka sum verk-
anna sig afburða vel út í hinni veg-
legu sýningarskrá sem íylgir fram-
kvæmdinni, með litmyndum af
verkum allra listamannanna ásamt
mynd af þeim sjálfum, en era svo
kannski hvorki íúgl né fískur á
staðnum, en einnig öfugt eins og
málverk áðumefndrar Kristínar
Geirsdóttur, sem er hins vegar full
dökkt í skránni. En hvemig sem á
allt er litið vinna þau Kristín og
Pétur hér umtalsverðan listasigur,
þótt það sé óneitanlega að nokkra
fyrir hegpilega staðsetningu verka
þeirra. Áberandi minna verður til
að mynda úr skúlptúrverki Val-
garðs Gunnarssonar, Straumöndin,
og segulverki Magðalenu Margrét-
ar, Adam Eva - vituð ér enn - eða
hvat?, en bæði taka sig mjög vel út
í skrá og era í sjálfu sér hin athygl-
isverðustu. En við eigum vonandi
eftir að sjá þessi verk og fleiri ann-
ars staðar þar sem þau fá notið sín
betur.
Eftir daufari heimtur inni fyrir
en efni stóðu til, nálguðust menn
ekki útiverkin af alltof mikilli
bjartsýni, höfðum þó áður komið
auga á táknrænt skúlptúrverk
Hafsteins Austmanns, Vatnsflaut-
una, sem trónaði á grasbletti ofan
við hlið stöðvarhússins. Afar traust
einfalt og formrænt, mjög skylt
verkinu við Stjómarstöð Lands-
virkjunar við Bústaðaveg. Eftir að
hafa gengið niður stiga og þrönga
leiðina meðfram framhlið veitunn-
ar með háskalegan iðandi vatns-
flauminn fyrir neðan, blöstu fleiri
útilistaverk við og þá lyftist brúnin.
Þannig fer málað skúlptúrverk
Onnu Jóa, T(aflstöðvar), í láginni
afar vel í umhverfinu, er um leið
hið hrifríkasta sem sést hefur frá
hendi listakonunnar til þessa. Sér í
þyrpingu fimm lóðréttra fer-
hyrndra eininga, sem geta minnt á
taflmenn og hvíla á lágum stöplum.
Glaðhlakkalegir litir og táknræn
bylgjuform kallast á við hrátt um-
hverfið og eykur því frjómögn, og
þótt ekki sé verkið ýkja framlegt
sýnir listakonan á sér nýja og
áhugaverða hlið, að hið yfirvegaða
og mónumentala liggi ekki síður
fyrir henni en frjáls óheft tjáning.
Minna en skyldi verður úr stór-
um múrristu og mósaikverkum Jó-
hönnu Bogadóttur, Hótel Jörð og
Brothætt veröld, og á undarlega
hrá staðsetningin helst sök á því,
en verkin hins vegar áhugaverð.
Eitthvert samspil og nálgun skort-
ir hér á, sem hins vegar er á fullu
hvað fimm eininga skúlptúrverk
Gunnars Arnar í hallandanum,
Tenging, og málverk Jóhönnu
Þórðardóttur, Myndbrot, eftir
endilöngum veggnum fyrir ofan,
sem kallast á og auðga hvort ann-
að. Ein sér næðu þau síður þessu
flugi. í hólfuðum undirgöngum
naut ofurfínt og dularfullt Ijósverk
Ilmar Stefánsdóttur sín mun betur
en Gunnars Amars sem rétt grillti
í þá stundina en er mjög áhugavert
á mynd í skránni. En þama inni
náðu ástþrangnar fígúrmyndir
Magðalenu Margrétar góðu flugi. í
heildina litið má segja að framtakið
hafi gengið upp miðað við stuttan
undirbúningstíma og munar þá
mestu um útiverkin, en væri ekki
hugmynd að setja sýninguna upp á
höfuðborgarsvæðinu, í húsakynn-
um og umhverfi þar sem öll verkin
nytu sín nokkum veginn til jafns,
hefðu í að minnsta jafna mögu-
leika..?
