Morgunblaðið - 15.08.2000, Síða 42

Morgunblaðið - 15.08.2000, Síða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2000 MINNINGAR MORGUNB LAÐIÐ Kurteisi til sölu „Jú,jú, þetta varsvo sem ágætsýning. En það ergreinilegt að ekkertykkar kann að beita hnífapörum. “ / Aframhaldsskólaárum mínum lék ég einu sinni í gamanleikriti sem gerðist á ensku sveitasetri. Einn þáttur leiksins fór fram við há- degisverðarborð fjölskyldunnar þar sem við snæddum soðinn fisk milli þess sem við fórum með samtölin. Að frumsýningu lokinni kom til okkar skorinorður ensk- ukennari skólans og mælti: „Jú, jú, þetta var svo sem ágæt sýn- ing. En það er greinilegt að ekk- ert ykkar kann að beita hnífapör- um.“ Eftir Sigur- björgu Þrastardóttur Fákunnátta okkar í borðsiðum hafði sem sagt truflað hann alla sýninguna og skyggt á gleðina sem af gamanleiknum átti að hljótast. Við unglingarnir brost- um að smámunasemi okkar ágæta kennara, enda skildum við UIAUAOE ekki bráða VRInUlir nauðsynþess að kunna skil á óskrifuðum reglum sið- menningar- innar. Og skiljum kannski ekki enn. Sum okkar hafa þó lært hand- brögðin með árunum, en fyrir okkur hin sem eftir sitjum er lausn nú í sjónmáli. Mannasiðir eru nefnilega orðnir blússandi söluvara úti í hinum stóra heimi og með aðstoð bóka, myndbanda og kvöldnámskeiða má nú nema allt sem máli skiptir í meðferð hnífapara, glasa, munnþurrkna og annarra hluta sem halda ver- öldinni gangandi. Að ekki sé minnst á kurteisishjalið sem nú er hægt að læra nánast utanað heima hjá sér áður en mætt er í matarboð. Bækur á borð við The Times Book of Modern Manners og Debrett’s New Guide to Etiq- uette & Modern Manners eru meðal nýútkominna breskra handbóka um góða nútímahegð- un ogvefsíðan EtiquetteS- ource.com er dæmi um banda- ríska útgáfu á sama sviði. Ótal skólar um allar jarðir bjóða leið- sögn í framkomu og góðum sið- um, auk þess sem á markaði finn- ast kennslumyndbönd í borðsiðum, félagslegum form- legheitum og almennum sam- skiptum - m.a. frá fyrirtæki sem heitir því hallærisnafni Manners 2000. Það er ekki síst í athafnalífinu sem námskeið og handbækur af nefndum toga blómstra. Mikil- vægi ímyndar fer sívaxandi í við- skiptum og því eins gott að starfsmenn verði hvorki sér né fyrirtæki sínu til skammar á fundum eða í veislum. Sama gild- ir um sölumenn í heimahúsum, verslunum og sjónvarpskringlum - þeir verða að kunna allar réttu reglurnar til þess að geta kjaftað sig nógu kurteisilega inn á gafl hjá fólki. Með sífellt flóknari samskiptaleiðum - svo sem tölvu- pósti, myndsímum, talhólfum og farsímum - verða líka til nýjar hegðunarreglur sem nauðsynlegt mun að kynna sér. Vissulega er það skrýtin stað- reynd að á Netinu sé að finna leiðbeiningar um hvernig maður eigi að hegða sér í biðröð, kjör- búð eða í lyftu - jafnvel fyrirmæli um hversu mikið ilmvatn/ rakspíra maður skuli setja á sig fyrir viðskiptafund. Meiri akkur hlýtur að vera í leiðbeiningum sem varða framandi hefðir, svo sem japanska borðsiði, indverska viðskiptahætti eða amerísk kvöldverðarboð í heimahúsum, sem finna má víða á Netinu. Það er nefnilega þannig að „siðaregl- ur eru vegvísar sem miða að því að viðurkenna og virða aðra ein- staklinga, menningarsvæði og hefðir" eins og segir réttilega á amerískri heimasíðu undir yfir- skriftinni Mannasiðir á heims- vísu. Almennri þekkingu fólks á kurteisisvenjum virðist hafa hrakað á síðustu áratugum, sem skýrir víst eftirspurnina eftir leiðsögn nú. Sérfræðingar halda því fram að því frjálslegri sem samfélagsgerðin sé, því meiri þörf virðist á ráðgjöf um rétta hegðun. „Sá sem býr í „ströngu" þjóðfélagi, lærir þessa hluti strax í bernsku," var nýlega haft eftir Jacqueline Fraser, eiganda siða- regluskóla í London, í The Sun- day Times. Hún bætti við að því minni stéttaskipting sem væri í samfélaginu, því óöruggara væri fólk þegar kæmi að félagslegum siðvenjum. Samkvæmt þessu ætti að vera mikil þörf á formlegri tilsögn í siðvenjum hér á landi, og gott ef það er ekki hárrétt. í það minnsta er agaleysi áberandi á ýmsum sviðum íslensks þjóðlífs, sem hlýtur að skrifast á skort á hegðunarviðmiðum eða leti fólks við að fara eftir þeim. Nægir að taka sem dæmi skemmtanah'f landans þar sem allt logar í óreiðubáli, troðningi og stjórn- leysi í stað biðraða, hófsemi og kurteisi. Úr skólum berast þær sagnir að nemendur hafi kastað fyrir róða virðingu fyrir kennur- um og öðrum fullorðnum en vaði þess í stað uppi með munnsöfnuði og þjósti. Þetta mun ekki síður vera vandamál í grunnskólum en framhaldsskólum, að sögn kunn- ugra. Þá er ónefnd skemmdar- fýsnin sem sumir kjósa að taka út á bifreiðum, listaverkum og mannvirkjum, en slík meðferð á eignum annarra lýsir sorglegum skorti á virðingu og kurteisi. Af- leiðingarnar verða svo enn al- varlegri þegar agaleysið teygir sig inn á svið þar sem beinlínis er lífsnauðsynlegt að reglum sé fylgt. Nærtækasta dæmið er um- ferðin, en þar getur agaleysi valdið óbætanlegum skaða eins og alltof mörg dæmi sanna. Kannski er í sjálfu sér allt í lagi að sötra súpuna sína í kvöld- verðarboði eða troðast inn í lyftu áður en aðrir ná að stíga út úr henni. Og kannski er líka hégóm- legt að eltast við reglur um hvernig beita skuli hnífi og gaffli. En einhvers konar rammar og reglur hljóta þó að vera nauðsyn- leg í samfélagslegu uppeldi, þótt ekki sé til annars en að temja ein- staklingnum sjálfsaga og þroska til þess að taka þátt í sambúð við umheiminn. Ef agi er þjálfaður í smærri atriðum daglegs lífs frá byrjun hlýtur hann að verða sjálfsagður í víðara samhengi seinna meir. Slíkt uppeldi miðar að því að koma í veg fyrir þá hættu sem af óstjórn getur stafað og eflir um leið gagnkvæma virð- ingu milli einstaklinga og ólíkra menningarsvæða. GUÐRUN ARNALDS + Guðrún Amalds fæddist í Reykja- vík 28. júlí 1919. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík hinn 1. ágúst siðastliðinn. Foreldrar hennar voru: Hrefna Lárus- dóttir, f. 29.3.1893, d. 25.6. 1928 og Hall- grímur Axel Tulinius, f. 14.2. 1896, d. 6.3. 1963. Systkini Guð- rúnar voru: Axel Valdimar Tulinius sýslumaður, f. 4.4. 1918, d. 26.1. 1976; Málfríður Tulinius húsmóðir, f. 11.2. 1926, d. 3.3. 1979. Hálfbróðir samfeðra: Hrafn Tulinius læknir, f. 20.4. 1931. Uppeldisbróðir: Hag- barður Karlsson forstjóri, f. 4.12. 1913, d. 28.3.1971. Guðrún giftist hinn 8.8. 1942 Þorsteini Amalds, fv. fram- kvæmdastjóra Bæjarútgerðar Reykjavíkur, f. 24.12. 1915. Börn þeirra: 1) Hrefna framhaldsskóla- kennari, f. 5.4. 1943, gift Sigurði Gils Björgvinssyni hagfræðingi. Þeirra böm em Björgvin sagn- fræðingur, f. 17.9. 1971 og Guðrún Sesselja, nemi í Kennaraháskólan- um, f. 12.11. 