-Að sjálft rýmið skipti máli varð-
andi innsetningarverk er sýningin í
göngum Laxárstöðvar með sóma
og sann til vitnis um. Aðkoman
hrikaleg, göngin sprengd inn í
bergið og era hin myndrænustu
hvert sem litið er jafnvel svo að á
stundum er manni um og ó, þýðir
þar lítið að fara í samkeppni við
náttúrana sem er hinn óumdeildi
meistari í smíð sinni. Hér era ís-
lenzkir listamenn með sitthvað í
lúkunum sem erlendir eiga ekki og
ber að gefa meiri gaum. Lista-
mennirnir átta, sem eiga þar verk
þannig í allt annarri og þakklátari
aðstöðu en hinir á Ljósafosstöð, að
maður segi ekki öfundverðri. Rým-
ið virðist hafa togað í þá á alla
vegu, veitt þeim innblástur til svip-
mikilla athafna og gefið þeim hinar
fjölþættustu hugmyndir til út-
færslu. I raun vora þeir í sam-
keppni við rýmið, en hana af þakk-
látara taginu, þar sem hver viðbót
varð að lífi, einungis mismunandi
áhrifamiklu. Innan handar að
skrifa heilsíðugrein um áhrif hvers
eins verks og umhverfi þess, á
stundum hafði umhverfið sjálft
vinninginn eins og risastór kring-
lótt loka (túba), sem leit út sem
hnitmiðað manngert listaverk, en
markar þó einungis hagnýtt gildi.
Upphaf að framkvæmdum sem
náttúravemdarmenn í héraðinu,
með Þorgrím Starra í fararbroddi,
stöðvuðu á sínum tíma eins og
frægt er. Kjarni allra dyggða telst
að ganga ekki lengra en undirstað-
an þolir, líf og náttúra leyfir.
Það er öðru frekar hugkvæmnin
og fjölbreytnin er við blasir sem
heillar, hvoratveggja gerð marg-
brotinna bergganga, sem og við-
bótarinnar frá hendi listamann-
anna. Ég bið einungis væntanlegan
skoðanda að ímynda sér ef hér
hefði stöðluð hugmynd ráðið för en
ekki hugarflug hvers listamanns
fyrir sig. Þótt augljósra áhrifa að
utan gæti að sjálfsögðu í sumum
verkanna, eins og t.d. Anselms
Kiefers í hinum hrifríka framníngi
Kristínar Jónsdóttur frá Munka-
þverá, öðlast þau merkilegt sjálf-
stæði þarna inni og hver listamað-
urinn á fætur öðram afhjúpar á sér
nýja hlið. Þannig er rneiri og óræð-
ari dýpt í verki Kristínar en Kief-
ers, og það er mikið annað að hafa
þetta umhverfi sér til fulltingis en
kalda veggi listasafnanna og svo
nægir listakonunni ekki sagan ein,
heldur stílar á framtíðina sem er
að sjálfsögðu viðbót.
Verkið er lýsandi dæmi um
vinnubrögðin, en allir hafa lista-
mennimir drjúgan sóma af fram-
lagi sinu sem og listfræðingurinn
og lisheimspekingurinn sem fengn-
ir vora til að fylgja verki eftir á
báðum stöðunum. Þá hefur
Landsvirkjun ómældan sóma af
sínum hlut og geta ber að stuðn-
ingsaðilar vora; Byko, bygginga-
vöraverslun, Hringbraut, Tré-
smíðaverkstæði Guðmundar,
Norðlingabraut, Blindrafélagið
Hamrahlíð, Japis Brautarholti,
Studio 12, Ljósmyndaver Marisu
Arason, en hún tók allar myndir í
hina vel hönnuðu skrá. Þetta era
sýningar sem fæstir sem leið eiga
um mega láta fram hjá sér fara,
einkum hljóta hrikaleg og mynd-
ræn göng Laxárvirkjunar, í bland
við undirheima, að verða hverjum
og einum eftirminnileg.
Bragi Ásgeirsson