1977. Björgvin er í sambúð með Bjamheiði Margréti Ingimundardóttur hjúkrunarfræð- ingi, f. 2.9. 1972. Bam þeirra er Látin er í Reykjavík tengdamóðir mín, Guðrún Amalds, nýlega orðin 81 árs. Aðrir munu geta rakið lífsferil Guðrúnar betur en ég en sá atburður sem án efa hefur haft mest áhrif á lífs- feril hennar er að missa móður sína þegar hún var m'u ára gömul. Á sólríkum vordegi í maí 1928 var fjölskyldan í bifreið á leið til þess að vígja nýjan sumarbústað í Rauðhól- um. Á leið þangað varð skelfilegt slys og Hrefna Lárusdóttir, móðir Guð- rúnar, lét lífið. Síðar um daginn var fáni dreginn í hálfa stöng við Gimli, hús fjölskyldunnar við Lækjargötu. Vinir, sem íyrr um daginn höfðu sam- glaðst og næstum öfundað vinkonu sína vegna sumarbústaðarins nýja, samhryggðust. Þennan dag varð þessi unga og áhyggjulausa stúlka fullprðin. Ég kom íyrst á heimili tengdafor- eldra minna, Þorsteins og Guðrúnar, að Barmahlið 13 um jólin 1965. Ég var þá í fylgd með Ara, syni þeirra, sem ég giftist síðar. Ég man að mér var tekið af mikilli ljúfmennsku en ég kynntist þeim hjónum betur síðar. Fyrstu árin eftir að við Ari giftum okkur dvöldum við erlendis við nám en bjuggum í kjallaranum í Barma- hlíðinni í sumarleyfum. Ég kynntist þeim hjónum því töluvert á þeim ár- um og enn betur síðar þegar við kom- um heim frá námi í árslok 1973. Sam- fylgd okkar Guðrúnar, sem aldrei hefur borið skugga á, hefur því staðið í 35 ár. Ég sá stax að Guðrún var hæglát kona og ákaflega umburðar- lynd en hún gat líka verið ákveðin. Hún hafði mjög ákveðnar skoðanir á þjóðmálum og fylgdist vel með því sem gerðist heima og erlendis. Um- ræðumar í eldhúsinu í Barmahlíðinni voru því stundum mjög líflegar þegar allir voru heima á sumrin. En það sem mér finnst einkenna líf Guðrúnar framar öðru er samúð hennar með öðrum. Hún virtist alltaf hafa nægan tíma til þess að hugsa um annað fólk. Ef einhver var veikur eða eitthvað bjátaði á var hún alltaf reiðubúin til þess að koma til hjálpar. Öll aðstoð var veitt af umhyggju, elskusemi og ræktarsemi. Ef til vill má rekja þessa eiginleika til þess atburðar er hún missti móður sína á unga aldri og tók á sig mikla ábyrgð þrátt fyrir ungan aldur.Á námsárum okkar Ára í Liver- pool sendi Guðrán okkm- blöð og bækur til þess að við gætum fylgst með þjóðmálum á íslandi. Skemmti- legasti pakkinn sem við Ari fengum sendan til Englands á þessum árum var þó án efa ijúpur um jólin 1967 þegar við vorum nýgift. Rjúpumar bárust eftir. einhverjum dularfullum Þorgils Bjöm, f. 21.11. 1997. Guðrún Sessejja er í sambúð með Sigur- jóni Emi Steingríms- syni, nema í Tækni- skólanum, f. 3.11.1977. 2) Ari verkfræðingur, f. 15.12. 1944, kvæntur Sigrúnu Helgadóttur tölfræðingi. Þeirra böm em Þorsteinn verkfræðingur, f. 5.9. 1972 og Guðbjörg Halla menntaskóla- nemi, f. 24.2. 1982. 3) Hallgrímur verkfræð- ingur, f. 4.5. 1956, kvæntur Helgu Eyfeld viðskipta- fræðingi, f. 24.8. 1958. Þeirra börn em Herdís Helga, f. 30.9. 1988, Guð- rún, f. 15.11. 1992 og Erla Kristín, f. 20.6. 1998. Dóttir Helgu af fyrra hjónabandi er Hildur Bergmann. Guðrún lauk stúdentsprófi frá máladeild Menntaskólans í Reykja- vík 1937. Stundaði síðan nám í ensku og þýsku við Kflbenhavns Translat- flrskole og lauk þaðan prófi eftir tveggja ára nám. Síðar stundaði hún einnig nám í spænsku við Háskóla ís- lands. Guðrún réð sig til starfa hjá fyrirtækinu Bemhard Petersen og starfaði þar í tæp 50 ár eða til ársins 1988. Útför Guðrúnar fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfn- in klukkan 13.30. leiðum með togara um Grimsby eða Hull og þaðan til Liverpool. Með fylgdi langt bréf með nákvæmum leiðbeiningum um hvemig ætti að hamfletta og matreiða rjúpumar. Ég hafði að vísu borðað rjúpur áður en aldrei séð þær eldaðar. En leiðbein- ingamar vom svo nákvæmar að mér tókst að útbúa glæsilega rjúpnamál- tíð á aðfangadagskvöld um þessi jól. Eftir að fjölskyldan flutti aftur til ís- lands urðu samverustundimar fleiri og reglulegri og ijúpnamáltíðimar á aðfangadagskvöld í Barmahlíðinni urðu að föstum kð. Þá eldaði amma sjálf eftir kúnstarinnar reglum og hún sá alltaf til þess að öll bamaböm- in fengju möndlugjöf. Guðrán mun hafa haft hug á að stunda nám þegar hún var ung. Einu sinni sagði hún mér að sig hefði langað til þess að læra geðlækingar. Það var dæmigert fyrir hana að vilja læra eitthvað sem kæmi öðrum að gagni. Ýmislegt mun hafa orðið til þess að Guðrán gat ekki sinnt þessari köllun sinni. Þau hjón dvöldu um skeið í Kaupmannahöfn við nám og störf en stríðið batt enda á þá dvöl. Svo fór að Guðrán stundaði skrifstofustörf alla sína starfsævi. En hún las alltaf mjög mikið og fylgdist vel með. Hún var oft búin að lesa jóla- bækumar fyrir jól. Undir lok starfs- ævinnar stundaði Guðrún um skeið spönskunám við Menntakólann við Hamrahlíð og við Háskóla íslands. Náminu sinnti hún af áhuga og alúð eins og öku öðm sem hún tók sér fyrir hendur. Þorsteinn og Guðrán ferðuð- ust mikið alveg frarn á síðustu ár. Þau ferðuðust víða um Evrópu og mikið um Island. Ásamt nokkrum öðmm kom Þorsteinn upp ktlu veiðihúsi í Þjórsárdalnum og þar dvöldu þau oft á sumrin. Elstu bamabömin nutu þeirra forréttinda að fá að dvelja þar með þeim. Og þá var nú ýmislegt brallað sem foreldramir vissu sem minnst um. Guðrán hafði alla tíð mik- ið yndi af litlum bömum. Þegar ktla stúlkan okkar fæddist man ég hvað Guðrán varð glöð þegar hún hélt á henni í íyrsta sinn og sagði að það væri svo góð lykt af litlum bömum. Seinna þegar sjúkdómurinn, sem leiddi hana til dauða, hafði náð tökum á henni veittu ktil böm henni hvað mesta ánægju. Andktið Ijómaði þegar lítil böm vora nærri. Við voram svo heppin að geta haldið upp á áttræðis- afmælið hennar á heimik okkar í fyrrasumar og eiga með henni stund heima um síðastliðin jól. Og þá vora það litlu bömin sem vöktu mesta hrifningu.Það er átakanlegt að sjá ástvin sinn verða hræðilegum sjúk- . dómi að bráð og að sjá þessa gáfuðu og glæsilegu konu missa smám sam- an tök á lífi sínu. En alltaf var hún jafnljúf og tókst á undraverðan hátt að halda reisn sinni til hins síðasta. Nú þegar ég kt yfir árin mín með Guðránu er mér efst í huga þakklæti fyrir allt það góða sem hún gaf okkur. Það var alltaf svo bjart yfir henni. Ég er sannfærð um að sókn mun ætíð skína á hana hvar sem hún dvelur. Fyrir hönd fjölskyldunnar langar mig til þess að færa starfsfólkideilda L1 á Landakoti og A3 á Hrafnistu innileg- ar þakkir fyrir þá góðu hjúkran sem Guðrán naut síðasta árið og fyrir ein- staka nærgætni í hennar garð. Sigrún Helgadóttir. „Það var gæfa mín að giftast henni Göju.“ Þannig orðaði Þorsteinn mág- ur minn oft hug sinn til konu sinnar og þeim sem til þekktu blandaðist ekki hugur um að það vora orð að sönnu. Traustari lífsförunaut hefði hann ekki getað kosið sér. Þó stund- um bryti á skeijum, eins og gengur, var hún ávallt kletturinn sem haggað- ist ekki, hæglát, réttsýn og einstak- lega geðpráð, enda ávann hún sér ást og virðingu allra sem kynntust henni. Guðrán gekk í Menntaskólann í Reykjavík og brautskráðist þaðan stúdent 17 ára gömul. Það sýnir hve hún var bráðger og óvenjulega skarp- greind. Síðan lá leiðin til Kaupmanna- hafnar til framhaldsnáms í dönsku og þýsku. Hún var ekki ein í för því að þá voru þau Þorsteinn, skólabróðir hennar og samstúdent, búin að opin- bera trúlofun sína og hann fór einnig utan til náms, í endurskoðun. Siðgæð- is þess tíma var þó gætt með því að þau bjuggu þar ekki undir sama þaki. Heimsstyrjöldin síðari varð til þess að binda endi á námsferil unga fólks- ins í Danmörku og þau komu heim með Esju frá Petsamo eins og margir aðrir Islendingar. Menntunin nýttist þeim þó báðum vel. Guðrán stundaði eftir það talsvert tungumálakennslu og þótti afbragðs kennari. Síðar á æv- inni ferðuðust þau hjónin um flest lönd Evrópu, en Danmörk skipaði jafnan sérstakan sess í huga þeirra, þar fannst þeim eins og að koma heim. Þegar ég kynntist Guðránu fyrst bjuggu þau Þorsteinn í leiguíbúð á Blómvallagötu en skömmu síðar eign- uðust þau íbúðina í Barmahh'ð 13 sem var heimili þeirra æ síðan. Það var erfiður hjalh að koma sér upp þaki yf- ir höfuðið þá, ekki síður en nú, og Guðrán réð sig í vinnu á skrifstofu hjá Bemhard Petersen til að afla tekna. Þar starfaði hún með litlum hléum til sjötugsaldurs og naut mikils áhts. Éigendur fyrirtækisins mátu fæmi hennar og dugnað að verðleikum. í þá daga var fremur fátítt að giftar konur ynnu úti, sem kallað er, en Guðrán taldi það sjálfgefið að konan legði fram sinn skerf til að sjá heimilinu farborða og augljóst var að Þorsteinn gerðist liðtækari við heimilisstörf en títt var um karlmenn af hans kynslóð. Þau leystu þessi mál þannig af skyn- semi og gagnkvæmri tillitssemi áður en Rauðsokkahreyfingin hóf upp raust sína. Oft var gestkvæmt á heimilinu í Barmahlíð og vinir og ættingjar vora þar ávallt velkomnir. Guðrún og Þor- steinn vora bæði afar gestrisin og greiðvikin og hjálpsöm með afbrigð- um. Mikill samgangur var á milh heimila okkar, enda var mjög kært með þeim bræðrum öllum, Einari, Sigurði og Þorsteini, sem nú er einn þeirra á lífi. Mér er minnisstætt sumarið sem við Göja dvöldum saman í sumarbú- staðnum við Álftavatn með yngstu drengina okkar, hún með Hallgrím á 1. ári. Það var framstæður og skemmtilegur búskapur í nánum tengslum við náttúrana. Þar voru engin nútíma þægindi, ekki rafmagn, ekki rennandi vatn, kolakynding - og engar pappírsbleiur. Einnig minnist ég margra ánægjustunda með þeim Þorsteini austur í Þjórsárdal þar sem þau áttu sér athvarf. Ógleymanlegust era samt ferðalög með þeim um land- ið. Þau bjuggu að mikilli reynslu í þeim efnum og vissu jafnan hvar besta tjaldstæðið var að finna á hveij- um stað, hvort sem það var uppi í Hjörleifshöfða, austur á Héraði eða í Öræfunum. I Skaftafelh tjölduðum við t.a.m. að þeirra ráði á grasræm-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.